Morgunblaðið - 31.01.1931, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.01.1931, Blaðsíða 2
hifst i áag. SO-331 - ig mlist 20: afslðttor at ðltom vlriifli versiiiiiorlnnar. mta i gimaanai Allir í Braons - Verslnn. Hannes Hafliðason skipstjóri Tar fæddur að Gufunesi í Mos- feílssveit 19. júlí 1855, og ólst hann þar upp fram að tvítugs- al(lri, hjá foreldrum sínum, merk- isfcjónunum Hafliða Hannessyni og Sigríði Bjarnadóttur. Eftirlifandi systkin Hannesar erp: Páll skipstjóri, giftur Guð- laugu Lúðvígsdóttur, Anna, ekkja <^afs sál. Ólafssonar prentara, Helga, ekkja Bergþórs sál. Þor- steinssonar skipstjóra (föður Haf- steins skipstjóra og þeirra syst- kina), og Sigríður, ekkja Hjartar sál. Hjartarsonar trjesmíðameist- ara. — Snemma hneigðist hugur Hann- eáar til sjómensku, enda fór hann í siglingar jafnskjótt sem hann hvarf úr foreldrahúsum. Sjómanna fræði lærði hann í Kaupmanna- höfn og tók þar próf (hið meira) í stýrimannafræði, um 1877; að því loknu stundaði hann fiskiveið- ar hjer við land og var mörg ár skipstjóri á þilskipum hjeðan úr hæ, en Ijet af því starfi laust eftir aldamót. Auk þess var hann for- «.aður, á milli vertíða, á opnum bátum og vjelbátum. Þótti hann raeð afbrigðum góður stjórnari, heppinn vel og fengsæll, og aldrei vi|,di honum slys til eða skipbrot á allri hans löngu og oft ströngu stjSmannsleið. Hannes var við flest þau fje- lágs- og framfaramál riðinn, sem hjer voru á dagskrá um langt skeið fyrir og eftir aldamótin, og ér ekki auðgert að telja þau öll upp, eða gera grein fyrir mörgum heppi legum áhrifum hans á þau og heillaríkum afskiftum, en óhætt má segja, að naumast hafi verið hjer svo nefnd kosin eða skipuð, sjerstaklega í málefnum sjómanna stjettarinnar, að eigi væri Hannes ITafliðason formaður h'ennar, eða ætti sæti í nefndinni. Ilann var einn af stofnendum Skipstjóra- pg Stýrimannafjelags- ins „Aldan“ og formaður þess um fjöldamörg ár. Forseti Fiski- fjelags íslands var hann um 10 ára skeið og hinn fyrsti, sem falið var það vandasama og veglega starf. í Sjódómi Reykjavíkur sat Hannes frá stofnun hans, þangað til nú fyrir 6 árum. Bæjarfull- trúi hjer í bænum var hann í mörg ár, í niðurjöfnunarnefnd, í stjórn Fríkirkjusafnaðarins hjer, í stjórn Gufubátsfjelags Faxaflóa o s. frv. Hann var einn af stofn- endum G.T.stúkunnar „Dröfn“ og um fullra 30 ára skeið var hann í Odd-Fellowreglunni. Hannes var íturmannlegur mjög, hár vexti og karlmannlegur, glað- ur í bragði og gunnreifur, þó eitt- hvað bljesi á móti, og gekk óskift- ur að hverju starfi, með dugnaði og festu, og rækti það með hygg- indum, óhlutdrægni og rjettsýni, enda vann hann ávalt óskorað traust og virðingu samborgara sinna og fjelaga í hverju sem var. Að prófi sjálfs hans loknu, tók hann að kenna sjómönnum stýri- mannafræði, fyrst í Hafnarfirði og síðan í Reykjavík. Var hann því, og vegna óvenjulega góðrar þekkingar og lærdóms í þeirri grein, álitinn flestum framar standa nærri til að vera kjörinn forstjóri Stýrihannaskólans hjer, er hann var á stofn settur, þótt annar maður — einnig mikils metinn og lærður vel — yrði fyr- ir valinu, enda ávann Hannes sjer að makleikum svo mikið traust stjórnanda skólans, að hann var prófdómari hans um 20 ára skeið | og formaður prófnefndar. Hannes var tvíkvæntur. Fyrri kona hans hjet Þórunn Stefáns- dóttir, og var hún ckkja ættuð frá Hverakoti í Grímsnesi, mesta á- gætis kona, en hún andaðist eftir rúmlega eins árs sambúð þeirra. Síðari kona Hannesar var einnig ekkja og hjet hún Ingibjörg Gríms dóttir, dáðmikil og dugleg kona; I A er hun dáin fyrir rúmum 5 árum. í hvorugu hjónabandi varð hon- um barna auðið, en í síðara hjóna- bandinu ól hann upp afbragðs- stúlku eina, er Ásta hjet, systir Kjartans Gunnlaugssonar kaup- manns, og varð hún kona Helga bónda Arnasonar frá Lögn að Mýrum, en andaðist litlu síðar. Ilannes Ilafliðason andaðist um dagmálabil, miðvikudaginn 21. þ. m., eftir aðeins mánaðar sjúk- dómslegu (af hjartabilun), 73% árs að aldri. Einn af góðvinum og samverka- mönnum Hannesar, Sveinbjörn ritstjóri Egilsson, segir svo um hann í Ægi, á sjötugsafmælisdegi hans: „Allir sem þekkja hann munu sammála um, að hann er heiðar- legur og góður maðar“. Þetta eru sönn orð, bygð á margra ára þekk- ingu og reynslu. Nú er þessi mæti og mikilhæfi maður til moldar borinn í dag, og mun vinum hans, venslamönn- um og samfjelögum aldrei, meðan lifa, fyrnast minningin um hann, en óbrotgjarnasta minnisvarðann reisti hann sjer sjálfur, þegar löngu fyrir brottför sína hjeðan, með því að gefa mikinn hluta eigna sinna eftir sinn dag, til sjóðstofnunar „fyrir fátæk og veikluð börn“, enda var hann barnavinur hinn mesti og sá manna best, hve ómetanlegt það var hinni uppvaxandi kynslóð og þjóðinni í heild sinni, ef til væri fje nokkurt til reksturs skynsam- legrar og umhyggjusamrar starf- semi, er færi í þá átt, að uppræta einn hinn fyrsta og skaðlegasta frjóanga berklaveikinnar. bólgna eitla úr börnunum á unga aldri og fól hann með erfðaskrá sinni Odd-Fellowreglunni alla vernd og vegleiðslu slíks sjóðs. Sýndi Hannes í þessu, sem svo mörgu öðru, hve hygginn hann var og jafnframt hjartagóður og hugulsamur í garð hinna fátæku og veikluðu barna, sem á ókomn- um árum fá að njóta góðs af hinni fögru og eftirbreytnisverðu ráð- stöfun hans þeim til handa. Það verða því eigi einungis hinir mörgu vinir hans, venslamenn og fjelagar, sem jafnan munu minn- ast hans með aðdáun, virðingu og þakklæti, heldur og fjöldi fátækra og veiklaðra barna, foreldrar þ^irra og aðstandendur, sem einn- ig nú og á ókomnum tímum blessa minningu hans og sjá, að þar liafði heiðarlegur og góður maður á ferð verið, sem hann var. Reykjavík 31. janúar 1931. Jón Pálsson. Úlvarpið. Laugardagur. Kl. 19.25 Hljómleikar (Grammó- fónn). Kl. 19.30 Veðurfregnir. Kl. 19.40 Barnasögur (Ragnheiður Jónsdóttir, kennari). Kl. 19.50 Grammófónhljómleikar: (Ghalia- pine, söngvari). Kl. 20 Þýska 2. flokkur (W. Mohr). Kl. 20.20 Hljómleikar: (Georg Takacs, fiðla Emil Thoroddsen, slagharpa). Kl. 20.35 Skemtisögur (Friðf. Guðjóns son, leikari). Kl. 20.55 Ymislegt. Kl. 21 Frjettir. Kl. 21.20—25 Dans- músík. -------—*--------- Leikhúsið. Dómar voru sýndir við sæmilega aðsókn á fimtudags- kvöldið var, verður leikurinn sýnd ur annað kvöld, þá í 6. sinn, en úr því ekki nema fám sinnum, svo hver fer nú að verða síðastur að sjá leikinn. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Indíana Guðmunds- dóttir og Ásgeir Magnússon, ann- ar vjelstjóri á Braga. Politiken. Nýjustu blöðin fást á afgreiðslu Morgunblaðsins. 3II8.S. Di*cmning Hiexandfina fer í kvöld kl. 6 til ísafjarð- ar, Siglufjarðar, Akureyrar. Farþegar sæki farseðla i dag. Fylgibrjef yfir vörur komi fyrir hádegi. C. Zimsen. Reyktur ðll og reykt smásíld, svínasteik, lambasteik, soðin svið, danskt herragarðssmjör og margt fleira. Bergstaðastræti 61. Sími 1042. Verslnain KjUt & Græameti. Skóblifar eru bestar. Hvannbe rgs nr æðnr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.