Morgunblaðið - 13.03.1926, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.03.1926, Qupperneq 4
' 4 MORGUNBLAÐIÐ Viðskifti. Upphlutasilki er hvergi betra nje ódýrara en á Skólavörðustíg 14. Fersól er ómissandi við blóð- leysi, svefnleysi, þreytu, óstyrk- teik og höfuðverk. Fersól eykur kraft og starfsþrek. Fersól gerir líkamann hraustan og fagran. — Fæst í Laugavegs Apóteki. Spaðkjöt og baunir. ísl. Kart- öflur og Gulrófur. Smjör 2.50 ^ 3tg. Egg. Ódýr sykur. Hannes Jónsson, Laugaveg 28. Aluminiumpottar nieð tækifær- isverði: Katlar 1.50. Ýmsar ódýr- ar vörur nýkomnar. Hannes Jóns- son, Laugaveg 28. Allar tegundir af Húsgögn- «m fáið þjer í Húsgagna- Tersl. Áfram, Laugaveg 18; þar fáið þjer einnig bólstruð Iiú^sgögn og hina þjóðfrægu legubekki (dívana). Tilkymiingar. Stehkar og veikar, dýrar og ódýrar, góðar, betri og bestar eru reykjarpípurnar, sem fást í Tóbakshúsinu, Austurstræti 17. Vinna. Sauma kven- og barnafatnað eftir nýjustu tísku. Sníð og máta, ef óskað er. Bergstaðastræti 42. Sími 1408. Sigríður Heiðar. Prjón er tekið á Spítalastíg 2, nppi. Ungur og efnilegur piltur getur fengið að læra húsgagnasmíði. — Einnig óskast sendisveinn á sama stað. A.S.Í. vísar á. Tapað. — Fundið. Fiskur í óskilum. A.S.Í. vísar á, Húsnæði. Barnlaus hjón óska eftir íbirð, 3 herbergi og eldhús, frá 14. maí. ' Tilboð, merkt „3 herbergi", send- ist A.S.f. legu strandferðum, vegna þess að það yrði altof stórt til þess að koma inn á „víkur og voga“. Næstur honum tók til málsJón Sig. Taldi hann flm. „breytingar- tillögunnar“ fa,ra miður lieppilega að ráði sínu, því þeir færu hjer nieð fleyg í vinsælt mál. Allir væru samdóma um framlag til kæliskips, en það væri vitanlegt, að skiftar væru skoðanir um, hvernig bæta ættj strandferðir. Karp stóð um inálið alt að 3 klst. og tóku margir til máls. Atvinnumálaráðherra skýrði frá því, að Emil Nielsen áljti, að strandferðaskip eins og það sem hjer ræðir um, myndi eigi kosta innan við hálfa miljón króna. — Hjer væri auk þess eigi um fram- lag að ræða í eitt skifti fyrir öll, því reýnslan sýndi, - að útgerðin myndj kosta 150 þús. kr. á ári. Strandferðaskips „breytingartil- lagan“ var feld með 14 atkv. gegn 13. Af Framsóknarmönnum var Kl. J. einn á móti tillögunni, og lýsti því yfir áður, að hann af fjárhagsástæðum sæi sjer ekki fært að vera með henni, enda hefðu samgöngumálan. » beggja deilda ekki sjeð sjer fært að ráð- ast í þetta, eins og stæði. Sennilega verður ástæða og tækifærj til þess að víkja að þessu máli síðar. SÍÐUSTU SÍMFREGNIR. Bindindismál Norðmanna. Símað er frá Ósló, að á kristi- legum fundi, sem allir bisltupar landsins tóku þátt í, var ákveðið að styðja bindindisstarfsemina þannig, að taka þátt í starfsemi fjelagsins Folkets Ædrueliglíeds- raad. — A sama fundi kom fram frv. um að banna alla ónauðsyn- lega umferð á sunnudögum, leik- sýningar og hverskonar skemtan- jr. Frumvarpig var felt. D A G B 0 K. Messur: í Dómikirkjunni á morgun kl. 11 sjera Bjarni Jóns- son. Kl. 5 sjera Friðrik Hallgríms- son. f f.ríkirkjunni í Reykjavík kl. 5 e. h. sjera Árni Sigurðsson. í Landakotskirkju hámessa kl. 9 f. h. og kl. 6 e. h. guðsþjónusta með prjedikun. I fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2 e. h. sjera Ólafur Ólafsson. Ðánarfregn. Nýlega er látinn í Keflavík, á heimili dóttur sinnar, | I’orbjargar Friðgeirsson, Einar1 Tli. Hallgrímsson, fyrv. verslunar- stjóri á Akpreyri og Seyðisfirði. Lík hans verður flutt norður til Akureyrar með Goðafoss. Hjúskapur. í dag verða gefin saman í hjónaband í Potsdam í pýskalandi ungfrú Charlotte Ko- kert og Marteinn Einarsson kaup- maður. Þau búa fyrst um sinu á Palasthótel í Potsdam. Björn Magmússon símastjóri frá ísafirði, hefir fengið 6 mánaða utanfararleyfi, og fer hann með Botniu næst. Hann liefir verið í þ.jónustu landssímans frá byrjun, eða í nærfelt 20 ár. Esja fór hjeðan í liringferð austur og norður um land í gær. Er það 1. ferð hennar á þessu ári. Farþegar voru allmargir. Saltskip, sem Shea Dart heitir, kom í gær til Bernh. Petersen. Þrjá fyrirlestra, um viðreisn ís- lendinga, ætlar Ág. H. Bjarnason ,prófessor að flytja í Hafnarfirði nú bráðlega. Fyrsta fyrirlestur- inn heldur hann á morgun kl. 4 síðd. í Bíóhúsinu. Lagarfoss fer hjeðan í dag kl. 4 til Hull og Leitli. Af veiðum er nýkominn Jón forseti með 60 tunnur lifrar. Togaraflotinn. Flestir togar- anna hafa nú hætt ísfisksveiðum. Eru nú í Englandi eða á leið heim aðeins þessir: Jupiter, Apríl, Hilmir, Gulltoppur og Tryggvi gamli. Hinir eru annaðhvort á saltfisksveiðum eða liggja hjer inni í höfninni. Síðari grein „útbreiðslunefndar' vDagsbrúnar“ verður svarað hjor í blaðinu innan skamms. Hljómsveit Reykjavíkur. — 1 grein Á. Th. í Mbl. í gær, hefir misprentast „Tónarnir, í hinni óendanlegu tilfinningu tónsveifl- ana og hljóðfalls ■■■■“, fj’rir: Tónarnir, í hinni óendanlegu margbreytni tónsveiflana og hljóðfalls. Úr Öræfum. Þar hefir verið ein muna tíð í vetur, að því er segir í brjefi þaðan 16. f. m. Hafa Ör- *wr— lLLu.ni nii i m 111H111111111111 nn'H 111111H11H1111 ill 111 f niTmuiIg niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiii a-fingar altaf við og við í vetur verið að vinna að jarðabótum, og mun það óvanalegt hjer á landi í svartasta skainmdeginu. Selveiði hefir verið talsverð þar í vetur; eina vikuna í febrúar veiddu Ör- æfingar 28 seli; voru af þeim 8 kópar vænir, hitt Vatnaselir, er allir, nema 4, voru slegnir í fjöru- borði“, segir í brjefinu. Austan úr Mýrdal var Mbl. sím að í gær, að þar væru enn sömu snjóþyngsli og samgöngur að mestu teptar. Pósturinn er enn í Vík; hefir ekki komist austur yfir Mýrdalssand; margar til- raunir gert til þess að komast austur, en altaf orðið að snúa aft- ur. í dag var ætlunin að reyna að nýju og fara með sjó, en þar heíir ekki verið tiltök að fara undanfarið vegna brims. Sýslu- fundi, sem átti að setja á mánu- daginn kemur, hefir verið frestað um eina viku vegna ófærðarinnár. Austan Mýrdalssands er víst mik- ill snjór. Einnig var sagt í sím- skeyti frá Kirkjubæjarklaustri, að vegurinn yfir Skaftárelda- jiraun væri ófær. Bléa Bandið er betri G E N G I Ð. Rvík í gær. Sterlingspund....... 22.15 Danskar krónur .. .... 118.58 Norskar krónur .. .. .. 99.13 Sænskar krónur .. .. .. 122.37 Dollar............... 4.57 Franskir frankar.... 16.78 Gyllini .. ..... .. ... .. 183.20 Mörk.................108.62 Heypnar t ó I E. H<. 333 komin aftur SI m a r 24 verslunin. 23 Poulsen. 27 Fossberg. Klapparstig 26" Snjöskðilar ag Snjðknstar Mfllii ðll VlKINGURINN auðheyrt. Hann mundi ekki sleppa því mannsblóði, sem hann teldi sig- liafa rjett til að láta streyma í sjóinn fyrir frænku sína, ekki fyrir systur sina, og ekki fyrir móður sína. Hann er regluleg blóðsuga, mesta kvikindi. Við þekkjum hann, Blood og jeg: Við höfum verið þrælar hans. — En það ber að taka nokkurt tillit til inín, sagði Julian með allmiklu stærilæti. Wolverstone hló enn, og það bætti ekki skap lávarðarins. - — Jeg fullvissa yður um það, að orð mín eru ekki alveg áhrifalaus í Englandi. Nú heyrðist önnur fallbyssuþruma, og kúlan fjell í sjóinn nokkruin föðmum aftan við skipið. Blood hallaði sjer út yfir borðstokkinn, en talaði svo í hljóði "við unga manninn, sem stóð við stýrið. — Gefðu skipun um að minka seglin, Pitt, sagði hann. Við bíðum. , En Wolverstone vildi ekki fallast á þetta. — Bíddu, Pitt, öskraði hann. Bíddu augnablik. Hann sneri sjer enn að skipstjóranum, en hann lagði höndina á ösl hans og mælti: — Rólegur, gamli úlfurinn þinn. Rólegur. — Rólegur sjálfur, Pjetur! Þú ert sturlaður. Ætlarðu að stofna okkur öllum í voða vegna þess- arar stúlku? — Wolverstone! hrópaði Blood í skyndilegri reiði. Nú þegirðu! En Wolverstone var þrár. — Nú skaltu fá að heyra sannleikann. Það er þessi bölvaða pilsglenna, sem gert hefir þig huglausan. Það er hennar vegna, sem þú vilt ekki berjast, þú ert hræddur um, að eitthvað hendi hana — frænku Bishops óbersta. En drottinn minn dýri — hjer skal verða uppþot, og jeg skal stofna til þess sjálfur frem- ur en að álpast beina leið í gálgann í Port Royal. Þeir horfðu um stund hvor á annan, annar fullur þráa og þverúðar, hinn skjálfandi af þögulli reiði. — Hjer er ekki um annað að ræða en sjálfan mig,- sagði Blood. Geti Bishop sent, þau boð til Englands, að jeg sje tekinn til fanga og hengdur, hefir hann unnið sjer til lofs og jafnframt svalað liefndarþorsta sínum- Jeg sendi bonum þau orð, að jeg gæfist upp með þeim skilmálum, að jeg fari í skip hans ásamt ungfrir Arabellu og Julian lávarði, en þá leyfi liann „Ara- bellu“ að fara í friði. Þetta tilboð samþykkir hann áreiðanlega, þekki jeg hann rjett. — Petta tilboð skal hann aldrei fá, sagði Wol- verstone og varð æ reiðari. Þú hlýtur að vera band- vitlaus að hugsa þjer annað eins og þetta. — Ekki eins bandvitlaus eins og þú, úr því að ‘þú hugsar þjer að berjast við þessa þrjá. Blood benti á skipin, sem eltu þau og sífelt nálg- uðust. • — Eftir nokkrar mínútnr erum við kommr - skotfæri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.