Morgunblaðið - 29.01.1931, Qupperneq 2
2
M O T? n TT K R T A r* > m
Fengum meö Gulifoss:
L fl. Danskar Kartðflnr
Lítiö óselt.
..... III ........ I lllin—
Skóhiifar
fyrir karimenn.
Besta tegund nýkomin.
Stefán Gunnarssnn.
Austurstr. 12. Skóverslun.
HvBnogbajja
Hlífarstigvf -1
Mikið úrval. Nýjar teg.
Stefán Bunnanson.
Skóverslun. Austurstr. 12.
Útvarpaðax í gærkvöldi:
• ’V. ’vindur. Vorsins
Pimpinella V: ður. Jeg lít í anda.
Lhear you calling. :i 3 Maria. Leiðsla.
(Caruso - Mc. Cormack). :. -'gert Stefánsson).
HljjéðfnraliÉslð.
Símar 656 & 15.
Hrísgrjón,
3 tegundir, selur enginn ódýrar en við.
H. Benediktsson 1 Go.
Sími 8 (3 línur).
Peníngsiðn.
Eitt þúsund óg timm hu- druð krónur óskast, lánstími eftir
wmkomulagi, tilboð sendist lil A. S í. íyrir 31. þ. m. merkt 15.00
Drffanda kafftð er drýgst.
Best að auglýsa í Morgunblaðinu.
Hfmælisfagnsður
Verslunafmannifjelags
Reykjavfkur
að Hótel Borg.
—
um stund. þakkaði Jes Zimsen, fyr-
ir hönd hinna nýkjörnu lieiðurs-
fjelaga, síra Friðrik Hallgrímsson
talaði fyrir minni Reykjavíkur og
Gísli Signrbjörnsson flntti kveðju
frá verslunarmannafjelaginu Merk
úr. —
40 ára afmælisfagnaður Versl-
unarmannafjelags Reykjavíkur að
að Hótel Borg á þriðjudaginn, var
mjög fjölsóttur. Þar sátu á þriðja
hundrað manns undir borðum. —
Ræður voru þar margar fluttar.
Skemtu menn sjer hið besta meðan
á borðhaldi stóð — frá kl. 714—U.
1 veislubyrjun afhjúpaði formað-
nr fjelagsins, Erlendur Pjetursson,
nýjan fjelagsfána.
Næstur talaði Jón Þorláksson,
og mælti fyrir minni fjelagsins, og
verslunarstjettarinnar yfirleitt. —
Mintist hann margra góðra og
glaðværra stunda á samkomum fje
lagsins á fyrri árum, og benti á
ýms nytjamál, sem fjalgið hefir
haft með höndum, svo sem stofnun
Verslunarskóla Islands 0. fl.
En er hann talaði um verslunar-
stjettina alment, og hlutverk henn-
ar, komst hann m. a. að orði á
þessa leið:
Þegar litið er yfir sögu vora, þá
verður það deginum ljósara, að
eymdartímabil hennar var þá er
hana vantaði verslunarstjett. Er
verslunin hvarf úr höndum lands-
manna sjálfra, hefst vor hörmunga
saga. Og þegar verslunarstjettin
komst aftur á legg; byrjar fram-
faratímabilið.
Jeg hefi athugað liagi þjóðarinn
ar nokkuð á undanförnum árum,
til þess að gera mjer grein fyrir
hvað það er, sem mestu veldur um
misjafmj, afkomu áranna. Þó mis-
jafn sje lieyfengur og sjávarafli,
þá er það ekki þessar tilbreytingar
sem mestu valda um afkomu þjóð-
arinnar, heldur hitt, hvemig versl-
nnin tekst.
Þá talaði Sig. Eggerz fyrir minni
Islands, um varndargrip þjóðarinn
ar frelsið, sem ekki síst er verndar
gripur verslunarinnar; um ímynd-
þjóðarinnar, Fjallkonuna, og ást-
ina til hennar, ættjarðarástina, er
ætti að vera svo rík og sterk, að
allir gætu tekið höndum saman og
unnið samhuga á erfiðum tímum
— svo sem nú væri framundan.
Því næst tilkynti formaðnr, að
nefnd sú, sem til þess hafði verið
kosin ásamt fjelagsstjórninni, að
útnefna heiðursfjelaga í fjelagi
þessn, hefði ákveðið að útnefna
fimm li.eiðursfjelaga þá: Árna
Einarsson kaupm., Ásgeir Rigurðs-
son ræðismann, Einar Björnsson
verslunarstjóra, Jes Zimsen kaup-
mann og Jón Eyvindsson verslun-
arstjóra. Allir liafa þessir menn
verið í fjelaginu síðan fyrir alda-
mót, starfað í stjórn þess og við
ýmsar f jelagsframkvæmdir. For-
maður mintist og annara heiðurs-
fjelaga, sem á lífi eru; þeirra,
Björns Kristjánssonar, Borgþórs
Jósefssonar, J. G. Halbergs og
Ditlevs Thomsens. Ennfremur Jóns
Ámsonar, sem var meðal elstu fje-
lagsmanna er sátu veisluna.
Þá h jelt Egill Guttormsson ræðu,
þar sem hann mintist sjerstaklega
þæirra tveggja Björns Jónssonar
ritstjóra og Th. Thorsteinsson
kaupmanns, er voru aðalfrum-
kvöðiar að stofnun Verslunar-
mannafjelagsins.
Óskar Norðmann skemti veislu-
gestum nú með ágætum söng sín-
um. Síðan hófust frjáls ræðnhöld
—• Mælt var og fyrir minni
Merkúrs, minni kvenna og minni
formannsins Erlendar Pjetursson-
ar. —
Þá vorn borð iipp tekin, kaffi
drukkið í öðrum salarkynnum og
dans stiginn til kl. um nóttina.
Brod á Bor ?yri.
Hús Verslunarfjelags Hrútfirðinga
brennur.
Tekst með naumindum að bjarga
næstu húsum.
Kl. 9% að morgni miðvikudag-
inn 28. þ. m. varð elds vart í íbúð
Kristmundar Jónssonar verslunar-
stjóra við Verslunarfjelag Hrút-
firðinga að Borðeju’i.
Verslunarstjórinn hafði íbúð á
fyrstu hæð í húsi Verslunarfjelags
ins, en niðri var búð og vöru-
geymsla. Húsið var úr steini, en
með timhurgólfum.
Kona verslunarstjórans, Sigríð-
ur Olafsdóttir, hafði fyrir skammri
stundu gengið út úr svefnherbergi
þeirra hjóna. Þar svaf 4 ára gam-
all sonur þeirra. Ljós brann á nátt-
lampa er stóð þar á borði.
Átta ára gamall sonur þeirra
varð fyrst var við eld í svefnher-
berginu. Gerði hann móður sinni
aðvart. Hún vissi ekki annað en
barn hennar væri í svefnherberg-
inu. Hún liljóp því inn í hé'rbergið í
dauðans ofboði. Herbergið var þá
svo til alelda og brendist konan
því nokkuð.
En fjögra ára gamli drengurinn
liafði flúið úr eldinum inn í aðra
stofu, og stóð þar grátandi, er
móðir hans kom að honum — og
sakaði hann ekki.
Nánar um eldsupþtökin er óvíst
hvort nokkurn tíma vitnast, eftir
því sem hleimildarmaður Morgun-
blaðsins skýrði frá í gærkvöldi.
Veður var hið besta, blæjalogn
og þíðviðri. Hafði kvöldið áður
verið ofsarok þar af suðri. Goða-
foss lá þar á höfninni. Var rokið
svo mikið, að menn voru orðnir
smeykir um að hann myndi reka á
höfninni. Ef sama veður hefði hald
ist daginn eftir, myndi hjer hafa
orðið voðalegt bál, því að þá hefðu
engin tiltök verið að bjarga næstu
líúsum undan eldinum. En nú tókst
það, fyrir vasklega framgöngu
Borðeyringa og lijálparliðs er þeir
fengu tii aðstoðar frá Goðafossi.
PIús Verslunarfjelagsins hrann
að svo miklu leyti sem brunnið
gat, og stóð bálið til kl. 11 Því
nær cngu varð bjargað af innan-
stokksmunnm úr íbúð Kristmund-
ar verslunarstjóra. En miklu var
hjargað af vörum úr söluhúð og
vörugeymslu er var í stofuhæð
hússins.
Næsta hús við verslunarhús
þetta, er hús sýslumannsins á Borð
eyri. Var tvísýnt um stund hvort
hægt yrði að verja þáð, en það
tókst með stöðugum austri. Skámt
er þarna til sjávar og þaðan ansið.
En ef kviknað hefði í sýslu-
mannshilsinu, og það brunnið, þá
hefðu fleiri hús farið sömu leiðina.
c/itus'
eimskipafjelag
ÍSLANDS
„Gnllfoss((
fer hjeðan í kvöld kl 10 beint
til Kaupmannahafnar.
Farseðlar óskast sóttir fyr
ir hádegi.
Keiðruðu frúr
ug u gfrúr
ef þjer viljið fá hárgreiðsludömu
heim, þá hringið í síma 2242 og
pantið í tíma.
aiilettebiöö
ávalt fyrirliggjandi í heildsötu.
VUIl Fr. Frsmanns&oa.
Sími 557.
Þakiar^ré.
Jeg undirrituð vil hjer með
votta þeim merkishjónum, hena
Magnúsi Th. S. Blöndahl og frú
hans, innilegustu þakkir fyrir all-
ar gjafir, sem jeg hefi þegið af
þeim, og fyrir alla þá mannúð, er
hau jafnan hafa auðsýnt mjer og
börnum mínum um mörg undan-
farin ár.
Þessum sannjföfugu og Sein-
þreyttu velgerðamönnum mínnm,
bið jeg almáttugan guð að launa
góðverk þeirra.
Reykjavík, Framnesveg 25,
26. janúar 1931.
Margrjet Jónsdóttir, ekkja.
■ ■■———— — iii —WBmiwi'iii i m —... nniii—
Næst er gamalt verslunarhús Riis-
verslunar — timburhjallur, sem
fuðrað hefði upp, og síðan fleiri.
Það hús á nú Verslunarfjelag Hrút
firðinga og getur flutt sölubúð
sína þangað í hili.
Hús það sem brann mun hafa
verið vátrygt fyrir 40 þús. En inn-
anstokksmunir verslunarstjórans
voru óvátrygðir, eftir því sem
heimildarmaður blaðsins vissi best.
\
— Barnavinafjelagið Snmargjöf
heldur aðalfund sinn í kvöld kl. 8
í Kaupþingssalnnm í Eimskipafje-
lagshúsinu.