Morgunblaðið - 13.08.1927, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.08.1927, Blaðsíða 2
2 MOBGUNBLAÐIÐ Skemtiför „Fáks“ á morgun' Mar*ar tegnndir af ---- pylsnm nýkomnar: Höfum nú aftur fyrirliggjandi • allar lengdir af Bárujárni, No. 24. og No. 26, 24. og 30” breilt. Þaksaum. 9 $ Tjörupappa, Panelpappa. BifreiðaskoðuH. Árleg skoðun bifreiða, skrásettra með einkennisbók- stöfunum: G.K., Ks. og H.F., fer fram næstkomandi þriðju- 'dag, miðvikudag og fimtudag, 16., 17. og 18. þessa mánaðar, :frá klukkan 10y2 fyrir hádegi til klukkan 6 eftir hádegi dag hvern, vestan við sölubúð dbs. Egils Jacobsen, hjer í bæn- nm, á torginu þar. — Ennfremur verðía þar og þá athuguð skírteini bifreiðarstjóra. Ber hlutaðeigandi bifreiðaeigendum að koma greind- ■um bifreiðum þangað til skoðunar að viðlögðum rjettar- missi til reksturs þeirra, verði skoðunarvottorð eigi feng- ið einhvern hinna tilteknu daga hjá hinum skipaða skoðun- armanni, Tryggva Ásgrímssonar í Reykjavík. — Lögboð- inn bifreiðaskattur fyrir gjaldárið til 1. f. m. verður inn- heimtur jafnframt skoðuninni. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði hinn 10. ág. 1927. Magttús Jónsson. Morgunblaðið hefir verið beðið að minna f)á á, sem þátt ætla | að talca í skemtiför- inni á morgun, að þeir eigi að mæta kl. 0l/2 tjarnarmegin við i Barnaskólann, og að | lagt verði á stað kl. | 10, hvernig sem veðiu j verður. En eftir spá- dómum Yeðurstofunn- j ar að dæma, þarf j varla að éfast um það . að gott verði veður. ! Eins og áður er get- ið, er svo úl ætlast, að Hafnfirðingar mæti Reykvík- ingum á skeiðveliinum. Og má bú- ast við fjölmenni úr Hafnarfirði, því mikill viðbúnaður hefir verið þar til að ná í liesta. Skemtifarir eins og þessar, sem „Fákur“ stofnar nú til, hafa ait af nokkurn kostnað í för með sjer. Og ætlar því fjelagið að selja merki í förinni, eri kosta 1 krónu, og mun engihn þátttakandi láta sig muna tun að kaupa það. En gott væri, að hver hefði með sjer afskamtaða peninga, því ekki mun reynast þægilegt. að fá peningun- um skift uppi hjá Lyklafelli, þó þar sje eflaust margt góðra vættá enn. Skemtilegást væri, að fararmenn hjeldu sem mest hópinn, einkum þegar farið er upp iir bænum. Er mikið komið undir þátttakendum isjálfum, hvort gott skipulag verð- ur á sanjreiðinni ;eða ekki, og hve mijril skemtun verður að herini. En fararstjórinn á þar og mikinn hlut ^að ináli. Og verða menn að bevgja ,sig undir hans fyrirskipanir og (leiðsögn um alla samlieldni og til- högun. Enginn efi er á því, að í góðu yeðri verður þetta hin skemtileg- asta för. Rúllupylsur, Ágætur reyktur lax, . . Ný kæfa. * Versl. Kjöt & Fisknr Sírni 828. Laugaveg 48. fiaraldur SigurQsson píanóleikari. Sklnnhúfur. öflýrar Dðnsk verksmidja óskar sambands við stórt tirma. Sýnishorn með verðtilboði sendist ef um er beðið. Brjef merkt 1461 sendist IWonterossi, Amager- torv 9, Köbenhavn K. Best að auglýsa f Morgunblaðinu. Á þriðjudagskviild leikur Har- aldur Sigurðsson í Gamla Bíó á hinn nýja flygiJ frá Steinvay & jSons, og er það eina tækifærið, sem bæjarbúnm gefst til þess að hiýða á hann að þessu sinni. Efnið verður mjög fjölbreyti- iegt, eftir fimm tónskáld, gömul ,og ný. Fyrst er Fantasi í c-moll .eftir Mozart og Pappilions (fiðr- ildi) eftir Schumann. Þá f jögur lög ,eftir uútíðartónskáld frakkneskt, Debussy. Hið fyrsta af þeim lög- um heitir La cathédrale engloutie eða kirkjan sokkna, og er ort í .tónum út afi gamalli sögn frá Bre- tagne. Þar hafði sá atburður gerst endur fyrir löngu, að kirkja ein mikil hafði sokkið í sjó og horf- ið með öllu. En síðan verða menn þess varir öðru hverju í ljósaskift- ,unum á kvöldin, að kirkjan lyftist (upp úr sjónum, og sjest móta fyr- ir grönnum turnum og gotnesk- um bogum. Kfukkurnar hringja með dularhreimi, og prestar líða iáfram kringum kirkjuna í hátíð- legri helgigöngu. Og kirkjan síg- ur aftur hægt og hægt niður í öldur hafsins. — Hin lögin eftir sama höfund eru Prelude (forleik- ur), Sarabande (spanskur dans) og Toeeata. Síðan leikur Harald- ;ur Rhapsodie eftir Brahms og loks tvö lög eftir Chopin, Berceuse (vöggulag) og Fantasie í f-moll. Þegari Haraldur ljek hjer síðast, var alt efnið eftir Beethoven ein- göngu. En í þetta sinn eru við- fangsefni hans miklu margbreytt- •ari. Þetta er fyrsti liijóðfæraleik- urinn í hinum nýja og háreista sal Hamla Bíó, og er ekki að efa, að Dar verður gott og fagurt á að hlýða. |. Öllum er það kunnugt, hvers yænta má, þegar Haraldur slær hljóðfærið. Hógværð og göfgi er i yfir allri hans list, en þó mikill ! þróttur og djúpur innileiki. Hann fer mjúkum og styrkum höndum j nm strengina., og hanri snertir raann á þann hátt., sem hinir tign- ustu iistamenn einir saman gera. rriiklar birgðir fyrirliggjandi. Ú. Einarsson & Funk Jarðepli ítttlsk, ný. Pokinn 8,50. Fjárhagur (slEndinga frá dönsku sjónarmiði. í „Finanstidende“ ritar Aage Berléme stórkaupmaður grein hinn 20. júlí um fjárhag íslendinga, í ^tilefni af'því, að þá voru nvlega komnir ársreikningar þriggja 'stærstu fyrirtækjanna hjer á landi, þankanna beggja og Eimskipafje- lagsins. Eftir að hafa skýrt frá reikningum þessum í stórum drátt- um, spyr hann: — Hvernig ,er nú ástandið á ís- landi, ef dæma skal eftir reikning- um bankanna? 1 Og hann svarar þeirri spurningu á þessa leið: , Ástandið er náttúrlega ekki gott; það er augljóst. En það er bó eltki eins slæmt og búast mætti við. Á hinum hörðu árum hefir íslandi tekist að halda framleiðslu sinni í horfinu. Bæði landbfmaður og Jsjávarútvegur eru reknir með sama ■ krafti 1927, eins og áður. Og vegna hinna snöggu breytinga, sem verða j(á íslandi, getur vel verið að árið 1927, verði got.t ár, og það lítur jafnvel út fyrir það. Ullarverðið er betra en í fyrra og meira hefir fiskast heldur en árin 1926 og 1925. Fiskverðið er að vísu lægra en í fyrra, en fiskurinn er þó meira virði en þá, vegna þess hvað hann er mikill. Verð á kolum og salti og fleiri vörum, hefir aldrei verið lægra, síðan ófriðnum iank. Af atvinnuleysi hafa Islendingar ekkert. að segja og tekjur og gjöld fjárlaganna standast á. Illa rekin fyrirtæki munn ef til vill fara á Jiöfuðið, en hin mörgu og vel reknu íslensku verslunar- og fiskveiða- fyrirtæki, svo og landbúnaðurinn munu standa sig; á því er engina efi. Nýkomid THcotíne KJólap Blúsur Nœrffit í afarmiklu úrvali Verslun Egill lacobsen. Frá Vestur-íslendingum FB. í ágúst. Ingimar Ingjaldsson | var lcosinn í Gimli, með 200 at- jkvæða meirihluta, á fylkisþingið í Manitoba. Mannalát. ! Þann 18. maí þessa árs ljest í Swan River, Man., Snorri Sigur- jónsson frá Einarsstöðum í Reykja- dal, dúmlega 65 ára gamall. Snorri fluttist vest.ur um haf 1883. Var hann kvæntur Hálídóru Friðbjarn- ardóttur frá Köldukinn í Ljósa- 1 vatnshreppi. { Þórður Pjetursson, ættaður úr Mýrasýslu, andaðist í Selkirk, Manitoba í apríl síðastl., nærri S2 ára að aldri. Hann var kvænt- ur Guðrúnu Halldórsdóttur frá Leirulæk í Mýrasýslu. Þórður heit- jnn var bróðir Sigurðar fangavarð- ar Pjeturssonar í Reykjavík. I I Blaðið „San Francisco Ghronicle“ 1 gat þess nýlega, að hinn góð- kunni íslendingur, Magnús Árna- son, er býr í San Francisco, hafi nýlega verið kosinn til kennara- embættis við listafjelagið í Berke- ley (Berkeley League of fine ,Arts). Er vafalaust óhætt að telja ÍMagnús með gáfuðustu og efnileg- nstu íslensku listamönnum. I (Hkr.) 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.