Morgunblaðið - 20.09.1925, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.09.1925, Blaðsíða 5
Aukabl. Morgbl. 20. sept. ’25. 3! 0 UNBLAÐIÐ 5 \ 11 Er næringarmest, bragöbest, örýgst og óöýrust eftir gæöum. íslensk þjóðlög. Brot úr ræðu, eftir Jón Leifs. Síðastliðinn laugardag flutti Jón j Vjer lítum svo á, að br. Jón Leifs tónskáld, ásamt konu sinni, j Leifs og kona hans, hafi með þess- hijómleik fyrir nokkra menn hjer j um merkilega hljómleik, í bænum. Hljómleikurinn var ekki j viljað komast að raun um, hvort fluttur opinberlega heldur fslendingar þektu sína eigin tón- á heimili Einars Benediktssonar list eða vildu við hana kannast, sikálds. — Auk vina og vanda- þó að hvergi væri að því vikið. manna þeirra hjóna var nokkrum Þeir, sem vjer höfum hitt, og þar blaðamönnum, sönglistarinöfnnum voru, hafa allir lokið upp einum o. fl., boðið að vera þar og var munni um, að hljómleikur þessi því boði vel tekið. 1 hafi verið fagur og algerlega sjer- Jón Leifs. Ræða sú, er birtist hjer, var fiutt á undan hljómleiknum, en á hljómleiiknum sjálfum vorú flutt r 25 alíslensk þjóðlög auk tónsmíða eftir Jón Leifs sjálf- an og nokkra erlenda listamenn, og tilgangur hljómleiks þessa var sá, að kynna oss hina þjóðlegu tónlist í hreinni mynd. Þetta er merkisatburður í sögu íslenskar tónlistar. Lögin voru tvísöngslög, sálma- lög og rímnalög útsett fyrir forte- píanó af Jóni Leifs og leikin af mikilli list og næmum skilningi af þeim hjónum báðum. „ísland far- sælda frón“, „Alt eins og blóm- strið eina“ o. m. fl., var frábær- lega tilkomnmikið og fagurt. Vals og Rímnakviða, með íslenskum sjereinkennum, en útsett í klass- ískum stíl, hafði einnig mjög góð áhrif á áheyrendur og alveg sama er að segja um rímnalögin. Þar hittu menn gamla kunningja í óvenjulegum en mjög fögrum bún- ingi. stæður og snortið hjörtu manna. Enda mætti furðulegt heita, ef svo væri eigi, með þeim lifandi skiln- ingi og sannfæringarkrafti, sem þessi alíslenska list var flutt. Ræðan. Jeg skal leyfa mjer að gera grein fyrir því í stuttu máli, hvernig þjóðlögum vorum er hátt- að. Mest ber á þrem tegundum, tvísöngnum, rímnalögunum og sálmalögunum, eða öllu heldur söngaðferð sálmalaganna. Tvísöngurinn er jafn gamall og tungan, sem við tölum og af sama uppruna. Hann er skyldur þeirri söngtegund, sem var fyrsta til- raun til margraddaðs söngs og lærðir menn nefna „organum". Þessi tilraun var fyrst einmitt gerð í norð-vestur-Evrópu, og tíðkaðist tvísöngurinn þar á vík- irigaöldinni. Fyrstu sögur hafa hienn af tvísöng á íslandi á þrett- ándu öld. Það skiftir litlu máli hvort hann fluttist þangað með fyrstu landnámsmönnum eða síð- ar. Staðreynd er að menn geta ekki fremur neitað því að tví- söngurinn sje íslenskur, en því, að íslenskar sjeu fornbókmentir vorar og málið, sem sumir vilja heldur nefna fornnorrænt. Hvort- tveggja er einmitt alveg hlið- stætt og náskylt og gildir hið sama um önnur ómenguð þjóð- lög vor. Eins og menn vita, er það eiginlegt íslenska tvísöngn- um að sungið er í fimmundum og að „farið er upp“, venjulega í seinni helming lagsins, þ. e. önn- ur röddin stekkur þá upp yfir hina. Einmitt þetta, að fara upp, er mjög áhrifamikið og má segja að líkt sje sem „skíni af sverði sól valtíva“. Það má geta þess, að í tvísöngnum ber svo mikið á því, þegar upp er farið, að radd- irnar verða elkki aðskildar án þess að frumeðlið ra\kist til muna. Einnig hygg jeg að í uppskrift sumra tvísöngslaga sje frumeðlið farið að raskast, þar sem þríund- ar hljómum er bætt í og ekki er farið upp á þann sjerkennilega hátt, sem t. d. birtist í laginu „ísland farsælda frón“. Ekki verður heldur sagt um það með vissu hve gömul rímna- lögin eru. Sumir halda því fram að þau sjeu aðeins fárra alda gömul, en aðrir álíta að þau sjeu jafn gömul tungu vorri og að rímnakveðskapur nú sje sama tegund flutnings og notuð var er fornskáldin fluttu kvæði sín eða kváðu vísur. Eftirtektarvert er að sama orðið er notað enn um það þegar rímur eru fluttar. Menn segja ávalt að „kveða rím- ur“ og fornmenn sögðu: „Þá kvað Egill við rauát“. Rímna- lögin eru heldur ekki eiginlegur söngur eins og t. d. tvísöngurinn, heldur eru þau nokkurskonar tónfallandaleikar. Taktfallandinn, eða rjettara sagt áherslufalland- inn, sem er mjög breytilegur, er aðaleinkenni rímnalaganna. Rykk- ir eru notaðir til þess að herða á áherslunum. Þet'ta einkenni er náskylt tungu vorri og hliðstætt henni. En rímnalögin hafa einnig verið kveðin við dans, líklega á uudan vikiyökunum, og felst í því einnig skýring á fallanda- einkennunum. Fallandinn í dans- lögum Færeyinga er dálítið líkur, en þÖ er rímnafallandinn frum- legri og eflaust eldri, en allar eru þessar athuganir algerlega hliðstæðar öðrum gangi sögunnar. Yjer höfum einir geymt hið frum- norræna eðli í máli, bókmentum Mnnið ; þessu esrts innlenda fjelagð Þegar þjer sjó- og bruna- tryggi Simi 542. Pósthólf 417 og 574. Simnefnis Insurance. Telefnnken-lampar Amatörar og aðrir víðboðstækjaeigendur, Fyrirliggjanöi R.E. 97—0,6 Amp. —3,5 Volt R.E. 78—0,06 - -2,5 - R.E. 83—0,2 - -0,2 - R.E. 75—0,09 - —1,5 - R.E. 11W.0,530 — —) lampar í loftskeytastöðvar. R.E. IIS.0,580 — —) Loftnetavír 7x7x0. N.B. R.E. 75, eru notaðir í stað Philippsl. A. 110. Lægst verð, bestar vörur. Hjalti Bjðrnsson öt Co. Reykjavlk. Símar 720 & 1316. m aa= liMiMHttBHmiiBmiiiMiittiHiMifflHiMmiiiiiiiiiiiiniiHimimMiiiiBiiiiiiiiiiiiiniBng | Kaupið eingöngu H NIÐURSUÐUVÖRUR 1 lH frá |H 1 A.S. De danske Vin- & Konserves Fabr. m Kaupmannahöfn. ■ 1. D. Beauvais & Rasmussen Húsmæður sem einu sinni hafa reynt BEAUVAIS- saa vörur kaupa ekki aðrar niðursuðuvörur. = raa O. johnson & Kaaber. j§ ■IIIIIIIM^^ Illlllll 3 herbergi (2 geta komið til greina), og eldhús óskast I. október eða strax. Fyrirfram greiðsla. Upp- lýsingar á skrifstofu O. Johnson & Kaaber. j og öðrn listarefni, sem vjer þnrf- j um þó að endurreisa, en í sem I hreinastri mynd. Minst hefi jeg kynst sálmalög- unum og söngaðferð þeirra. Þó hefi jeg heyrt nokkuð úr hljóð- ritara, t. d. „Alt eins og blómstrið eina“ með „gamla laginu“. Er mjer næst að halda. að söngteg- nnd þessi sje einmitt listflutn- ingur, sem útheimtir mjög þrosk- aða heyrn. Þar sem sönglínan smýgur yfir 4 til 5 tóna og milli- tóna á einu atkvæði, er um mik- inn fínleik í söngnum að ræða. Slík söngaðferð er anðvitað hreinn náttúrusöngur sem í eðli sínu e# óskyldur Evrópusöng síð- nstu alda. Menn hafa haldið því fram, að íslensk þjóðlög eigi að miklu leyti rót sína að rekja til hina „gregorianska söngs“, sem inn- leiddur var í katólska kirkju á 6,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.