Morgunblaðið - 27.05.1930, Page 3
6
MORGUNBLAÐIÐ
Erlendar símfregnir.
i —
London 24. maí FB.
Baráttan í Indlandi.
Arásimar magnast.
Leiðtogar Múhameðstrúar-
xnanna hafa samþykt áskorun
til trúbræðra sinna um að taka
Mtt í baráttunni fyrir sjálfstæði
Indlands, m. a. með útbreiðslu
Lannaðra blaða og tímarita, —
kaupa ekki eða selja bretskar
TÖrur, aðallega vefnaðarvörur o.
í*. frv.
Samkunda þjóðernissinna í
Bombay undirbýr árás með
þátttöku mikils mannfjölda á
Wadalastöðina snemma á sunnu
dag. Verður það stærsta árásin
af mörgum, sem gerð hefir ver-
Ið á þessa stöð, en í árásunum á
hana hafa hingað til 600 menn
verið handteknir.
London 26. maí FB,
— Árásatilraunirnar hjeldust
allan sunnudag, en árásarmönn
um varð ekki ágengt. 80 menn
meiddust, þar á meðal 10 und-
irforingjar í lögregluliðinu. 150
árásarmanna voru handteknir.
Bögreglunni tókst loks að dreifa
múgnum seint um kvöldið.
Skákþingið.
Hannes Hafstein skákmeistarí.
'Kosin stjórn Skáksambandsins.
(Einkaskeyti frá Siglufirði).
Á föstudaginn gerðu þeir
Sveinn Hjartarson og Þráinn
Sigurðsson jafntefli.
t úrslita skákum tapaði
Hlöndal fyrir Sveini Þorvalds-
syni og Hannes Hafstein vann
Blöndal á drotningarpeðsbyrj-
un.
Áttu þeir Hannes Hafstein
■og Sveinn Þorvaldsson þá að
k' Dpa um skákmeistaratignina,
Póru svo leikar, á milli þeirra
að Hannes vann, og er nú
skákmeistari Islands.
í öðrum flokki bar Stefán
LCristjánsson sigur út býtum.
Vann hann allar skákirnar. —
Næstur varð Páll Einarsson og
þriðji Skarphjeðinn Pálsson.
í stjórn Skáksambandsins
voru kosnir fyrir næsta ár:
Pjetur Zophoníasson forseti,
Jón Guðmundsson skrifari og
Brynjólfur Stefánsson gjald-
keri.
Á sunnudagskvöld var sam-
jsæti fyrir keppendurna á skák-
fnnginu.
Sá veit best
sem reynir.
Undanfarna daga hefir staðið
styr mikill um hinn nýja Klepp,
dr. Helga Tómasson og dómsmála-
ráðherrann. Mjer ofbýður sá papp-
ír, sverta og vinna, sem lagt er í
þetta mál. Það mun vart fegra
sögu nútímans síðarmeir. Jeg ætla
eigi að dæma einn eður annan,
það mrxn sagan gera á sínum tíma.
En stutta sögu vil jeg segja. Hún
hljóðar svo:
Síðari part sumars 1928 veiktist
dóttir mín hættulega. Hún lá rúm-
föst það sumar og mikinn hluta
næsta vetrar. I 3 mánuði var hún
að berjast við dauðann. Það var
leitað allra bestu lækna borgarinu-
ar. Þeir rannsökuðu sjúklinginn,
en árangurinn var: Það e'r von-
laust um að þessi sjúkdómur verði
læknaður, sögðu tveir þeirra, sem
hafa getið sjer best orð. Þá kom
dr. Helgi Tómasson til sögunnar.
Hann stundaði sjúklinginn með
sjerstakri athugun og nákvæmni.
Gaf litlar vonir en sagði mögu-
leika til bata. Dr. He'lgi ljet sjer
mjög umhugað um sjúklinginn,
rannsakaði alt mjög kostgæfilega
er að sjúkdómnum laut og kom
ætíð til staðar hvenær sem kallað
var, hvort heldur var á nótt eða
degi. Jeg hefi aldrei þekt að lækn-
ir hafi með meiri alúð og ná-
kvæmni stundað sjúkling. Um ve't-
urinn veiktist kona mín einnig.
Það var heilablóðfall. Dr. Helgi
stundaði hana einnig, með sinni at-
hugun og nákvæmni.
Árangurinn af lækningum dr.
Helga er sá, að báðar þær mæðgur
hafa fengið fulla lieilsu. Annars
hygg jeg að þær væru báðar komn
ar undir græna torfu, ef hans hefði
eigi notið við.
Yjer eigum fáa starfsmenn, sem
með slíkri alúð, kostgæfni og ó-
sjerplægni stunda sitt .starf, sem
dr. Helgi Tómasson. Að þessum
mönnum þurfum vjer að hlynna,
svo að vjer getum notið starfs-
krafta þeirra. Þjóðfjelag vort verð
ur eigi bygt upp eða nær þroska,
með sundrung, bakmælgi eða ó-
sanngjörnum dómum. Ef því fer
fram er í aðsigi önnur Sturlunga-
öld, og afleiðingarnar auðsæar.
Reykjavík, 16. maí 1930.
S. Sigurðsson
búnaðarmálastjóri.
Að uorðan.
Siglufirði FB 26. maí.
Þrjú skip fengu 20—30 tunnur
af hafsíld í rekne't í nótt út af
Siglufirði. Síldin var mögur.
Óðinn kom áðan með dómsmála-
ráðherra og fjármálaráðherra, setn
lialda lijer landsmálafund í kvöld.
í fylgd með þeim voru þeir Har-
aldur Guðmundsson alþm., Erling-
ur Friðjónsson alþm. og Einar
Olgeirsson.
Fundurinn var boðaður með
hraðskeyti og hefst kl. 7.
Hljójnleikar þeirra Þórhalls
Árnasonar og Otto Stöterau í gær-
kvöldi voru vel sóttir, og voru
undirtektir áheyrenda hinar best.u.
Gellin og Borgström lje'ku nokkur
lög að lokinni skemtiskrá þeirra
fjelaga.
Árni
Pálsson
bókavörður
kominn heim úr fyrirlestraferð
sinni um Vesturheim.
Árni Pálsson bókavörður kom
hingað hejm með Botníu á
sunnudaginn var. Mbl. hefir
hitt hann snöggvast að máli og
spurt hann um fyrirlestraferð
hans.'
En eins og gefur að skilja er
ógerningur í stuttri blaðagrein
að gefa nokkurt yfirlit yfir hið
langa ferðalag Árna, því' hann
hefir verið að heiman síðan í
nóvember og farið m. a. um
þvera Ameríku.
Það, sem fyrst barst 1 tal var
þetta.
Fyrirlestrarnir sem hann
hjelt voru yfir 70; af þeim
flutti hann um 40 meðal Vest-
ur-íslendinga. En meginið af
ensku fyrirlestrunum flutti
hann við ýmsa háskóla og í
fjelögum. Hvarvetna var hon-
um vel tekið.
Þegar hann flutti fyrirlestur
fyrir enskumælendur talað:'
hann um íslenska sögu og eink-
um þó bókmentir, og mintist
nokkuð á hinar verklegu fram-
farir hjer á landi hin síðustu
ár.
Aragrúi af'blöðum birtu frá-
sagnir og útdrætti úr fyrir-
lestrum hans, ásamt ýmiskon-
ar hlýlegum ummælum um
fyrirlesarann og þjóð hans.
1 Islendingabygðunum talaði
hann mest um Alþingi, einkum
hið forna. Lýsti hann ennfrem
ur nokkuð nákvæmlega fram-
förum þeim, sem orðið hafa
hjer á síðustu árum. Sú lýsing
hans var mörgum Vestur-ls-
lending kærkomin. Enda þótt
íslensku blöðin vestra birti
frjettir hjeðan að heiman, hafa
margir landar vestra eigi haf'
tækifæri til að halda yfirlit
yfir verklegar framkvæmdir
hjer síðustu árin.
— Mikið Ijet Árni yfir því:
hve Islendingar væru í miklu
áliti meðal Vesturheimsmanna
Þó hann hefði talsvert um það
heyrt áður, kvaðst hann eigi
hafa gert sjer rjetta grein fyr-
ir því fyrri en þangað kom.
Áfengissalan
M »B sljðrnin.
“S----
Eftirfarandi klausa er tekin
úr lofgrein nm ríkisstjórnina,. sera
birt er í síðasta tölublaði ,Timans‘
„. .. . Mest mun þó muna um
endurbsetumar á áfengisverslun-
inni. Nú gefur hún 1 milj. kr. á
ári í tekjur, auk tolls, en áður
gaf hún í tekjur á fnaldstímum
2—300 þús. auk tolls“.*)
Hje'r er beinlínis verið að gorta
yfir því, að Guðbrandur Magniis
son framdi það óhappaverk, ný
tekinn við forstöðu Vínverslunar-
innar, að blanda saman vínum og
selja undir fölsku merki. Með þeim
aðgerðum hófst það drykkjuskapar
tímabil, sem Reykvíkingum mun í
fersku minni og ekki er afljett
eún að fullu. Þessari „góðu“ stjórn
á Vínversluninni er „Tíminn“ að
lofsyngja, þó að hún hafi ýtt undir
áfengisbölið, sem annað veifið er
verið að fordæma, og stjórnin veit-
árlega fje til þess að stemma
stigu fyrir. Loddaraháttur stjórn-
ariniiar í þessu máli ríður ekki við
einteyming og ekki velgir þeim við
óheilindunum í þessu efni frekar
en sumum- öðrum. Það þarf víst
að ganga langt, svo að bitlingalið
stjórnarinnar ofbjóði. En þeir
menn ætti þó enn að finnast, sem
liafa stærri sjóndeildarhring, en
nánustu vandamenn stjórnarinnar
og þeim hlýtur að bjóða við
hve hje'r er leikið tveim skjöldum.
Það mun engum blandast hugur
um, að gróðavænlegra var fyrir
þjóðina meðan ágóðinn af sölu
vína var „aðeins“ 2—300 þús. kr.
ank tolls, heldur en þegar hann
er orðinn 1 miljón krónur auk
tolls.
ha.
Landsmálafnndlr
í Gullbringusýslu.
*) Leturbr. hjer.
Alþýðuflokkurinn boðaði
landsmálafundi í Gullbr.-sýslu
á sunnudaginn var. Mættir
voru þessir fulltrúar flokk-
anna:
1 Sandgerði: Jakob Möller
af hálfu Sjálfstæðisflokksins
Hermann Jónasson og Guð-
brandur Magnússon frá Fram-
sókn og Sigurður Jónasson og
Nikulás Friðriksson frá sósíal-
istum.
1 Keflavík: Ólafur Thórs frá
Sjálfstæðismönnum, Ásgeir Ás
geirsson og Hannes dýralæknir
frá Framsókn og Jón Bald. og
Ágúst Jósefsson frá sósíalist-
um.
1 Grindavík: Sigurður Eggerz
og Steinn Steindórsson frá
Sjálfstæðisflokknum, Gísli Guð
mundsson og Eysteinn skatt
stjóri frá Framsókn og Felix
Guðmundsson og Davíð Krist
jánsson frá sósíalistum.
1 Höfnum: Thór Thórs frá
Sjálfstæðisflokknum, Metúsa
em Stefánsson og Skúli Guð
mundsson frá Framsókn og
Pjetur G. Guðmundsson frá
sósíalistum.
í Garðinum: Magnús Guð
mundsson og Jón Ólafsson frá
Sjálfstæðisflokknum, Jónas í
Gufunesi og Bjarni Bjarnason
frá Framsókn og Stefán Jóh
Stefánsson og Emil Jónsson frá
sósíalistum.
Allir voru fundirnir vel sótt
ir og fóru vel fram. Sjálfstæðis
menn gerðu hvervetna harða á-
rás á stjórnina og stjórnar-
flokkana, og fylgið á fundun
um var h. u. b. óskift með
Sjálfstæðisfiokknum, nema í
Grindavík mun nál. tveir fimtu
fundarmanna hafa tilheyrt
st jórnarf lokkunum.
Fjölmennasti fundurinn varí
Keflavík. Þar var mættur þing
maður kjördæmisins, Ólafur
Thórs, formaður Alþýðuflokks
ins Jón Bald. og einn af
fremstu mönnum Framsóknar,
Ásgeir Ásgeirsson. — Var lítt
um deilur milli ólafs og Ás
geirs, enda ekki að skapi Ás
geirs, að fara að verja ódæði
Jónasar dómsmálaráðherra.
Aðaldeilan varð á milli ólafs
cg sósíalista og er g*m»n fyrir
Dessar plfitur
verða teknar upp í dag.
Nýjar plötur sungnar af
Sig. Skagfield.
birkilaut 4f
fögrum dal
>ú sæla heimsins
Til austurheims
Áuldi við brestur
Ó, dýrð sje þjer dagstjarnan
bjarta
Nú blikar við sólarlag
Sjáiði hvar sólin hún hnígur
Þú nafnkunna landið
!ítís þús unga
Ivað syngur litli fuglinn
Ó, þú milda aftanstund
dag skein sól
(Nýtt lag eftir Pál ísólfsson).
Vögguvísa
Hátt jeg kalla
Hærra minn guð til þín
Sofðu vært mín væna
Dagur í austri
Kvöldblíðan lognværa
Kossavísur
Úrvalsplötur spilaðar af
Gellin og Borgström.
Einnig mjög mikið af fall-
egum nýjum dansplötum
m. a:
Du schönste Frau von
Madrid
San Francisko
Love
Dich habe ich geliebt
Ich habe kein Auto
Schwarze Augen Tango
o. m. fL
KitrinViðH?
Hljóðfærav. Lækjarg. 2.
Sími 1815.
HIÉlatau.
Fjölbreyttast
úrval
í borginni hjá
Verslunin
Biörn Hristjðnsson.
iön Biörnsson 8 Go.
Bátar óskast til
Ieign
1 vjelbátur, ca. 10 tons, í
góðu standi, óskast til fiskveiða
yfir sumartímann; ennfremur 1,
trillubátur.
Tilboð með lýsingum og leigB
upphæð leggist inn á A. S. 1
fyrir 28. þ. m. merkt „BÁTAR“.