Morgunblaðið - 03.05.1930, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.05.1930, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Begóníur í pottum í Helluaundi í. Sent heim ef óskað er. Sími 230. Hangikj öt, nýtt nautakjöt, med- isterpyísur, Vínarpylsur, kjötfars, ísl. egg, nýtt ísl. smjör o. m. fl. Kjöt og fiskmetisgerðin á Grett- isgötu 50 B, sími 1467. Fermingargjöf sem segir sex, er krystal toiletsett frá Hjálmari Guðmundssyni, Laufásvegi 44. < Vinna. > Stúlka til morgumverka ósk- a»t. Upplýsingar x síma 1220. Myndarleg stúlka óskast 14. maí, húsmóðurinni til hjálpar í sumarbústað. A. S. 1. vísar á. Stúlka óskast frá 14. maí, aðal- lega til að gæta barna. Grundar- stíg 2A, sími 770. Fermingarkort falleg og ódýr nýkomin í Bókaverslnn Arinbj. Sveinbjarnarsonar Laugaveg 41. Sími 74. Hex og kðkur í hálfnm og heilnrn kðssnm, nýkomiö. m Langaveg 12. Sími 2031. Orgel og piano aliar stærðir nýkomin. Bestn borgnnarskii- málar. Notnð hljóðfærí tekin í skiftum. Hljóðfærahúsið Bragðlð hið ágæta ^^srsnleRUKl og flnnið smjörkeiminn. Eru það þessir „vormenn“, er ætla að ráðast gegn þjóðabanda- laginu? (!) Einasta bót í máli fyrir þá var su, að • þeir voru ekki upplits- djarfir. .Einhverja óljósa tilfinn- ingu bafa þeir ef til vill haft fyrir því, að smáþjóð sem Islendingum er happadrýgri velvild og aðstoð þjóðabandalagsins, en ,vernd‘ hins kommúnistiska Rússlands. Ungur maður steig í ræðustól- inn þarna. Kristinn Eiríksson var sagt hann hjeti. Þar hlustaði jeg á ræðu sem var mjer algert ný- næmi. Aldrei á æfi minni fyrri hefi jeg heyrt til manns í ræðustól, sem alls ekki kann að tala mál sitt, kann ekki íslensku — talar annað mál — skrílmál. — Því hefir verið fleygt, að til væri hjer í Reykjavík mál, er nefnt yrði því nafni. En það hefir þá verið í krókum og kimum, en ekki komið í dagsins ljós. Aðalsmerki okkar íslendinga hef ir verið það, að allir höfum við talað sama málið. A málfærinu einu hefir ekki verið hægt að greina hvort sá sem talaði væri mikilsvirtur höfðingi, lærður mentamaður * eða mentunarlítill vinnumaður. Málmur tungunnar hefir haft sama hljóm hjá öllum. En á Austurvelli 1. maí 1930 stendur maður í ræðustól sem segir með rosta og áherslum: Veð jafnaðarmenn veð vedum, en það þýðir á íslensku, „við jafn- aðarmenn við vitum“ o. s. frv. Er hjer enn annar þáttur í starfi hinna ungu sósíalista, temja mönnum skrílmálið, færa skríls- merkið á einhvern hluta þjóð- arinnar — merkja þá, sem bág staddastir eru andlega undir ómenningarmerki þeirra, sem ekki kunna tungu sína að temja, sem aðrir íslendingar.'' Þessir tveir menn, Tryggvi Þór- hallsson og Jónas Jónsson eiga að koma fram sem æðstu menn þjóð- arinnar á þúsund ára afmælinu. Ekki eru margir mannsaldrar síðan íslendmgar trúðu því, að „íslands óhamingju yrði alt að vopni.“ Framtak hinnar síðustu kynslóðap hefir fjarlægt okkur nútímamenn þessu kjörorði ís- lensks vonleysis. En nú — nú þegar mest á ríður, þegar augum alheims er snúið að okkur í fyrsta skifti, nú gerast þeir atburðir í stjórnarfarinu hver af öðrum, að menn verða að hugsa til þeirra með ógn og skelfingu. — íslands óhamingja hefir aldrei átt bitrari vopn en óhappamennina tvo, sem nefndir voru. Dagbók. Viöskilnaöur f ors setisráöherra. Kvöldið sama sem Kleppsundrin gerðust, steig forsætisráðherrann á skipsfjöl við hafnargarðinn í Reykjavík. Hann var að færa Hans hátign konunginum aflann frá hinni síðustu vertíð Alþingis. Ásjónan ljómaði af hrosi góðrar samvisku. Jeg kveð þig þjóð mín íim stund, en jeg skil þig eftir í góðum höndum. Þetta sagði hros- ið á Tryggva. Á hryggjunni var Jónas Jóns- son að stíga upp í stjómarbílinn. Forsætisráðherriann hrosti, og kínjcaði enn einu sinni kolli kveðjuskyni. Þarna var maðurinn, sem hann fól forsjá íslensku þjóð- arinnar í fjarveru sinni. Á sömu stundu voru milli tíu og tuttugu grátandi menn að flýja frá spítalanum á Kleppi. Læknir- inn þeirra hafði verið tekinn frá þeim. Svona var viðskilnaðurinn þeg- ar forsætisráðherra íslands sigldi á konungsfund á því herrans ári 1930. — Hvað yrði sagt um skipstjóra sem brosandi yfirgæfi skip sitt með stýrimanninn í lyftingu — ósjálfráðan gjörða sinna? Aldrei hefir glæfraleg Ijettúð Tryggva Þórhallssonar hirst í á- þreifanlegri rnynd en á þessari atundu. Veðrið (föstudag kl. 5): Lægðin sem að undanfömu hefir verið að nálgast suðvestan úr hafinu, veldur nú SA-hvassviðri í Vest- mannaeyjum og yfirleit allhvassri SA-átt um alt land. Rigning er aðeins á SV-landi og Faxaflóa, en þurt í öðrum landshlutum. Hitinn 6—10 stig um alt land nema á NA-landi og í Grímsey er aðeins 2 st. hiti. Lægðin þokast nú norður eftir Grænlandshafi og því útlit fyrir að áttin verði suðlægari og lygn- ari á morgun. Veðurútlit í Rvík í dag: SA og S-kaldi. Dálítil rigning öðru hvoru. Messur á morgun: í Fríkirkj- unni kl. 12, síra Ámi Sigurðsson. Ferming. 1 Aðventkirkjunni kl. 8 síðd. — Ræðuefni: „Hvernig er sáttniáli góðrar samvisku við Guð rjetti- lega gerðurf' O. J. Olsen. Síra Ámi Signrðsson biður ferm- ingarbörn sín, þau sem fermast eiga 11. þ. m. að koma til við- tals, öll sem geta, í Fríkirkjuna í dag kl. 6. Norræna stúdentamótið. Bæjar- stjórn samþykti á síðasta fundi að veita 5000 kr. styrk til norræns stúdentamóts, sem haldið verður hjer í sumar í sambandi við Al- þingishátíðina. „Systrafjelagið Alfa“. Eins og sjá má af auglýsingu á öðrum stað hjer í blaðinu ætlar Systrafjelagið Alfa að halda basar á morgun (sunnudag 4. maí). Tilgangurinn með basaraum er að efla sjóð fje- lagsins, sem eingöngu er notaður til að hjálpa hágstöddum og sjúk- 1 um. Geta því þeir, sem koma, orð- ið fátækum til hjálpar, um leið og þeir kaupa ódýra vöru sjálfum sjer til gagns. f yfirkjörstjórn við landskjörið 15 . júní voru kosnir á hæjarstjórn arfundi í fyrradag þeir Einar Amórsson prófessor og Jón Ás- hjörnsson hrm., og til vara Jón Ásbjörnsson hrm. og Lárus Fjeld- sted lirrn. Góð baraabók. Mjer hefir dottið í hug að benda fólki á eina hók, sem er mjög hentug til ferming- argjafa. Það er „Málleysingjar“, eftir góða skáldið Þorstein Erlings- son. Með því að gefa börnum þá bók, vinst tvent í einu. Bömunum er fenginn skemtilestnr, og um leið er innrætt hjá þeim ást til dýranna. *— Dýravinnr. Athygli skal vakin á orðsend- ingu frá dr. Helga Tómassyni, sem birtist á ‘öðrum stað í hlaðinu. Karlakór Reykjavíkur endur tekur samsöng sinn í Nýja Bíó á morgun kl. 3 e. h. Togaramir Apríl, Maí, Snorri goði, Skallagrímur, Hilmir, Hann es ráðherra, Gyllir, Tryggvi gamli komu um miðjan dag í gær, allir með sæmilega góðan afla. Væntan- legir voru í gærkvöldi Geir, Belg aum og Bragi. Veiðin á Selvogshanka er nú heldur að minka, þó er aflinn sæmilegur ennþá. Togarar sem komu í gær, höfðu hver 70—90 tunnur. Braemar kom hingað í gær, ut- an af landi, tekur hjer fisk til út flutnings. Tvær nýjær bifreiðastöðvar verða opnaðar í dag. Onnur þeirra verð- ur við Kalkofnsveg, en hin verður á horninu á Njálsgötu og Klappar stíg. (Sjá augl.) Athyglil skal vakin á auglýsingu um akstur til Þingvalla í sumar á yfirbygðum vörubifreiðum. Gömul synd og altaf ný, er það hjá Alþýðublaðinu að ljúga vis- vitandi. 1 gær segir það að Morg- nnhlaðið birti mynd af kröfufundi sósíalista í fyrra, en þó sjást á myndinni skúrar þeir, og girðing- ar, sem gerðar hafa verið í Vall- arstræti vegna byggingar Brauns- verslunar, sem nýlega er byrjað á. En hvemig stendur á því, að Al- þýðublaðið fer með þetta, sem allir Reykvíkingar sjá að er lýgi? Ætli það geti verið vegna þess að það skammist sín fyrir hópinnf Ármann. Allir, sem æft hafa glímu í 1. og 2. flokki í vetur, eiga að koma á æfingu í fimleika- húsi Mentaskólans í kvöld kl. 8 stnndvíslega. 7407 kiósendur eru á aðalkjör- skrá hjer í bæxmxn við landskjörið, sem fram fer 15. júní n. k., og auk þess all-margir á aukakjörskrá — Verður kosið í 11 kjördeildum og verða 10 í barnaskólahúsinu og ein í Lauganesi. Heimilisiðnaðarsýningin í Mjólk- urfjelagshúsinu við Hafnarstærti, er opin í dag frá klf 10—7. Að- gangur ókeypis. Gengið inn frá Hafnarstræti. Heimdallur, Fjelag ungra Sjálf- stæðismana, heldur fund á sunnu- daginn í Varðarhúsinu til þess að ræða um landskjörið og margt fleira. Hljómsveit Reykjavíkur ljek í Gamla Bíó í gæ^kvöldi fyrir þjett- skipuðu húsi. Var sveitinni þökk- uð skemtunin með miklu lófataki. Brandnr Stefánsson bílstjóri í Litla-Hvammi í Mýrdal hefir und- anfarið haldið uppi ferðum milli Víkur og Seljalands. Brandur hefir verið hjer -undanfarna daga til þess að undirhúa ferðirnar í sum- ar. Hann leggur á stað hjeðan í dag með tvo fólksflutningsbíla, er hann ætlar að nota í sumar í þess- um ferðum. Skýrsla frá dr. Helga Tómassyni um aðdraganda að yfirlýsingu hans um heilsufar dómsmálaráð- herra Og heimsókn hans til ráð- herrans mun birtast í Morgunbl. og Vísi á morgun. Jarðarför Ólafs heit. Briem fer fram að Stóra-Núpi á þriðjudag- inn Kemur. „Havser Kvensokkar nýkomnir. Fást aðeins í fift Sendisvelnn. Duglegur og ábyggilegur dreng- ur, 14—16 ára, óskast í Heild- verslun Garðars Gíslasonar. Til yðar! - Ný fegurð — nýr yndisþokki. Fáið hvítarí, fegurri tennur — tennur, sem engin húð er á. TANNHIRÐINGAR hafa tekið stórutn- framförum. Tannlæknavísindin rekja nú fjölda tann- kvilla til húðar (lags), sem myndast á tönnunum. Rennið tungunni yfir tenn- urnar; þá finnið þér slímkent lag. Nú hafa vísindin gert tannpastað Pep- sodent og þar með fundið ráð til að eyða að fullu þessari húð. Það losar húðina og nær henni af. Það inniheldur hvorki kísil né vikur. Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernig tenn- urnar hvítna jafnóðum og húðlagið hverf- ur. Fárra daga notkun færir yður heim sanninn um mátt þess. Skrifið eftir ókeypis 10 daga sýnishorni til: A. H. Riise, Afd. 1560-67, Bredgade 25, EX,. Kaupmannahöfn, K. FÁIÐ TÚPU - NÚl Skrásett Vðrumerki 1 Afburða-tannpasta nútimans Hefur meðmæli helztu tannlækna f öllum heimi. 1560 nOrniuu11 Karla-, Kven. ög Bama reiðhjól. 1,Mat_dor“ k og arna- reiðhjcl. V. C. kve'n-reiðhjól. Þessar tegundir eru Islands bestu og ódýi-stu rciðhjól eftir gæðum. xUlir varaMutir til rei ' 'la. Reiðhjólaverkstæðið „Oniinn" Sími 1161. Spejl-cream, Ctólflakk, Bónvax* Fægiklútar og (Jólíklútax. Vald. Ponlsen Klapparstíg 29. Sími 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.