Morgunblaðið - 24.08.1929, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.08.1929, Blaðsíða 3
moRfii N B L A ÐIÐ ■toínaudl: Vllh. Flnsen. ÐtKetandl: FJelagr 1 Reykjavlk. Rltatjörar: Jön Kjartanaaon. Valtýr Stefán««on. AUKlý*ingra«tJörl: B. Hafber*. ■krlfatofa Aueturstrœtl 8. ■Imi nr. 600. AUKiyalnKaakrlfatofa nr. 100. Helmaalmar: Jön KJartansaon nr. 74Í. Valtyr Stefánsion nr. 1ZZ0. B. Hafberg nr. 770. Askrlftagjald: Innanlanda kr. Z.OO á mánuSl. nlanda kr. 2.60 - ---- ■ölu 10 aura elntaklO. Erlendar sfmfregnir. Khöfn FB. 22. ágúst. Bretar kalla hedm setuliðið úr Rmarbygðum. Frá Berlín er símað: „Vossiche Zeitung" skýrir frá því, að yfir- maður setuliðs Breta í Rínarbygð- unum, hafi fengið fyrirskipan um það frá stjórninnni í Bretlandi, að gera þegar ráðstafanir til þess uð hægt verði að flytja setuliðið beim í septembermánuði. Er því talið víst, að heimflutningur treska setuliðsins hefjist í byrjun ^æsta mánaðar og búast menn við, flutningnum verði lokið á •skömmum tíma. Hinsvegar vill Briand engu lofa viðvíkjandi heimflutningi frakk- neska setuliðsins, fyr en Young- ■samþyktin hefir verið samþykt. Baðmullardeilam. Launalækkun rjettmæt. Frá London er símað til Ritzau- frjettastofunnar: Gerðardómur í launadeilunni í baðmullariðnaðin- um breska hefir úrslturðað, að kröfur atvinnurekenda um 12l/2% launalækkun sjeu rjettmætar. ___ Launalækkunin gengur í gildi um aniðbik septembermánaðar. Rannsókn Bandaríkjamanna á ástandinu í Rússlandi. "Viðurkenning útilokuð — viðskifti \ möguleg. Prá Berfin er símað: Blaðið "Vossiche Zeitung skýrir frá því, *ð ameríska mefndin, sem ferðaðist Um Rússland, til þess að kynna 'Sjer sltilyrði tíl aukinna viðskifta á milli Rússa og Bandarikjamanna, sje komin til Berlín. Meiri hluti nefndarinnar álítur útilokað, að stjórnin í Bandaríkj- unum viðurkenni rússnesku ráð- stjórnina. Hinsvegar álítur nefndin að skilyrði sjeu fyrir hendi til aukinna viðskifta og verklegrar samvinnu á milli Rússsa og Bandaríkjamanna. Radium-kaup Bæna. Snemma í þessum mánuði kom tjl Danmerkur H/2 gramm af ra. díum. Hefir f jelag það, sem vinnur "þar í landi að því, að lækna krabbamein, útvegað það. Radíum þetta kom frá Belgíu og kostaði 600.000 krónur. Er því skift i 467 agnir, og er hver ögn í gull- kylki, en utan um gullhylkið er Dlatinhylki. Eru öll hylkin ekki stærri en svo, að þau rúmast vel á vxnglasi. Tímiun og Stefnir. Tíminn, sem út kom á laugar- daginn var, heilsar nýja tímarit- inu Stefni að Tímasið með óbotn- andi skömmum og ærumeiðingum um ritstjórann, Magnús Jónsson prófessor. „Fölsuð frásögn“, „ó- skammfeilin tilraun, að leitast við að blekkja með hlutdrægni og frá- sagnaf alsi‘ *, „margbrennimerktur ósannindamaður og falsari um op- inberar staðreyndir“, þetta eru nokkur gullkorn úr fyrstu máls- grein þessarar hlýlegu kveðju. Um alla greinina er svo stráð orðum eins og „drottinsþjónn“, „málefni Jesú Krists“ og bess háttar innan um allan bannsönginn. Er helst að skilja á Tímanum að það sje enginn annar kennari í guðfræði- deild háskólans en Magniis Jóns- son, hann beri einn ábyrgð á prests efnunum, eða að minsta kosti situr liann í „alvirðulegasta11 em- bætti kirkjunnar, að dómi Tímans. Líklega er það óvart hjá Tímanum, þegar hann hleður þessu lofi á Magnús Jónsson, en hamagangur- inn er svo mikiil að hann missir alveg stjóm á sjer. Þá hefir varla nokkru sinni meira lofi verið hlaðið á blöð og aðra málsvara Sjálfstæðisflokksins en Tíminn gerir óafvitandi í þess- ari frumhlaupsgrein. Hann segir þar, að þingsaga Magnúsar Jóns- sonar í fyrra hafi jsýnt, að hann sje „einhver allra óprútnasti mað- ur flokks síns um meðferð á stjórn málasannindum.“ En hvernig sem andstæðingarnir leituðu og snuðr- uðu, gátu þeir ekki fundið nokkra skekkju í þessum bæklingi M. J. Með þessu er því flokknum, sem M. J. tilheyrir gefið eitt allsherjar vottorð um sannsogli og áreiðan- leik í frásögn nm stjómmál. — Jafnvel „óprútnasti“ maðurinn í flokknum fer svo samviskusam- lega með efni sitt, að ekkert verð- ur hrakið. Hvað þá hinir! Jafnframt þessum lofsyrðum um M. J. og Sjálfstæðisflokkinn hleð- ur Tíminn dylgjum og óhróðri á sína eigin forystumenn í þessari sömu frumhlaupsgrein. Er liann t. d. núna rjett einu sinni búinn að gleyma sínum eigin ,drottinsþjón‘, fyrverandi ritstjóra og núverandi forsætisráðherra? Og þó tekur verra við í niðurlagi greinarinnar. Hann segir þar eins og satt er að núverandi dómsmálaráðherra hafi sett Magnús Jónsson í þetta „al- virðulegasta“ hlutverk, en rjett á eftir klykkir hann út með því, að segja að það muni „verða varan- legur blettur á íslenskri kirkju,“ að M. J. „er settur til þess að undirbúa presta.“ Hver hefir þá sett þennan „varanlega blett“ á kirkjuna? En gæti nú ekki liugsast að sami maður hafi sett annan dálítið ljótari blett á kirkjuna með því að skipa þann mann, sem svona ritar í það „alvirðulega“ hlutverk, að vera í nefnd, sem á að fjalla um kirkjumál? En best er grein þessi fyrir tímaritið Stefni. Betri sönnun gat. Tíminn ekki gefið fyrir því, hve mikið álit hann hefir á áhrifum þess, en þessá æðisgengmi skamma- kveðju. I Að qefnu tílefni auglýsist hjermeð, að kjöt af öllu fje sem slátrað er í húsum vorum hjer í bænum, er af dýralækni merkt með vörumerki voru, sem lítur þannig út og gildir sem venjulegur dýra- læknisstimpill. Ekkert annað kjöt er merkt með þessu merki, og ekkert kjöt, sem ekki ber það, er frá oss. (í rauðum lit). Sláturfjelag Suðurlands. Haag-fnndurinn. Lftið útlit iyrir að samkomnlag náist. ískyggilegar horfnr. Khöfn, FB. 23. ágúst. Frá Hffag er símað: Von um að samkomulag náist á Haagfundin- um, er stöðugt mjög lítil. Snow- den vill láta slíta fundinum, nema samkomulag náist um Youngsam- þyktina í síðasta lagi á morgun. Alment er búist við því, að eng- dnn árangur verði af fundinum. — Blöð stórveldanna óttast áð póli- tískar og fjárhagslegar afleiðing- ar af þvi, að ekki náðist samkomu- lag um Younsamþyktiua, mjög alvarlegar. Stresemann bar fram kröfu um það á Haagfundinum í gær, að Dagbók Veðrið (í gær lil. 5): Djúp lægð út af Austfjörðum á hreyfingu austur eftir. Veldur hún N-átt um alt land — víðast stinnings- kaldi. Þurt og ljettskýjað suð- vestan lands frá Homafirði að Snæfellsnesi, en um alt N- og NA- land er rigning og dimmviðri. — Kaldaist er á Hesteyri, 3 stig, en víðast 6—7 stig á N-landi. Sunnan lands er 10—13 stiga hiti. Útlit fyrir að N-áttin muni liald- ast í nokkra daga ennþá. Veðurútlit í dag: N-stinnings- kaldi. Urkomulaust og sennilega ljettskýjað. Messað í Fríkirkjunni á morg- un kl. 11 f. li. sjera Kristinn K. Ólafsson og kl. 5 sjera Árni Sig- urðsson. Hjálpræðisherinn (samkomur á morgun) •. Helgunarsamkoma kl. 11 árdegis. Snnnudagaskóli kl. 2 sd. ÚtiiSamkoma á Lækjartorgi kl. 4 síðd., ef veður leyfir. Útisamkoma við Steinbryggjuna kl. 7%. Hjálp- ræðissamkoma. kl. 8% síðd. Kapt. Gestur J. Árskóg og frú hans stjórn. Allir velkomnir! Gjafir til Elliheimilisins: Áheit frá H — kr. 100.00. — Með þakk- læti. Har. Sigurðsson. Síra Krietinn K. Ólafsson mess- ar í Fríkirkjunni á morgun kl. 11. Dr. Alexandrine var á Akureyri í gær. Hæstu reymtrjen. í gair frjetti Morgunhlaðið af tveim reynitrjám í sama garði, þar sem annað er 6,7 metrar á hæð, en hitt 6,45 metrar. ugir menn, að sennilegt sje,' að Hæsta trjeð sem áður hafði frjest um, er 6.35 metrar. Segja kunn- Þjóðverjum verði leyft að greiða skáðabætui-nar samkvæmt Young- samþyktinni frá byrjún september- mánaðar, eins og til stóð, ef Young samþyktin hefði verið afgreidd. Briand og Snowden urðu fyrir svörum og sögðu, að Dawessam- þyktin gildi þangað til Youngsam- þyktin er afgreidd. Búast menn við, að Þjóðverjar neiti frekari greiðslum samkvæmt greiða átta hundruð miljónum marka meira en samkvæmt Young- samþyktinni. þessi tvö trje sjeu hæstu reyni- trje .í Reylijavík. Ef engir gefa sig fram næstu daga, sem vita af hærri trjám, verður hjer staðar numið. — Rannsókn þessi á hæð reynitrjáa hefir vakið mikla at- hygli bæjarbúa — og eiga þeir þökk fyrir, sem gefið hafa blaðinu upplýsingar um þetta efni. Næsta rannsóknarefniS. — Hve margar tegundir trjágróðurs vaxa í görðum hjer í Reykjavík. Þeir sem hafa aðrar tegundir en kinar algengustu, eru beðnir að senda Morgunblaðinu skriflega tegxmda- nöfnin, hvar vaxtarstaðurinn er, og helst upplýsingar um hæð og aldur þeirra einstaklinga, sem skara fram úr. Umslögin sjeu merkt með orðinu: „Trjágróður.“ Flugvjelarnar. Súlán var hjer um kyrt í gær, vegna þess live veður var óhagstætt. .— Veiðibjall- an komst ekki lengra en til Vopna- fjarðar í fyrrakvöld, á leiðinni frá Seyðisfirði. Hún heldur áfram norður, er norðanveðrinu slotár. Valgerður Jónsdóttir, ekkja Jóns alþingismanns frá Múla, á átt- ræðisafmæli í dag. Hún er til lieim- ilis hjá dóttur sinni, Hólmfríði og tengdasyni, Gesti Jóhannssyni á Seyðisfirði. 1 14 ár hefir Valgerður legið rúmföst. Hefir hún borið veikindi sín með því sálarþreki og stillingu, sem þeim einum tekst, er hafa þá kosti í ríkum mæli. Er eigi að efa að margir munu senda henni lilýj- ar kveðjur í dag. Því margir eru þeir, sem miunast hennar er hún stjórnaðd gestrisnu höfðingsheim- ili þeirra hjóna. Hmvörur; ilmvötn, ilmsmyrsl, reykelsi og þessháttar, var á árinu 1927 flutt inn til landsins fyrir nálægt 50 þúisund krónut. Hvenær skyldu ilmgrösin okkar íslensku verða tekin til framleiðslu ilm- efna. Sspila-innflutningurinn. — Árið 1927 voru samkvæmt verslunar- skýrslum flutt inn rúmlega 5 tonn af spilum, fyrir kr. 29.837. Aúð- sjeð að íslendingar koma oft áð spilaborðinu, og eru þaulsætnir. Skipafrjettir: Max Pembertoíi kom af veiðum í gær. Hafði hann feugið 700 körfur, — Ólafur kom. frá Englandi, háfði selt afla sinn, 900 körfur, fyrir 400 sterlings- pund. — Enski togarinn Ogano kom í gær til þess að vitja um stýrímanninn, sem slasaðist á hon- um á dögunum. — Esja kom í gær- morgun. — Gyllir fór á saltfisk- veiðar í gær. % Pour qnoi pas? franska rann- sóknaskipið, er hingað hefir komiö undanfarin ár, kom hingað enn í gænnorgun. Hefir skipið verið S rannsóknaferð norður í höfum undanfarna tvo roánuði. Foringi fararinnar, sem fyr, er hinn víð- kunni landkönnuður dr. Charcot. f fylgd með honum eru ýmrír vísindamenn, svo sem landafræðis- prófessor svissnesknr, Maircanton að nafni, er fyrstur manna hefir rannsakað Bjamarfell á Jan Mayen, Delfus náttúrufræðingur o. fl. Enufremur er málari með skip- inu, Valet að nafni. Skipið kota við á Austfjörðum í norðurleiðinni. Hjelt þaðan til Jan Mayen, þaðan til Seoresbysund og síðan hingað til lands. Segja skipverjar svo til samfelda ísbreiðu í hafinu frá Scoresbysund og hingað til ls- lands. Skipið fer hjeðan eftir nokkra daga. Kappleikuriim í gær fórst fyrir vegna roks. Var leikið í 3 mín. áður en hætt var. Að öllum lík- indum verður kept í kvöld, en annars strax og veður leyfirí TJm „vatnaf ölsunarmálið' ‘ S Skaftafellssýslu flytur Spegillinn grein í dag — ásamt fleiru, eftir hans nótum. Berjaferðimar. Fyrir nokkrum dögum kom Þuríður Sigurðardótt- ir inn á skrifstofu Morgunblaðsins og var það alveg auðsjeð hvert erindi hennar vár.Berin eru þrosk- uð. Kominn tími til þess að hugsa fyrir hinum árlegu berjaferðute. Það er Þuríðar líf og yudi að fara með 70—80 börn í berjamó. Eftir því, sem börnin eru fleiri, eftir því er hún ánægðari. Og hún hefir aðstoðarkonur með sjer, sem vanar eru orðnar starfinu. Því það þarf satt að segja áðgæslu og æfingn til að sjá um 70 börn í herjamó, að enginn verði útundan í hópnum. Ákveðnar eru þrjár ferðir, og hltt fyrsta á mánudaginn kemur. Þur- íður annast um úthlutun farseðl- anna.Og bílamir fást frá Meyvant- Þeir, sem hafa ánægju af að styðja Dawessamþyktinni, þvi samkvæmt verði lienni eiga þeir á næsta ári að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.