Morgunblaðið - 11.01.1931, Side 7

Morgunblaðið - 11.01.1931, Side 7
MORGUN BLAÐIÐ 7 STRAUJÁRN og RAFMAGNSBAKSTRAR eru ómissandi á hverju heimili. Raf tæk j averslimin Norðnrljósið Laugaveg 41. í vexti og afborganir, verðnr á- nauðugur skuldaþræll erlendra auðmamw), og á þar á ofan á liættu að glata efnalegu sjálfstæði, en án þess er rjettarlegt sjálfstæði nafnið eitt. Sem stendur greiðir íslenska ríkið árlega á aðra miljón króna af erlendum lánum. Þá ligg- ur það í augum uppi, að skuld- laust ríki er miklu betur sett en skuldugt ef árferði spillist og tekur ríkissjóðs þverra. Aðeins einn af stjórnmálamönn- um vorum hefir lýst yfir því að vjer ættum að stefna að því að búa skuldlaust: Jón Þorláksson. Meðan hann fór með fjármálin minkuðu og ríkisskuldirnar drjúg- um. Jeg býst við að flestir búmenn landsins sjeu honum sammála. Nú munu fæstir telja það nauð- syn að ríkið noti ekkert lánsfje, en hvar eru þá takmörkin? Jeg hygg, að þau sjeu hin sömu og hjá góðum, varfærnum búmanni og þó að vísu nokkuð þrengri. — Helst vill liann vera skuldlaus og ■eiga þar á ofan hæfilega upphæð að grípa til ef á þarf að halda, en sjái liann liinsvegar leik á borði með áreiðanlega arðsamt fyrirtæki, þá hikar hann ekki við að taka lán til þess, ef nauðsyn gerist. Hafi honum missýnst og fyrirtæk- ið bregðist, þá hefir hann teflt, sínu fje en ekki annara í tvísýnu. Eíkisstjórn fer aftur með rjett- nefnt, ómyndugra fje o|>' hefir alls ekkert leyfi til þess að tefla því i neina tvísýnu. Henni er leyfilegt •að nota lánsfje til nauðsynlegra -og ótvírætit arðsamra fyrirtækja, sem hljóta að koma næstu kynslóð að góðum notum, en hún hefir ;annars ekkert leyfi til þess að leggja „dauða' hendi“. og skulda- •súpu á herðar barnanna, sem eru ;að alast upp. Þau eru viss með að ráða betur fram úr vandamálum sinnar tíðar en gainla kynslóðin, sem gengin er undir græna torfu. Vilji samtíðin .hafa eitthvað að hrósa sjer af, þá þarf hún að búa vel í haginn fyrir börnin sín og borga sjálf kostnaðinn. Búhnykkurinn og svikamyllan. Hálfhikandi tókum vjer fyrsta ríkislánið og vörðum vjer því þó á gætinn tryggilegan hátt, en hik- ið fór fljótlega af og hvert lánið -var tekið eftir annað, enda ekki við öðru að búast með þingræði og flokkastjórn. Þrátt fyrir veltiár og eindæma tekjur ríldssjóðs síðustu árin, var síðasta þing sammála um það að taka stærsta lánið, sem vjer höf- um nokkru sinni tekið, 12 miljóna lánið, -sem mest hefir verið rifist um. Jeg bað reikningsfróðan mann, að segja mjer, livað við fengjum í aðra hönd við þessa lántöku, og hvað vjer þyrftum hinsvegar að horga, er öll kurl kænm til grafar. Honum reiknaðist þannig: Lánið er (£ 540.000) 11934000 kr. Afföll (7i/2%) 895050 kr. Kostnaður (%%) 38950 — -----------934000 kr. Til afnota koma 11000000 kr. Vextir og afborganir í 40 ár >26374137. kr. Vjer fáum þá alls 11 miljónir kr., en borgum þær með 26 miljón- um 374139 kr. Lannig lítur hann þá xit þessi mikli bvihnykkur, sem þingið gerði eins og í minningu 1000 ára af- mælis Alþingis! Og þó kemur í raun og veru miklu minna fje til afnota en hjer er talið, því mikið gengur í ýmsan kostnað, stjórn Búnaðarbankans o. fl. Að vísu gengur minstur hlutinn af láni þessu til bænda, en eigi þeir að græða á þeim miljónum, sem falla í þeirra hlut, þarf bú- skapurinn að ganga betur en nú gerist. v En þó það sje næsta tvísýnt, að lán þetta verði oss gróðavegur, þá er eitt vist: að vjer verðum að bcrga það. f 40 ár verðum vjer að greiða útlendingunum yfir % mil- jón króna á hverju ári í vexti og afborganir hvort sem árferði er ilt eða gott. Þennan myllustein höfum vjer hengt um hálsinn á börnum vo.rum. Það er sagt, að nokkrir hlutir hjer á landi sjeu óteljandi: Vatns- dalshólar, vötnin á Tvídægru, eyj- arnar á Breiðafirði 0. fl. Nú hefir nýr hlutur bætst við þá gömlu: Krónurnar, sem íslenska ríkið skuldar. Lærðustu menn hnakkríf- ast um það hve margar þær sjeu, og deilir jafnvel á um miljóna- töluna. Ef gert er ráð fyrir, að ríkis- skuldimar sjeu um 26^2 miljón króna, þá koma um 253 kr. á hvort mannsbarn í landinu, en um 1400 k<r. á hvert meðalheimili (5—6 menn). — Vitaskuld getum vjer borgað þetta, en það munar um minna! Og verst er að öll líkindi eru til þess, að skuldirnar fari vaxandi — þangað til alt lájistraust lands- ins er uppurið. Sumir halda, að nýjar kosningar og sparsöm stjórn geti kippt öllu þessu í lag, grynnt á skuldunum og borgað þær jafnvel að fullu áð- ur mjög langir tímar líða. Jcg hefi enga von um þetta. Þó harðhentir búmenn stjórnuðu land inu, spöruðu og grynntu á skuld- unum, þá myndu þeir fljótt verða ásakaðir fyrir íhald, kyrstöðu og nirfilshátt og velt-ust bráðlega úr völdum. Við þeim tækju svo eyðslu menn, sem hefðu lofað kjósendum gulli og grænum skógum. Á einu ári myndu þeir svo eyða því, sem safnað liefði verið með erfiðismun- um á mörgum. Stjórnarfar vort er hrein og bein svikamylla. Hún malar skuldir og skatta. Ef nokkur von á að vera til þess að breyta þessu fargani, þarf tvennt til: Fyrst og fremst breytingu á st j órnskipulaginu. í öðru lagi góða búmenn við stjórnartaumana. Það er engin önnur leið til út úr ógöngunum! Guðm. Hannesson. rf py-V"- Eftirmæli. ,,Þá eik í stormi hrynur liáa, j*ví hamrabeltin skýra frá. En þegar fjólan fellur bláa fallið ]iað enginn lieyra má; en ilmur horfinn innir fyrst, urtabygðin' hvers hefir mist“. Margir minnast þessara orða Bjarna Thorarensens við fráfall látinna vina, — einkum þeirra, er unnu verk sín í kyrþey, voru sem „fjólan bláa“, er ekki liafði liátt nm sig meðan hún naut gróður- magns síns, nje Ijet fjöllin berg- mála brottför sína, er hún hnje til moldar. Ein hinna liorfnu vina úr urta- bygð þessa kauptims er: Kristjana Kristjánsdóttir. Kristjana Kristjánsdóttir. Kristjana sál. var fædd í Al- viðru 12. jan. 1873. Foreldrar henn ar voru Kristján Jónssðn bóndi þar og kona hans Vigdís Teits- dóttir, frá Ingaldssandi í Mýra- lireppi. Föðurfaðir Kristjönu var Jón Magnússon, bóndi í Alviðru; merk ismaður á sinni tíð, bóndi góður og smiður ágætur. Kristjana heitin var í foreldra- húsum fram á fullorðins ár. Þá flutti hún til Þingeyrar í Dýra- firði. Nokkrum árum síðar fór hún til ísafjarðar, en dvaldist þar skamman tíma. Árið 3 909 var hún ráðin for- stöðukona fyrir sjúkraskýli Vest- ur-ísafjarðarsýslu á Þingeyri, sem þá var nýbyggt. Því starfi hjelt hún samfleytt í 11 ár. Aflaði hún sjer mikilla vinsælda í hjúkrunar- starfinu, og minnast margir sjúk- lingar enn umönnunar kennar og nærgætni. Forstaða spítalans var þá erfið. Fjárframlög til hans næsta takmörkuð og naum, enda lítið fje fyrir hendi, þar sem ein- ungis eitt sýslufjelag átti að sLimla straum af kostnaðinum. Hjúkrun, hússtjórn, vistir og að- drættir allir voru forstöðukonunni ætlaðir eins og enn er, gegn á- kveðnum árslaunum, legukostnað- ur sjúklinga rann og til forstöðu- konunnar, að allmestu leyti. En á hinn veginn var hörgull á nauð- synlegum útbúnaði og tækjum, er til hjúkrunar þurfti, svo að sjer- staka ósjerplægni, hagsýni og dugnað þurfti til þess að komast fram úr vandkvæðum fyrstu starfsáranna. Alla þessa örðug- leika sigraði Kristjana heitin með mestu prýði og lagði undirstöðuna að þeirri nytsemdar stofnun, sem skýlið nú er. Eftir að hnn Ijét. af forstöðu- rjúkraskýlisins á Þingeyri, varð hún ráðskona við heimavist Flens- borgarskólans í Hafnarfirði, stntt- an tíma, en vann sjer þó traust og álits skólástjóra og nemenda ij’rir ráðdeild sína. I kvenfjelaginu „Von“ á Þing- eyri var hún frá 1910 til dauða- dags. Sat í stjórn þess í tvö ár. Vann að því ásamt öðrum kven- fjelagskonum að komið væri upp gistiskýli á Þingeyri. Var livata- maður að stofnun fjelagsblaðs og ritaði í það nokkrar greinir. Mint- ust fjelagskonur starfsemi hennar með sjerstakri minningargrein, er ritari fjelagsins samdi og flutti á fjelagsfundi, eftir fráfall liennar. Seinustu æfiárin var hún mjög farin að heilsu. Hafði hún þá ofan af fyrir sjer með smáverslun á Þingeyri. Eftir ítrekaðar tilraunir að fá bót meina sinna, ljetst tnin í Eeykjavík 31. október 1929. Enga afkomendur ljet hún eftir sig. Hún var ógift alla æfi. Kristjana sáluga er minnisstæð öllum er þektu hana vel. Fram- koman aðlaðandi, hispurslaus, en látprúð, tilkomumikil að vallar- sýn. Hjálpsemi við bágstadda og sjúka einkar einlæg og hlý. 'Ósín gjörn í bestu merkingu þess orðs. Margir reikningar eru enn ósendir og ógreiddir, fyrir hjálp í sjúk- dómum, er hún veitti heimilum á Þingeyri. Sálarlíf hennar var þróttmikið og athyggju þrungið. Trúkona mikij. Ekki fyrir viðurkendar kennisetningar, heldur fyrir at- hyggjugáfu. Hallaðist him mjög að sálrænum vísindum síðari árin og las talsvert um þau efni. Hún var gædd næmu og hreinu tilfinningalífi, og íhygli og gætni einkendi orð hennar öll. f erfiljóðum eftir hana, komst einn sjúklingur hennar svo að orði: „Marta bjó ytra, María í hjarta. Merkin þú barst í gleði, sorg og þrautum. Ljúft var þjer öðrum, leið að gera bjarta, líknarhönd rjetta, hvar sem stóðst á brautum. :,: Sjúkum að hjúkra, hreldum færa gleði, lmggun þú varst, hjá mörgum dán- arbeði :,: Undir það munu fleiri með ein- lægni taka. Þingeyringur. Úl. Heltji Guimundsson stýrimaður. Fæddur 3. ág-úst 1903. Drukknaði 1. desember 1930. Einn hinna mörgu, sem fórust á ,,Apríl“ þann 1. des. síðastl. var Ólafur Helgi Guðmundsson, sonur Guðmundar Guðnasönar skipstjóra og frú Mattínu Helgadóttur á Bergstaðastræti 26. Æfisaga þessa unga manns er ekki löng, en liugljúfar minningar geymast í hjörtum ástvinanna og allra þeirra, sem kynni höfðu af Helga sál. Framkoma hans öll var á þann veg, að hún vakti .elsku, virðingu og traust þeirra, er kynt- ust honum. Sá, sem þessar línur skrifar, þekkti Helga sál. frá því hann var tólf ára drengur, og var talsvert kunnugur á heimili hans. Þar var hann sannkölluð fyrir- mynd systkinanna mörgu, sem öll voru yngri en liann. Hann var Lúðuriklingur og Steinbítsriklingur í pökkum. TIRíMNDI T Skéhlífar eru bestar. HTannbergsferæðnr. fyrirmynd þeirra í elskulegri um- gengni, ást til foreldra og hlýðni við vilja þeirra. Þess vegna eru nú endurminningarnar svo huggunar- ríkar á heimilinu, þar sem vinar- ins kæra og heimilisprýðinnar er svo sárt saknað. . Utan heimilis var Helgi fáskift- inn, en vinfastúr og tryggur í lund, en það eru gömul og góð ís- lensk aðalseinkenni. — Hann var snemma starfsamur og áliugamik- ill. Á sjómannastjettin þar á bak að sjá efnismikhim manni og ís- land góðum syíiL Hvern hug nágrannar Helga sál bera til hans og hverjar endur- minningar þeirra eru, koma vel í Ijós í nokkrum erindum, sem for- eldrum hans bárust. Jeg sakna þin — þú varst mér nngur yndi, því œsknleiksvið þitt var kringnm mig; þú brostir einatt við mjer ljnfn lyndi og ljúft var mjer að sjá og heyra þig. Jeg sá þig titt með öðrum nngum sveinnm. en aldrei sá nje heyröi eg ljótt til þín; með prúðnm svip og barnsins hnga hreinum þá hljópst þú einatt hrosandi til min. Jeg sakna þin. Hjá solli þú þig SDeiddir, jeg sá, að heima var þjer dvölin kær; i fáoýtt hjal þú aldrei tima eyddir, þvi annað hetra stóð þjer hjarta nær. Það fanst í þjer, þú vildir eitthvað vinna, sem verða mætti þjóð til blessunar, og 8tarfið gafst þjer færi á að finna og fram þig snemma allan lagðir þar. En löngn fyr en lokið væri iðjnm frá ljúfnm vinnm tók þig sá, er gaf; að falla þykir sárt í sigri miðjnm, en — sigur er vís á hak við dauðans haf, Vertu nú sæll, jeg veit við sjáumst aftur, jeg veit, að til er annað föðnrland ; til hafnar þar þig hnlinn leiddi kraftur, sem hnýtir aftnr slitið kærleikshand. . Það mun ætíð reynast svo, að besta eignin, sem syrgjandi ást- vinir eiga, eru góðar endurminn- ingar um heimfarna ástvini. Og bjart er yfir minningu þessa burt- kallaða unga vinar. J. H.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.