Morgunblaðið - 11.07.1930, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.07.1930, Blaðsíða 3
MORGUNFLAÐlf) S Jft orgtmWaí^ií> Úteef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk Rltstjórar: Jón KJartansaon. Valtýr Stefánsson. Rltstjórn og afgrUBsla Austuratrœtl 8. — Sl«nl 500. : ▲uelÝslngastjórl: B. Hafberg. Augrlýalng-askrlf atof a: Austurstrœtl 17. — Slml 700. TTel jaslmar: Jðn Kjartansaon nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. H. Hafberg nr. 770. Aakrlftagjald: Innanlands kr. 2.00 & mánutfl. Utanlands kr. 2.50 á mánuBl. f lauaasölu 10 aura elntaklB, 20 aura meB Lesbók. Etlendar sfmfregnir. London (UP) 9. júlí’ FB. Deilur Tyrkja og Kurda. Angora: Stjórnin í Tyrklandi símaði á þriðjudagskvöld úrslita kosti (ultimatum) til stjórnar- innar í Teheran, útaf því, að Persneskir Kurdar hafa vaðið inn í Tyrkland. Krefst Tyrkja- stjórn þess, að gerðar verði ráð- Stafanir til þess að slíkar árásir endurtaki sig ekki, ella verði Tyrkir að grípa til sinna ráða. *— Tyrkir halda því fram, að &rás Kurda hafi verið ráðgerð ng undirbúin fyfirfram. Þjóðnýting í Englandi. London: Neðrimálstofan hefir Pieð 251:136 atkvæðum leyft %rverandi námumálaráðh. Ben Turner að leggja fyrir þingið ^rumvarp til laga um að gera ^Har landeignir, námur, fljót og á* að þjóðareign. Turner kvað Pieðal annars svo að orði í ræðu sinni: Tilgangurinn með frum- varpinu er sá, að koma landinu, sem er eign þjóðarinnar, í hend hennar. Fyrsta umræða frum vnrpsins fór fram við mikinn ÍÖgnuð þingmanna verkalýðs- ^okksins. Andstæðingar stjórnarinnar á tingi lýstu yfír því áliti sínu, að samþykt frumvarpsins leiddi ^ignarnám og þjóðnýtingu lands án skaðabóta. Frá enska þinginu. Neðrimálstofan hefir með 278 ^tkvæðum gegn 156 felt tillögu frá frjálslynda þingmanninum ^nthan um að bæta nýrri ^iausu inn í fjárlögin, þess efn- að tekjuskattur hlutafjelaga því fje, sem lagt er í sjóði *il endurbóta á verksmiðjum, i^kki um 6 pence á £. Tilgang- ^Unn með lækkuninni að stuðla framkvæmd endurbóta á Verksmiðjum. Nathan lagði upp r,Jnalega til að hlutafjelögin v^ri algerlega undanþegin ^kjuskattsgreiðslum af slíku ■tje 0g hjer um ræðir, en tók tillögu aftur eftir að hafa ráðgast við leiðtoga flokks síns. Stjórnin hefir þannig unnið si&ur í fyrri atkvæðagreiðslu af ^Veimur, sem fram fara í dag og etast var um, að stjórnin mundi ^ra sigri hrósandi úr. Seinni ^kvæðagreiðslan stendur í sam bandi við breytingar lávarða- ^ildarinnar á kolafrumvarpinu ^ommúnistar á undanhaldi. . Helsingfors: Fimtíu kommún- lstar fóru í dag yfir landamærin 1 kuleá og báðust leyfis sænsku ^tirvaldanna að halda fund Sví uloðarmegin landamæranna. 6iðnin er til athugunar hjá S8ehsku yfirvöldunum. Þrjátíu kommúnistar hafa verið handteknir í Gamle Karle by. Er'þeim gefið að sök, að þeir hafl ætlað að fremja hermd arverk þar. London (UP) 9. júlí FB. Deila á þingi Breta. Neðrimálstofan hefir felt þá breytingu, sem lávarðadeildin gerði á kolafrumvarpinu, þ. e. að vinnutíminn í kolanámunum skuli vera 90 klst. á hálfum mánuði í stað 45 klst. á viku, eins og upprunalega var gert ráð fyrir í frumvarpinu. Eru þannig komnar upp alvarlegar ýfingar milli neðrimálstofunn- ar og lávarðadeildarinnar, sém nú fær kolafrumvarpið enn á ný til frekari athugunar. Hörmulegt námaslys. Neurode í Efri-Slesíu: Gas- sprenging varð hjer í kolanámu, 69 menn biðu bana, 83 eru inniluktir í námunni, en 60 hafa verið fluttnr í sjúkrajjús. Síðar: búist er við, að flestir þeirra, sem fluttir hafa verið á sjúkrahús, nái sjer aftur. Menn óttast mjög um afdrif þeirra, sem eru inniluktir í námunni. Björgunartilraunir hafa reynst árangurslausar til þessa. 67 lík; hafa náðst úr námunni. — Ætt- ingjar námamanna, sem vantar, hafa safnast saman við náma- munnann og bíða þar milli von- ar og ótta. London (UP) 10. júlí. Neurode: Menn ætla, að 162 menn hafi beðið bana, er sprengingin varð hjer í kola- námunni. 81 lík hefir náðst úr námunni. Engin von talin til þess, að þeir, sem inniluktir eru í námunni, komist lífs af. London (UP) 10. júlí FB Aukakosning í Englandi. Cremer: Aukakosning hefir farið fram í North Norfolk. — Fyrverandi þingmaður kjör- dæmisins var Noel Buxton, sem nýlega var aðlaður. Frambjóð- jandi verkalýðsflokksins var lafði Noel Buxton og hlaut hún 14.821 atkvæði, en frambjóð- andi íhaldsflokksins var Th. Cook og hlaut hann 14.642 at- kvæði. Landskjðrið. Alls hafa verið greidd um 24.000 atkvæði á öllu landinu. Atkvæði verða talin fimtudag- daginn 17. þ. m. Ákveðið hefir verið, að taln- ing atkvæða frá landskjörinu il5. júní skuli fram fara fimtu- daginn 17. þ. m. ' Síðustu heddartölur sem Mbl. hafði, voru nál. 23300 af öllu landinu. Síðan hefir blaðið feng ;ið fregnir úr þeir kjördæmum, jSem ekki var frjett um þá og telst oss svo til að heildartalan af ölllu landinu sje rúmlega 24000 atkvæði. Tala þessi er þó ekki nákvæm, því allvíða bygg- ist hún ekki á tölum frá sýslu- mönnum. Deilan! Krossanesi Ekkert nýtt gerðist í þeirri deilu í gær. Verkfallið hjelt áfram og höfðu forsprakkarnir vörð um verksmiðjuna. Hefir verksmiðjustjórinn óskað eftir, að óvilhallir menn verði látnir meta kaup Norðmannanna (og hlunnindi) og kvaðst hann fús til að hækka kaupið, ef svo reyndist eftir mati, að þeirra kaup væri lægra en kaup ís- lendinganna. Aftur á móti neit- ar verksmiðjustjórinn að greiða nokkurt kaup fyrir þann tíma, er verkfallið hefir staðið yfir; en forsprakkar verkafólksins hafa krafist þessa. Alt var í óvissu um úrslit þessarar deilu í gærkvöldi. Nokkur síldveiðiskip komu til Siglufjarðar í gærkvöldi með fullfermi af síld. „Columbia“ hið stóra grammófónahlutafje- lag sendir hingað tvo úrvals- menn til þess að taka hjer upp söng og hljóðfæraslátt á grammófónplötur um Alþingishátíðina. Öflugasta grammófónahluta- fjelagið, sem nú er til er enska fjelagið „Columbia", sem er vel þekt hjer á landi. Framleiðir það ósköpin öll af grammófón- um og grammófónplötum og hefir verksmiðjur í 17 löndum. Á síðustu árum hefir fjelagið selt um 80 miljón grammófón- plötur á ári að meðaltali. Umboð hjer á landi fyrir þetta fjelag hafa þeir feðgarnir Ólafur Magnússon og Haraldur Ólafsson, sem reka verslunina Fálkinn hjer í bænum. Þegar Haraldur var úti í Lundúnum í vetur leitaði hann upplýsinga hjá forstöðumönn- um Columbia hvort tiltækilegt mundi að senda hingað sjerfræð inga til þess að taka upp íslensk lög og kvæði á plötur. Tóku þeir vel í það og sendu hingað tvo þaulvana menn rjett fyrir Al- þingishátíðina. Ekki varð úr að þeir rækju upp nein lög á Þing- völlum, en síðan um hátíð hafa þeir verið önnum kafnir og tek- ið 90 síður eða 45 plötur alls. Síðast tóku þeir upp brot úr kantötu Páls ísólfssonar í fyrra kvöld. Af einsöngvurum hafa þessir sungið til upptöku: Sigurður Skagfield, Hreinn Pálsson, syst- kinin Markan, María, Einar og Sigurður, Dóra Sigurðsson og Guðmundur Kristjánsson. Hafa þau öll eingöngu sungið íslensk lög. Píanómúsík: Emil Thorodd- sen og Haraldur Sigurðsson. Af kórsöngvurum má nefna K. F. U. M., Landskórið og Geysir. Cellosóló: Axel Vold og Þór- hallur Árnason. Ennfrémur voru teknar nokkr ar kvæðaplötur eftir þeim Jóni Lárussyni og Páli Stefánssyni. Við upptöku platanna nutu Columbiumennimir ágætrar að- stoðar þeirra dr. Mixa, Emils Thoroddsen og Páls Isólfssonar. Söngurinn, hljómlistin og ^kveðskapurinn fór fram í í- þróttahúsi K. R. (áður Báran). Höfðu Columbiumennirnir skoð- að öll skemtihús bæjarins áður en þeir hófu starf sitt og var K. R. húsið að þeirra dómi lang- best fallið til þess að taka upp plötur í því. Hjer er um stórmerkan við- burð að ræða þegar litið er á það að þetta er í fyrsta sinni, sem íslenskum kórum og kvæða mönnum gefst tækifæri til að syngja í plötur, og auk þess befir sumum íslensku einsöngv- urunum ekki gefist kostur á þessu fyr. Hjer verður um nýtt landnám íslensks listalífs erlendis að ræða. Og án efa verður mörgum Islendingi plötur þessar kær- komnar. Það er gert ráð fyrir að þær komi hingað heim um miðjan ágúst. Haraldur Ólafsson á mesta heiður skilið fyrir framkvæmdir í þessu mikilvæga máli. Merkileaur útsaumur. Frú Unnur Ólafsdóttir, Hverf isgötu 84 hjer í bæ, hefir ný- lega lokið við útsaum á dúk, sem hún hefir unnið að í fjögur ár. Dúkur þessi er í mjög vönd- uðum ramma með höfðaletri, sem frúin sjálf hefir skorið út. Dúkurinn er 4 metrar á lengd, en 2,10 á breidd. 1 dúk þennan eru saumaðar þrjár myndir og hefir Tryggvi Magnússon listmálari gert teikn ingu að þeim eftir myndum sem standa á Valþjófsstaðahurðinni frægu, sem nú er loksins heim komin. En eftir teikningum Tryggva hefir frúin svo saumað. — Á efri útsaumsskildinum er mynd af konungi og ljóni. Utan um skjöldinn er rammi með höfða- letri, sem frúin sjálf hefir skorið út. Er þar lýst innihaldi mynd- arinnar í stuttu máli, sem er eitthvað á þessa leið: Konungur einn er á veiðum úti í skógi og kemur þar að sem dreki einn hefir vafið sig utan um ljón. Konungur drepur drek ann og frelsar þannig ljónið. Upp frá því fylgir ljónið kon- ungi og þegar hann deyr sest það á leiði hans. Á neðri skildinum er mynd af fjórum drekum, sem hringa sig hver um annan og bíta í sporða sína. Utan um hann er sömu- leiðis rammi með höfðaletri. Neðst á dúknum eru einnig drekamyndir. fljer er um mikið verk og vandað að ræða, enda kostað frúna erfiði mikið og fyrirhöfn. Frú Unnur gerir ráð fyrir þvl að senda dúkinn á sýningu, sem haldin verður í Kaupmanna- höfn í næsta mánuði. — í haust gerir hún ráð fyrir að hafa hann til sýnis hjer í Reykjavík, þ. e. a. s. ef honum verður aftur komu auðið, því farið getur svo að dúkurinn verði seldur í Höfn. Verk þetta lýsir frábærum listasmekk, vandvirkni og elju. Þísk bök um ísland. Thule das Land von Feuer i und Eis, nefnir Gustav Buck- heim blaðam. í Berlín bók, er hann hefir nýlega gefið út og á dr. Hellmuth Lotz, er hjer er einnig kunnur, nokkurn þátt í samningu bókarinnar. Buek- heim hefir dvalið hjer tvívegie áður og var hjer um Alþingte- hátíðina, en er nú horfinn norð- ur á Svalbarða. Hann hefir rít- að fjölmargar greinir um Is- land í þýsk blöð, einkum í sam- bandi við Alþingishátíðina, Og bera þær allar vott um vinsemd og skilning á eðli Islendinga. Nokkrar af greinum þessum eru í bók þessari, sem prýdd er fjölda mynda. Bókin hefst él snotru kvæði til íslands á þýsku og hefir Magnús Ásgeirsson snú ið kvæði þessu á íslensku og er íslenski textinn einnig í bók þessari. Buckheim ritar einkum um það er ferðamönnum verður tíð- ræddast um, ferðalög á hest- baki, miðnætursól, fjöll og firn- indi, um ísl. glímu, um flugr ferðir á Islandi, viðtal við for- sætisráðherra o. fl. Margar lýs- ingar eru mjög fjörlega ritaðar og skemtilega, einkum lýsingar hans á laxveiðum og fuglaveið- um, einnig er Buckheim alkunn- ur fuglafræðingur og hefir ný- lega haldið fyrirlestra um líf fugla í Osló, Finnlandi og víðar. Sumt í bók þessari er ekki allskostar nákvæmt og íslensk nöfn ekki allstaðar rjett rituð, en velvild höfundar í garð Is- lendinga skín út úr hverri blað- siðu. Bók þessi er ætluð þýsk- um ferðamönnum, er til Islands fara, og mun vafalaust verða getið í ýmsum þýskum blöðum mjög lofsamlega. Hún kemur hjer í bókaverslanir eftir nokkra daga. A. J. Á vetrarvertíðinni 1930 hafa drukknað hjer (við land 29! manns. Þar af eru 18 íslending- ar, en 11 útlendingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.