Morgunblaðið - 07.01.1926, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
NammtOiii
Höfum fyrirliggiant)!:
Llbbys Tomato Catsnp
Allir þekkja „Libby“ og allir vita að „Libby‘
framleiða aðeins fyrsta flokks vörur.
Libbys Tomato Catsnp
er heiMsfræg.
Fiskbnrstar,
góð tegund en ódýr, fyrirliggjandi í heildsölu
Sími L. Andersen,
642. Auturstraat’ 7
Aðalumboðexnenn:
L Brynjðífsson & Kvaran.
Gerpúlver,
Eggjapúlver,
.... Kardimommur,
Sítróndropar,
Vanilledropar.
Efnagerð Reykjavíkur
Simi 1755.
Pappírspokar
lægst verð.
Herluf Clausen.
Simi 39.
Horft í andlit
Tryggva Þórhallssonar.
í fyrsta tbl. Tímans þetta ár,
skrifar ritstjórinn, Tryggvi, grein
arkorn, er hann nefnir „Horft um
öxl“.
Á greinin að vera einskonar yf-
irlit yfir viðburði liðna ársins hjer
á landi. En svo er nú sjónarsvið
Tr. Þ. þröngt, að hann kemnr
«ekki auga á annað en útúrsnún-
inga, fullyrðingar og ósannindi
sjálfs sín og þeirra Tímamanna.
Alt annað virðist hulið sjónum
þessa manns.
Á þessu þrönga sjónarsviði sjer
liann útúrsnúninga sína á skatta-
frumvarpi stjórnarinnar á síð-
asta þingi, sem bygðir eru á
sraunalega barnalegum reikningi.
Eeikningur er nú einusinni ekki
hin sterka hlið Tr. Þ.
• í fyrra gat hann ekki slysa-
laust deilt með tveimur — (sbr.
stærri og minni helminga); í ár
gleymdi hann öllum innflutningi
til landsins, er bann samdi grein-
ar sínar nm gengismálið. En í
Mnu margþvælda skattamáli beld-
ur hann því fram, að þegar fjár-
upphæð er deilt með þremur, og
þriðjungunum haldið til haga, þá
geti þeir samanlagðir eigi numið
hinni upprunalegu upphæð.
Þá minnir hann lesendur Tím-
ans á, að hann hafi oftsinnis á ár-
inu skýrt frá tekjum binnar fyrv.
tóbaks-einkasölu, án þess að minn
ast á, að ríkissjóði er nú sjeð fyr-
ir sömu tekjum með tollum.
Hann birtir stuttorðan útdrátt
úr f jarstæðum þeim, er hann hefir
sagt um varalögreglufrumvarpið,
með þeirri nýtilkomnu viðbót, að
togarahásetarnir hjer í Reykja-
vík hafi haft hng á því í liaust,
að fótumtroða landslög. Vafa-
laust hefir engum dottið þetta í
hug, fyrri en Tr. Þ. Hallbjörn og
Ólafur Friðriksson, sem báðir eru
menn nasvísir á fjarstæðnr, hafa
ekki nefnt það á nafn.
pegar hugmyndaflug Tr. Þ. er
komið í þessa háspennu, — sjer
hann sýnir. Sjer hann þá aftur-
,/undan sjer, að núverandi lands-
istjórn hafi ofsótt landbúnaðinn
og noti til þess m. a. atbeina
allra þeirra blaða, sem eru stjórn-
inni fylgjandi. Er Ræktunarsjóð-
urinn einn liður í ofsókninni á
hendur bændum!? Fer þá að verða
skiljanleg framkoma Tr. Þ. gagn-
'vart hinum nýstofnaða sjóði, er
hann reynir að gjöra stjórn hans
tortryggilega, og telja menn af
því, að kaupa jarðræktarbrjefin.
í sannleika einkennileg framkoma
hjá „bændablaðs“-ritstjóra!
Nú vill svo til, að einn af rit-
stjórum þeirra blaða, sem fylgja
londsstjórninni að málum, situr í
stjórn Búnaðarf jelags íslands, sv.o
„ofsóknin“, sem Tr. Þ. sjer í of-
sjónum sínum, ætti m. a. að hafa
þar bækistöð. M. ö. o. Búnaðarfje-
lag íslands ofsækir landbúnaðinn!
Skyldi lesendum Tímans ekki
finnast ritstjórinn byrja árið vel?
Þegar Tr. Þ. minnist á það, að
núverandi landsstjórn bafi það
efst á stefnuskrá sinni, að losa
þjóðina úr skuldunum, verður
hann alveg hamslaus af gremju.
Fyrir honum er það hin herfileg-
asta fjarstæða, að nokkrum nú-
tíma íslendingi skuli detta sú fá-
sinna í hug, að vilja vinna að því,
að þjóðin verði efnalega sjálfstæð.
Hann grípur til hinnar alkunnu
söguþekkingar sinnar og kemst
m. a. þannig að orði:
„pað er fyrsta árið samfelda,
í 200 ár, sem þjóðinni hefir
verið boðaður sá boðskapur, að
með kyrstöðu, íhaldi og aftur-
haldi ætti hag hennar að vera,
best borgið. Það er fyrsta sam-
felda árið, síðan stjórnin flutt-
ist aftur inn í landi, sem setið
hafa í stjórnarsessi á íslandi
menn, sem hafa kyrstöðu, íhald
og afturhald að kjörorðum og
eru studdir til valdanna af
þingmeirihluta, sem hefir letr-
að þessi ljótu orð á skjöld
sinn.“
Fyrir fáum árum var Laufás
Öðruvísi setinn en nú. Þar var
líka ritstjóri. Hann gaf út blað,
sem hjet „Nýtt kirkjublað“. Af
mörgum ástæðum mætti ætla, að
núverandi Lanfáshóndi gæfi því
sjerstaklega mikinn ganm, er í
það blað var ritað. — Svo er
fyrir að þakka, að margt af því,
>sem þar var ritað, fjekk ítök í
hugum manna, náði að festa ræt-
ur — þó svo virðist, sem það hafi
farið fyrir ofan garð og neðan
hjá Tr. Þ. En það verður hver
að breyta eins og hann á lnnd
jtil.
! Þó væri ætlandi, að hinn „sögu-
fróði“ Tr. p. hefði getað látið
svo lítið, að vita hvað í því blaði
stóð, þó aldrei bæri hann gæfu til
þess að breyta eftir því.
1 En honum farast svo orð, að í
200 ár hafi enginn maður borið
það fram fyrri en núv. lands-
1 stjórn, að þjóðin þurfi að gæta
1 sín að safna ekki of miklum
skuldum.
Árið 1913 voru ríkisskuldirnar
smávægilegar, samanborið við
það, er þær voru komnar á 3.
tug miljóna.
En árið 1913 — fyrir einum 12
árum (ekki 200), sat maðúr í
Laufási, er skrifaði aðvörunarorð
gegn fjáraustri og óforsjálni. —
Honum farast m. a. þannig orð:
„Hafi nokkur vænst íhalds í
fjármálum frá „bændaflokkn-
um“ svo nefnda, eru litlarhorf-
ur á því að það rætist... Hvaða
blöð vilja nú í það ganga að
leggja áð kjósendum aðhald og
íhald við fjárausturinn, nú við
næstu kosningar? Og kenna
ráðin til þess“ !
Það varð ekki „bændablaðið“
Tíminn, sem taka vildi upp stefnu
^þessa manns, sem stöðva vildi
,'fjárausturinn og greiða sknldirn-
ar, sem gæta vildi nauðsynlegs
íhalds í fjármálum. Á merki því
heldur sá flokkur, sem nú hefir
völdin í landinn.
Fjárausturinn er nú stöðvaður,
þó Tímaflokkurinn hafi róið öll-
um árum að því, að halda honum
við.
Skuldimar borgast óðum. En
hinn lítilmótlegi ritstjóri, er nú
situr á föðurleifð sinni, gerir óp
að þeim mönnum, er vinna í anda
greinarinnar, er kom út í „Nýju
kirkjublaði" fyrir 12 árum.
BHn ðrlega
ÚTSALA
taefst fimtudaginn 7. janúar, og er í ár
óvanalega mikið niðnrsett, sve sem:
Hjðg breiðar Broderingar
í barnakjóla, kostuðu kr. 4.85, seljast nú fyrir aðeins
KR. 2.25.
Það sem eftir varð af
spðnstan vetrar-sjðlnnnm.
að eins fyrir KR. 45.00. Þetta er afskaplega ódýrt.
Karlmanna-sportbuxur, svartar og hvítköflóttar,
áður 26.00, nú kr. 20.00. — Afgangur af lífstykkjum (lft-
il númer) og dálítið skemd sökum gluggasýningu, seljast
langt undir innkaupsverði, til dæmis lífstykki, sem kost-
uðu kr. 6.00 eru nú seld fyrir kr. 4.00, áður 5.50, nú 3 kr„
áður 11.85, nú 8 kr., áður 5.65, nú 4 kr„ áður 9.75, nú 7
kr. — Hvít rúmteppi, eins manns, 8 krónur.
Hvítar nUar-rekkjnvoðir,
kostuðu kr. 12.50, mjög góðar og stórar, seljast nú fyrir
AÐ EINS 8 KR. Þetta eru vildarkaup.
Evenkápnr
þær, sem eftir eru, stór númer, fást með miklum afslætti
— sumar fyrir 45 kr. stykkið. — Tvær stuttar kápur, að
eins kr. 50.00 stk. — Ennfremur það, sem eftir er af
telpukápum. Talsvert af framúrskarandi góðum hör-
borðdúkum, sem kostuðu kr. 18.50, nú 12 kr., ennfremur
nokkrir dúkar, áður kr. 12.00, nú kr. 9.00.
Silki-regnhlifar
með löngu skafti, seljast óheyrilega ódýrt, t. d. þær sem
áður kostuðu 10 kr. seljast nú fyrir 6 kr., áður 21 kr., nú'
10 kr„ áður 18.50, nú 10 kr. o. s. frv. — Ullarteppi, áður
22 kr., nú 12 kr., framúrskarandi góð teppi, áður 24 kr.,
nú 15 kr. — Morgunkjólatau, áður 3 kr., nú 2 kr. meter.
— Besta tegund af Frottetaui, áður 6.50, nú 5 kr.
Kven-nærfatnaðnr
dálítið gallaður frá gluggasýningu, verður seldur mjög
ódýrt, sem eftir er. Hvítar skyrtur með 15—20% af-
slætti. Ennfremur undirkjólar, buxur og náttkjólar. —
Samfesting, undirlíf og buxur saman, kostaði 19.50, seld
nú fyrir að eins 8 kr. — Þetta er afskaplega lágt verð,
eins og allir geta sjeð.
Alt tavítt og crem gardfnntan með
i5°|o afslætti.
stórt og mikið úrval. — Drengjavetrarhúfur að eins X1
kr. stk. — Barnaskotthúfur, ullar, 35 au. stk. — Drengja
svuntur, stór númer, fyrir hálfvirði. — Barnalegghlífar
frá 1.50. — Afgangur af karlmannaflibbum, áður 1j50,
nú 75 au. stk. — Brúnir kvensilkisokkar, sterkir, dálítið
blettaðir, kostuðu 6.50, nú 3.50. — Barna-ullarbuxur, áð-
ur 3.50, nú 1.50. — Mislitar barnasvuntur, kostuðu 7 kr.,
nú 3 kr. — Öll kven-moire millipils fyrir hálfvirði. —
Kjólar á börn 1 árs, áður 10 kr., nú 5 kr.; áður 5 kr., nú
3 kr.; áður 4.50, nú 2.50. — Prjónaðar barnatreyjur, áð-
ur kr. 6.65, nú 3.00; áður 3.90, nú 2.90.
Allar aðrar vörur verða seldar með 10% afslætti, eins
lengi og útsalan stendur yfir, sem verður í 14 daga.
*
Þar sem jeg mjög sjaldan hefi haft útsölu, getur fólk
verið fullvissað um, að hjer er virkileg kostakjör
um að ræða.
Sv. )uel Henningsen,
Simi 823.
Husturstr. 7.