Morgunblaðið - 30.08.1928, Side 3

Morgunblaðið - 30.08.1928, Side 3
3 MORGUNBLAÐIÐ Stofnandi: Vilh. Pinsen. tTtgefandi: Fjelag I Reykjavik. Rltstjórar: Jón Kjartansson. Vaitýr Stefánsson. Auglýsingastjóri: E. Hafberg. Skrlfstofa Austurstrœti 8. Stmi nr. 600. Auglýsingaakrifstofa nr. 700. Helmasimar: Jón Kjartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. E. Hafberg nr. 770. Aekriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuVl. Utanlands kr. 2.60 - — I lausasölu 10 aura eintakiS. HeHoga-samningurinn. j Khöfn, FB. 29. ágúst. Blöðin ræða sáttmálann. Krá London er símað: í blöðun- um birtist mikið um ófriðarbanns- samninginn, telja flest blöðin, að hann muni hafa mikla þýðingu, <en vara á hinn bóginn við því, að gera sjer of miklar vonir um þá þýðing, sem hann lcunni að hafa. Blaðið „The Morning Post“ telur, að þátttaka Bandaríkjanna í frið- •arstarfinu sje þýðingarmikil. „Dai- ly Telegraph“ telur það rökrjetta •afleiðingu af samningnum, að Bandaríkin geti ekki mótmælt, þótt Þjóðbandalag'ið samþykki refsingar ráðstafanir . gagnvart þeirri þjóð sem rýfur friðinn. Frá Berlín er símað: Vinstriblöð in láta í Ijós mikla ánægju yfir því, að undirskrift samningsins hefir farið fram „Vossiche Zei- tung“ teliu' ófriðarbannið, þótt ó- fullkomið sje, þýðingarmikla fram för í friðarmálunuum. Hægri blöðin eru á hinn bóginn vantrúuð' á, að samningurinn muni hafa mikla þýðingu. Frá Rómaborg er símað : Blaðið -,,Livono“ segir að undirskrift ítalíu sje aðeins formleg. í hjört- inn sínum sjeu Italir ekki hlyntir samningnum. Rússar og' Kelloggssáttmálinn. Frá París er símað: Bandaríkin buðu í gier fjörutíu og þremur líkjum, sein ekki skrifuðu undir Samninginn í fyrradag, að skrifa ordir hann. Stjórnin í Frakklandi bauð ráðstjórninni rússnesku að skrifa undir samninginn. Litvi- Uov bað í tilefni af því um afrit af brjefaviðskiftum stórveldanna viðvíkjandi undirbúningi samnings ins. Afvopnunarmálin og Rússar. Frá Moskva er símað': Litvinov hefir sent Þjóðbandalaginu „nótu“ 'Og hafnar fyrir höncl stjórnarinn- •ar tilboði um, að Rússar taki þátt í nefndarstörfum til undirbúnings •eftirliti með hergagnaframleiðsl- unni. Segir Litvinov, að Þjóð- bandalagið hafi engu áorkað við- víkjandi afvopnun. Starfsemi fram annefndrar nefndar geti eins og -sakir standa aðeins vakið tálvonir viðvíkjandi afvopnuninni. Lettin að Hassel. (Sendiherrafrjett). Rvík, 29. ágúst. Leitað er að Hassel og fjelaga hans Cramer í Holtsteinsborg-, Sukkertops-, Groothaabs- og Frede- rikshaabshjeraði, og notaðir mótor bátar og húðkeipar. Farið er upp á alla hæstu fjallatinda og svipast um. Knud Rasmussen annast um leitina innanskerja og örfar Græn- lendinga til þess að fjölmenna í ieitina og ganga sem best fram. MGRGUNBLAÐIÐ Tekjur ráðherra. Eftirtektarverður samanburður. i. Stjórnarblöðin hafa undanfarið' verið allhávær út af óhæfilega háum tekjum, er ráðherrar íhalds- flokksins hafi haft meðan þeir gegndu ráðherrastörfum. Háfa blöðin í því sambandi bir't tölur úr skýrslu hinnar svonefndu sparn aðarnefndar. Bnda þótt margt sje við þær tölur að áthuga, sem sparnaðarnefndin hefir frá sjer sent, skal þó stjórnarblöðunum til þægðar, lofa þeim óhögguðum að standa. En þá verða stjórnarblöðin að láta sjer lynda þótt reiknað' sje með söttra tölum, þegar taldar eru saman heildartekjur núverandi ráð herra, og saiuanburður gerður á þeim við tekjur ráðherra íhalds- flokksins. Morgunblaðið ætlar nú að gera samanburð þenna. Verða fyrst taldar lieildar tekjur ráðherra Íhaldsflokksins 1926, eins og ]iær eru útfærðar í skýrslu sparnaðar- nefndar. Að því loknu verða tald- ar heildartekjur núverandi ráðh., eftir þeim gögnuin, sem fyrir liggja- Sparnaðarnefndin telur þessar heildartekjur ráðherra Ihalds- flokksins 1926: 1. 2. 3. 3. 4. 1. 2. 3. 4. A. Jón Magnússon. * ■" ’ Þingmannskaup.......................... 1987.92 Ráðherralaun í % ár................... 6250.00 Risnufje............................... 2000.00 B. Jón Þorláksson. Þingmannskfyip . . . , .............. 1987.92 Ráðherralaun (-)- húsnæði í 3 mánuði) 12500.00 y2 Risnufje........................... 2000.00 Húsaléiga............................ 1050.00 C. Magnús Guðmundsson. Þirigmannskauþ......................... 1987.92 Ráðherralaun.......................... 12500.00 y2 ráðherralaun fyrir 6 mán............ 3125.50 Embættiséftirlit........................ 756.50 10237.92 17537.92 18369.42 Morgunbl. birti fyrir skömmu yfirlit yfir heildartekjur forsætis- ráðherr'ans núverandi og reiknað- ist þá svq til, að þær væru rúm- lega 31 þúsund krónur. Þetta mun Samtals kr. 46145.26 þó vera of lágt reiknað. Hjer verð'a taldar heildartekjur Fram- sóknarráðherranna. Eftir því sem næst verður komist líta. þær þann- ig' út: 1. 2. 3. ri. '6. 7. 8. 9. 1. 2 3. 4. 1. 2. 3. A. Tryggvi Þórhallsson. j Ráðherralaun............................ 12000.00 Risnufje................................. 4000.00 Hækkun risnufjár er stjórnarliðið á síðasta þingi veitti..................... 4000.00 Styrkur til þess að lýsa og hita bústað ráðh., er stjórnarliðið veitti einnig .. .. 2000.00 . Þóknun fyrir form. í bankaráði íslb. 1600.00 Þingmannskaup............................ 1528.80 Ferðakostnaður til ijtk, áætlaður .. .. 5000.00 Fyrir stjórnarstörf í Bfj. Islands .. .. 500.00 Frítt húsnæði, áætlað...................... 3000.00 --------------- 33628.80 B. Jónas Jónsson. Ráðherralaun............................ 12000.00 Þingmannskaup............................ 1528.80 Ferðakostnaður, áætlaður................... 3000.00 Þólmun fyrir starf í dansk-ísl.ráðgj.n. .. 500.00 ------------- 17028.80 C. Magnús Kristjánsson. Ráðherralaun............................ 12000.00 Þingmannskaup............................ 1528.80 Þóknun í bankaráði íslandsbanka .. .. 1600.00 15128.80 Á yfirliti þessu sjest, að heild- artekjur Framsóknarráðherranna af opinberu fje, verða nálægt 20 þús. kr. hærri en heildartekjur ráðherra íhaldsflokksins voru árið 1926. Þessi gífurlega hækkun stafar fyrst og fremst af óhófi stjórn- arliðsins á síðasta þingi, að hækka tekjur forsætisráðherrans um 6000 krónur. — Hefði einhvern tíma glamrað í tálknum Tímans, ef ráð- herrar Ihaldsflokksins hefðu leyft sjer slíka bruðlun á ríkisfje. En nú þegir blaðsnepill þessi eins og Samtals kr. 65786.40 múlbundinn rakki; sama gerir danski niðursetningurinn hjer í bænum, sem þó er sígjammandi í tima og ótíma. TTt af skýrslu Morgunblaðsins um heildartekjur Tryggva Þór- hallssonar forsætisráðherra, gat Tíminn þess í smágrein, að það væru „falskar tölur“, sem blaðið birti. Um tekjur ráðherrans fór þessu sannleikselskandi(!) stjórn- árblaðið ni. a. orð á þessa leið: „Falskar tölur. Morgunblaðið birti á sunnudag- inn var lista yfir fjárupphæðir, sem það nefndi laun Tryggva Þór- hallssonar forsætisráðherra. Mikið. af því fje er alveg rangt að telja forsætisráðherranum til tekna, því að það er ætlað til greiðslu auka- kostnaðar, sem starf hans hefir í för með sjer. Má þar nefna ferðakostnað til útlanda og fje það, sem ætlað er til að veita móttöku erlendum gestum.... “ Þetta segir stjórnarblaðið nú. En hvað sagði þetta sama blað þegar sparnaðarnefndin var að reikna út og auglýsa „heildar- tekjur' ‘ ráðlierra Ihaldsflokksins 1926? I því yfirliti er bæði risnu- fje og ferðakostnaður talið ráð- herrunum „til tekna“. Framsóknarstjórnin hefir skip- að' sparnaðarnefndina og blöð stjórnarinnar hafa mikið af því látið, live starf hennar væri mikið og merkilegt. Ætlar Tíminn nú að halda því fram, að skýrsla nefnd- arinnar flytji falskar tölur? Ef blaðið ekki vill játa þetta verður það að viðurkenna að tölur Morg- unblaðsins sjeu rjettar. Varla getur ritstj. Tímans álit- ið lesendur blaðs síns svo heimska, að' þeir ekki sjái það, að ef rjett- mætt hefir verið að telja ferða- kostnað, risnufje og þessháttar „til tekna“ þegar ráðherrar I- haldsflokksins áttu í hlut, lilýtur sama, reglan að gilda þegar ráð- herran Framsóknarflokksins sitja við stýrið. Nú er úr vöndu að ráða fyrir Tímann. Annað hvort verður blað- ið að játa, að skýrsla sparnaðar- nefndar byggist á fölskum tölum, ellegar þá að kyngja þeirri stað- reynd, að heildartekjur Framsókn- ar stjórnarinnar af opinberu fje sjeu nál. 20 þús. kr. hærri en stjórnar íhaldsflokksins árið 1926. Tíminn liefir í þessu máli sett sjálfan sig í óþægilega klípu. Illt er að verða að játa, að stjórnin hafi skipað nefnd, launaða af ahnannafje, ef svo skyldi koma upp úr kafinu, að skýrslur nefnd- arinnar væru villandi og rangar. Hitt mundi og mælast illa fyrir, að auglýsa fyrir alþjóð -þá gegnd- arlausu fjárbruðlun stjórnarinnar, að liún eyddi nafrri þriðjungi meiru en fyrirrennarar hennar gerðu. Lofum svo stjórnarblöðunum að' fá orðið. Jarðhnsin á SnðnrlandL , Elstu mannvirtci iandsíns sem notsid eru. Jarðhúsin á Suðurlandi eru á- reiðanlega meðal merkustu forn- niinja vorra. *Um þau hefir tals- vert verið ritað, og þau rannsökuð enda þótt engin vissa sje enn fyrir því hve gömul þau eru. Þeir Einar Benediktsson skáld og Brynjólfur Jónsson frá Minna-'Núpi rituðu uiii hellaira fyrir mörgum árum. Nokkru seinna tók Matthías Þórð- arson sjer, fyrir hendur að athuga alla þá hella sem hann hafði spurn ir af. En hann hefir lítið' um þær afhuganir ritað vegna þess að haun hefir ekki átt kost á því að skoða hella eða jarðhús annara þjóða. En með samanburði á þeim og jarðhúsunum hjer er helst von um að fá vitneskju um hvenær þau eru gerð, og til hvers. I daglegu tali eru jarðhúsin nefndir hellar. Hefir þetta vilt fvrir þeim sem ókunnugir eru, og hafa dregið það af nafninu að hellar þessiiý sem notaðii;hafa ver- ið frá ómUnatíð, sem peningshús, hlöðUr og jafnvel mannabústaðir, væru að mestu leyti gerðir af náttúrunnar hendi, en lagaðir til til notkunar. Sumstaðar er það svo. En fjöldinn allur af hellunum í Rang- árvalla- og Árnessýslu eru jarð- hús, sem að öllu leyti eru gerð af manna höndum, og auðsjeð á öllu, að notað hefir verið líkt eða hið sania vinnulag við gröft jarðhús- anna. Mgbl. hefir liaft tal af Matthíasi Þórðarsyni um jarðhús þessi eða hellana, og hefir hann sagt um þá in. a. eftirfarandi: Þó ekkert verði að svo stöddu fiillvrt um aldur jarðhúsanna, þá er óhætt að fullyrða, að þau eru elstu niannvirki íslands, sem enn eru í notkun. Allvíða bæði í Árness- og Rangárvallasýslu eru þau notuð sem fjárhús og hlöður enn í dag. Og suiri þeirra liafa í tíð núlifandi manna verið notuð sem mannabú- staðir. Jeg hefi skoðað þau allflest. Man jeg ekki í svip tölu þeirra, en giska á að kunnuugt sje um ein 100 jarð'hús. Flest eru þau á einum bæ, að Ægisíðu, ein 12—13, og mörg stór. Víða standa þau óhögguð og liafa staðið frá ómunatíð. En sum- staðar liafa þau hálffylst hruriið fyrir op þeirra og liafa þau þá týnst. Á öldinni sem leið fundust aftur allmörg jarðhús þau sem nú eru i notkun. I jarðhúsunum eru víða mjög haglega gerðar livelfingar, er allar bora að ýmsu leyti sama svip. Þar sem jarðhúsin eru gerð þannig að grafið er niður í hóla, er bygður forskáli fyí'ir opið eða dyrnar. Eru forskálar þessir allir með líkri gerð, og er líklegt að tilhögun þeírra sje, jafngömul og jarðhús- in. Þar sem grafið er langt inn í hólana eru gerðir strompar upp úr hvelfingunni til þess að fá birtu niður í húsið. Eru strompar þessir hlaðnir upp í gegnum jarðveginn, og rjett upp fyrir grassvörð. Er op þeirra lítið efst, en þeir víkka eftir því| sem neðar kemur. Sum- staðar hefir mold hrunið niður um strompa þessa svo húsin hafa hálf fvlst um það bil, og hefir það m. a. orðið til þess að notkun þeirra hefir hætt og þau týnst. — Er hvergi getið mn jarðhús þessi eða hella í sögunum? — Mjer er ekki kunnugt um það nema. á eintun stað í Bisk- upasögunum. Þar er á einum stað talað uin Nautahelli í Odda. En bæjarnöfn eru víða dregin af hell- unum, svo sem Miklaholtshellir í Flóa Hellnatún, Hellar á Landi o. fl. Jeg gæti ímyndað mjer, að fyr-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.