Morgunblaðið - 04.04.1929, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.04.1929, Blaðsíða 3
3 MORGUNB L AÐ i t) 2HorgtmWa$ifc ■tofnandl: VUh. Flnaen. andl: Fjelagr I Reykjavlk. Rltatjórar: Jðn Kjartanason. Valtýr Stefánason. AnsiyaingaatJörl: E. Hafberg. ■krlfstofa Austurstræti S. ■tasl nr. 600. A uslýslngaskrlfstofa nr. 700. Kalaoaslsaar: Jón Kjartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1120. E. Hafberk nr. 770. Askrlftaacjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuBL Dtanlands kr. 2.60 - ' ■■■■ ~ 1 lausasölu 10 aura elntakld. Erlendar símfregnir. Khöfn, PB 2. apríl. Stuttu bylgjurnajr. — Nýjax uppgötvanir. Frá Berlín er símað: Þektur radiofræðingur, prófessor EsauS, hefir að undanförnu starfað að mjög víðtækum rannsóknum á radiobylgjum, sem eru innan við 10 metra á lengd. Esaus liefir hepnast að senda skeyti á 20 senti- metra bylgjum, en honum hefir •einnig hepnast að beina stuttu bylgjunum í ákveðna átt og þann ig tekist að koma í veg fyrir, að ó- viðkomandi heyri skeytin. Búast menn nú við því, að vegna þessara rannsókna hans, verði gerlegt að nota mjög stuttar bylgjur, og yrði þá hægt að ráða bætur á núver- andi rúmleysi fyrir langar bylgj- ur. Ennfremur yrði liægt að nota stuttu bylgjurnar. við lækningar, til dæmis við ltrabbameini. Takmörkun olíuframleiðslu. Frá Washington er símað: Her bert Hoover forseti hefir' lýst yfir 1>™» að stjórnin álíti nauðsynlegt að talcmarka olíuframleiðsluna. Hefir liann því látið afturkalla 350 leyfi, sem veitt höfðu verið til þess að leita að nýjum olíulindum inn- an ríkisins. Til Norðurpóls { kafbáti. Frá London er símað: Wilkins pólkönnuður ráðgerir leiðangur til norðurpólsins í næstkomandi júlí- mánuði í kafbát. Alítur hann nauð synlegt að nota kafbát til farar- innar, til þess að geta rannsakað pólhafið nákvæmlega. Sjerfræðing ar efast um, að áform Wilkins leiðangri þessum viðvíkjandi, sjeu framkvæmanleg. Námasprenging. Frá Bryssel er símað: Sprenging ■varð í kolanámu nálægt Hasselt 'Tuttugu og fimm námumenn biðu 'bana. Khöfn, FB 3. apríl. Óeilrðimar í Kína. Frá London er símað: Blaðið Haily Telegraph hefir fengið skeyti frá Shanghai þess efnis, að ákafir bardagar sjeu háðir við Yangtzefljótið á milli hers Nan- kingstjórnarinnar og Hankow- hersins. Öll verslun í Yantzedaln- nm er lömuð. Nanking stjórnin býst við því, að Feng Yuh-Siang muni taka Hankow herskildi innan hálfs mán aðar. Tillcynt liefir verið opinberlega, að her stjórnarinnar í Nanking hafi tekið herskildi borgina Hon- chow, sem er tuttugu mílur ensk- ar frá Hankow. Framsókn herliðs Nankingstjórnarinnar heldur á- fram. Hvirfilbylur. Frá New York borg er símað: Hvirfilbylur hefir gert mikið tjón í ríkjunum Minnesota, _ Iowa og Wisconsin. Eignatjónið nemur all- morgum miljónum dollara. Ellefu menn hafa farist. Chamberlain og Mussolini tala saman. Frá Rómaborg er símað: Musso- lini og Chamberlain, utanríkismála ráðherra Bretlands, hittust í gær nálægt Firenze. Hefir verið tilkynt opinberlega að þeir hafi rætt hin merkustu þeirra mála, sem snerta Bretland og ítalíu og hafi þeir verið algerlega sammála. Framleiðsla Norsk Hydro eykst stórum. Frá Ósló er símað: Stækkun verksmiðja Norsk Hydros við Rjukan verður fullgerð í þessum mánuði. Framleiðsla tilbúins áburð- ar verður þá aukin að miklum mun. — Framleiðslan er nú eitt hundrað og áttatíu þúsund smá- lestir árlega, en á að verða fjög- ur hundruð og fimtíu þúsund smá- lestir árlega. Hinar nýju byggingar fjelagsins við Rjukan hafa kostað rúmlega sjötíu milj. króna. WngWtodj. „Úðinn“ tekur tugara. Yestmannaeyjum FB 3. apríl. Oðinn kom í morgun með þýsk' an botnvörpung, Orion frá Gee stemiinde, tekinn við Portland. Skipstjórinn, Karl Georg Au gust, var dæmdur í 13.000 kr. sekt aíli og veiðarfæri upptækt. Botn vörpungurinn hafði lítinn afla. Skiipstjóri áfrýjaði dóminum. Fiskleysi í net síðustu daga. Sjaldan minna. Tekiaskattsviðankinn. Ankin landhelgisgæsla- Efri deild. Breyting á 1. um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta tekju- og eignarskatt með 25% viðauka, 2. umr. Eins og áður er skýrt frá, fer frv. þetta fram á að undanþiggja tekjuskatt ein- staklinga, sem ekki nemur 72 kr., 25% viðaukanum. Fjhn. hafði haft mál þetta til meðferðar og' var þrí- klofin í málinu. Framsóknarmenn (ÍP og PH) vildu samþykkja frv. óbreytt; íhaldsmenn (BKr. og J. Þorl.) lögðu til að frv. yrði felt. Þeir töldu sjálf heimildarligin frá síðasta þingi ranglát og vonuðu að stjórnin færi eins að næsta ár og ár, þannig, að heimildarlögin Dagbðfc. Landsfundnr fhaldsflokksins byrjar í dag kl. 4f/2 e. h. Undanfarna daga hafa allmargir flokksmenn íhaldsflokksins komið hingað til bæjarins til þess að sitja á landsfundi flokksins. Von er á fleirum í dag. Sennilega verða samankomnir á fundi þessum áhugamenn flokksins úr velflest- um kjördæmum. Sökum þess frve húsrúm í Varð- arhúsi er lítið, er nauðsynlegt að takmarka aðgang bæjarbúa að fundi þessum, og verða þar eigi aðrir bæjarmenn en fulltrúar þeir sem tilnefndir hafa verið af fje- lögum flokksins. Þeir utanbæjar menn, sem hafa í hyggju að sitja fundinn, verða að fá sjer að- göngumiða á skrifstofu flokksins í Varðarhtisinu fyrir kl. 3 í dag. - Fulltrúar Varðar og Heimdalls eiga að vitja aðgöngumiða á sama stað. í kvöld kl. 814 koma allir fund- armenn saman í kaffihúsi Ros- enbergs. -------—------------ Þriðju hljómleika heldur Flori- zel v. Reuter annað kvöld kl. 7,15 í Gamla Bíó — en ekki 7%, eins og áður, vegna þess að þá er tími of naumur vegna Bíósýningar. — Fult hús var á hljómleiknum í gærkvöldi. yrðu eltlci notuð. Hinsvegar litu íhaldsmenn í nefndinni svo á, að ef frv. þetta yrði samþ. mundi það freliar ýta undir það, að heim- ildin yrði notuð. Fimti maður í nefndinni, J. B. vildi einnig fella frv., en af alt annnari ástæðu en íhaldsmenn. Hann taldi skatta- hækkun þessa rjettláta og sjálf- sag't að nota heimildina til fulls á næsta ári. Ingvar Pálmason hafði frams. 2. minnihl. Sagði hann að frv. væri fram komið til þess að leiðrjetta þá skýringu, sem stjórnin hefði gefið viðvíkjandi' innheimtu á 25% viðaukanum. Þar kæmi fram aug- ljóst ranglæti, og hefði þingið í fyrra aldrei ætlast til að lögin yrðu skýrð á þann liátt sem stjórn- in hefði gert. Hjer væri því um sjálfsagða leiðrjettingu að ræða. Jón Þorláksson: Þegar þessi heimildarlög voru samþ. í fyrra, um 25% hækkun á tekju- og eign- arskatti, var það gert gegn atkv. okkar íhaldsmanna. Við álitum lögin þá ranglát og við erum sömu skoðunar ennþá. Við teljum æski- legast að stjórnin færi eins að næsta ár og nú, þannig að hún noti ekki heimíldina. Vegna þess að stjórnin hefir orðið fyrir að- kasti í sambandi við afturköllun á fyrirskipun sinni viðvíkjandi innheimtu á þessum viðbótarskatti nú í ár og þetta liefir verið sett í samband við lausn kaupdeilunnar, vil jeg fyrir mitt leyti lýsa því yfir, að jeg tel að stjórnin hafi gert rjett þegar hún ákvað að inn- heimta ekki viðaukann, þar sem tekjuafgangur var um iy2 milj. kr. sl. ár. Jón Baldvinsson; Ef fært þykir að lækka skatta nú, álít jeg rjett að byrja annarstaðar en á tekju- skattinum; nær væri að lækka tollana. Jeg ætla ekki að fara neitt út í gerðir stjórnarinnar í sam- bandi við þetta mál, en tel sjálf- sagt að heimildai'lögin verði notuð á næsta ári. Jón Jónsson: Skil ekki í að nokkur þingm. skuli geta verið á móti jafnsjálfsögðu frv. og þessu, þar sem farið er fram á að leið- rjetta augljóst ranglæti. Halldór Steinsson: Út af því, sem sagt hefir verið hjer í sam- bandi við það, að tekjuskattsvið- aukinn var ekki innheimtur nú í ár, vil jeg taka það fram, að jeg tel algerlega rangt af stjórninni að fella niður skatt til þess að jafna niður kaupdeilur í landinu. f því sambandi skiftir engu máli þúsunda eða jafnvel miljónum úr ríkissjóði til þess að jafna kaup- deilur, hljóta allir að sjá, að fjár- hag ríkissjóðs er með því stefnt í voða. Jeg tel því fullkomlega rjett- mætt að víta stjórnina fyrir að- gerðir hennar í síðustu kaupdeilu. Enn töluðu þeir JBald. og P. Herm., en að því loknu var geng- ið til atkv. Fóru leikar svo, að frv. var felt með 7:7 atkv. (Framsm. og H. Steinss. greiddu atkv. með). Þá var komið að tóbakseinokun- inni og bjuggust margir við langri úmr. um það mál. En svo varð ekki; JÞorl. liafði kvatt sjer hljóðs en lýsti yfir að hann mundi geyma sjer að ræða málið þangað til við síðari umr., „ef málið á að fá að fara í nefnd.‘ ‘ Var síðan gengið til atkv. og samþ. með 8:6 atkv., að vísa frv. til 2. umr. og fjlin. (Íhaldsm. allir á móti). NeSri deild. Þáltill. um aukna landhelgis gæslu við innanverðan Faxaflóa; síðari umr. Urðu all-langar umr. um þetta mál í gær. Hákon flutti brtt., þess efnis, að auka einnig gæslu sunnanverðu Breiðafjarðar og „að haldið sje úti sjerstökum mótorbáti til landhelgisgæslu á svæði frá _ Hornbjargi að Straum- nesi við Patreksfjörð yfir mánuð- ina maí—desember.“ Þótti ýmsum óþarft af Hákoni að vera að hnýta till. þessari aftan í þáltill. um aukna landhelgisgæslu á Faxaflóa; en Hákon gat ekki á þetta fallist og fóru svo leikar, að till. hans var samþ. Sömuleiðis var smþ. skrifleg brtt. frá Hannesi Jóns- syni, um aukna gæslu (með sjer- st. vjelbát) á innanverðum Húna- flóa. Till. þannig breytt var þvínæst samþ. og afgr. til stjómarinnar. Frv. um lögreglustjóra á Akra- nesi, 2. umr. Allshn. hafði haft málið til meðferðar og lagði meiri- hlutinn (GunnSig. MG og HK) til að frv. yrði samþ. óbreytt. Tveir nefndarmenn (MT og HV) voru ekki viðstaddir þegar frv. var tekið fyrir í nefndinni og þótti þeim h'art að rnálið skyldi liafa verið afgr. meðan þeir voru fjarverandi. Nál. meirihl. var þá orðið viku gamalt, svo auðvelt var fyrir minnihl. að gerá sínar at- hugasemdir við frv. Eftir tölu- vert þjark um málið var frv. áfgr. til 3. umr. með 20:3 atkv. Breyting á 1. um vita, sjómerki o. fl., 2. umr. Hafði sjútvn. haft málið til meðferðar og lagði til að takmarka sltyldu hafnarsjóðs við að nema burt farartálma úr höfn við 500 kr. Færi lcostnaður þar fram yfir, skyldi það sem umfram er, greiðast að % úr ríkissjóði og % úr hafnarsjóði. Þó má kostn- aður hafnarsjóðs aldrei fara fram úr % hluta af árstekjum hans. Hafði Jóh. Jós. framsögu og var brtt. nefndarinnar samþ. og frv afgr. til 3. umr. Dronning Alexandrine kom til Leith kl. 7 í gærmorgun. Trúlofun sína hafa nýlega opin hvort skatturinn er rjettlátur eða berað, ungfrú Ragnheiður Ólafs ranglátur. Ef gengið verður inn á dóttir, Hafnarfirði, og Guðmund- þessa braut, að kasta hundruðum ur Hannesson, Keflavík. Veðrið (í gær kl. 5): V-kaldi og þökusúld og- 5—8 stiga liiti Vest- an lands og við Húnaflóa, en þar fyrir austan er þurt veður með 8—11 st. hita. Lægð alldjúp skamt suður af Hvarfi á Grænlandi. Virðist hún stefna NA-eftir og má biiast við að hún valdi allhvassri S og SV- átt hjer vestan lands á tímabili á morgun. í Kaupmannahöfn er 3 st. frost og í Stokkhólmi 5 st„ en sennilega hlýnar þar töluvert á morgun. Veðurútlit í dag: Stinningskaldi á S og SV. Rigning öðru hvoru. Útlit fyrir að hlýindi 'haldist óbreytt næstu daga. Knattspyrnufjelag Reykjavíkur heldur dansleik á laugardaginn í Iðnó, 9 manna hljómsveit leikur. Aðgöngumiðár sækist í dag og á mergun. Snarræði. Þann 16. f. m. hvolfdi báti á höfninni í Sandgerði; voru 3 menn á bátnum og einn ósyndur með öllu, en hinir tveir voru synd- ir. Meðal þeirra sem á bátnum voru, var Gísli, sonur Gísla John- sen konsiils og með snarræði tókst honum að bjarga hinum ósynda manni. Atburður þessi sýnir hve mikil nauðsyn er á að allir kunni að synda. Hjúskapur. Á laugardaginn voru gefin saman í lijónaband í Hafn- arfirði, ungfrú Hermannía S. A. Markúsdóttir og Ólafur Har'aldur Stefánsson sjómaður. fþróttafjelag Reykjavíikur. — Fimleikaæfingar eru byrjaðar aft- ur í öllum flokkum. Valhöll, gistihúsið í Þingvöllum er nú verið að flytja út fyrir ána og á það að standa við vatnsbotn- inn undir brekkunni nokkuð sunn- an víð búðatætturnar. Þangað á einnig að flytja. konungshúsið og jafnvel sumarbústaði. Mjólkurfjelag Reykjavíkur ætl- ar að fara að reisa þrílyft verslun- arhús úr steinsteypu á lóðinni nr. 5 við Hafnarstræti. Flughöfn. Flugfjelag íslands hef- ir farið fram á það, að hafnar- nefnd láti gera ýms mannvirki í Örfirisey, svo að hægt verði að nota hana sem lendingarstað flug- vjela. En hafnarnefnd telur ófært að hafa lendingarstað fyrir flug- vjelar innan hafnargarða og vill því ekki leggja í neinn kostnað við flughöfn í Örfirisey. Aftur á móti vill hún ákveða stað fyrir flughöfn í samráði við Flugf jelagið og bendir sjerstaklega á Klepps- vík sem lientugan stað. Brúarfoss fór lijeðan kl. 8 í gærkvöldi vestur og norður um land. Farþegar voru þessir: Að- alsteinn Friðfinnsson, Magnús Thorberg, Björn Líndal, Ingólfur Jónsson, Jón Guðmundsson end- ursk., Eskildsen frkvstj., frú Sof- fía Jóhannesdóttir, Sigfús Daníels- son, Jón Arnesen, Helgi Guðbjarts- son, Konráð Kristjánsson, Anton Jónsson, Godtfredsen, Olsen trií- boði o. m. fl. Landspítaladagurinn. — Stjóm Landsspítalasjóðsins hefir farið fram á það að fá Biskupsstofutún lánað til útiskemtana til ágóða fyrir sjóðinn hinn 19. júní. Fast- eignanefnd vill ekki verða við þeirri beiðni. Dómsmálaráðherra hefir sagt Sigurði Pjeturssyni fangaverði upp starfi sínu frá 1. júlí n.k., eða með þriggja mánaða fyrir- vara. Hefir Sigurður þá verið fangavörður í 2iy2 ár. Óvíst er enn liver þar á að fá bita. Farþegar hingað á Lýru voru

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.