Morgunblaðið - 27.04.1928, Síða 2

Morgunblaðið - 27.04.1928, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ to Marmw & Olsew (( Höfum til: ÚtsœðiskBPÍðfiiir, íslenskar, verulega góöar. Einnig matarStartSflup, islenskar og útlendar, nokkrar teg. BRAGÐIÐ mm MJ0RLIK1 feriiiœgarsioíirnar er best ad kaupa i Bðkaverslun flrinbi. SveitbiarnsrsaRar Nýftt Nantakföt fœst ávalt i Herðnbreið. Mftkið úrral af niðursoðnum ávöxtum: Ananas, Apricosur, Ferskjur, Jarðarber, Perur, í hálfum og heilum dósunu Verðið mjög lágt Versl. Vftsir Islenskt smjðr á 1,50 pr. '/* kg, Kartöflup 10.50 kr. pr. sekk. Hveitr(Kriatal) 27.50 pr. 65 kg. Niðursuðuvörur mikið úrval. Hreinlaatísvörur mjög ódýrar. AV. Langódýrasta verslun bftej- arins í stærri kaupum. — Spyrjist fyrir um verð. Að eins 1. flokks vörur. Stiflm. JikauuuMH. Baldursgötu 39. Talsimi 1313. 8ð*t« gfðrs | ’ a'öiw kasfpa |sos«i þ36ðfr**rg> .j tcgarafeol !i|& j H. ?*. 0«isíí>, ÁvíiSS s-lse* htisi. Simi tS. %im z? hdma 212' er best seisf m@ii Málnftnp. bast hjjá Pðii ðlafssyni, Sitnan 1799 og 278. Fíá Búaaðarfjelsginu, 26. apríl. F.B. Stjórn Bunaðarfjelags íslands ákvað á seinasta' fundi sínum að veita hr. Jóhannesi Reykdal á Setbergi 1200 króna styrk, til þess að kaupa heyþurkunarvjel f'rá Englandi. Mun vjelin sennilega kosta ca. 4000 lcr. hingað komin. Fjelagið hefir áskilið sjer rjett að nota vjelina til þeirra tilrauna, sem hún síðar kann að ákveða að gerðar verði, í samráði við verk- færatilraunanefnd fjelagsins. — Nefnd þessi var skipuð samkvæmt ályktun Búnaðarþings af Búnað- arfjelagi íslands og voru skipaðir í nefndina: Halldór Vilhjálmsson skólastjóri á Hvanneyri, Magnús Þorláksson bóndi á Blikastöðum og Arni 6. Eylands verkfæraráðu- nautur. Er hann formaður nefnd- arinna'r. Nefndin starfaði að til- raununum í fyrravor og fyrra- haust á Blikastöðum og er skýrsla um tilraunirnar birt í Búnaðarrit- inu, hefti, sem er um það bil að koma út. Skýrsluna hefir stjórn Búnaðarfjelagsins látið sjerprenta til úthlutunar. í ár starfar nefndin á Hvanneyri að tilraunum með heyvinnuVjelar o. fl. Pálmi Hannesson náttúrufræð- ur er ráðinn í þjónustu Búnaðar- fjelags Islands og Fiskifjelags fs- lands til vatnarannsókna og leið- beininga um veiðiaðfeVðir og fiski- rækt í vötnum. f ráði er að gera laxastiga í Lagarfljóti og var veitt- ur til þess styrknr á þessa árs fjárlögum. Athugar Pálmi hvar heppilegast muni að gera laxastig- ann og segir fyrir um framkvæmd verksins. Stjórn Búnaðarfjelagsins hefir fengið ýmsar umsóknir um leið- beiningar viðvíkjandi rafveitum í sveitum. Eru umsóknirnar til at- hugunar hjá stjórninni. Vel'ður síðar tilkynt hvað stjórnin sjer sjer fært að gera þeim viðvíkjandi. Stjórn fjelagsins hefir og fengið nokkrar umsóknir um styrk til dráttarvjelakaupa. Slíka styrki tel- ur hún Búnaðarfjelaginu ekki fært að veita, en hefir lagt til við At- vinnumálaráðuneytið, að það veiti sex af þessum umsækjendum lán úr Vjelasjóði, 3000 krónur hverj- um, til 5 ára með 5% vöxtum. — Þessir umsækjendur eru: Búnaðarsamband Borgarfjarðar, Búnaðarsamband Suðnrlands, Bún aðarfjelag Grímsnesinga, Búnaðar- fjelag Eyrarhrepps (í ísafj.s.), Búnaðarfjelag Svalbarðsstrandar og Búnaðarfjelag Aðalreykjadals. Búnaðarfjelagið hefir samið regl ur um sýnisreiti mað grasfræs og hafrasáningu, sem fje er veitt til í 16 gr. fjárlaga þessa árs og hefir vistað sýnisreiti í 9 hreppum við Eyjafjörð, 4 í Dalasýslu, 6 í Snæ- fellsness og Hnappadalssýslu, 4 í Mýrasýslu og 4 í Bo'rgarfjarðar- sýslu. Treystir stjórn Búnaðarfje- lagsins því, að þessi fjárveiting standi áfram á fjárlögnm, þangað til komnir eru slíkir sýnisreitir í öllum þeim hreppum landsins, er skilyrði hafa til sáðræktar. Tilraunir með köfnunarefnis- áburð verða gerðar á tiinum, í sambandi við þessa reiti, þar sem því verður við komið. Stjórn Biinaðarfjelagsins hefir vistað á milli 30—40 pilta til verk- legs járðræktarnáms, hjá einstök- um mönnum, búnaðarfjelögum og búnaðarsamböndum, samkvæmt á- kvörðun síðasta Búnaðarþings. — Námstími minst 6 vikur, mest 8. Styrkur sennilega 2 kr. til 2.50 á dag. Aðalfundur Búnaðarfjelags ís- lands verður haldinn í Stykkis- hólmi þ. 13. júní. Þar á meðal ann- ars að kjósa fulltrúa til Búnaðar- þings fyrir Vestfirðingafjórðung til 4 ára. Kosningarrjett hafa allir meðlimir Búnaðarfjelagsins. Bjarni Ásgeirson alþm. sækir fundinn f. liönd fjelagsstjórnarinnar. Senni- lega sækja báðir búnaðarmálastjór arnir fundinn. Tvísöngnr Guðránar Ágústsdóttur og Guðrúnar Sveinsdóttur. Nýtt! Isl. egg nýorpin, ódýrt. Nauta- kjöt í steik. Nautakjöt í buff. Nautakjöt i súpu. Frosið dilkakjöt. Styðjið það íslenska. \S on, Óneitanlega var efnið, sem frúrn ar höfðu valið sjer, dálítið ein- hliða. Biðjum fyrir okkur — þau voru svo sem nógu falleg tvísöngs- lögin eftir Schumann, Dvorálr, Gade, H. Kjerulf o. fl., en þau voru flest um sólskin og blóm og fuglakvak. En andstæður eru ákaf lega mikilvægar í listum og lista- flutningi. Og nú var þörf á að gæta þeirrar staðreyndar, af því að hætt er við því jafnan, að tví- söngur kvenna þyki tilbreytingar- lítill til þengdar, ekki síst, ef radd- irnár eru hreimlíkar. Tvísöngur frúnna var geðþekk- ur, eins og vænta mátti, er jafn smekkvísar konur áttu hlut að máli. En hann var ekki stórfeldur (og ekki æfinlega hreinn). Hann var eins og smáfrítt andlit, sem vantár þann svip, er tekur hug manns fanginn. Hann hafði ekki töfrandi vald. — Vafalaust liefði hann átt betur heima í minni sala- kynnum og albest í heimahúsum. í söngsölum vaxa lcröfurnar í öll- um efnum. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Þar búast menn við miklu. Þar vænta þeir kunn- áttu — helst mikillar kunnáttu. Og þar gera þeir sjer jafnvel von- ir um þetta „eitthvað“, sein ekki ve'rður skilgreint, en listamenn eiga í fórum sínum og miðla öðr- um af. Slíkum kröfum gátu frúrn- ar ekki fullnægt — að minstakosti ekki nema í blettum. Næst ættu þær að taka að sjer einn eða tvo þætti af efnisskrá og gera sjer ekki óþarflega erfitt fyrir um að halda athygli áheyrenda vakancíi, með því að leika mjög á einn og sama st'reng. Söngnum var afbragðs vel tekið, ekki síst seinustu lögunum: „Nat- tergalen' ‘ eftir Gade — smálagi með Ijósum, mildum tónblæ og öðru eftir H. Kjerulf („Fugle- kvidder“) fjörlegu og liressandi. Eins var um „Sólsetursljóð“ sjera Bjarna Þorsteinssonar og fleiri söngva. Emil Thoroddsen Ijek undir. Sigf. E. ÖEngíð’ Sterlingspund............. 22.15 Danskar kr................121.70 Norskar kr................121.52 Sænska'r kr...............121.89 Dollar....................4,54)4 Frankar................... 18.01 Mörk......................108.62 Höllin König'smairk heitir mynd- in sem Nýja Bíó hefir sýnt uncl- anfarin kvöld og sýnir enn í kvöld. Er það mynd, sem vel er þess verð að sem flestir sjái hana. ( belti, i { buxur, húfur, ( peysur, sokkar. Einnig sportfataefni margar tegundir. Lægst .verð í bænum. Giiðm. B. tfikai*. i Laugaveg 21. Sími 658. ífiróttafjelag Reykjavíkur Teraisdeild fjelagsins telcur til starfa í byrjun næsta mánaðar. Þeir sem ætla sjer að taka þátt í tennis í sumar sendi fyrir 1. maí skriflega tilkynningu um það og hvaða tíma dags þeir óska. Stjórnin. HúsmanEisbýlið Bergvik á Kjalarnesi fæst til kaups nú þegar og laust til íbúðar í fardög- um næstkomandi. Ólafui* Bjarnason, Brautarholti. Bankabygg Viktoríubaunir 1/1 og y2 Kjúklingafóður „Kvik“ Hænsnafóður, „Kraft“ 1/1 mais og maásmjöl Hænsnabygg Sago, kartöflumjöl Hafiramjöl, „Moro“ fyrirliggjandi hjá C. Behrens, Sími 21. Þar nð feg undirrituð hætti, frá 1. maí n.k,, mjólkursölu þeirri, er jeg hefi haft á Vesturgötu 12, ]>akka jeg öllum mínum viðskiftavinum fyrir góð viðskifti, og leyfi mjer um leið að tilkynna, að mjólkursala sú, er verður þar framvegis, er mjer með öllu óviðko'mandi. Virðingarfylst, Louisa Ólafsdóttir, frá Arnarbæli. Orchidée. Mtiníð eftir að biðja kaaspmann yður um þennan góða og ódýra blómaáburð.«

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.