Morgunblaðið - 19.05.1929, Side 3
M O R G U N B L A Ð 1 Ð
S
^PIorcpmMa&td
Stofnandi: Vilh. Finsen.
Utgefandi: Fjelag 1 Reykjarlk.
Rltatjðrar: Jðn KJartansson.
Valtýr Stef&nsson.
Auglýsingastjöri: B. Hafberg.
Skrifstofa Austurstrœti 8.
Simi nr. S00.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimaslmar:
Jðn KJartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
.takrlftagJaUl: __ ___
Innanlands kr. 2.00 á. mánúðl.
Utanlands kr. 2.B0 - ----
I lausasölu 10 aura elntaklC.
Erlendar sfmiregnír.
Khöfn, FB. 17. raaí.
Kannsc’.ai útaf spítalabrunaimm.
Frá (’leveland er símað: Yfir-
völdin hafa fyrirskipað rannsókn
út af sprengingunni í spítalannm
■«g brunanum. Yfirlæknir spítal-
nns segir, að flestir þeir sein önd-
uðust af vöklum eiturgassins hafi
andast innan einnar mínútu. S.jer-
frt^ðingar segja, að eiturgasið hafi
myndast við bruna Röntgenfilma.
Eiturgasið lúkist Fosgen-gasinu,
*em notað var í heimsstyrjöldinni,
*en er enn hættnlegra.
Bandaríkin vilja ekki taka þátt í
stjórn skaðabótabankans.
Frá Washington er símað: Stim-
son utanríkismálaráðherra hefir
lýst því yfir, að engum embættis-
manni Bandaríkjanna verði leyft
■að taka þátt í stofnun skaðabóta-
Henry Stimson.
banka, sem áformað er að annist
uru þýsku skaðabótagrciðshirnar;
sstjórn Bandaríkjanna vilji ekki, að
■embættismenn Bandaríkjanna taki
|j)átt í innheimtu skaðabótanna.
— > <M» .—...
Stærsti flugbátur Þjóðverja.
í Dornierverksmiðjunni er nú
verið að smíða hinn stæísta flug-
bát Þjóðverja, og á hann að heita
DO. 10. Verður hann alt að því
þrisvar, sinnum stærri heldur en
núverandi stærsti flugbátur Þjóð-
verja, Dornier Superwal. Væng-
tafið á þessnm nýja flugbát er 50
metrar á lengd og burðarflötur
vængjanna 467,7 fermetrar. — 1
flugbátmim verða 12 Jireyflar og
hafa jieii- að samantoldu 6000 hest-
öfl. Hann getur flutt 51.500 kg. og
bensíngeymar hans taka 16 þúsund
lítra. Áætlaður flughraði er 240
km. 'á klukkustund. Skrokkurinn
■er smíðaður úr „duraluminium“,
sem er styrkt með stáli. Bátnum
■er æt.Iað að geta setst á sjó, þótt
sjógángur sje mikill. í farþega-
rumi er gert ráð fyrir rými fyrir
50—60 farþega. Skipshöfnin verð-
iir 10 manns. Ef flugbáturinn er
tómuí, á hann að geta flogið í
stryklotu 4240 km., en með full-
tim flutningi um 3000 km. og ætti
því að geta flogið yfir Atlantshaf.
Samvinnuhngmynd ir
Framsóknar sósíalistanna
Jónas og aðrir jafnaðarmenn leggja kapp á að sporna
við því, að síldarverksmiðjan geti orðið
samvinnufyrirtæki.
Samviskunnar mótmæli.
Það vakti talsverða eftirtekt á
dögunum, er nokkrir Framsóknar- j
menn í Neðri deild tóku sig fram
um það að breyta stjórnarfrum-
varpinu um ríkisrekstur síldar-
verksmiðju, þannig, að stjóminni
væri heimilt að selja verksmiðjuna
samvinnufjelagi útgerðarmanna, ef
þeir mynduðu með sjer slíkan fje-
lagsskap.
Ríkisrekstrar unnendum, sósíal-
istum, var meinilla við breytingu
þessa, er nokkrir Framsóknarmenn
gerðu í óleyfi sósíalistanna.
Er upp í Efri deild kom, fjekk
•lónas og aðrir jafnaðarmenn því
framgengt, að ákvæði þessu var
breytt þannig, að hásetar síldveiði-
skipa, sem eru ráðnir upp á lilut,
verði einnig að vera. með í sam-
vinnufjelagi því, sem stofna. þarf
til þess að heimilt sje að láta af
ríkisrekstri hennar.
Magnús Guðmundsson gerði síð-
ar um það fyrirspurn, hvernig
liægt væri að stofna samvinnufje-
lag þetta með hásetum, sem væru
eina vertíðina þarna og þá næstu
annarsstaðar, stundum ráðnir upp
á hlut, stundum kæmu hvergi
nærri síld o. s. frv. — Var því
aldrei svarað. M. ö. o., stjómar-
liðið mim líta svo á, að með ákvæði
þessu sje girt fyrir, að fyrirtækið
verði rekið á samviimugrundvelli.
Er frumvarpið kom til Neðri
deildar aftur fylgdi Jónas því
fast, eftir að Efri deildar ákvæðið
fengi að haldast. Kom hann þar |
fram sem fulltrúi þjóðnýtingar-
manna, sem hann og er.
En Bjarni á Reykjum kvakaði
ögn á móti. Var kvak hans past-
urslítið seni vænta mátti. Sagði
hann m. a., að sjer kæmi undar-
lega fyrir sjónir, að Framsóknar-
menn, samvinnumennirnir, .Ijeðu
því lið sitt að gera samvinnufyrir-
komulaginu erfiðara uppdráttar
en ástæða væri til. Kvaðst hann
hvenær sem væri, vera fús til þess
að koma ákvæðinu um samvinnu-
fjelag útgerðarmanua inn í lögin,
þó hann þetta sinn vildi láta Efri
deildar ákvæðið vera þar kyrt, úr
því sem komið væri.
Jóhann Jósefsson og Ól. Thors
fluttu breytingartillögu þess sfnis,
að koma frv. í sitt fyrra form. —
Fer hjer á eftir ræða ein, er Jóh.
Jós. hjelt í þessu máli, er gefur
glögt yfirlit yfir, hvernig því er
varið:
Ræða Jóhanns Jósefssonar.
Hv. 1. þm. S.-M. SvÓ og hv. þm.
Mýr. (BÁ) könnuðust báðir við,
að hv. Ed. hefði skemmt þetta
irv. til muna, en þeir töldu hins-
vegar, að ef hjer væri nú farið að
g-era breytingar á því, væri frv.
stefnt í voða, þannig að það næði
ekki fram að ganga á þessu þingi.
Jeg verð nú að leyfa. mjer að
halda því fram, að þessi ástæða
gegn því að frv. verði breytt hjer
til Viðunanlegs horfs aftur, er
lireinasta yfirskinsástæða — og
ekkert annað. Eins og hv. 1. þm.
S.-M. og hv. þm. Mýr. vita báðir,
eru allir á sama máli um það,
íhaldsmenn engu síður en Fram-
sóknarmenn, að nauðsynlegt sje að
koma upp síldarverksmiðjunni. —
Það er því á misskilningi bygt, að
með því sje verið að eyðileggja
málið, þótt þessi brtt. sje sett
inn, því að það er lafhægt, að taka
málið á dagskrá í hv. Ed. með
afbrigðum þegar í dag, þannig áð
þar verði haldinn annar fundur, og
síðan að afgreiða það með af-
brigðum í sameinuðu þingi með
öðrum fundi á eftir þeim, sem þar
á að halda í kvöld. Það sem hjer
veltur því alt á, er það, hvað
menn vilja gera í þessu efni, og
jeg hygg, að mjer sje óhætt að
lýsa yfir því, fyrir hönd okkar
íhalclsmanna, að við munum allir
standa að þessu máli, þótt þessi
brtt. verði sett inn, og vinna að
því, að það verði ekki tafið, enda
væri einkennilegt, ef farið væri til
þess, þar eð þetta mál er eitthvert
mesta nauðsynjamál síldarútvegs-
ins.
Hv. 4. þm. Reykv. (SÁÓ) sagði,
að jeg hefði sagt, að hásetamir
mættu ekkert eiga í þessu fyrir-
tæki. Þetta er ekki rjett. Hitt
sagði jeg, að eftir till. hv. Ed.
væru það hásetarnir, sem öllu
rjeðu, ef til þess kæmi, að þessi
fjelagsskapur yrði stofnaður. en
útvegsmíennirnip hinsvegarj litlu
sem engu. Og jeg býst við því,
eftir því taumhaldi sem jafnaðar-
menn virðast hafa á sjómönnunum,
að þeir muni ekki telja eftir sjer
sporin, til þess að hindra það, að
fyrirtækinu verði breytt í sam-
vinnufjelag.
Hæstv. dómsmálaráðherra gerði
alleinkennilega upp á milli háttv.
Ed. og Nd. í ræðu sinni áðan. —
Hann lýsti því yfir, að ákvæðin
um þennan væntanlega samvinnu-
fjelagsskap væru miklu skýrari
hjá hv. þm. Ak. (ErlFr) og hv.
2. þm. S.-M, (IP) en hjá hv. þm.
Mýr. (BjÁsg) og hv. þm. V.-fsf.
(AA), að það væri miklu ljósari
og skilmerkilegri hugsun í þessu
hjá sósíalistunum í Ed. en sam-
vinnumönnunum hjer. Og blessað-
ir samvinnumennirnir í þessari hv.
deild beygja höfuð sín í duftið,
hörfa frá sínum samvinnutillögum,
kyngja till. sósíalistanna í hv. Ed.,
og gefa. ríkið Persum og Medum á
vald. Það eina, sem þeir afsaka
þessa framkomu sína með, er það,
að málinu sje stefnt í voða, ef
gerðar verða h.jer hreytingar á
frv. nú, en sú ástæða er ófram-
bærileg', þegar þess er gætt, livað
málið hefir mikið fylgi hjer í
þinginu, eins og jeg hefi áður sýnt
fram á.
Eftir till. Framsóknarmanna hjer
í þessari hv. deild, var st.jórninni
heimilað, ef helmingur framleið-
enda myndaði samvinnufjelag sín
*
SÖItl.
þar sem nú er gerilsneyðingarstöð okkar. Húsið er sjer-
lega hentugt til hverskonar verksmiðju eða iðnreksturs
sem vera skal. Neðiri hæð hússins er lögð flísum á gólf og
veggi. Á efra lofti eru ágæt íbúðar- eða skrifstofuherbergi
Vatnsstlgar 10,
þar sem nú er koronmylla okkar og vörugeymsla. Hús
þessi eru hentug fyrir hverskonar verkstæði eða vöru-
geymslu. Þessari eign fylgir lítið íbúðarhús.
Báðar þessar eignir verða seldar með sjerstöku tæki-
færisverði og mjög góðum borgunarskilmáhim.
Semjið við framkvæmdastjóra fjelagsins.
Hjólknrfjelag Reykjaviknr.
Mc Cormlck
Dráttarvjelar og dráttarvjelaplðgar
og herö.
Vjer höfum þessar vjelar fyrirliggjandi hjer á staðn-
um og útvegum í viðbót með stuttum fyrirvara.
Mc Cormick dráttarvjelin er tvímælalaust sú fuD-
komnasta dráttarvjel.sem til er. Þó hún sje nokkru dtýr-
ari en aðrar dráttarvjelar, þá hefir reynslan orðið með
hana eins og bestu bifreiðamar, að þó þær sjeu dýrari í
bili, þá verða þær altaf þær ódýrustu í reyndinni.
Gerið sem fyrst pantanir í Mc Cormick sláttuvjelar —
rakstrarvjelar og snúningsvjelar.
Hjólknrfjelag Beykjavtknr.
Við eigum fyrirliggjandi nokkrar birgðir og skips-
farm á leiðinni.
Gerið svo vel að semja við okkur sem fyrst, það
mun áreiðanlega borga sig.
Reynsla bæði innlend og útlend, er fengin fyrir því
að Slemmestad Portland Cement er að minsta kosti eins
gott og það besta Portland Cement, sem fáanlegt er.
Hjðlknrfjelag Reykjaviknr.
Hðselgnir tii
Lindargata 14,