Morgunblaðið - 01.06.1929, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐÍÐ
3ílorðunbíaí>ii>
Stofnandi: Vilh. Finsen.
Utgefandi: Fjelag I Reykjavik.
Ritstjðrar: Jðn Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Augrlýsingastjðri: E. Hafbcrg.
Skrifstofa Austurstræti 8.
Sfrni nr. 600.
Auglýsingaskrifstofa nr. 700.
Heimasiraar:
Jðn Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Askrlftacjald:
Innanlands kr. 2.00 &, mánuBi.
ITtanlands kr. 2.50 - ----
I lausasölu 10 aura eintakiB.
Erlendar simfregnir.
Hosningarnar í Bretlandi
Það mnn óhætt að fullyrða, að
sjaldan hefir heimurinn beðið
kosningaúrslita með meiri óþreyju
heldur en úrslita kosninganna, er
fram fóru í Bretlandi í fyrradag.
Var búist við mikilli stefnubreyt-
ingu þar og flokkariðlun, og töldu
flestir, að frjálslyndi flokkurinn,
undir forystu Lloyd George, mundi
verða hinum flokkunum skeinu-
hættur, og gekk þó enginn að því
gruflandi, að verkamannaflokkur-
inn, undir forystu Ramsay Me
Donald, mundi líka vinna á. Og
var þá sýnt, að stjórnarflokkur-
inn, íhaldsmenn, mundi tapá, því
að ekki. var af öðrum að taka
þingsæti.
íhaldsflokkurinn, með þá Bald-
■win forsætisráðherra, Chamberlain
utanríkisráðherra Og Winston
Churchili fjármálaráðherra í far-
arbroddi, var langöflugasti þing-
flokkur í landinu fyrir þessar kosn
ingar. Var atkvæðamagn flokk-
anna á þingi þetta:
Iháldsmenn 396 þingsæti.
Verkamenn 160 —
Frjálslyndir 46 —
Óliáðir 7 —
í fyrrakvöld var útvarpað fyrstu
kosningafrjettunum frá Englandi.
Munu margir lijer í bænum hafa
fylgst með útvarpsfrjettunum fram
á nótt. Voru seinustu fregnir, er
þá komu hingað, mjög samhljóða
eftirfarandi skeyti er FB. barst
frá Kaupmannahöfn í gærmorgun:
Frá London er símað: Kosn-
ingaúrslit eru kunn í tæpum þriðj-
ungi kjördæma. íhaldsmenn hafa
fengið 66 þingsæti, tapað 45. —
Verkamenn liafa fengið 108 þing-
sæti, imnið 45. — Frjálslyndir
hafa fengið 12 þingsæti, tapað
einu.
Laust fyrir hádegi í gær barst
svo FB. þetta skeyti frá London,
um atkvæðatölurnar eftir fyrstu
talningu í gærmorgun:
— Verkamenn hafa fengið 119
þingsæti, unnið 54, en tapað 3. —
íhaldsmenn hafa fengið 77 þing-
sæti, unnið 1, en tapað 52. Frjáls-
lyndir hafa fengið 14 þingsæti,
unnið 8, en tapað 10.
Kl. 4 í gær barst hingað svo-
látandi skeyti:
Verkamenn hafa fengið 281 sæt.i.
Ihaldsmenn — — 236 —
Frjálslyndir — — 50 —
Óháðir — — 9 —
Enn vantar úrslit um 41 þing-
mann.
Ýmsir af ráðherrunum munu
hafa fallið við kosningarnar. Og
Flug Svianua.
Þeir leggja ekki á stað iyr en 4. þ. m.
Samkvæmt fregnum þeim, sem
hingað hafa borist um flug- Sví-
anna Alirenbergs og Flodén, var
búist við að þeir mundu leggja á
stað í dag og koma hingað • kvöld,
ef ekkert yrði að.
En eftir upplýsingum sem Morg-
Hosninyar (Færeylum.
Samuelsen kosinn
þjóðþingmaður Færeyja.
Kosningarnar í Færeyjum fóru
svo, að vinstrimaðurinn Samuel-
sen var kosinn þingmaður Færeyja
til danska þingsins með 3488 at-
kvæðum. — Konoy, frambjóðandi
sjálfstæðismanna og jafnaðar-
manna fjekk 2773 atkvæði.
Dagbðk.
Veðrið (í gær kl. 5): Háþrýsti-
svæði og stilt veður um Bretlands-
eyjar og ísland, en alldjúp lægð
suður undir Azoreyjum á hægri
hreyfingu NV-eftir. Veldur hún
A-átt á hafinu fyrir sunnan ís-
land, en nær eigi ennþá til hafs-
ins. Kl. 5 í lcvöld var hlýjast á
Kirkjubæjarklaustri 18 stig, en
víðast hvar 10—12 stig. Þoka með
allri V og N-ströndinni, en heið-
ríkt í innsveitum.
Á N-sjónum er liæg N-átt, en
í S-Svíþjóð er vindur allhvass N
með þykkviðri og rigningu.
Veðurútlit i dag: Sennilega ljett-
skýjað. A-átt með nóttunni.
Messur á morgun: 1 Dómkirkj-
unni kl. 11, sjera Bjarni Jónsson;
kl. 5 Safnaðarfundur.
í Fríkirkjunni í Reykjavík kl.
5, sjera Árni Sigurðsson.
í Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl.
2, sjera Ólafur Ólafsson. (Altar-
isganga).
Ný gleraugnaverslun verður opn-
uð í dag í Lækjargötu 6 B.
Thorkild Roose las upp í gær-
unblaðið hefir fengið frá aðalkon-
súl Svía á íslandi, John Fenger,
munu flugmennirnir ekki leggja á
stað frá Stokkhólmi fyr en kl. 6
að morgni hins 4. júlí og geta þá
komið hingað að kvöldi sarna dags.
Hið íslenska prentarafjelag færði
Þorvarði Þorvarðssym prent-
smiðjustjóra skrautritað ávarp á
sextugs afmæli hans nú nýlega.
Var ávarpið undirritað af fje-
lagsmönnum og í því tilkynt, að
fjelagið hefði kjörið hann heiðurs-
fjelaga. Var Þorvarður einn af
stofnendum Prentarafjelagsins, er
mun vera elsta stjettarfjelag í
landinu, og hvatamaður að stofn-
un sjúkrasamlags prentara. (FB).
Hjónæband. Þann 29. f. m. voru
gefin sarnan í borgaralegt hjóna-
band Ása Sigurðardóttir frá Hjalt-
eyri og Steinarí* Stefánsson versl-
unarstjóri við Kaupfjelag Borg-
firðinga.
„Freyr“, mars-apríl blaðið er
nýkomið út. Tvær greinir eru þar
um munaðarvörur, önnur eftir Jón
as Þorbergsson, en liin eftir Björn
Jósefsson lækni. Grein er þar um
gæði og vei'ð á landbúnaðarafurð-
um, eftir Gunnar Árnason og
skýrsla um Búnaðarþingið, eftir
Pálma Einarsson. Jónas Þorbergs-
son ritar um sauðfjárrækt. Margt
er fleira í blaðinu og er það yfir-
leitt hið laesilegasta.
Þrastalundur, sumardvalarheim-
ili Elínar Egilsdóttur, er hún reisti
í fyrra í Þrastaskógi, skamt frá
Sogsbninni, verður opnað í dag.
Er það einhver hinn skemtilegasti
dvalarstaður hjer í nágrenni
Reykjavíkur um sumartímann,
skógurinn alt um kring, húsið á
skemtilegum stað, öðrum megin
Sogið, hið fagra vatnsfall, og
skamt fyrir norðan Álftavatnið
bjarta, er Steingrímur kvað svo
vel um.
Thorkild Roose les næst á
norgun eftir þá I. P. Jacobsen og
Joh. V. Jensen. Er þetta seinasti
upplestur hans hjer í Reykjavík,
því að á mánudaginn fer hann
Glænýjan
Sltamg
úr Þingvallavatni
seljum við í dag.
Ágætur í sunnudagsmatinn.
Verslnnin Vaðnes,
Sími 228.
lerðatdskur
ferðaáhöld, handtöskur
(stórar og litlar), skjala-
töskur o. fl. til sumar-
ferðalaga.
Mikil verðlækkun í nokkra
. daga.
Leðuivörudeild
Hljóðfærahilssins.
Hátíðamatur,
Nautakjöt í steik,
Nautakjöt í buff,
Nautakjöt í supu,
vel feitt af ungu.
Kjötbúðin í Von.
Biireiðastðð
Borgarness
hefir altaf til leigu fyrsta
flokks bifreiðar. Og einnig
fastar ferðir. Hringið í
s í m a 16 í Borgarnesi.
Ný komnar
sænskar regnkápur.
Sjerlega góð tegund.
Verðl kr. 45.00.
Gnðm. B. Vikar.
Laugavegi 21.
Sími 658.
St. Æskan nr. 1
Skemtiför
er ákveðin á morgun (sunnudag)
austur í Hveradali.
Lagt verður á stað kl. 8 f. h.
ef veður leyfir.
Farseðlar á kr. 2,00 fyrir börn
og kr. 3,00 fyrir fullorðna, fást
í dag kl. 5—7 í Gullsmiðjunni
Málmey, Laugaveg 4.
Gæslumaður.
Fonr aces
cigareftur i 10 og 20 st. pk.
í heildsölu hjá
Tébaksverslnn
íslands h.f.
aðrir hafa átt midir högg að
sæltja. Um það ber vott skeyti er
F. B. barst í gærdag og segir svo:
— Chamberlain utanríkisráð-
herra var endurkosinn í Birming-
ham, en þó aðeins með 43 atkvæða
meirihluta.
Kommúnistar hafa ekki farið
neina frægðarför. Svo segir í sama
skeyti:
— Saklatvala, eini kommúnist-
inn í uppleysta þinginu, er fallinn.
Sósíalistar fá ekki meiri-
hluta þingsæta.
(Síðustu fregnir.)
f gærkvöldi heyrðust þær út-
varpsfrjettir hingað til bæjarins,
að útsjeð væri um að breskir só-
síalistar fengju meirihluta þing-
sæta. Var ófrjett úr 20 lcjördæm-
um, og höfðu sósíalistar þá fengið
284. Þó þeir fengi öll 20 þing-
sætin, sem eftir voru, fá þeir ekki
nema 304 þingsæti, en 308 þarf til
að fá meirihluta. — ílialdsmenn
höfðu fengið 255 þingsæti er þetta
frjettist.
i
kvöldi nokkur æfintýri eftir æf-
| intýraskáldið heimsfræga H. C.
'Andersen. Æfintýrin eru eins og
| allir vita sífelt ný, og dró síst
| hin óviðjafnanlega meðferð leik-
arans íir hinni heillandi fegurð
þeirra.
Skrifstofum stjórnarráðsins verð-
|Ur lokað kl. 12 á laugardögum
|mánuðina júní, jiilí og ágúst, sam-
kvæmt tilkynningu í Lögbirtinga-
blaðinu.
Úr Dölum. Dráttarvjel kom með
Esju í Saurbæinn fyrir nokkru
(í apríl). Reynist hún vel og
vinnur ágætlega. Er' mikill jarð-
ræktarhugur í mönnum.
Olafur Eggertsson hreppsstjóri
í Króksfjarðarnesi byggir í vor
veglegt íbúðarhús úr steinsteypu
á jörð sinni. — Síra S. Z. Gíslason
hefir nýlega stofnað tvær stúkur
í sýslunni, aðra í Saurbæ, hina á
Skarðsströnd. Er hann á förum
ihjeðan til nýja prestakallsins í
jDýrafirði. Átti hann almennum
jvinsældum að fagna hjer, enda
! getið sjer hinn besta orðstír.
| Byrjað er á sundlaugarbyggingu
að Laugum í Hvammssveit og
gengst ungmennasambandið hjer í
sýslu fyrir byggingunni. (FB).
EÍHS D| ÍSSll
hefir verslunin vandað og
fjölbreytt úrval af allri
nauðisynjavöru, svo sem:
Sængurveraefni,
Ljereft einbr. og tvíbr.
Hörljereft,
Lakaljereft, þríhr.,
Tvisttau,
Morgunkjólaefni,
Flúnel,
Fiðurhelt,
Dúnhelt,
Handklæðaefni,
Handklæði,
Þurkuefni,
og ótal margt fleira. —
Verð og gæði alþekt.
Verslnn
Egill Jacobsen.
nýjnstn erlendar
dansplðtnr.
Stört úrval kom með
síðnstn skipnm.
Hljóðiærabnsið.
Crepe de Chine
do. Azure
do. Marocain
do. Satin
do. Georgette
Satin Marocain
Radium
Silki í kápur
Sumarkjólaefni
Silkislæður í fallegu
úrvali.
Silkisokkar ýmsar teg.
og litir.
brsfon bgfliJarprJÉnsra
Olæný eo9
á 16 aura.
Nýtt nautakjöt,
Frosið Dilkakjöt,
og Saltkjöt.
Hiötbúðin, Týsgðtu 1.
Sími 1685.