Morgunblaðið - 09.08.1928, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Hveiti:
Cream of Manitoba í 63l/a kg. pokum.
Glonora í 50 kg. pokum.
Canadian Maid í 50 kg. pokum.
Nokkpap
Vetrarkápur
frá i fyrra ooljast
fyrlr hálf virði.
Verslun
Egiil lacobsen.
Grammofoner,
Musikinstrumentei*
& Pletvarer,
Til uhört billige Priser direkte
fra Lager.
Kataloget sendes gratis
o veralt.
ALLEGRO
Falkoneralle 43.
Köbenhavn.
Solinpillur
eru framleiddar úr hreinum
jurtaefnum, þær hafa engin
skaðleg áhrif á líkamann, en
góð og styrkjandi áhrif á
meltingarfærin. — Sólinpillur
hreinsa skaðleg efni úr blóð-
inu. Sólinpillur hjálpa við
vanlíðan er stafar af óreglu-
legum hægðum og hægða-
leysi. — Notkunarfyrirsögn
fylgir hverri dós. Verð að-
eins kr. 1.00. — Fæst í
LAUGAVEGS APÓTEKI.
Nýtt diikekiðt,
Nautakjðt og
Rjómabússmjðp.
Hiötbððin HaröubTBið.
Sími 678.
"I"
Sjarui Pjetarsson
óðalsbóndi á Grund.
í gærmorgun Ijetst hjer í Landa-
kotsspítala merkisbóndinn Bjarni
Pjetursson á Grund í Skorradal.
Kom hann hingað suður fyrir
skemstu til þess að leita sjer lækn-
ingar við langvinnu innvortis
meini; var skorinn upp, en þoldi
ekki skurðinn.
Bjarni var fæddur 2. maí 1869,
sonur góðbóndans Pjeturs Sigurðs-
sonar á Grund. Tók hann við jörð
og búi eftir föður sinn. Árið 1901
kvæntist hann eftirlifandi konu
sinni Kortrúnu Steinadóttur frá
Valdastöðum. Þrjú börn þeirra
uppkomin, eru í foreldrahúsum:
Kristín, Pjetur búfræðingur og
Guðrún.
Grund í Skorradal liggur í þjóð-
braut. Þar er fagurt umhverfi og
vistlegt af náttúrunnar hálfu. Bn
garðinn hafa gert frægan þeir
feðgar Pjetur og Bjarni, sjerstak-
lega hinn síðarnefndi. —- Húsaði
hann jörðina ágætlega og prýddi á
alla lund. En þó verðnr lengst í
minnum haft, hve ágætlega var
tekið þar hverjum þeim, sem að
garði bar. Að koma að Grund var
eins og að koma heim til sín —
þar var mönnum, þótt bráðókunn-
ugir væri, tekið opnum örmum á
hvaða tíma dags sem var. Og þrátt
fyrir umsvifamikil bústörf var eins
og Bjarni hefði aldrei svo mikið
að gera, að hann gæti ekki sint
gestum sínum.
Það var gaman að koma að'
Grund. Þar var eitt hið allra ís-
lenskasta heimili. Hverjum, sem að
garði bar, var tekið eins og besta
vini, og alt, sém heimilið hafði að
bjóða, var hverjum manni til
reiðu, og alt, bæði framreiðsla
og viðmót allra heimilismanna var
svo gott sem frekast varð á kosið.
Mætti ísland eignast mörg slík
heimili sem Grund í Skorradal og
marga jafn góða bændur og
Bjarna.
kom 2. vjelstjóri á vörð. Á viss-
um tíma dældi hann bátinn eins
og hans var venja og þarf að gera,
vegna þess hve mikið vatn síast
úr ísnum jafnbarðan sem bráðnar.
Tók hann þá eftir því, að meira
vatn var í bátnum en hann bjóst
við. Dældi bann þá stundarfjórð-
ungi lengur en venja var og
minkað’i vatnið sama sem ekklert.
Þá fór vjelstjóri til skipstjóra og
skýrði honum frá þessu. Skipstjóri
kom þegar npp á þiljur og sá þá,
að báturinn var orðinn mjög síg-
inn. Ljet hann þegar snúa bátn-
um við og upp í vindinn og jafn-
framt ljet hann fara að kasta út
fiski úr' lestinni til þess að ljetta
á bátnum og komast að til þess
að ausa þar. Nokkra stund eftir
að byrjað var að ausa, sást að
sjórinn í skipinu minkaði og tókst
að lokum að dæla það þurt. En
ekki leitst skipstjóra 4 að halda
áfram til Englands og eiga það
máske á hættu að' báturinn sykki
úti í reginhafi. Var þá haldið
til Vestmannaeyja aftur. Þar var
losað úr bátnum það, sem eftir
var af fiski í honum og hann
skoðaður gaumgæflega, en hvergi
fanst neinn lekastaður á honum.
Síðan var farin reynsluferð um-
hverfis Eyjar til þess að reyna
að komast eftir því, hvar báturinn
væri lekur, en þá lak hann ekki
einum dropa. Þá var báturinn
sendur hingað til Reykjavíkur til
enn frekari skoðnnar og kom hann
hingað 23. júlí. Var þá ákveðið
að setja hann upp í Slippinn til
skoðunar. En hann komst þar ekki
að þá þegar, vegna þess að olíu-
skipið' „Skeljungur(< átti að drag-
ast þar á land. Var það ekki fyr
en 3. ágúst að „Venus“ komst þar
að. Var báturinn þá gaumgæflega
skoðaður' af skipaskoðunarmönn-
nnum M. E. Jessén og Ólafi Th.
Sveinssyni, én þeir fundu ekkert
athugavert við hann — hvergi var
hægt að sjá þess neinn vott að
leki væri að honum. Og allan
tímann frá því að báturinn sneri
aftur í Atlantshafi og þangað til
liann var dreginn upp í Slippinn,
hafði hann verið skálþjettur eins
og áður og enginn veit með vissu
hvernig þessi snögglegi leki kom
að honum.
Þess má geta, að sjór kom að-
eins í lestina en ekki í vjelarrúm,
hásetaklefa nje káetu. Þar var alt
þurt.
Á laugardaginn var fór báturinn
aftur á flot.
NorðBuuuMlflriB.
Norski fáninn bannfærður
á Færeyjum.
S?. JéMSfM & £o.
Kirkjustræti 8 b. Sími 420
hafa fyrirliggjandi miklar birgðir
af fallegu og endingargóðu vegg-
fóðri, pappír, og pappa á þil, loft
og gólf, gipsuðum loftlistum og
loftrósum.
GilletteblHð
ávalt fyrirliggjandi í heildsölu
Vilh. Fr. Fríimanniöoii
Sími 557
Bát ir í pjðuarháska.
Vh. „Venus“ er nærri sokkinn í
hafi án þess menn viti hvernig
leki komst að honum.
Laust eftir miðjan júlímánuð fór
vjelbáturinn „Venus“ frá Vest-
mannaeyjum, hlaðinn fiski, sem
hann hafði veitt í sæslóða (snurre-
vaad) og var ferðinni heitið til
Englands. Veður var gott og vind-
ur beint á eftir. Þegar háturinn
var kominn 82 enskar mílur til
hafs, skiftu vjelstjórar vöku, og
Skemtiferðaskipið „Mira“ kom
tii Þórshafnar 28. fyrra mánaðar.
Mikil viðhöfn var þar, þegar
ferðamennirnir komu. Við land-
ganginn var reistur „heiðurshogi“
og fánaraðir langa leið, þar sem
ferðamennirnir skyldu ganga. —
Sáust þar aðeins hlaktandi fær-
eyski og danski fáninn. En eftir-
tekt vakti það, að á tveimur
stöngum, rjett við landganginn,
er norski fáninn fast tjóðraður
við stengurnar og negldur.
Ástæðan til þess var sú, að
nokkru áður en ferðamennirnir
komu til Færeyja, höfðu dönsku
yfirvöldin í Færeyjum tilkynt
móttökunefndinni, að bannað væri
með lögum að draga upp erlend-
an fána í Færeyjum. Bann þetta
hafði verið sett á stríðsárunum, en
gleymst að fella úr gildi.
Móttökunefndinni þótti þetta
súrt í broti, en varð að láta sjer
lynda að negla norska fánann á
stengurnar og sjá nm hann ekki
blaktaði, því yfirvöldin skoðuðu
það sem skreytingu.
Nærri má geta, að þetta tiltæki
yfirvaldanna dönsku mæltist mjög
illa fyrir í Færeyjum, enda málið
einkar vel lagað til þess að koma
af stað óvild til Dana, og því
óskiljanlegt að dönsk yfirvöld
skyldu fara að vekjá upp þessar
leifar ófriðaráranna við slíkt tæki-
færi.
—— ---------------
Fyrsta hijómleikar
frú L. Mysz-Gmeiner
voru í Gamla Bíó í fyrrakvöld. —
Þegar eftir fyrsta lagið á skránni,
„Allmacht“ Schuberts, var Ijóst,
að þær fregnir, sem borist höfðu
af þessari söngkonu, voru ckki
ýktar; hjer var í raun og veru á
ferð eitt af þeim stóru nöfnum,
er sjást á söngskránum á megin-
landi álfunnar. — Frúin hefir
mikla alt-rödd, sem tamin er svo
eftir öllum reglum listariunar, að
ekkert heyrisí á vanta. Þó fer því
fjarri, að með þessu sje alt sagt,
því að meðfcrð efnisins ?r öll
þrungin af því lífi og fjöri, sem
listamönnum er einum gefið. Frú-
in ræður ekki einungis fullkom-
lega v i ð það, sem hún fer með,
heldur ræður hún líka y f i r því
og sýnast henni ekki takmörk sett
um það, hvað hún geti fengið út
úr efninu.
Á skránni voru fyrst lög eftir
Schúbert — auk hins áðnrnefnda.
„Friihlingsglaube“, „Wohin“ og
„Der Musensohn“. — Þá komu 3
lög eftir Löwe, einkennileg og fög-
ur, sem ekki hafa heyrst hjer fyr.
Hið fyrsta við þýskt kvæði ilm
„Ólaf liljurós“, vakti sjerstaka at-
hygli og aðdáun. — Þá söng frúin
„Sofnar lóa“ eftir Sigfús Einars-
son og „Kirkjuhvol“ eftir Árna
Thorsteinsson, hvorttveggja á ís-
lensku, og þótti prýðilega takast,
en síðast komu 3 lög eftir Schu-
mann, „Der Nusshaum“, „Du bist
wie eine Blume“ og „Frúhlings-
nacht“. — LTm viðtökur áheyrenda
þarf ekki að fjölyrða, þær voru
eins og þær geta verið bestar:
lílapp, óp og framkallanir, en hitt
vakti óþægilega athygli, að auð
sæti skyldu sjást við þetta tæki-
færi. — Sjerstaka viðurkenningu
sýndu áheyrendur hr. Kurt Haeser
fyrir hinn ágæta undirleik hans
og margkallaður var hann frarn
effir tvö lög, sem hann ljek einn,
„Forngrískan musterisdans“ og
„Syngjandi goshrunn“ eftir Wal-
ter Niemann, sem hr. Haeser Ijek
af hreinni list.
Des.
BengiB,
Sterlingspiind............. 22,15
Danskar krónur...........121,80
Norskar krónur...........121,86
Sænskar krónur...........122,17
Dollar.....................4,56T4
Frankar.................... 17,97
Gyllini....................183,44
Mörk...................... 108,89
Dðmnregukápnriiar
í mjög mörgum fögrum litum og
mismunandi verði og
Regnhlffaraar
ódýru, komnar
flsg. 0. Bunnlaugsson
t Go.
Híkomii:
Melónur,
Appelsínur,
Epli,
Ðananar.
Verslunin Fossy
Laugaweg 25. Sfmi 2031.
Hrelns vörnr
fást allstaðar.
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
• •
5ími 2?
heíma 2127
Vjelarsimar.
Morgunblaðið
fæst á eftirgreindum stöðum,:jj
utan afgreiðlunnar í Aust-
stræti 8:
Laugaveg 12.
Laugaveg 44,
Vesturgötu 29,
Bræðraborgarstíg 29.
Baldursgötu 11.
/