Morgunblaðið - 20.04.1929, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐTÐ
3
Jftonsttttbiaðifc
ffltoíuantíi: Vilh. Fin^en.
ntvefandi: Fjelag f Reykjavlk.
IfclTðtjórar: Jón Kjartamson.
Valtýr Stefánsson.
Ansrlý«inga8tJ6ri: E. Hafberg.
fflkrlfatofa Aueturstrœti 8.
fflivkl nr. 500.
An*lý«inga8krif8tofa nr. 700.
Heimaslmar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Aakrlftagjald:
Innanlands kr. 2.00 k mánutii.
Utanlands kr. 2.50 -------—
I ÍAuaasölu 10 aura eintakÍV.
Einkasala á lyfjuin.
Pramsóknarbændmn ]>ykir orðiS
nóg um einokunarfrmnvörp
sósíalista.
Frv. Jóns Baldvinssonar um
®inkasölu á lyfjum, var til 2.
nmr. í Bd. í gær. Allshn. hafði
haft. málið til meðferðar og nefnd-
in klofnaði. Ingvar og JBald. vildu
samþ. frv. með smávægilegri breyt
ingu, en JóhJóh. vildi fella það.
Xieitað hafði verið álits landslækn-
is pg stjórnar Læknafjelags ís-
lands um málið; lagði landlæknir
með því að frv. yrði samþ., enda
•er hann talinn faðir þess, því
•ísamskonar frv. frá honum var lagt
fyrir þingið 1921. Stjórn Lækna-
fjelags fslands lagði hinsvegar á
*nóti frv.
Flm. frv. bera fram þá aðal-
ástæðu fyrir cinkasölu á lyfjum,
að lyfin sjeu óhæfilega dýr nú í
lyfja'búðum. Stjórn Læknafjelags-
ins játar að lyfin sjeu of dýr, en
ðendír rjettilega á, að því sje ein-
göngu um að kenna trassaskap
heilbrigðisstjórnar, sem ákveður
taxta lyfjanna. Segir í álitsskjali
form. Læknafjelagsins, að heil-
hrigðisstjórnin setji taxta á lyf
hjer að mestu í blindni eftir
■danska lyfjataxtanum, án þess
að kynna sjer hið raunverulega
verð lyfjanna erlendis. Slík aðferð
uær vitanlega ekki nokkuiTÍ átt.
Og er það sátt að segja harla
undravert, að heiíbrigðisstjórnin
skuli ekki lagfæra þessar misfell-
ur áður en hún fer að mæla með
ríkiseinokun á þessari verslmi. —
Lað er skylda heilbrigðisstjórnar,
að setja sanngjarnan taxta á öll
lyf; þann taxta á hún að finna
nieð rannsókn- á.hinn raunverulega
verði lyfjanna erlendis, en ekki að
fara. eftir þeim taxta, sem aðrar
þ.jóðir kunna að setja.
Það má segja þeim Framsóknar-
'bændum í Bd. til lofs, að þeir
snerust andvígir gegn þessu ein-
’okunarafkvæmi sðsíalista. „Batn-
midi manni er best að lifa“, má
um þá seg.ja, og er vonandi að
batinn verði áfrámhaldandi.
Afdrif þessa máls urðu þau, að
samþ. var með 9 :3 atkv. ( 4 móti
‘Sósíalistar og Ingvar) svohlj. rök-
Judd dagskrá frá Jóni í Stóradal:
„1 ]>ví trausti að ríkisstjórnin
^úti fara fram endurskoðun á nú-
gildandi lyfjataxta og athuga hver
•Pað muni vænlegust til að lækka
verð lyfja fyrir almenning, tekur
<Jei]rlin fyrir næsta mál á dag-
skrá.<‘
Þar með er málið úr sögunni.
Pjárlögin. Annari uinr. var lokið
* ^d. í gærkvöldi; verður sagt.
'U-a úrslitum í hlaðinu á morgun.
Dagbók.
□ Edda 59294256 — 1. Fyrirl.:.
B. •. R. •. M. •. Lokafun'dur. Listi
hjá S. -. M. •. til þnðjudagskvölds.
Veðrið (í gær kl. 5): Norðan-
garðinum er nú lokið um alt land,
en þó er enn þá 2—^ stiga frost
á N- og A-landi. Á S- og V-landi
er frostlaust, eða 1—2 st. hiti.
Háþrýstisvæðið er að færast suð-
ur fyrir landið, en grunn lægð yfir
Grænlandi breiðist austur eftir.
Hefir hún þegar valdið lítils hátt-
ar snjókomu á útkjállcum vestan
lands.
Loftvog er fallandi á S-Græn-
landi og er það sennilega lægðin
frá Kanada, sem veldur því. Er
eigi ósennilegt að hún muni valda
hjer umskiftum til hlýrrar S-áttar
á, sunnudaginn.
Við Færeyjar og N-Skotland er
vindur allhvass á norðan, með
krapajeljum.
Veðurútlit í dag: SV-gola. Skýj-
að loft og senmlega lítil úrkoma.
Frostlaust.
Messur á morgun: 1 Dómkirkj-
unni kl. 11, sjera Friðrik Hall-
grímsson. (Férming). Bngin síð-
degismessa.
I Fríkirkjunni kl. 5. Sjera Árni
Sigurðsson.
Rjettið hjalparhönd. Piltur einn
frá Siglufrrði, Jón Andersen að
nafni kom inn í skrifstofu Morg-
unblaðsins í gæi', og sagði rauna-
sögu sína. Hann var á ferð í 01-
afsfirði þ. 23. janúar síðastliðinn.
Þar vildi það slys til að drengur
sem með honum var, handljek
hlaðna byssu hans, og reið skotið
úr byssnnni í hendi Jóns. Molaðist
höndin svo að eigi voru önnur ráð
en taka hana af honum. Gerði
það Sig. Magnússon læltnir. Pilt-
urinn er 18 áta. Er hann nú hing-
að kominn til þess að fá sjer gerfi-
liönd, því að svona á sig kominn á
hann erfitt, ef ekki ómögulegt'
með að vinna fyrir sjer. En hann
er svo fátækur, að hann hefir ekki
efni á að kaupa sjer gerfihöndina,
og eru það vinsamleg tilmæli blaðs
ins, að bæjarbúar greiði götn þessa
bágstadda pilts og skjóti saman
nokkru fje handa honum. Sam-
skotafje veitt móttaka á afgreiðslu
Morgunblaðsins.
„Dauði Natans Ketilssonar" var
leikinn í fyrrakvöld við mikla að-
sókn. Leiknum vel tekið af áheyr-
endum. í leikslok voru aðalleik-
endurnir og höfundurinn kölluð
fram. Leikið verður næst á morg-
un og á þriðjudaginn kemur. En
þar sem mest alt er uppselt að
sunmidagssýningunni verða að-
göngumiðar að þriðjudagssýning-
unni einnig seklir í kvöld og á
morgun.
Próf. Magnús Olsen flutti fyrsta
háskóláfyrirlestur sinn í gærkvöldi
í Kaupþingssalnum. Á undan tal-
aði dr. Sigurður Nordal, kynti
fyrirlesarann og bauð hann og frú
hans velkomin til íslands og árn-
aði þeim alls góðs. Kvað hann svo
að orði, að enginn ágreinmgur
hefði orðið um það í háskólaráð-
inu, þegar rætt var um hvaða er-
lendum prófessor skyldi hingað
boðið, að það væri Norðmaður, og
enginn ágreiningur hefði lieldur
orðið um það, hverjum bjóða
skyldi. Allir hefði talið sjálfsag-t
að bjóða próf. Olsen fyrstum. —
Væri hann háskólanum aufústu-
gestur og teldi háskólinn sjer virð-
ingu að því að hann hafði þegið
boðið. — Fyrirlestur próf. Olsens
f jallaði aðallega um rúna Og helln-
ristusteininn, sem fanst hjá Kára-
stöðum í Firðafyllci. Taldi hann
þær rúnir 1700 ára gamlar. Sýndi
hann ýmsar skuggamyndir til skýr
ingar, bæþi af staðnum, þar sem
steinninn fanst og ristunum og
eins af öðrum ristum til hliðsjón-
ar. Var erindi þetta nokkurskonar
inngangur að þeim fyrirlestrunl
sem á eftir fara. Aðsókn var góð,
en samkomustaðurinn er. afleitur.
Skuggamyndirnar nutu sín ekki
vegna þess að þær voru úti í horni
og' sáu sumir ekkert af þeim. —
Lágt er undir loft í salnum og
verður því fljótt illverandi þegar
margir eru komnir þangað. Er
vonandi að sjeð verði fyrir betra
húsnæði næst.
Frá Akureyri var símað í gær,
að þar væri gott veður, hægviðri
og sólskin en nokkurt frost. — í
fyrradag • var þar norðanstórhríð
með köflum og setti niðiu- dálít-
inn snjó, en birti undir kvöldið
og- herti þá frostið um nóttina
og í gærmorgun var þar 6° frost,
en þá mátti kalla frostlaust hjer.
Símakappskákin milli Osló og
Reykjavíkur liefst í fyrramálið
kl. 7x/z en ekki 11 eins °S áður
var sagt, og á henni að vera lokið
kl. 3. Veldur þessari breytingu
það, að síminn fekst ekki til af-
nota á öðrum tíma. Hjer verður
telft í Bárunni; verða leikarnir
símaðir þaðan suður á loftskeyta-
stöð, þaðan loftleiðina til Bergen,
og þaðan með síma til Ósló. Er
ekki að efa að skákmenn vorir
munu gera sitt besta til þess áð
vinna sigur og verður þessi sex
manna hólmganga áreiðanlega hin
harðasta og munu menn fylgja
henni með áhuga. Verður öllum
heimilt að koma í Báruna og horfa
á skákirnar og til þess að sem
flestir komist að til að horfa á,
verða höfð sex aukaborð í salnum
og leikarnir jafnframt sýndir á
þeim.
Fiskafliim á iillu landinu er tal-
inn 165.711 skpd. hinn 15. þ. m.,
en var um sama leyti i fyrra
133.824 skpd. Hafa Vestmanuaeyj-
ar og verstöðvarnar hjer austan-
fjalls orðið mjög útundan með
afla á þessari vertíð. Þannig eru
nú ekki talin nema 49 skippund
á Eyrarbaklca í stað 565 í fyrra,
á Stokkseyri 168 í stað 785, og í
Vestmíannaeyjum 21.401 í stað
28.040 í fyrra um sama leyti. —
Aft’nr á móti er aflinn á Akranesi
nær því lielmingi meiri en í fyrra.
Fiskveiðar Færeyinga hjer við
land. hafa gengið með allra besta
móti í ár. Hjer í Reykjavík liafa
skúturnar selt 937 skippund, en í
Hafnai-firði 1448 skippund og þrír
farmar hafa farið til Færevja.
Kappgilíma Knattspymuf j elags
Reykjavíkur. Innanfjelagskeppni
í K. R. í íslenskri glímu hefir
staðið yfir undanfarna daga. —
Var kept í öllum þyngdarflokk-
um og tóku flestir glímumenn fje-
lagsins þátt í keppninni. Úrslit
urðu þessi: f ljettasta flokki hlaut
1. verðlaun Georg Sveinsson og í
miðflokki Jón Sigurgeirsson. — í
þyngsta flokki varð hlutskarpast-
ur Jóhannes Björnsson stúdent og
hlaut því glímubikar K. R. að
þessu sinni. Er kept um bikannn
tvisvar á ári, í janúar og apríl.
Knattspyrnufjelag Reykjavíkur
tekur nú miklum framförum í ís-
lenskri glímu undir forustu Þor-
geirs Jónssonar glímukongs.
Fram og Kna-ttspymufjelag
Reykjavíkur. Hinn gamli og fyrr-
urn skæði keppinautur K. R. í
knattspyrnu, Fram, færði K. R.
fagran bikar á 30 ára afmæli
þess með þökk fyrir marga harða
Grænar ertur
extra fínar-fínar-miðlungs
og grófar.
Belgjabaunir miðlungs
Tomato Purée
Champignons
Sardínur franskar 2 teg.
Tomato Ketchup 7 oz og
12 oz gl.
Pickles
Matarlitur.
Fisksósa.
Soyur.
Sultutau, allar tegundir.
Marmelade.
Svissneskur ostur í dósum
tvær tegundir.
Nýkomið:
Fermingar-
skyrtnr
Verslun
igili Iscobseii.
Hvít
Silká-tricotine nærföt
fyrir fermingarstúlkur
frá 3.80 stykkið.
Tekið upp í dag hjá
S. iDhannesdóttur
H. Óiafsson & Bernhöft.
Sími 2090.
Framhaldsfundur
1.1, Kll i Slll
verður haldinn í Varðarhús-
inu við Kalkofnsveg mánu-
daginn 22. þessa mánaðar kl.
5 eftir hádegi.
Fundarefni samkvæmt f je-
Iagslögum.
STJÓRNIN.
H.F
EIMSKIPAFJELAG
Í5LANDS f
REYKJAVÍK 'it
„EsjaK
Vörnr ðskast afhentar í
iay eða fyrir hádegi á mánn-
dag.
,Gelotex‘- plilur
einangra ágætlega hita og kulda,
draga ekki í sig raka, rifna ekki,
þenjast ekki og þurfa engan sjer-
stakan undirbúning undir múr-
sljettun. — „Celotex“ hefir verið
notað í mörg hús hjer á landi,
alstaðar með góðum árangri.
Fæst í
Timburverslnu
Árna Jónssouar.
Hverfisgötu 54. Sími 1104.
og drengilega knattspyrnuorustu
á liðnum árum.
Kafbátahernaðurinn
er skemtilegasta bók, sem
hægt er að fá handa drengj-
nm. Tilvalin fermingjargjöf
eða sumargjöf.
Fæst hjá bóksölum.
Austupstrœtl 14.
Beint á móti Landsb*.r.kamum)>
Simi f887.
Drvals vðrnr.
Lægsta verð.
ísl. kartöflur 15 aura % kg.,
rófur 15 aura % kg., Strausykur
30 aura % kg., Molasykur 35 aura
Yz kg„ Haframjöl 25 aura, Hrís-
grjón 25 aura, Hveiti 25 aura,
Kæfa 1 kr. Edamerostur 1,40.
Mystuostur 65 aura.
Versl. Ffllinn.
Qiasla oerslun Qailarlns.
Hrossakjöt af ungu : 50 aura %
kg„ mikið ódýrara í heilum stk.
Spaðsaltað dilkakjöt á 65 au.
% kg. Nýtt smjör, ný egg, nýtt
skyr, soðinn og súr hvalur.
Verslnnin Björninn
Sími 1091. Bergstaðastræti 35.
Laukur,
Exportkaffi L. D.
„Husholdning' * súkkulaði,
„Konsum“ súkkulaði,
„Salami“ pylsur,
Maccaroni,
Þurk. Epli,
fyrirfiggjandi hjá
C. Behrens,
Sími 21.
Málingarvörnr
allskonar.
Ahöld fyrir málaraiðn.
Vald. Poulsen,
Sfmi 24. Klappapstlg 29.
Nýtt
Hangikjöt, harðfiskur, smjör
ísl., hákarl, saltkjöt í tunnum
og lausri vigt og egg.
ifon og Brekkustfg 1.