Morgunblaðið - 23.06.1929, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.06.1929, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Sveltamenn. Nauðsynlegar vörur: Reipakaðall Stunguskóflur Gafflar Saumur allskonar Skógarn Skósnúra Málningarvörur allskonar Fernisolía Silunganet, allar stærðir Silunganet j agarn Laxanetjagarn Gúmmístígvjeí Gúmmískór Olíufatnaður Vinnufatnaður allskonar Reiðbuxur Reiðkápur Hnífar allskonar Hrátjara i Bl. Fernis Carbolin Bambusstengur Silungalínur Silungsönglar. Ódýrast í Veiðarfæraversl. „Geysir“. nvkomið: Ðrengjapeysur, mjög sterkar, fleiri teg., Telpupeysur úr ull og ull og silki, Kvenpeysur, með og án kants, mjög stórt úrval, Karlmannapeysur, bláar, Sportsokkar fyrir böm og fullorðna, Silkiundirkjólar, buxur og náttkjólar, fyrir böm og fullorðna. fsg. G. Gunnlaugsson $ Go. Austurstræti 1. Epli. Gióaldin, Gulalðin, Laukur, Ný jarðepli, TröHasúra. nýkomið í ftiýlenduvörudeild JES ZIMSEN. Verslið við Vikar. — Vörur við vægu verði. — hverju öðru, enda á þetta jaí'n- framt að verða rannsóknarleið- angur, gerður í því skyni að fræð- ast um þetta merkilega land, sem er svo skamt frá okkur, en við vitum þó ekkert um. Má vera, að þótt ekki verði mikill árangur í þessari för, þá beri liún meiri ár- angur síðar. Vjelbáturinn Gotta er eign Arna Böðvarssonar rakara í Vestmanna- eyjum, og er hann leigður í þessa för. Báturinn hjet áður Signrður I. og var þá um tíma í förurn milli hafnanna hjer við Faxaflóa. Hann ber 36 smálestir. Skipshöfn- in verður 10 manns: Kristján Kristjánsson (ættaður úr Arnarfirði), skipstjóri, Finnbogi bróðir hans, stýri- maður, Kjartan Bjarnason, 1. vjelstjóri, Hjalti Benónýsson, 2. vjelstjóri, Vigfús Sigurðsson, veiðistjóri, Edvard Frederiksen, bryti, Þorvaldur Guðjóusson, formað- ur frá Vestmannaeyjum, Markús SigVtfjónsson Markússonar fyrv. sýslumanns, Baldvin Björusson gullsmiður, og Ársæll Árnason, bóksali, eru hásetar. Vigfús Sigurðsson, sem kallaður hefir verið Grrænlandsfari, síðan hann fór með Koeli þvert yfir Grænlandsjökul, er sá maðurinn, sem nokkuð þekkir til sauðnauta — hvar þau hafast lielst við, og hvernig á að veiða þau. Frederik- sen hefir áður verið á skipi, sem stundaði veiðiskap við austur- strönd Grænlands. Baldvin Björns- son er gamall sjómaður, þótt hann liafi nú um mörg ár stundað gull- smíðar. Var hann margar vertíðir á þilskipum frá ísafirði og komst þá oft í kast við hafísinn. Auk þess er kann gjörhugall maður á flest og hefir í tómstundum sín- um kynt sjer t. d. náttúrufræði og steinafræði, og getur það komið að góðu haldi í þessum leiðangri. Olafur Olafsson kristniboði Frú Herborg og Ólafur Ólafsson kristniboði. er nú á förum frá ís- landi með konu sinni og syni þeirra. Ætia þau að dvelja nokkrar vikur hjá fjölskyldu frúarinnar í Noregi og fara alfarin þaðan á- leiðis til Kína, seiut í ágúst í sumar. — Frú Herborg Olafsson er bóndadóttir úr Þrænda lögum, hún tók stú- dentspróf, fór svo til Kína til að verða þar kenslukona við einn af kristniboðsskólum norska trúboðsins, og þar giftust þau Ólafur og hún fjrrir fám ár- um. Starfstími kristniboð- anna er að jafnaði 6 til 8 ár í einu, og svo ,hvíldartími‘ heima eitt eða tvö ár á milli. — Raunar eru þeim oftast ætlaðar ótal samkomur, en lítil hvíld í heimalandinu, nema um heilsubil- un sje að ræða. Norska fjelagið, sem sjer um starf Ólafs í Kína, ætlar trúboðunum 8 ár í Kína og 2 ár heima, svo að búast má við að full 8 ár verði þangað til þau hjónin koma aftur til íslands. En nú fylgja þeim miklu meiri og al- mennari samhugur frá fslándi en áður var. Þegar kristniboðsfjelögin í Keykjavík og grendinni, fámenn og efnalítil, rjeðnst í fyrir hálfu öðru ári að sjá Ólafi fyrir fullum launum og ferðakostnaði, ef hann kæmi hingað til íslands og starfaði hjer uns hann færi aft- ur til Kína, þá hefir líklega ein- hverjum þótt djarft teflt og ólík- legt að stefnt væri fram hjá fjár- þrotum. En alt hefir það gengið prýðilega. Kristniboðinn hefir haldið liátt á annað hundrað erindi og ræður um mikinn hluta lands, alstaðar fengið góða áheym, greitt úr ótal spumingum ókunnugra viðvíkj- andi kristniboði og vakið áhuga á því máli miklu meira en áður var, er greinilegast hefir komið í ljós í miklu meiri og almeiiHari gjöfum til kristniboðs, en nokkru sinni fyr hjerlendis. Hefir því ver- ið unt að standa allan straum af starfinu, nóg fje til að grefða ferðakostnað þeirra hjóna til Kína — um 4000 íslenskar krónur —, og nóg áræði til að taka að sjer að greiða laun hans þar framvegis. — Þau eru vitaskuld ekki nein „ó- sköp“, um 130 sterlingspund, eða tæpar 3000 ísl. kr. á ári. Alveg nýlega áttu um 20 full- trúar kristniboðsfjeiaga fund með sjer hjer í bænum, og var þar sam- þykt að stofna ,Samband íslenskra kristniboðsfjelaga*, samþykt frum- var]) til laga, bráðabirgðastjórn kosin og því sjerstaklega lýst yf- ir, að Sambandið mundi greiða laun Ólafs kristniboða framvegis, og styðja að öðru leyti starf hans í Kína eftir mætti, í sambandi við norska fjela.gið. En aðaltilgangur- inn er auðvitað sá, að ísl. kristni eignist sjálfstætt kristniboð í ó- kristnu Iandi, er tímar líða. Þessa dagana er Ólafur að kveðja. Hann flutti kveðjuræður á Akranesi og Kálfatjörn í vik- unni og t.alar í dag (sunnudag) hjer í dómkirkjunni og í Hafnar- firði. Kristniboðsvinir hjer í bæn- um halda þeim hjónum samsæti á þriðjudagskvöldið, en á fimtudag- inn fara þau með Lyru til Noregs. Fyrirbænir og góðar óskir fylgja þeim. S. G. stafir og merki eru á IlXIPEREAL-ritvjelum, á flestum öðrum ntvielum aðeins 84. Leitið upplýsinga hjá okkur um ,1M P E RIA L‘ áður en þjer festið kaup á ritvjel. 0. Johnson & Kaaber. Hflc Cormick sláttuvjelar, þessar þjóðfrægu, gamalkunnu sláttuvjelar koma eftir nokkra daga endurbættar .eftir íslenskum staðháttum. Ennfremur RAKSTRARVJELAR — SNÚN- INGSVJELAR og BRÝNSLIIVJELAR — talið við okkur sem fyrst. Mjólknrfjelag Reyfejavíknr. Ungur maðnr getur fengið framtíðaratvinnu við eina af stærstu vefn- aðarvöruverslunum bæjarins. Það er tilgangslaust fyrir aðra að sækja, en reglu- sama, snyrtilega menn, sem eru vel að sjer í skrift og reikningi. Umsóknir merktar: „Ungur maður“, sendist A. S. L fyrir kl. 12 á hádegi á mánudag. 2S'/o afslðttur af snmarkðpnm. Jón Björnsson & Co.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.