Morgunblaðið - 02.08.1928, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Nýkominn:
Gruyére-ostur,
„Créme de Gruyére aux Fleurs du Jura“
ðósum með 6 stk.
Laukur í pokum.
Teiefunken
framlefða bestn
ntvarpstækin.
AHLET og ÞÓR
eru landsins bestu hjól.
-j Fást hjá Sigurþér
Aðalstræti 9. Símnefni Úraþör. Sími 341.
Nýkomið:
Appelsfnur 0,15 kr. pr. stk.
Epli,
Bananar,
Sitrónur,
Niðursoðnir Avextir
í stóru úrvali.
Gódir og ódýrír.
TðRirawai
Laugaveg 63. Sími 2393-
kosta glœný egg i
Kalk
í heilum tunnum og lausri
vigt.
Valdemar Ponlseu.
Klapparstíg 29.
Dreagjamðtið,
K. R. vinnur.
Á þriðjudaginn fór fram síðasta
kepni mótsins, sem var sund við
Örfirisey. Fyrst var kept í 50
metra sundi frjáls aðferð. Fyrstur
varð Friðrik Eyfjörð (Á.) á 34
sek. og setti nýtt drengjamet. —
Munaði minstu að hann tæki met
Erlings Pálssonar á þessu sundi,
sem mun vera 33,3 sek. og hefir
staðið í mörg ár. Friðrik er mjög
efnilegur sundmaður, og lík-
legur þó ungur sje, til að slá
fullorðins metið á þessu ári. Ann-
a/ var Ólafur Guðmundsson(K.R.)
á 45,2 sek. og þriðji Sigurjón Jóns-
son (Á.) á 46 sek. Þá fór fram 200
metra sund, frjáls aðferð. Fyrstur
varð Úlfur Þórðarson (Æ.) á 3
mín. 41,3 sek. og er það nýtt
drengjamet. Annar var Elías Val-
geirsson (K. R.) á 3 mín. 49,4 sek.
Eru þetta mjög efnilegir sund-
menn báðir. Þriðji var Ólafur Guð-
mundsson (K. R.) á 4 mín. 2,2 sek.
Þar með var mótinu lokið. Á móti
þessu var bæði fjelagakepnin um
drengjabikarinn og einstaklings-
kepni. í einstaklingskepninni hlaut
Ingvar Ólafsson (K. R.) 22 stig
og mun það hæsta stigatala sem
einstaklingur liefir hlotið í drengja
mótum hjer. Er lngvar Ólafsson
einn hinn efnilegasti íþróttamað-
ur af hinum yngri mönnum og bar
oft sigur úr bítum mót þeim eldri
á Allherjarmótinu í voí. Næstur
honum að stigatölu var Ólafur
Guðmundsson (K. R.) með 10 stig.
Glafur er mög efnilegur hlaupari.
Þriðji í röðinni er Marino Krist-
insson (Á.) með 8 stig. Er hann
mjög efnilegur kastari.
K. R. vann Drengjabikarinn,
sem það fjelag hlýtur er flest stig
fær á mótinu. Hlaut K. R. 44 stig,
Ármann 18 stig, í. R. 7 stig og
Ægir 3. stig.
Á mótinu voru sett 8 ný drengja
met. Sýnir slíkt mikla framför í
þessum íþróttaflokki og ef hinir
ungu og efnilegu drengir halda á-
fram að æfa sig í íþróttum, munu
þeir áður én langt um líður verða
methafar í flestum íþróttagreinum
hjer. Fjelögin Ármann og K. R.,
sem hjeldu þetta mót eiga skilið'
þakkir allra íþróttavina fyrir það,
því nauðsynin mesta til eflingar
íþróttalífi voru er einmitt sú, að
fá drengina nógu snemma til að
hyrja á hinum hollu íþróttaæfing-
um. Með því móti mun þjóð vor
verða aftur fræg á íþróttasviðinu.
Ungu menn! Iðkið íþróttir það er
yður sjálfum og þjóðinni fyrir
bestu.
«—
Gamalmennaskemturiin
á sunnudaginn kemur.
Fyrir nokkru var jeg við guðs-
þjónustu í Dómkirkju Kaup-
mannahafnar. Þar var í forkirkj-
unni úthlutað smáriti frá fjelags-
skap, er nefnist „Velferð gamla
fÓlksins.“ í riti þessu var mint á,
að nú væri „vika gamla fólksins“
að byrja, sem sjerstakar safnaða-
nefndir notuðu til skemtiferða fyr-
ir gamla einstæðinga. Taltmarkið
að hvert einasta gamalmenni stór-
horgarinnar gæti verið einn sól-
skinsdag úti í skógi, og þar sem
nokkrir sumarbústaðaeigendur í
nágrenni Hafnar væru fúsir til að
hýsa einstæðinga, færi þeim smá
fjölgandi, sem gætu notið meira
en dagstundar í skóginum.
Það þótti mjer góður endir
góðra guðsþjónustu, eða ef til vill
rjettara sagt byrjun sannrar guðs-
þjónustu.
Vjer erum ekki í stórborg og
engir skógar í grendinni. Sumar-
bústaðir í nágrenni voru munu og
fæstir svo rúmgóðir að auðvelt sje
að hýsa þar gesti. En samt sem áð-
ur eru hjer í bæ mörg þreytt og
fóthrum gamalmenni, sem hlakka
til þessarar einu gamalmenna-
smemtunar, sem tengd hefir verið'
við Elliheimilið undanfarin sumur.
Aðrir flestir eiga marga skemti-
daga á ári hverju, og öfundar þá
enginn af því. — Verði þeir gaml-
ir, þá fækkar skemtunum einnig
fyrir þeim síðar, og einstæðings-
skapur getur biðið margra, sem
vinmargir eru í dag. — Og öllum
er það auðsætt að forgöngunefnd
Elliheimilisins ein fær litlu til veg-
ar komið svo að unt sje að flytja
fram og aftur um 100 fóthruma og
gefa þrem til fjórum hundrað
gamalmennum góðar veitingar.
Bæjarbúar hafa þá undanfarin
sumnr hlaupið vel undir baggann,
og vjer treystum því að svo verði
og á sunnudaginn kemur.
Flestir Reykvíkingar munu
kannast við hvað mest vanhagar
um. En rjett til minnis má nefna:
Kaffi, sykur, kókó, rjóma og
kökur. Aldrei hefir neitt gengið af
kökunum, þótt allir bakarar hæj-
arins hafi lagt í þann sjóð, að jeg
nú ekki njinnist á „sælgætið“,
heimabökuðu kökurnar, sem fá-
einar, en þó alt of fáar, húsmæður
hafa sent undanfarandi sumur. —
Gestirnir spyrja um gosdrykki,
vindla og jafnvel neftóbak. — En
altaf eru vandræðin mest með
bifreiðar, og ættu því þeir, sem
þeíckja farlama gamalmenni að
reyna sjálfir að útvega þeim
flutning og ekki leita til nefndar-
innar með það nema í öll önnur
skjól fjúki.
Annars byrjar skemtunin kl. 2
hjá Grund á sunnudaginn kemur
verði ekki rigning, og allir vel-
komnir, en þó einkum og sjerílagi
alli þeir fátæku sem ríkir, sem
komnir eru yfir sextugt. — Þeir
sem vilja bera á borð, skemta,
gefa, eð'a flytja, ættu að segja til
sín sem fyrst. Það er öllum við-
lcomandi ánægjulegast að allur sá
stuðningur sje sjálfboðinn, en ekki
þrábeðinn.
Hjálpumst að, svo að dagurinn
verði ríkur góðra minninga.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Fiú Brock-Hlelsen
býður ungfrú Ástu Norðmann að
kenna henni dans, því hún lítur
svo á, að Ásta hafi óvenjulega
hæfileika sem dansmær.
Dansmærin frú Broek-Nielsen
tók sjer far hjeðan með Islandi í
gær. Yar hún mjög ánægð yfir
komu sinni hingað, og viðtökum
þeim, er hún fekk bæð'i hjer í
Reykjavík og eins á Isafirði, Ak-
ureyri og Siglufirði.
Áður en hún fór hafði Morgun-
blaðið tal af henni, og skýrði hún
þá frá því m. a. að hún hefði
kynst ungfrú Ástu Norðmann og
hefði það vakið eftirtekt hennar,
hve mikla hæfileika hún hefði til
þess að geta numið listdans.
Ungfrú Norðmann hefir, sem
kunnugt er, iðkað' danskenslu hjer
í Rvík undanfarin áí, og hefir
liún vitaskuld áður notið talsverðr-
ar mentunar á þessu sviði. En til
þess að ná fullkomnun í danslist,
þurfa menn helst að iðka dans
frá blautu bamsheini, undir stjórn
bestu kennara. Þetta hefir ungfrú
Norðmann eigi haft tækifæri til.
En það ðr álit frú Brock-Nielsen,
að hún sje svo óvenjulegum hæfi-
ieikum gædd í þessu efni, að það
komi henni ekki að sök, þó hún
eigi byrji á hinu æðra námi í þess-
um efnum fyr en nú.
Að þetta er alvara mín, sagði
frú Brock-Nielsen, getið þjer best
dæmt um af því, að jeg hefi boðið
ungfrú Norðmann að kenna henni
ókeypis. Það mundi jeg ekki gera,
ef jeg væri ekki sannfærð um, að
hún muif ná sjaldgæfri fullkomn-
un á danssviðinu.
Ingólfur Flygenring kaupmaður
i IJafnarfirði, er að láta gera mikl-
ar breytingar á íshúsi sínu og
stækka frystirúmin þar að mikl-
um mun. Eftir því sem bátaútgerð-
in hjer á Suðumesjum hefir auk-
ist, hefir og þörf fyrir stærri og
betri íshús til heitugeymslu auk-
ist, enda sjer það á víðar en í
jHafnarfirði, að íshúsin eru þegar
orðin of lítil.
GfiiftenDi
Og
Dyramottup
komið aftur,
mjðg Adýpf.
Brauns-Verslun.
Sesta
ganmavjelin
er
Kðhler.
Verslun
Igill laeobsen.
Viðsneti:
Reyktar pylsur, reyktur lax og
rauðmagi, nautasulta, grísasulta,
lifrarkæfa, ostar og sardínur marg-
ar tegundir, egg o. fl.
Matarbúð Sláturfíeiagsina
Laugaveg 42. Sími 812.
Avextir
niðursoðníp frá 90 aur.
dösin. Gulröfur og jarð*
epli ódýrast i borginni.
Verslunia Fram.
Laugaveg 12.
Sími 2296.
Húsmaiiur!
Biðjið œtið um þad
— besta, sem er —
H. Benediktsssn t Go.
Sfmí 8.
V5rubilas«5ðin,
Tryggvagötu (beint á móti Liver-
pool) opin frá 6 f. h. til 8 e. h.
hefir síma
1006
Meyvant Si urdsson.