Morgunblaðið - 31.12.1927, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Liðna árið.
Eftir Jón Þorléiksson.
Árið 1927 hefir verið af nátt-
úrunnar hálfu eitthvert hið allra
l>esta, sem núlifandi menn muna.
Hagstæð veðrátta, góður gras-
vöxtur, nýting á heyjum í besta
lagi og fiskafli óvenjulega góður.
Veðurblíðan hefir verið jafnari
um landið, en menn eiga að venj-
Æist, en ])ó auðvitað ekki alveg
jöfn. Er talið að Austfirðir hafi
helst farið nokkuð varhluta af
æumarblíðu og aflabrögðum.
Stærstu skuggarnir, sem á
f jellu, stöfuðu frá árinu á undan.
Heyforði var víða heldur lítill
frá sumrinu 1926, en það kom
ekki svo mjög að sök, því að eft-
ir áramót var veturinn ekki gjaf
feldur. Hitt var verra, að eftir
■óþurkatíð sumarsins 1926 voru
heyin í sumum hjeruðum, eink-
um norðan og vestan lands, svo
hrakin og ljeleg, að þau reyndust
-óholl til fóðurs. Á Norðurlandi
vestan til og líklega einnig sum-
Ætaðar á Vesturlandi náðu vor-
sjúkdðmar þeim tökum á sauð-
fje, að stórtjón hlaust af. Menn
tala ekki mikið um þetta, en að-
gætnir menn fullyrða að fjenað-
arhöld hafi t.'d. í sumum sveitum
Húnavatnssýslu orðið svo bág-
horin, að lakari hafi ekki verið
síðan fellisvorið 1887.
Efnaleg afkoma þjóðarinnar
bar einnig miklar menjar hins
nndanfarna erfiða árs. Var
þröngt í búi eftir áramótin hjá
mörgu þurrabúðarfólki, semhafði
borið lítið eða ekkert úr býtum
fyrir sumarvinnu sína sumarið
.áður. Afurðir landsmanna voru
•og í mjög lágu verði, sjávaraf-
urðir einkum allan fyrri hluta
ársins, en á því varð nokkur lag-
færing síðustu mánuði ársins.
Verð á saltkjöti varð enn þá
lægra en árið áður, en talsverð-
ar vonir um batnandi kjöt-
markað vöknuðu við það að vel
"hepnaðist sala á kældu og frystu
kjöti á Englandi, er flutt var
þangað með hinu nýja og vel út-
búna kæliskipi Eimskipafjelags-
ins.
Þrátt fyrir lágt verð á afurð-
um mun f járhagsafkoma ársins
hafa orðið fremur hagstæð fyrir
;atvinnuvegi landsmanna að und-
anteknum þeim landbúnaðarhjer-
uðum, sem verst höfðu skepnu-
’höldin. Framleiðsla til lands og
sjávar var stunduð af mesta
kappi, og það sem af er vetrin-
um mun atvinnuskortur í hinum
stærri kauptúnum, sem ávalt er
nokkur um skammdegismánuð-
ina, hafa verið heldur með minna
móti. Stuðningur sá. sem lög-
gjafarvaldið hefir veitt Veðdeild
Landsbankans, hefir átt mjög
mikinn þátt í því að halda uppi
atvinnu við nytsamleg störf
einnig þá tíma ársins, sem frum-
framleiðslan fækkar við sig
verkafólkinu.
Meðal merkari viðburða á sviði
atvinnulífsins má telja breytingu
þá á steinolíuversluninni, sem
hefir verið undirbúin á árinu og
er að koma til framkvæmda nú
í árslokin. Tvö fjelög gangast
fyrir því að byggja nýtísku
steinolíugeyma í og við Reykja-
vík — með smærri geymum
í hinum helstu mótorbátaver-
stöðum. Með þessu er olíuversl-
unin hjer að komast í sama horf,
sem verið hefir síðustu árin í
öðrum nálægum löndum. Vona
menn að samkepni verði fremur
ríkjandi meðal fjelaganna en
samvinna. Horfur eru á að lands
verslun með steinolíu falli niður
>með eðlilegum hætti, þegar olíu-
fjelögin taka við.
Eimskipafjelag íslands hefir
bætt við sig tveim skipum á ár-
inu, fyrst kæliskipu Brúarfossi,
og nú í árslokin flutningsskip-
inu Villemoes, og verður nefnt
Selfoss og verið hefir aðallega í
steinolíuflutningum fyrir lands-
verslun. Verða siglingar fjelags-
ins milli Hamborgar, Hull og Is-
lands auknar, og virðast eiga
'góða framtíð fyrir sjer.
Fyrir ríkisbúskapinn hefir ár-
áð verið í erfiðara lagi, tekjur
fremur rýrar, eins og vant er að
vera næst á eftir óhagstæðu at-
vinnuári, en útgjöld samkvæmt
fiárlögum hærri en rjett var. Má
búast við nokkrum tekjuhalla á
árinu, máske eitthvað svipað
þeirri upphæð, um 700 þús. kr.,
>sem þingið 1926 bætti ofan á út-
gjaldatillögur þáverandi stjórnar.
Hagur bankanna beggja hefir
óefað farið batnandi á árinu, og
lausaskuldir ]>ær við útlönd, sem
söfnuðust á ]>á árið 1926, munu
hafa greiðst að talsverðu leyti á
liðna árinu.
Horfurnar framundan eru nú
um ]>éssi áramót æði miklu bjart-
ari fyrir atvinnulífið, en verið
hefir um tvenn síðastliðin ára
mót. Góð eftirspurn eftir afurð-
,um landsins og ör sala síðustu
mánuðina gefur vonir um greiða
sölu á næsta ári,. ekki fyrir sjer
lega hátt verð að vísu, en þó
vonir um bærilega afkomu ef
náttúran heldur áfram að leggja
til sína blíðu, og atvinnurekend-
ur og verkamenn sýna fullan
samhug í því að stunda störfin,
eins og hjer hefir verið lands-
venja jafnan.
«3
C
<u
•0—*
c3
05
<u
u
3
o
>•
«o
*s
3
>
*
c
c
<u
S
2,
o
>
<0
13
Q
B
3
u
«
D3
C
*55
">■
E.
c.
3
u
«3
•o
3
<U
0)
B
3
XO
*o
5
Delfia
Diesel-bátamótop
Deutsche Werke Kiel A.G.
Kristsmynd ætlar páfinn að
■gefa Landakotskirkju, eftir því
sem skýrt hefir verið frá í þýsk-
um og hollenskum blöðum. Er
það standmynd forkunnarfögur
úr cedrusviði. Myndina hefir
gert spánskur listamaður frá
Barcelona, Campanya að nafni.
Morgunblaðið er 16 síður í
dag. I aukablaðinu er 50 ára
saga Isafoldarprentsmiðju eftir
Ivlemens Jónsson, og er hún
prýdd mörgum myndum. Morg-
l nblaðið kemur ekki út næst
fyr en 8. janúar, og þess vegna
fylgir Lesbók blaðinu í dag. ■
Ljósalfurinn litli er í blaðinu
í dag.
Auglýsingar kvikmyndahúaanna
og aðrar auglýsingar, sem venju-
lega eru á 1. síðu eru á 4. síðu
(í dag.
Delta -tvígrengisdieselmótorinn er smíðaður af Deutsche Werke Kiel A/G (Áður her-
skipasmíðastöðvar Þjqðverja), sem einnig smíðar fjórgengisdieselvjelar bæði
einvirkar og tvívirkar (bruni yfir og undir bullu) upp í 9000 hestöfl, og er
ein af allra vönduðustu Dieselsmiðjum Þýskalands.
Delta er kompresorlaus tvígengisdieselvjel af klassiskri og einfaldri gerð. Ventila
og stýriöxla með hnokkum og drifum hefir hún ekki og er því margfalt ein-
faldari í gæslu og ódýrari í viðhaldi en fjórgengisdieselvjelar.
Delta er smíðuð framúrskarandi traust og úr úrvalsefni. — T. d. er vjelsveif og
bullustöng úr fyrsta fl. Siemens Martins stáli. (Ath. 35 hestafla vjelsveif er
135 mm. í þvermál).
Delta hefir ábyggilegann og nákvæmann miðflóttaflsgangráð, sem má tempra í
gangi. Skiftingu á kælivatni, þ. e. með stillingu eins handfangs er hægt að
láta austursdæluna dæla kælivatni á vjelina' ef kælivatnsdælan aflagast. —
Vandaðann og traustan skrúfuútbúnað og skiftitæki. Þrýstilegið er aftast á
botnsskálinni, traustasta hluta bátsins, það og skiftilegið eru baðsmurð kop-
arskífuleg.
Delta er sett í gang köld með þrýstilofti. Upphitunarlampa, glóðarhöfuð, glóðarrör,
glóðarpinna eða rafkveikju, sem oft valda truflunum og óþrifnaði hefir hún
ekki. —
Delta liefir ekki blöndunarhólf (Forkammer), en aftur á móti öryggisventil á hverj
am Cylinder, sprengihætta (Explosion) því algerlega útilokuð.
Delta er smurð með hinu heimsfræga BOSCH þrýstismurtæki.
Delta er látin ganga í 8 daga minst áður en hún er afhent og fylgir henni, ef kraf-
ist er, reynsluskýrteini frá Germanska Lloyd. Af Delta eru nú afgreiddár
100 til 130 vjelar á mánuði hverjum, í stærðunum frá 9 til 850 hestöfl.
Delta hefir engin hættuleg tannhjól, rúlluleg eða kúluleg, sem ef þau aflagast, gete
valdið stórkostlegum skemdum, einkum þar sem sumar þær tveggja cylind-
ervjelar sem í slíkum legum ganga, hafa ekkert miðhöfuðleg. Ennfremur er
erfitt í fiskibátum að verja slík leg fyrir sjávarsagga og ryði og auk þess
(U'U þau mjög dýr og víða ófáanleg ef skifta þarf um.
DGltSB hefir mjög trausf vjelsveifarleg og hófuðleg úr koparblöndu, hvítmálsfóðr-
uð. Undirpönnu höfuðleganna og þjettihringi þeirra er hægt að taka upp án
þess að lyfta vjelsveifarásnum.
Delta brennir Dieselolíu, gasolíu og ódj'rum olíutegundum og hefir hjerlend reynsla
þegar sanna,ð að hún er langsamlega sparasta vjelin, sem hjer er notuð. —
Samkvæmt fenginni reynslu greiðir D e 1 t a á þann hátt andvirði sitt til
baka á ca. 4 til 5 árum, samanborið við glóðarhöfuðsvjelar.
Því standa menn eftir stríð og raun með stritkreptar hendur en engin laun? —
Slíkt má ekki lengur svo til ganga, að íslendingar sem afla, að tiltölu við fiskimanna-
fjöldann, flestum þjóðum betur, berjist í bökkum með að láta útgerðina svara kostn-
aði — þar hlýtur umbóta að vera þörf. Eitt stærsta atriðið til viðreisnar útvegnum er,
að nota sparari vjelar — þessvegna taka allir framsýnir menn DELTA í báta sína.
Mörg ummæli íslenskra notenda til sýnis, sem sanna, að DELTA er um 30% sparari
í notkun en Glóðarhöfuðsvjelar.
Kjörorð heimsins er: „Meira notagildi fyrir minna verð.“ Atvinnurekendur á
öllum sviðum keppast því við að taka Dieselmótorinn, sem oft hefir verið nefndur
„Konungur mótorvjelanna“ í þjónustu sína. íslendingar, keppið einnig að því, að not-
færa yður það besta úr nútíma vjelmenningu. Hafið hugfast, að „Nýja tímans fram-
för fleygir fornum kröfum burt.“
Leiðarvísir á íslensku fylgir hverri Delta-vjel.
Nánari upplýsingar hjá einkaumboðsmönnum fyrir Delta, sem einnig hafa
flesta nauðsynlega varahluta í þær fyrirliggjandi. — Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Stnrlangnr Jónsson & Co.
Simi 1680.
Hafnarntrœii 19.