Morgunblaðið - 02.11.1928, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
l MORGUNBLAÐIÐ
Btofnandl: Vilh. Finsen.
} títgefancii: FJelag I Reykjavlk.
i Ritstjórar: Jön KJartansaon.
Valtýr Stefánsson.
AufirlÝsingastJöri: E. Hafberg.
Bkrifstofa Austurstræti 8.
Slxal nr. 500.
Auglýslngaskrlfstofa nr. 700.
Helmaslmar:
Jön KJartansson nr. 74*.
Valtýr Stefánsson nr. 1210.
E. Hafberg nr. 770.
AskrlftagrJald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuBi.
Utanlands kr. 2.60 - —..
I lausasölu 10 aura eintakiB.
Ertendar símfregnir.
Svíar og Serbar.
Frá Stokkhólmi er símað: Fjár-
málaráðherrann í Jugoslafíu og
sænski eldspýtnahringurinn hafa
undirskrifað sanming, sem veitir
eldspýtnahringnum þrjátíu ára
einkaleyfi til þess að framleiða og
selja eldspýtur í Jogóslafíu. Hins--
vegar skuldbindur eldspýtnahring-
urinn^sig til þess að íitvega Júgó-
slafíu lán að upphæð tuttugu og
tvær miljónir dollara.
llynðafitTarp
byrjað fyrir alvöru í Bretlandi.
Khöfn, 1. nóv. FB.
Frá London er símað: Fyrsta
opinbert myndaútvarp í Bretlandi
fór fram í gær. Er nú talið, að
mvndaútvarpið sje komið yfir til-
raunastigið.Verður myndum fram-
vegis útvarpað daglega. Móttöku-
tæki kosta tuttugu og þrjú ster-
lingspund.
„Zep^elfn greifi“
Lominn heim eftir 71 stundar flug
Khöfn, FB 1. nóv.
Frá Berlín er símað: — Vegna
storms vestan við Bretlandseyjar
neyddist loftskipið Zeppelin greifi
til þess að víkja frá stystu leið
og stefna í suð-austur og yfir
Liscayaflóa sunnan Brest og lenti
i morgun klukkan sjö í Friedrichs-
haven, eftir sjötíu og einnar
kJukkustundar flug frá Lakehurst
i New .Jersey. Höfðu menn safn-
ast saman í tugþúsundatali til
I>ess að fagna loftskipinu í Fried-
^ichshaven.
----——----------
MtMrtta uígð í gær.
Borgarnesi, FB 1. nóv.
Hvítárbrúin var vígð í dag. —
^igsluathöfn hófst klukkan rúm-
lega eitt. Forsætisráðherra flutti
Snjalla tölu, vestan megin árinnar,
i Mýrasýslu. Hafði margt manna
SaLiast þar sarnan, úr baðum sýsl-
líklega um 500 manns.
V«r veður ekki gott, gekk á með
•kújagangi, hefði ella verið þarna
*angtum fleira um manninn. Lá
'er lokið var vígsluræðunni klipti
fersætisráðherrafrúin á streng, er
Þaninn var yfir brúna. Voru flagg-
Vtirnir í strengnum. Gekk síðan
^annfjöldinn suður yfir brúna.
^ar hjelt Guðmundur Björnsson
^ýslumaðiy ræðu og því næst vega
laálastjóri. Halldór alþýðuskáld
^elgason flutti kvæði. Á undan
Í8tlðunmn og eftir var sungið.
krá Hvanneyri að Hvítárbrúnni
nú fært bifreiðúm. Var vegur-
líln nýlega lagaður.
Rafmagnsmilið
í bæjarstjóru.
Loddaraleikur jafnaðarmanna.
Eins og bæjarbúum er liunnugt,
sneri Sigurður Jónasson bæjarfull-
trúi sjer til þýska rafmagnsfje-
lagsins 'A. E. G. í sumar, og spurði
að því, hvort það vildi gera til-
boð í að byggja rafstöð við Sogið.
Tók fjelagið, sem eðlilegt er, lið-
lega í það, og sagði líkur til, að
>að myndi geta útvegað f je handa
sjer til þess að byggja stöðina,
5000 hestafla, fvrir 6 miljónir
marka.
Um framkomu Sigurðar þar
ytra í þesspm málarekstri ganga
nokkrar sögur, sem ekki er vert
að rifja upp að svo stöddu. En er
hann kom heim hjer í september,
kom það brátt í ljós, að hann var
ákaflega hrevkinn af þessum mála
rekstri sínum. Hefir hann fengið
flokksmenn sína til þess að dást
að áhuga sínum og vex gusturinn
á Sigurði með degi liverjum út af
máli þessu.
Á rafmagnsnefndarfundi þann
2G. okt. gerði Sigurð'ui' nokkrar
fyrirspurnir, m. a. hvað liði fulln-
aðaráætlun Sogsvirkjunar og áætl-
un um framhaldsvirkjun Elliða-
ánna.
%
Sagði rafmagnsstjóri að von
væri á áætlunum þessum bráðlega.
Út af fyrirspurnum þessum í
rafmagnsnefnd reis Sigurður upp
á •bæjarstjórnarfundi í gær, og
þeir skraffinnar aðrir, meðal jafn-
aðarmanna. Skýrði Sigurður með
miklum móði frá Þýskalandsför
sinni og viðskiftum við' A. E. G.
Las hann upp brjef frá fjelaginu
til sannindajmerkis um þangað
komu sína.
En erindislokin eru í stuttu
máli þessi:
Hið þýska fjelag gefur fyrirheit
um að gera tilboð í stöð við Sogið
og útvega 6 miljóna marka lan
ti' ]iess að byggja stöðina — með
]jví skilyrði, að bæjarstjórn Bvík-
uí gangi að hinu væntanlega til-
boði, svo að segja þegar í stað.
Með öðrum orðum. Hið þýska
fjelag ætlast til þess, að samkepni
og venjulegt útboð um verkið
verði látið uiður falla, bæjar-
stjórnin afhendi fjelaginu málið
til framkvæmda, enda þótt upp-
liæð sú, sem fjelagið nefnir, sje
hærri en áætlun verkfræð’inganna.
Og er heim kemur, ætlast Sig-
urður og þeir jafnaðarmenn til
þess, að bæjarstjórn ákveði þetta;
áður en fullnaðaráætlun er gerð,
og án þess leitað sje fyrir sjer
með lán eða tilboð annarstaðar.
Á þessum grundvelli ráðast jafn-
aðarmenn á meirihluta bæjar-
stjórnar, sem ábyrgð hefir á fjár-
málum bæjarins og ásaka andstæð-
inga sína fyrir þröngsýni og aftur
hald, en gæta þess ekki, að sjálf-
ir sjá þeir ekki eða þykjast hvorki
vilja eða geta sjeð nema eina lausn
Jiessara mála, eitt f j.elag, eina leið
til fjáröflunar o. s. frv.
Slík framkoma er ekkert annað
en pólitískur loddaraleikur, eins
og Pjetur Halldórsson benti þeim
rækilega á í gær á bæjarstjórnar-
fundi.
^ <S> * v"
Guðspekifjelagið. — Fundur í
kvöld kl. 8’/2. Efni: Þjónustu-
reglan.
Samræmi
og samanbarðnr. \
í 217. gr. almennra hegningar-
laga er svo ákveðið: Ef maður
raeiðir æru manns .... varðar það
sektum frá 10 rd. til 200 rd. eða
einföldu faligelsi í hálfan mánuð
eða lengur alt að 6 mánuðum.
Það er ódýr skemtun að vera
mannorðsþjófur hjer á .landi enda
leyfa. margir sjer þá ánægju.
Hvers virði er æra manns og mann-
orð og hvers virð'i er prúðmenslta
manna á milli borið saman við þá
óhæfu að t. d. heiðvirð sveitakona
býr til rababervín, sem reynist
óleyfilega sterkt. Minsta hegning
við þessum' óheyrilega glæp er
1000 kr. sekt og fangelsi að auk.
í 202. og 203. gr. hegningarlag-
anna .... : Hver sem veður upp
á annan mann ineð höggum og
barsmið eða öðru líkamlegu of-
beldi .... sje slíkt ofbeldi haft í
frammi við foreldra .... þá varð-
ar það fangelsi, ekki vægara en
4 mánaða einföldu fangelsi, eða
betrunarhússvinnu alt að 2 árum.
Nú má segja, að menn sjeu fjóra
mánuði að afplána 5000 kr. sekt.
Fyrir að' brjóta í fyrsta sinn gegn
banninu um að flytja vín inn til
sölu má dæma menn í 5000 kr.
sekt.
Það er m. ö. o. talin eins mikil
0
óhæfa að t. d. háseti á skipi gerir
sjer aukaatvinnu að því að selja
áfengi og að hann ráðist á gamlan
heiðvirðan föður sinn með líkam-
legu ofbeldi. Sú var tíðin að ann-
ar mælikvarði hefði verið lagður
á ]fetta.
í 192. gr. hegningarlagaima
stendur: Ef maður af ásettu ráði
drepur föður sinn eða móður ....
varðar það .... samt má færa
liegninguna niður í 2 ára liegning-
arvinnu, ef svo er ástatt, sem gjört
er ráð fyrir í 188. gr. (Hafi verk-
ið verið unnið í ákaflegri bræði
sem sá er drepinn var vakti með
misgjörð við sjálfan hann t. d.).
í 27. gr. áfengislaganna er kveð-
ið á, sem hjer segir: Ef áfengi er
flutt inn í því skyni að selja það
eða veita fyrir borgun, þá varðar
það sektum: .... þriðja sinn 4000
— 20000 kr......Ennfremur skal
sökunautur sæta fangelsi, eða ef
brot er margítrekað eða miklar
sakir eru að öðru leyti, hegningar-
vinnu alt að tveim árum.
Eftir gildandi reglum eru mfnn
liðugt ár að afplána 20000 kr. sekt
og getur því farið svo að forhert-
ur bannlagabrjótur sitji þrjú ár í
fangelsi og verði að þrælka tvö af
þeim.
Ef komandi kynslóðir taka þetta
sem vott um siðferðisþroska ís-
lendinga á því herrans ári 1928,
ao það sje eins refsivert eða refsi-
verðara að smvgla inn áfengi til
þess að græða á því eins og að
drepa móður sína jafnvel af á-
settu ráði, er jeg hræddur um að
sá þroski verði ekki talinn mikils
virði.
En í raun og veru væri sá dóm-
ur ekki allskostar rjettur. Rjett-
ara er að líta svo á, að meiri hluti
þeirra manna sem rjeðu lögum og
lofum hjer á landi á nefndu herr-
ans ári, liafi látið heimskt og blint
ofstæki manna, er þeir óttuðust,
toga sig lengra en þeir sáu og
höfðu hugmynd um.
Kr. Linnet.
Stjórnirnar í Þýskalandi.
Ríkisstjórnin þýska hefir ein-
um rómi ákveðið að undirbúa nýtt
stjórnskipulag í ríkinu, bæði til
stórköstlegs sparnaðar og eins til
þess að gera öll stjórnarstörf fá-
breyttari og auðveldari. Eins og
kunnugt er, hefir hvert ríki í
Þýskalandi sína eigin stjórn og
þing, auk ríkisþingsins, og verð-
ur af þessu óhemjulegur óþarfa-
kostnaður, og auk þess verða allar
framkvæmdir miklu flóknari en
vera þyrfti, ef að'eins væri ein
stjórn og eitt þing.
En Bayernsmenn risu öndverðir
gegn þessu, enda er Bayern það
ríkið í Þýskalandi, sem alla jafna
hefir viljað berast á sem sjer-
stakt ríki, og stundum verið grunt
á því góða milli þess og Prúss-
lands.
4
fermingarfðt,
skyrtur. flibbar,
ódýrast í
Ves'ðiun
Sfmi 800.
TiOFflHI
er orðið
1.25 á borðið.
Baráttan
gegm krabbameininu.
Á fundi í Kaupmannahöfn
fyrra - þriðjudag, var stofnað
landsfjelag til þess að vinna gegn
útbreiðslu krabbameins og styðja
tilraunii" þær, ?em nú er verið að-
-gera til þess, að rannsaka krabba-
meinið, og finna læknislyf gegn
því. Á fundinum var kosinn for-
maður C. O. Jensen, varaformenn
Lassen skrifstofustjóri og Skott-
Hansen læknir. (Tilkynning frá
sendiherra Dana.)
—-—«m»—-—
Ókyrð í Afghanistan.
Þegar Amanullah konungur kom
úr Norðurálfuför sinni, var það
hans fyrsta verk, að' reyna að
koma á ýmsum Norðurálfusiðum
heima fyrir, til dæmis að Afghanar
tæki upp búning Norðurálfu-
manna.En þetta mætti megnri mót-
spyrnu meðal alþýðu, og hafa
gengið ýmsar sögur um það, að
ókyrð nokkur' hafi verið í ríkinu
síðan. Og til marks um það, að
þetta er satt] kemur sú fregn það-
an að austan að hinn 10. október
hafi herlið' verið sent til þess að
„refsa“ íbúunum í Ghilzai. Er
það þorp nokkurt, Iskamt frá
Altimur-skarði.
raVifilssta^a,
Hafnarfjarðar,
Keflawikup
og anstur yfir fjall
daglega
frá Steindóri.
Sími 581.
3
j JHvítar og mislitar afpassaðar
! lardínur
eru seldar með miklum
afslætti.
Verslun
m ]8C0bS8B.
Maismjöl
kom med Brúarfossi.
Verður selt mjög ódýrt.
Von.
T. O. O F. 1 — 1101128'/, — I & II
15 ár eru liðin í dag síðan fyrsta
tölublað Morgunblaðsins kom út.
Saga þess um þessi fimtán ár,
verður ekki rakin hjer, en þó er
rjett að taka nokkrar línnr upp úr
ávarpi þess er það reið úr' hlaði:
„Það er ekkert „stórblað'1 — eins
og sumir í skopi hafa kallað það
— sem hjer hleypur af stokkun-
um. -*---En það á að geta orðið
„stórblað“, eftir íslensknm mæli-
kvarða, þegar fram líð'a stundir.“
— Nú þegar, eftir aðeins 15 ár,
er Morgunhlaðið orðið stórblað eft-
ir íslenskum mælikvarða, mörgum
sinnum stærra en nokkurt annað
blað, sem út. hefir verið gefið á
íslandi.
Ný neðanmálssaga hefst í blað-
inu í dag og er hún eftir' Rafael
Sabatine, þann rómanahöfund, sem
nú er mest lesinn í álfunni. Fylg-
ist vel með — vður mun ekki
iðra þess. Sagan mnn veita yður
marga skem.tilega stund, og þegar
fram í sækir munuð þjer jafnan
I bíða framhaldsins með óþr'eyju.
Vjelæreimar,
íleimalánar og alkkonar
Reitnaóburður.
ValA. Ponlsen.
Seik frestað. Vegna óvið-
| ’a orsaka var hljómleik
próf. Velden frestað. Andvirði
keyptra að'göngumiða verður
greit.t í bókabúðtinum.
„LjTa“ fór hjeðan í gærkvöldi
Meðal farþega voru Tómas Tóm-
asson ölgerðarmaður, Guðmundur
Kristjánsson skipamiðlari, ungfrú
Sesselja Sigmundardóttir, Helgi
H^llgrímsson kaupmaður, As-
mundur Jónsson kaupmaður, Hafn
arfirði, Jón Leifs og frú, konsúls-
frú Lövland með börli sín, frú
Eva Björnsson, Nordenstedt verk-
fræðingur, sem verið hefir við
sænska íshúsið hjer, Johs. M.
Övergaard verkfræðingur o. m. fl.
Til Vestmannaeyja voru margir
farþegar.