Morgunblaðið - 26.01.1929, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
S
morgunblaðið
Stofnandi: Vilh. Finsen.
Utgefandi: Fjelag í Reykjavfk.
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Skrifstofa Austurstrœti 8.
8lmi nr. 500.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Seimaslmar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Vaitýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
A*kriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á rnánuSL
Utanlands kr. 2.50 - ----
I lausasölu 10 aura eintaklö.
Rikisstjórniu
og verkiallsmálin.
Sáttasemjari ber fram miðlunartillögu, þar sem ætlast
er til, að sjómönnum við Eimskipafjelagið sje greidd
kaupuppbót úr ríkissjóði.
Fer ríkisstjórnin inn á einkennilega braut
í kaupgjaldsmálum.
Erlendar sfmfregnir.
Jarðg-öngir. undir Ennarsund.
Khöfn, FB 24. jan.
^i’á London er símað: Baldwin
ioísætisráðherra hefir í ræðu, sem
anR hjelt í þinginu svarað fyrir-
^l’iirn viðvíkjandi áformunum um
grafa jarðgöng undir Ermar-
Slllid. Kvað hann æskilegt, að
^álið væri eldci gert að flokks-
^áli. Kvað hann stjórriina ætla
1 láta óvilhalla n'efnd rannsaka
^álið. yæri nauðsynlegt að rann-
Saka bæði fjárhagslega og hern-
'i'airlega hlið málsins. Varnarnefnd
^kisins verði spurð til ráða, en
akt hennar ráði samt ekki iirslit-
11111 eins og síðast, er málið var
^ umræðu. Áætlað er, að jarð-
8°ögin muni kosta þrjátíu miljón-
sterlingspunda. Tvö hundruð
jlllgmenn í neðri deild þingsins
6íl1 hlyntir jarðgöngunum.
h’ylgismenn tillaganna um að
^lafa jarðgöng undir Ermarsund
afa lýgj; yfir ánægju sinni með
raíðu Baldwins.
^endiherra Frakklands hefir lýst
^lr því, að Frakkland sje reiðu-
áið til þess að taka þátt í fram-
'Væmdum í málinu, þegar Bret-
1,1(1 hafi ákveðið að hefjast lianda
11 in frainkvæmdir.
Kliöfn, FB 26. jan.
Jarðgöngín fá byr í Englandi.
hrá London er símað: Mótspyrn-
aQ Segn því, að jarðgöng verði
h’refin undir Ermarsund virðist,
íara minkandí í Bretlandi. Eru
ta|dar góðar horfur á því nú, að
^álið hafist fram. Eins og fyr
’htast andstæðingar málsins aðal-
. að jarðgöngin myndi gera
kleyft að senda her manns
la megiulandiuu til þess að ráð-
á England og þannig yrði
^mðarlegnr hagur af eylegu
Jjþa+l
y iailds lítilsverður. Hinsvegar
s "rhenna nu margir af þeim,
, 111 fróðir eru um þessi mál, að
aery, *
. <l°9rtæki seimri tíma, til dæm-
^Svjelarnar, hafi dregið mjög
llr hi
«yle
Sej-i
'Sau
söu
nilm hernaðarlega hagnaði af
gl1 landsins. Þar að anki sje
e§f að verja inngang jarð-
'siina. Hagnaðurinn af jarð-
'jj yrði geypilega mikill,
; þau myndu auka viðskiftin
yy\ill •
1 Kretlands og meginlands-
’ k1’í°hli myndi fá atvinnu við
f. Vrafa jarðgöngm. Er svo ráð
kv‘lr el? verður fram-
í þessu máli, að námu-
-J1’ Sem viö atvinnuleysi eiga að
-rði lát.nir sitja fyrir at-
^riUm Vl^ ^röffinn á jarðgöng-
Á fimtudagskvöld klukkan 8y2
kallaði sáttasemjari stjórn Eim-
skipafjelagsins á fund, til þess að
hefja umræður að nýju um kaup-
gjaldsmálið. Stóð sá fundur fram
til miðnættis.
Annar fundur var kallaður sam-
an í gær, og mætti þar stjórn
Eimskipafjelagsins, stjórn Sjó-
mannafjelagsins og sáttasemjari.
Bar sáttasemjari þar fram miðl-
unartillögu svolil jóðandi:
Miðlunartillaga sáttasemjara
í kaupdeilu
í janúar 1929 um kjör háseta og
kvndara á skipum Eimskipafjelags
íslands.
1. grein.- Mánaðarkaup háseta |
sje hið sama og var árið 1928, en
sem uppbót á kaup þetta fái há-
setar mánaðarlega fjárhæð af
fúlgu þeirri, er um getur í 4. gr.,
sbr. og 5. gr., og skift skal milli.
þeirra eftir þeim reglum, sem þar
sogir.
2. grein: Kaup kyndara skal
vera, 230 kr. á mánuði og kaup
yfirkyndara og kolamokara hækki
Idutfallslega við það, miðað við
kaup 1928.
3. groin: Kaup fyrir yfirvinnu
skal vera 70 aurar fyrir hverja
hálfa klukltustund.
4. grein: Af hagnaði ársins 1928
leggur Eimskipafjelagið fram 5000
kr. og ennfremur leggur ríkis-
stjórnin fram 11000 kr. til kaup-
uppbótar handa hásetum og kynd-
urum 1929. Þessa upphæð, samtals
kr. 16.000, skal greiða skipverjum
þessum mánaðarlega og skal kaup-
uppbótinni skift milli þeirra af
framkvæmdarstjóra Eimskipaf je-
lagsins að fengnum tillögum stjórn
ar Sjómannafjelags Reykjavíkur.
5. gTein: Þessi ráðningakjör
skulu gilda um 15 mánuði, frá 1.
janúar 1929 að telja og til 31.
mars 1930, endn leggja Eimskipa-
fjelagið og ríkisstjórnin, livor af
sinni hálfn, fram tilsvarandi fúlg-
ur og greinir í 4. gr. til uppbótar
á kaupi háseta og kyndara fyrstu
3 mánnði ársins 1930.
6. grein: 7. gr. og 8. gr. samn-
ings 27. jan. 1926 milli E. í. og
kyndara og 8. og 9. gr. samnings
s-d. milli E. í. og háseta falli niður
en að öðru leyti gildi ákvæði
tjeðra samninga með þeim breyt-
ing.um sem að ofan segir.
Reykjavík, 25. jan. 1929.
(sign.) Björn Þórðarson.
Hið alveg nýstárlega í tillögu
þessari er það, að ríkisstjórnin
hefir skorist. hjer í leikinn og
boðið fram fje til þess að útbýta
sem launauppbót banda hásetum
og kyndurum á skipum fjelagsins.
Tillögu þessa samþykti stjórn
Sjómannafjelagsins, eins og vit-
anlegt var, því að tillagan upp-
fyllir allar kröfur Sjómanna-
broddanna; samningstíminn er að-
eins 15 mánuðir. En landsstjórnin
fer, hjer inn á alveg einstaka
braut, sem jafnaðarmönnum mun
eigi ógeðfeld, þar sem lofað er
ríkissjóðsgreiðslum til þeirra, sem
vilja kauphækkanir. En það var
jafn eðlilegt að Eimskipafjelags-
stjórnin, eða meiri hluti hennar
gæti ekki aðhylst þessa stefnu,
þessa „lausn“ á málinu, sem eng-
in lausn er, að öðru leyti en ef
til vill |iví, að með því að lofa
þessu ríkissjóðstillagi viðurkennir
stjórnin að það sje ekki rjettmætt
að Eimskipafjelagið standi stramn
af svo háu kaupgjaldi sem jafn-
aðarmannabroddarnir fara fram á.
Eftirfarandi grennargerð mn af-
| stöðu Eimskipafjelagsstjórnarinn-
ar hefir Morgunblaðið fengið til
birtingar:
Afstaða Eimskipafjelagsstjóímar.
Meiri hluti stjórnar Eimskipa-
fjelags Islands lítur svo á, að miðl-
unartillaga sáttasemjara í kaup-
deilunni mn kjör háseta og kynd-
ara á skiipum fjelagsins dags. 25.
jan. þ. á. verði eigi skilin öðru
vísi en svo, að þær 11 þús. kr.,
sem ætlast er til að ríkisstjórnin
leggi fram, sje viðbótarstyrkur úr
ríkissjóði til fjelagsins fyrir árið
1929, veittur með því skilyrði að
fjelagið verji honum til þess að
hækka. ltaup háJseta og kyndara,
og jafnframt liggur það í tillög-
unni að fjelagið leggi fram þar
ao auki um 10.000 kr. á árinu til
þessara kauphækkana í viðbót við
þá kauphækkun er fjelagið hefir
boðið fram. En þessar upphæðir
samanlagðar, er' sú upphæð, um 21
þiis. kr. — tuttugu og eitt þúsund
krónur — á ári, sem munar á milli
iirslitatilboðs s-tjórnar Sjómanna-
fjelagsins og* tilboðs Eimskipafje-
lagsstjórnarinnar, þegar litið er á
þessi tilboð út. af fyrir sig, og þau
ekki sett í samband við kaúp-
greiðslur til annara en háseta og
kyndara. Með ]iessu móti mundu
hásetar og kyndarar, þegar fram-
boðin hækkun yfirvinnukaups er
tekin með, fá alla þá kauphækkun,
sem stjórn Sjómannafjelagsins
krafðist. í úrslitatilboði sínu, eða
með öðrum orðum 15.3% hækkun
á heildarupphæð kaups og yfir-
vinnu. Meiri hluti Eimskipafjelags
stjórnarinnar telur því víst, að
ef tillaga sáttasemjara hefði ver-
ið samþykt, ]iá mundi hafa orðið
litið svo á, sem hásetar og kynd-
arar liefði fengið 15.3% hækkun,
sem aftur hefði gefið tilefni til
þess að óhjákvæmilegt væri að
hækka útgjöld fjelagsins á tilsvar-
andi liátt, að því er snertir aðra
starfsmenn þess, en slíkar hækk-
anir gátu eins og nú stendur orðið
alls um 90 þús. kr.
I öðru lagi leggur meiri hluti
Eimskipafjelagsstjórnarinnar á-
herslu á það, að annars vegar má
telja mjög sennilegt að hið liækk-
aða kaup, sem tjeð 11 þús. kr.
framlag átti að hafa í för með
sjer, mundi ekki fást lækkað aftur,
en hinsvegar alveg óvíst, eða jafn-
vel fremur ósennilegt að fjelagið
fengi framvegis slíkan viðbótar-
styrk úr ríkissjóði svo fjelagið
sæti síðar eftir, með kauphækkun-
ina styrklaust, að því er hana
snertir.
í þriðja. lagi stendur meiri hluti
fjelagsstjórnarinnar fast. á þeim
grundvelli að fjelagi megi ekki
hækka útgjöld sín fram yfn* til-
svarandi útgjöld hliðstæðra keppi-
nauta m. a. vegna. þess að sje vikið
frá þeim grundvelli, þá sje auknum
kaupkröfum engin takmörk sett.
Meiri hluti fjelagsstjórnarinnar
vill halda fast við það, að eins og'
sýnt er fram á ‘í skýrslu f jelags-
stjórnarinnar dags. 22. jan. þ. á.
þá leyfir hvorki aðstaða fjellags-
ins út á við, nje inn á við, að það
hafi hærri útgjöld til kaupgreiðslu
en sá keppinautur, sem best launar
fólki sínu, en fjelagsstjórnin hefir
boðið hásetum og kyndurum sömu
kjör, og þó með nokkru hærra
fastakaupi til kyndara.
„ScandiaH I
er best.
6 stærðir fyrirliggjandi, emai-
leraðar og óemaileraðar.
]ohs. Hansens Enke.
H. Biering.
Laugaveg 3. Sími 1550.
Að þessu sinni skal eigi fjölyrt
um þetta mál frá blaðsins hálfu;
aðeins gripið á því, sem fyrst ligg-
ur fyrir.
Hjer á við 'orðtækið: „Nýir
siðir með nýjum herrum,“ þar
sem í fyrsta skifti er lagt inn á
þá braut að ríkissjóður greiði
kaupgjald við fyrirtæki sem hann
á ekki sjálfur. Er ekki ólíklegt,
að landsstjórninni hafi eigi í gær
verið fyllilega, ljóst hve víStækar
afleiðingar þetta fyrsta spor á
þeirri braut gæti haft. En um þá
hlið málsins skal eigi rætt hjer' nú.
í dag snýst hugur manna fyrst
og fremst um afstöðu Eimskipa-
fjelagsstjórnarinnar til málsins.
Að athuguðu máli mun eigi
leika vafi á því, að það eina rjetta
sem fjelagsst.jórnin gat gert var
að hafna miðlun þessari eins og
frá henni er gengið.
Árleg launagreiðsla fjelagsins
er um 600 þúsund krónur. Af
þeirri upphæð fer um þriðjungur
eða 200 þús. kr. til háseta og kynd-
ara. En nú er það augljóst, að ef
þess er krafist, og að því gengið,
að laun háseta og kyndara hækki
um 15%, þá verða aðrir iauna-
flokkar að koma á eftir, og ár-
leg launafjárhækkun yrði um 90
þús. kr.
Eimskipafjelagið hefir þegar
boðið 5% hækkun, er nemur í alt
30 þúsund krónum árlega. Sjó-
mannafjelagsstjórnin hefir krafist
15%. Á milli hera 10%, raun-
verulega 60 þúsund krónur.
Nii segir ríkisstjórnin að hún
vilji leggja í'ram 11.000 krónur af
almannafje í eitt. skifti. ef sjó-
mannabroddar fá með því kröfum
sínum fullnægt.
15% hækkun nemur 90 þúsund
krónum fyrir fjelagið árlega. Af
þeirri uppliæð vill ríkisstjórnin
greiða 11 þúsund. Eru þá um 80
þúsúnd krónur eftir, er fjelagið
vcrður að taka á sig í framtíðmni.
Og hversu lengi helst þessi 11
þúsund króna. kaupuppbót.
Hver er' sá, sem telur rjettmætt
að stjórn Eimskipaf jelagsins bindi
fjelaginu slíkan bagga?
Ilver er sá, sem telnr eðlilegt,
og rjetfmætt að krefjast þess að
Eimskipafjelagið greiði hærra
Ennþá nokknr stykki
eftir af
Dívanteppum
Seljast á iimtán krónnr
Verslun
Egill lacebsen.
Olínpils,
Olínsvnntnr,
Olíuermar,
Ernmmístígvjel,
Vinnnvetlingar.
Hvergi taetri vörur,
Hvergi ódýrari.
Veiðarfæraversl.
,;Geysir“.
Hafið þjer oft
hðfnðverk ?
Ef svo er, þá komið strax í
Laugavegs Apótek og látið rann-
saka augu yðar, því höfuðverkur
orsakast mjög oft af slæmri sjón.
Öll athugun og gleraugnamátim
ókeypis.
Komið strax í dag í
S altkjöt.
Norðlenskt saltkjöt í tunnum
og lausri vigt. Lægst verð.
Von og Brekkustfg I.
en hinn erlendi keppinautur, sem
mest hefir bolmagnið?
Hver sanngjarn maðúr hlýtur að
sjá, að 11 þúsund króna tilboð rík-
isstjórnarinnar var tálbeita ein
fyrir fjelagið, og fjelagsstjórnin
átti þann eina kost er hiín valdi.