Morgunblaðið - 24.09.1925, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
3 1
morgunblaiii.
sjíofnandl: Vllh. Flnaon.
ÍTtBefandi: FJelae I Reykjvrtk.
Slitetjdrar: J6n Kjartaneaoc,
ValttT Btef&naaos.
AnBlyaingaatJörl': E. Hnfbere.
Bkrifatofa Austurstrætl 8.
Btraar: nr. 4S8 og 600.
AUKii'olngaskrlfat, nr. 700-
$2»i®mnímar: J. Kj. nr. 741.
V. St. nr. 12S0.
K. Hafb. nr. 770.
ÁakrlftagJald Innanlands kr. 2.00
á. mánuBI.
Utanlands kr. 2.60.
S laaoaaölu 10 »u™ elnt.
ORLENDAR SÍMFREGNIR
Khönf 22. sept, ’25. FB.
YfirráSin yfir Mosul.
Símað er frá Genf, að Mosul-
málin verði ekki til lykta leidd á
>essum fundi, vegna ískyggilegs
útlits. Tyrkir hafa óbeint hótað
því að hefja styrjöld, fái þeir
•ekki yfirráðin að fullu í sínar
hendur. Framkvæmdarráð Al-
þjóðabandalagsins ætlar að leita
álits Haagdómstólsins um ýms at-
riði.
Bandaríkjaforseti hvetur til
rólyndis í skuldamálunum
við Frakka.
Símað er frá Washington, að
"Coolidge forseti aðvari blöðin og
áminni þau um að ræða skuldamál
Frakka og Bandaríkjamanna ró-
lega og án illinda í garð Frakka.
Skuld Frakka er nú samtals 4y2
miljarðar dollara.
Kröfur þýskra þjóðernissinna.
Símað er frá Berlín, að flokks-
brot þýskra þjóðernissinna í Ham-
borg, hafi gert fundarsamþykt, og
lýsi í henni yfir óánægju á utan-
ríkismálameðferð Stresemanns. —
Skorar flokksbrotið á þingflokk
sinn, að neita að talka þátt í um-
ræðum á fundum umsímaðrar ör-
yggismálastefnu, nema Banda-
menn afturkalli, að Þýsltaland eigi
sök á því, að styrjöldin mikla
braust út, setuliðssvæðið verði ger
samlega frígefið og Bandamenn
takmarki vígbúnað allan í hlut-
falli við Þýskaland.
(
Khöfn 23. sept. ’25. FB.
Ný aðferð til þess að framleiða
vínanda.
Símað er frá Rómaborg, að ný-
lega hafi verið fundin upp aðferð
til þess að framleiða vínanda úr
gufu af brauðum í bakstri.
Símað er frá Berlín, að þýskt
fjelag bafi keypt einkarjett á
þessari ítölsku uppgötvurl
Síbería sjerstakt lýðveldi?
Símað er frá Moskwa, að ráð-
stjórnin liafi t buga, að gera. Sí-
beríu að sjerstöku lýðveldi. Tsc-
hitcherin er að batna lasleikinn.
Óánægja í Englandi yfir Mosul-
málinu.
Símað er frá London, að mikil
óánægja sje yfir því, að Alþjóða-
bandalagið afgreiddi ekki Mosul-
málið, þar sem báðir aðilar hefðu
iofað að hlýta úrskurðinum.
Sænskir jafnaðarmenn
og kommúnistar.
Símað er fra Stokkhómli, að á
nýaðstöðnum fundi kommúnista-
flokksins hafi verið ákveðið að
byrja aftur á samvinnu við social-
demokrata, þar sem samheldnin
sje nauðsynleg í baráttu þeirra.
Nefnd vár kosin til þess að semja
við leiðtoga socialdemokrata.
Sjera Ólafur Óiafsson fríkirkjupresfur
sjötugur.
Glaður og reifur og
með framtíðartrú, sem
m’argur æskumaður gæti
öfundað hann af, ber
síra Olafur þess engin
merki í viðtali, að hann
sje maður sjötugur að
aldn.
Fyrir fjörutíu og fimm
árum vígðist hanh til
Vogsósa, og þjónaði því
prestakalli í fjögur ár.
Það yar hvorki meira
nje minna en Strandar-
kirkja sjálf, sem var
kirkjan hans fyrstu 4
\rin. Og hann „vaf svo
heppinn" á fyrsta eða
öðru prestskapar ári
sínu, að geta orðið til
þess, að standa fyrir
viðgerð á kirkjunni —
Auðvitað rak allmikið
af viðnum, sem þurfti
til viðgerðarinnar. —
Gamalt fólk í Selvogi öfundaði
hinn unga prest af því að geta
byrjað prestskap sinn með því að
hlynna að hinni fornhelgu
Strandarkirkju.
„Hún er vön að borga fyrir
sig“, sögðu þeir sem fornfróðast-
ir voru þar svðra.
Síra Ólafur ,fór úr Vogsósum
að ‘Gúttormshaga í RangárraUa-
sýslu, þaðan að Arnarbæli í Olf-
usi, en um aldamótin fluttist hann
hingað til höfuðstaðarins
Meðan síra Ólafur var sveita-
prestur, var hann og sveitarhöfð-
ingi, eins og tíðkast hefir innan
íslenskrar prestastjettar.
Auk venjulegra prestsstarfa
hafði hann afskifti af ýmsum fram
faramálum, bæði sveitar sinnar og
þjóðarinnar. 1 þjóðmálum var
hann foringi sveitunga sinna, reit
hann í blöð og var eindreginn á-
hugamaður í mörgum velferðar-
málum, sem þá voru á dagskrá.
Alkunn eru afskifti hans af því,
hvernig farið er hjer með „þarf-
asta þjóninn“. Ókunnugra er það,
að síra Ólafur var meðal þeirra
manna, sem hrintu holdsveikra-
spítalamálinu áleiðis. Lengi mætti
ttlja ýms þjóðþrifamál, sem hann
hefir unnið að um dagana. Lið-
tækur var hann sveitungum sín-
um og sóknarbörnum hörmunga-
árið mikla 1897, þegar flestir
hrundu bæjirnir á Suðurlands-
undirlendinu.
Um aldamótin kom hann ti;
Reykjavíkur. Var um tíma rit-
stjóri Fjallkonunnar. En árið 1902
| var hann ráðinn fríkirkjuprestur
hjer í bænum. Því starfi þjónaði
hann í 20 ár með þeirri kost-
gæfni og alúð, sem almenningi
|hjer í bæ er kunnugt um.
154 atkvæðisbrerir menn voru í
fríkirkjusöfnuðinum er síra ÓI-
afur tók við honum. Er hann Ijet
af starfinu 1922, var söfnuðurinn
yfir 8. þús.A þessu tímabili fermdi
hann 1550 börn og gifti 1112 hjón.
Það hefir einn af fremstu
mönnum fríkirkjusafnaðarins sagt
þeim, sem þetta ritar, að það hafi
verið ómetanlegt lán fyrir frí-
kirkjusöfnuðinn hjer í bæ, að sr.
ólafur rjeðist prestur safnaðar-
ins fyrir 23 árum.
Margs er að minnast frá þess
um 20 árum fyrir sóknarbörn sr.
Ólafs hjer í bæ. Hjer verður eigi
reynt að rekja það. Hann hefir
alla sína prests'kapartíð verið leið
beinandi og hughreystandi vinur
og kennifaðir sóknarbarna sinna.
Hann hefir notið ástar og virð-
iugar í söfnuði sínum — verið
lánsmaður í starfi sínu, hvort sem
hann hefir sjálfur verið sinnar
lukku smiður, eða hin óranrisak
anlega forsjón með hinni óskeik-
ulu Strandarkirkju hefir átt sinn
þátt í að leiða yfir hann gleði og
gæfu fram á þennan dag.
Pólskir fangar brjótast
úr fangelsi.
Símað er frá Varsjávu, að 4001
fangar hafi sloppið út iir fangelsi
einu. Lögreglan eltir þá og hefir
drepið suma.
Frá Seyðisfirði.
Bátur ferst með 5 möpnum.
Seyðisf. 22. sept. ’25. FB
Vjelbátur, er var á siglingu inn
Berufjörð á laugardag, sökk svip-
lega. Var að Jioma úr skeljafjöru
í Hamarsfirði. Menn horfðu á
slysið úr landi. Þessir menn voru
á bátnum: Þórður Bergsveinsson,
Pjetur Stefánsson, Haraldur Auð-
unsson og tveir eldri synir Gísla
i Krossgerði, Ingólfur og Sigurður
Maður bíður bana af eitri.
Hjer ljest á mánudagsnótt Ket-
ill Bjarnason trjesmiður. Drakk
liann ca. 50 grömm af opíum 1
misgripum á mánudagskvöld .
DAGBÓK.
Duglegur múrari
óskast nú þegar til Vestmannaeyja.
Upplýsingar gefur í dag
Þórðun Sveinsson & Co.
Sími 701.
Að gefnu tilefni skal það tekid
fram, að einkunnarorð mín i verslunar-
málum:
Það besta er ætíð óðýrast,
hefir eitt firma h]er i bænum „tekið sjer
i munn“ i auglýsingum sínum An þess
að leita leyfis hjá mjer.
Reykjavik, 23. sept. 1925.
G. M. Bjðrnsson.
Innflutningsverslun og umboðssala
Það besta er setíð ódýrast.
I heildsölu: HESSHm
Bindngarn, Saumgarn, Merkiblek, Ullarballar, Pokar,
Fiskmottur, Fiskburstar og Trawltvinni.
L. Anðersen.
Símar: 642 & 842. Austuratræti 7.
Mikið úrval af klukkum og úrum
vel aftrektum. Loftvogir og allskonar silfur- og gullvörur.
Spyrjið um verð hjá mjer, áður en þið kaupið annarstaðar.
Sigur|>ór Jónsson.
Úrsmiður.
Smámunir lífsins, heitir ræða
eftir sjera Friðrik Hallgrímsson,
sem gefin hefir verið út sjerprent-
uð, en flutt var á 9. sunnudegi
eftir trinitatis. Útgefandi er Guð-
mundur Pálsson, og getur hann
þess, að verði þessari ræðu vel
tekið, hafi hann hugsað sjer að
gefa út fleiri ræður eftir ýmsa
presta landsins. En allur ágóðinn
á að renna til Elliheimilisins
Grund, og er því markmiðið gott
rneð þessari útgáfu.
Einkasali
fyrir ísland og Færeyjar óskast,
til að selja rottueyðingarmeðalið
„Ráttut.“
Umsóknir með upplýsingum,
sendist til
Berner d; Zetterström,
Faþrikanter, Göteborg,
Sverige.
Heiðabrúðurin, saga sú, er kom
í Morgunblaðinu næst á undan
þeirri, sem nú er í því, er nú
lcomin út sjerprentuð í vandaðri
og fallegri kápu, og kostar kr.
3,90. Sagan átti miklum vinsæld-
um að fagna meðan hún var að
koma hjer í blaðinu.
Piano.
Hljóðfæri frá Murdoch Mc.
Killop & Co. .Edinborg — kosr. i
hingað komin, með öllum kostnaði
kr. 1,275,00.
Til sýnis á Týsgötu 7, eftir kl.
8 á kvöldin.
Meðmæli fyrirliggjandi!
Komið og skoðið !
Umboðsmaður
V. Stefánsson.
Til Strandarkirkju frá Jóni krK
5,00, N. N. kr. 5,00 og N. N. kr*
2,00. -