Morgunblaðið - 17.03.1926, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Viðskifti.
Góð, ódýr eign í útræðisplássi
fæst !cey])t eða í býttum fyrir
hús hjer eða í Hafnarfirði. Helgi
Sveinsson, Aðalstræti 11. Heima
kl. 11—1 og 6—8.
Til söln. Steinhús með ágætri
byggingarlóð, í vesturbænum.
Jónas H. Jónsson.
Kaupið appelsínúrnar í Merkja-
steini, safamiklar og ljúffengar
pr. stk. 10 aura.
' Gefins kaffibætir ef kept er y2
kg. af kaffi, brendu og möluðu.
Odýr sykur.
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
JerBÓI er ómissandi við blóð-
leysi, svefnleysi, þreytn, óstyrk-
leik og höfuðverk. Fersól eykur
kraft og starfsþrek. Fersól gerir
iikamann hraustan og fagran. —
Fæst í Laugavegs Apóteki.
Spaðkjöt og Baunir. Islenskar
Kartöflur og Gulrófur.
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
Tek aff mjer að selja hús og lóöir
fyrir þá sem óska. Hefi ætíð hús til
g(9 u bæði í Reykjavík og Hafnar-
firði. Gerið svo vel að spyrjast fyr-
ir. Heima 11—1 og 6—8. H e 1 g i
Sveinsson, Aðalstræti 11.
Steinolía besta tegund, 28 aura
lítirinn. ^
Hannes Jónsson, Laugaveg 28.
Öll smávara til saumaskapar,
alt frá smæsta til stærsta, ásamt
öllu fatatilleggi, — alt á sama
stað. — V i k a r, Laugaveg 21.
Nokkui1 af bestu íbúðarhúsum bæ-
jarins, til sölu, fyrir sanngjarnt
verð.
Jónas H. Jónsson.
Upphlutasilki er hvergi betra
nje ódýrara en á Skólavörðustíg
14.
Brenda og rnalaða kaffið í
Merkjasteini, mælir með sjer
sjálft.
Hinn viðurkendi harðfiskur, egg
og ostar. Verslun Merkjasteinn
Agætt, hveiti pr. 30 aura. Vj
kg. Verslun Merkjasteinn.
Til sölu. Góð íbúðar hús með
lausum íbúðum 14. maí.
Viðtalstími 10—12 og 4—6. —
Sími 327 og 1327.
Jónas H. Jónsson.
wmmssmm,œæ*-■■■
Tilkynningar.
Sterikar og veikar, dýrar og
ódýrar, góðar, betri og bestar
eru reykjarpípurnar, sem fást í
Tóbakshúsinu, Austurstræti 17.
Tóbaksvörur alskonar, í meira
úrvali en hjer þékkist er í Tó-
bakshúsinu, Austúrstræti 17.
Vinna.
Hraustur maður óskar eftir
vinnu strax. Er vanur allri fisk-
vinnu, til dæmis flatningu. A. S.
í, vísar á.
Roskinn maður, vanur öllum
sveitastörfum, óskast á gott
heimili í sveit, sem vinnumaður.
Upplýsingar í Lækjargötu 10 A.
Hraustiir maður, vanur að vera
á færeyiskum fiskiskipum, óskar
eftir plássi á togara. A. S. 1. vís-
ar á.
Oljábrensla og aikkelering í
reiðhjólum er ódýr á Skólabrú 2.
Reiðkjólarerkstæði K. Jakobss**-
ar.
Húsnæðí.
Tvö herbergi með húsgögnurn,
óskast strax, um þriggja vikna
tíma. Upplýsingar í síma 1053.
frú Guðmtindsson
Æfing í kvöld klukkana 9 á
Skjaldbreið.
G E N G I Ð.
Sterlingspund............. 22,15
Danskar kr................119,73
Norskar kr................ 99,79
Sænskar kr............. 122,30
Dollar..................... 4,57
Frgnkar................... 16,76
Gyllini...................183,01
Mörk......................108,59
D A G B Ó K.
Föstuguðsþj ónusta í dómkirkj-
unni í kvöld klukkan 6. Sjera
Bjarni Jónsson prjedikar.
í Hafnarfjarðarkirkju á morg-
un klukkan 8.
1 Adventistakirkjunni í Reykjg-
vík klukkan 8 eftir hádegi, sjera
O J. Olsen.
Hey rnartól
oy Háspennubaftteri
komin aftur.
Nýjas* bæk&si* s
Nefndarálit Þingvallancfndarinnar frá 1925, (með
uppdrætti af Þingvöllum og nágrenni), verð kr. 2,00 og
1.50. —
Nefndarálit minni hluta Bankanefndarinnar
1925 (Bened. Sveinssonar). Verð kr. 1,00.
Fást í
Bókav. Sigfúsar Eymundssonar*
NÍORGENMISEN
Á ntleið (Ontward bonndj
Sjónleikur í 3 þáttum, eftir
Sntton Vane
Verður leikinn fimtudag 18. og föstudag 19. mars.-
Leikurinn hefst með forspili kl. 7%.
Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 4—7 og á morgun
frá 10—1 og eftir 2.
Sími 12.
BTO T1 p Tji TVT ■iiiiiaMiMiiaiiiiiiiiiiiniiiiaaaiiiiiiiaiiiiMiiii
SCi JLV VI Há ll llllllllllllllllllllMMIIIIIIlllllkllllllllllMMIII
er et af Norges mest læste Blade og **
serlig i Bergen og paa den norske Vestkf^
ndbredt í alle Samfundslag.
MORGENAVISEN er derfor det bedste Annonceblad for •U#’
som önsker Forbindelse med den norsk#
Fiskeribedrifts Firmaer og det övrige norsk®
Forretningsliv samt med Norge overhovede*
MORGENAVISEN bör derfor læses af alle paa Island.
Annoncer til Morgenavisen modtages i Morgenbladid’s Expeditinon.
Hjónaband. Síðastliðinn laugar-
dag voru gefin saman í lijóna-
band ungfrú Hrefna Kristjáns-
dóttir og Ingibjartur Jónsson
skipstjóri, bæði til heimilis á
Framnesvegi 16 B.
Viðtal við Guðrúnu Indriðadótt-
ur flytur „Berl. Tid.“ fyrir stuttu,
að því er segir í fregn frá sendi-
herra Daua hjer. Skýrir Guðrún
þar frá leikstarfsemi íslendinga
og leiklist. — Eitt Kaupmanna-
hafnarleikhúsið hefir boðað til
sýninga á „Fjalla-Eyvindi“ Jó-
lianns Sigurjónssonar, og lætur
„Berl. Tid.“ svo um mælt, að
gainan væri að sjá hina kunnu
íslensku leikkonu í því leikriti.
Áheit á Elliheimilið. Jón kr.
75,00. H. kr. 20,00. P. 'kr. 5,00.
‘Frá konu kr. 20,00.
Har. Sigurðsson.
Háskólafræðsla. Ág. H. Bjarna-
son prófessor, flytur erindi um
þjóðfjelagsmál í Kaupþingssalnum
klukkan 6 í dag.
„Botnia“ kom hingað í gær-
morgun, snemma, frá útlöndum.
Meðal farþega voru, Kjartan
Thors, framkvæmdarstjóri, Lud-
vig Andersen kaupmaður, Jón
Loftsson útgerðarmaður, Sigur-
þór Jónsson úrsmiður, frú Mar-
grjet Leví, ungfrú Elín Jakobs-
dóttir, Ólafur Haukur Ólafsson,
Henningsen kaupmaður. — Botnia
fer hjeðan í kviild klukkan 12.
Dansleik heldur Alliance
Francaise á Hótel ísland í kvöld.
F/á Englandi hafa komið tog-
ararnir Eiríkur rauði og Arin-
björn hersir.
„Þór“ kom hingað í gær frá
Vestmannaeýjum, og sækir hingað
beitusíld fyrir útgerðarmenn þar.
Hefir verið beitulaust þar um
tíma.
Af veiðum hafa komið Baldur,
með rúmlega 70 tn., Ólafur með!
100 tunnur, var það fyrsta ferð ^
hans, og Gylfi með 63 tunnur.
,>Fylla“ kom liingað inn í gær.
Fjórar bifreiðar fjekk Bifreiða-
stöð Reykjavíkur nú með Botníu
síðast. Eru það alt Fiat-bílar, og
í taka 7 menn hvor, en eru þó af
LeSkfjelag Reykjavíkm*.
þremur mismunandi gerðum. —'
Heyrst hefir, að fleiri bifreiða-
stöðvar fjölgi bílum sínum undir
næsta sumar. *
Járnb / auta imálið. Frumvarp um
járnbrautarmálið, þess efnis, að
heimila landstjórninni að leggja
járnbraut austur að Ölvesá, var
útbýtt á Alþingi í gær. Flutn-
ingsmenn eru Jörundur Brynj-
ólfsson og M. Jónsson.Verður nán-
ar sagt frá þessu frumvarpi í
blaðinu á morgun.
Dagsk/á Ed. í dag. 1. Frv. til 1.
um sölu á kirikjujörðinni Snær-
ingsstöðum í Vatnsdal; 1. umr.
! (Ef deildin leyfir). 2. um franila2
til kæliskipskaupa o. fl.; 1. n®r'
Nd. 1. Lögð frárn tvö stjórn*
arfrumvörp. 2. Frv. til 1. um út-
'svör; frh. 2. umr. 3. um afnaTti
gengisviðauka á vörutolli; 1. uni1*-
(Ef deildin leyfir.) 4. um skyldn
útgerðarmanns til að tryggja fatn*
að og muni lögskráðs skipverja;
I. umr. (Ef deildin leyfir). 5. újn
breyting á 1. nr. "28, 8. nóv. 1883,
um að. stofna slökkvilið á ísa'
firði; 1. umr. (Ef deildinleyfir)-
6. um kosning þingmanns fry11
Siglufjarðarkaupstað; 1. umr.
deildin leyfir).
VÍKINGURINN
snjallri röddu, hvernig á ferðum lávarðarins stæði,
og síðan bætti hann við:
— í gærkvöldi neitaði jeg að taka á móti út-
nefningu konungsius. Þið, sem Iiðið hafið, ásamt
mjer, fyrir grimd Jakobs konungs, þið skiljið mig.
En nú, í þessari illu klípu, sem við erum komnir
í, er jeg reiðubúinn til þess að feta í fótspor Morgan.s
og ganga í þjónustu konungsins — og bjarga meðtþví
okkur öllunt.
Það var engu líkara en eldingu hefði lostið niður
milli þeirra. Þeir stóðu steinþegjandi, lamaðir nm
stund. En svo tóku þeir til máls með svo miklum klið,
að ekki var gott að átta sig á skoðununum. Þó var svo
mikið víst, að meiri hlutinn fylgdi Blood að málum.
En aftur voru þarna aðrir, sem ek!ki voru þannig
skapi farnir.
— Hirðir Bishop óbersti nokkuð um þessa útnefn-
ingu?, öskraði Ogle.
Júlian lávarður svaraði:
— Það verður honum þungbært, ef hann þver-
skallast við skipunum konungsins. Og jafnvel þó hann
vildi reyna það, þá getið þjer verið vissir um það, að
hann fær ekki einn einasta af foringjum sínum með
sjer. — •
— Jeg vil heldur, stikna í heita h....... en vera
í þjónustu Jakobs konun^s! hrópaði Wolverstone.
— Enginn ykkar kkal verða neyddur til að ganga
í þjónústu hans. Þetta er liverjum frjálst! hrópaði
Blood. Þið skuluð ekki halda heldur, að það sje mjer
Ijett að láta undan. Jeg er nákvæmlega sama hngar
og Wolverstone. En jeg tek. við skipaninni aðeins
vegna þess, að það er eini vegurinn til þess að við
höldum lífinu" og víð björgumst úr þeim vanda, sein
jeg hefi stefnd okkur í. Þið, sem ekki viljið fylg.ja
mjer, hafið fult, frelsi til að fara. Með því skilyrði se^
jeg mig konunginum.
Julian lávarður gaf óðara samþykki sitt til þessa-
Og þar með var málið útkljáð. Lávarðurinn senti^
niður í klefa sinn, til þess að sækja skipunarbrjefiðr
og var ör af gleði yfir því, að hafa getað komið-þessn
til leiðar.
pegar Ogle veik burtu, sneri Blood sjer við,
stóð þá augliti til auglits við Arabellu, Hún haf^1
staðið og horft á hann með blikándi augum. En þegaI>
hún sá kuldalegan svip hans og djúpu hrukkuna mili1
augnabrúnanna, breyttist svipur hennar líka. Þó gekk
hún til hans, en hikandi, og lagði höndina á 'hanú'
legg lians.
:— Þjer hafið breytt skynsamlega, foringi, sagð'
bún, hve niikið sem það hefir verið á móti vilja yðar
Hann leit lteldur kuldalega á hana.