Morgunblaðið - 06.09.1930, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
m
Rugíísliigatíagbðk
1 *ftðMMBeææa
Palleg sumarblóm og afskorin
blóm, einnig plöntur í pottum.
Hellusundi 6. Sími 230.
Garðblóm, fjölbreytt, og
falleg, verða seld í dag eftir
kl. 2 á Sólvallagötu 25Í
Kryddsíld fæst í Nýju Fiskbúð-
inni. Sími 1127.
Dívan, rúmstæði, servantur, toi-
k-ttkommóða, saumavjel, er til sölu
með sjerstöku tækifærisverði. —
Vörusalinn, Klapparstíg 27, —
sími 2070.
Tapað. — Fuitdið. ►
HaananuBEcr/
Pakki með hálfsaumuðum dúk,
skærum og fleira, tapaðist frá
Skólastræti að Vesturgötu 19. —
Skilist gegn fundarlaunum á Lauf-
ásveg 22.
Tapast hefir bílhjól með dekki
(Nýi Ford) á veginum milli Sand-
gerðis og Reykjavíkur. Finnandi
beðinn að skila því á Bifreiðastöð
Kristins og Gunnars.
Tilkyitningar.
Kensla. Byrja aftur kenslu 15.
sept. Anna Magnúsdóttir, Tún-
götu 2.
í Slítfli:
Rúgpnjöl, 0,30 kg., laust, einnig
í 5 og 10 kg. pokum.
Bankabygg.
Bankabyggsm j öl
Rúsínur, stórar, með steinum.
Kjötsalt.
Pipar, svartur, hvítur, rauður.
— heill og steyttur.
Negull, heill óg steyttur.
Engifer, heil og steytt.
Allrahanda, heil og steytt.
Saltpjetur.
Laukur
Edik og Edikssýra.
tUlizlfiUdi,
Nýkomin
Svört og mislit kápuskinn og
einnig vetrarkápuefni.
Sig. Guðmundsson.
Þingholtsstræti 1.
Til Hvammstanga.
Mánudaginn 8. n. k. fer 6 manna
drossía yfir Kaldadal um Borgar-
fjörð. Nokkur sæti laus.
tlýja Bifreiðastððín.
. Sími 1216 og 1870.
Eynidar-árin
rekin á flótta.
Hægðaleysi rænir
- kvenfólk lífs- -
krafti og fegurð
og kemur að heita
má án þess að eft-
ir því sje tekið.
Það byrjar með svo smávægilegum
einkennum eins og höfuðverk,
þreytu, slæmum litarhætti og and-
fýlu. Ef ekki er tekið í taumana
hefir hægðaleysi hinar alvarleg-
ustu afleiðingar og eitrar allan
líkamann. Mörg ár sífeldrar van-
líðunar eru á flótta rekin ef etið
er Kelloggs All-Bran, sem er hin
ljúffengasta fæða. Ábyrgð er tek-
in á því, að það geri gagn. Etið
svo sem tvær matskeiðar daglega,
eða með hverri máltíð í þrálátum
tilfellum. Það er etið með mjólk
eða rjóma, ásamt ávöxtum og hun-
angi ef vill. Notið það við matar-
tilbúning og blandið því í annan
’-nmat.
Greiður
og
Geroko-greiðuhreinsarar.
Nýkomið í
Hjúkrnnardeildina
Austurstræti 16.
Símar 60 og 1060.
Grindavik
Erum byrjaðir á reglubundnum
ferðum til Grindavíkur. — Frá
Reykjavík kl. 6 e. h. á virkum
dögum en kl. 9 e. h. á helgum.
Frá Grindavík kl. 10 f. h. alla
virka daga.
Bifreiðastðð Steindórs.
Símar 580—581—582.
ALL-BRAN
Fægilögnr (Spejlcrem)
Gðlflakk, fflöblnbón,
og fægikldtar.
Verslnn
Vald. Ponlsen
Sími 24. Klapparstíg 29.
Da§Mk.
Veðrið (föstudag kl. 5): Lægð
fyrir suðaustan landið, en há-
þrýstisvæði fyrir vestan og norð-
an. Áttin yfirleitt A og NA lijer
á landi og rigning um alt land
nema Vesturland. Hiti 6—8 stig
fyrir norðan og 8—10 stig syðra.
Það lítur út fyrir að NA-áttin
aukist heldúr og að veður fari
yfirleitt versnandi á Norðurlandi
en ljettir heldur til á SV-landi.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
NA-kaldi. Ljettir sennilega til.
Messur á morgun: í Dómkirkj-
unni klukkan 11, síra Bjarni Jóns-
son; klukkan 5 síra Ámi Sig-
urðsson.
Lauge Koch landkönnuður er
nýlega kominn heim til Dan-
merkur úr leiðangri sínum um
Austur-Grænland. Leiðangur þessi
er framhald af fyrri leiðangrum
sem hann hefir áður farið um
þessar slóðir, til þess að rannsaka
og gera uppdrátt að hinum víð-
áttumiklum svæðum á Austur-
Grænlandi, norður af Franz Jó-
sefslandi. í fyrra fanst þarna
norður frá eir í fjöllum og var
í ár rannsakað nánar hvort þarna
væru auðugar koparnámur. — Svo
reyndist þó ekki. Vísindalegur ár-
angur að leiðangrinum var ágæt-
ur. Við rendur innlandsjöklanna
uppgötvaði hann fjöll, er eigi hafa
verið kortlögð áður. Einnig fann
hann mólög í jörðu, er sanna, að
yfir Grænland hefir gengið hita-
tímabil eftir ísöld, en síðan hafi
loftlag orðið kaldara aftur.
Söngkvöldi Maríu Markan er
átti að vera í gærkvöldi, var
frestað til mánudagskvölds, vegna
lasleika ungfrúarinnar.
Lausar kennarastöður. Þessar
barnakennarastöður hafa verið
auglýstar auk þeirra, sem áður
hafa verið taldar í blaðinu. Við
fasta skóla í Súðavík, N.-ís., um-
sóknarfrestur til 20 sept., og á
Eskifirði, umsóknarfrestur til 20.
sept. Við farskóla: í Ólafsfirði,
Eyjafjarðarsýslu, umsóknarfrestur
til 15. sept., í Gufudalshreppi,
Barð., umsóknarfrestur til 20. sept.
í Reykjarfjarðarhreppi, N.-ís., um-
sóknarfrestur til 1. okt., og í Fells-
strandar- og Klofningsskólahjer-
aði, Dalasýslu, umsóknarfrestur til
1. október.
Rakarastofur bæjarins verða
opnar til kl. 8 á laugardagskvöld-
um, framvegis.
Esja kom hingað í gærkvöldi.
Margt farþega.
Knattspyrnumót HI. aldursfl.
hefst í fyrramálið á Melunum.
Keppa Fram og K. R. kl. 10—11,
en Valur og Víkingur kl. 11—12.
Úrslitakappleikir knattspyrnu-
móts 2. aldursfl. verða háðir á
inorgun. Keppa Valur og Fram kl.
2—3, en síðan K. R. og Víkingur.
Stendur mótið þannig nú, að K.
R hefir 6 stig, Valur 4 og Víking-
ur og Fram sitt hvort stigið.
Veiðibjallan gat ekki flogið
vestur í gærmorgun, sökum hvass-
viðris, en fer væntanlega snemma
í dag.
Togarinn Ver frá Hafnarfirði
kom inn í gærmorgun, til að fá
hjer ís og fer á veiðar í dag.
Skemtun verður haldin á Ála-
fossi í kvöld.
Knattspyrnumót II. fl. Kapp-
leikurinn milli Fram og K. R.
fór þannig, að K. R. vann með
10:0. í gærkvöldi vann Valur
Víking með 1:0.
Garðar, hinn nýji togari Einars
Þorgilssonar er nú að veiðum
norðftr við Bjarnareyjar.
M.s. „FREYJ A“
frá ísafirði, ca. 28 tonn að stærð, með 70 hestafla Finnöy vjel er til
sölu nú þegar með eða án veiðarfæra. Skip og vjel í góðu standi.
Semja ber við Jóhann Þorsteinsson, ísafirði.
Nánari upplýsingai gefur
Páll ólafsson,
Sími 1799.
GfrrTTmTii rn irnninrni iiiiíí 1111 irnmnTiTNrfTn'’-prni-títttttttttttt
Ráð tannlækna
hljóðar nú:
»Náið húðinni af tönnunum,
■vo að þær verðl heilbrigðari og betri«.
TANNHIRÐINGAR hafa tekið stórum
framförum.
Tannlæknavfsindin rekja nú fjölda tann-
kvilia til húðar (lags), sem myndast á
tönnunum. Rennið tungunni yfir tenn-
umar; þé finnið þér sllmkent lag.
Nú hafa vlsindin gert tannpastað Pep-
sodent og þar með fundið ráð til að eyða
að fuilu þessari húð. Það losar húðina og
nær henni af. Það inniheldur hvorki
kfsil né vikur.
Reynið Pepsodent. Sjáið, hvernig tenn-
urnar hvltna jafnóðum og húðlagið hverf-
ur. Fárra daga notkun færir yður heim
sanninn um mátt þess. Skrifið eftir
ókeypis Ií) daga sýnishorni til: A. H.
Riise, Afd. 1682-6/, Bredgade 25, EX,
Kaupmannahöfn, K.
FÁIÐ TÚPU í DAG!
Afburða-tannpasta nútímans.
Hefur meömæll helztu tannlækna í öllum helmi. 1682
Islenskt
Blómkál.
KI e i n,
Baldursgötu 14. Sími 73.
Sýning Eggerts Guðmundssonar
listmálara er opin daglega frá kl.
]1—8 í húsi K.F.U.M.
Hlutaveltu heldur K. R. í húsi
sínu á morgun.
Þær K.R. stúlkur sem vilja hjálpa
til við hlutaveltu fjelagsins á
morgun, eru beðnar að koma til
viðtals í kvöld eftir kl. 8 í K.
R.-húsinu.
oolitrevlur
fallegt og f jölbreytt úrval á
fullorðna og börn.
Manchesier.
Nýkomið:
Perur
Melónur
Epli
Bananar
Appelsínur
Tómatar.
lersl. foss.
Laugaveg 12.
Sími 2031.