Morgunblaðið - 11.03.1931, Síða 3
^imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiniiiiiiiiiiniiii^
I 3Horstmbia&t$ |
g Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk |1
g Hitstjórar: Jón Kjartansson.
§ Valtýr Stefánsson.
E Ritstjórn og afgreiósla:
Austurstræti 8. — Sími 500. =
g Auglýsingastjóri: E. Hafberg. EE
§ Auglýsingaskrifstofa:
g: Austurstræti 17. — Sími 700. gjj
g Heimasímar: =
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220. jE
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innanlands kr. 2.00 á mánuði. =
Utanlands kr. 2.50 á mánuði. =
g í lausasölu 10 aura eintakits.
20 aura metS Lesbók =
^iiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Stórkostlegur landsskjálfti.
Belgrad, 9. niars.
United Press. PB.
Pregnir frá Gjevgjeljahjeraði
kerma, að fimtíu og níu menn hafi
beðið bana í landskjálfta, en eitt
hundrað og fimtíu meiðst alvar-
lega. Landskjálfta varð vart á öll-
tim Balkanskaganum á sunnudag,
^jerstaklega í suðurhluta Serbíu
<3g Jugoslavíu, í hjeruðunum
Straumnitza Gjevgjelja, Bojaran
flg víðar. Níu hundruð hús hrundu
í Strumnitzahjeraðinu einu. — Al-
^xander konungur er farinn til
landskjálftalijeraðanna og ætlar
sjálfur að liafa á hendi yfirumsjón
hjálparstarfseminnar.
í'járhagserfiðleikar Póllands
Varsjá, 10. mars.
United Press. FB.
Pjármálaráðherrann lýsti yfir
Því í ræðu, sem hann hjelt í efri
^eild þingsins, að búast mætti við
milj. zloty tekjuhalla á fjár-
lögurn og 250 milj. zloty tekju-
halla á næsta ári, ef ekki væri
Sripið til sjerstakra ráðstafana.
h^vað hann ríkisstjórnina hafa á-
hveðið að lækka laun starfsmanna
hins opinbera og spara með því 200
húlj. zloty árlega. Binnig ráðgerir
ríhisstjórnin að leggja á nýja
®hatta til þess að koma á jafnvægi
í ríkisbúskapnum.
^ikil snjókoma í London.
London, 9. mars.
United Press. FB.
Mesta snjókoma í London í dag
Vm tuttugu ára skeið. Snjókoman
Var 2 þml. á 9Ó mínútum. Kola-
■shortur er í borginni síðan kulda-
hastið kom, en það orsakast, að
úokkru leyti af núverandi vinnu-
^standi í kolanámunum.
Perkbann í Berlín. Berlín, 10.
^ars. United Press. FB. Öllum
^öalmverksmiðjum í Bayern hefir
verið lokað vegna verkbanns. Verk
hannið hófst í dag og mistu 40.000
Verhámenn þar með atvinnu sína
stundarsakir. Atvinnurekendur
hfefjast 15% launalækkunar, en
^álamiðlari hins opinbera hafði
^rskurðað 5"%% launalækkun. —
elja atvinurekendur þá lækkun
ehki fullnægjandi.
Craldra-Loftur Jóhanns Sigur-
J°nssonar er leikinn um þessar
^úndir norður á Þórshöfn. Er
^®lt að sýning þessi takist vonum
.renaur. Frú Magnea Einarsson hef
lr aðallega beitt sjer fyrir leik-
®ýningu þessari. Leikur hún hlut-
erk Steinunnar, en Marinó Óla-
S°n leikur Loft. (FB.).
Þingtíðindi
Bókasðfn
preslakalla.
Neðri deild.
Mentamálánefnd Neðri deildar
lagði einróma til, að samþykt yrði
frv. um bókasöfn prestakalla, er
kirkjumálanefnd hafði samið. —
Nefndin flutti þó allmargar brtt.
við frv., en flestar voru þær þann-
ig, að þær röskuðu ekki stefnu
frumvárpsins. Veigamesta brtt.
var um það, að lækka framlagið
úr júkissjóði til bókasafna iir alt
að 10 þús. kr. á ári niður í 4 þús.
kr. Magmis Jónsson flutti brtt.
við þessa grein og fór fram á að
10 þús. kr. mætti verja til þessa
fyrst um sinn, svo að bókasöfnin
gætu komist fljótlega upp. Benti
liann á, að alls væru yfir 100
prestaköll á landinu og gæti það
því eigi talist mikið, þótt livert
bókasafn fengi 100 kr. styrk úr
ríkissjóði. — Pjetur Ottesen taldi
að rjettara hefði verið að styrkja
sýslubókasöfnin eitthvað, heldur
en að fara að koma upp sjer-
bókasöfnum. í sama streng tók
M. Torfason. Asg.'Asgeirsson hafði
framsögu f. h. nefndarinnar og
kvaðst mundu flytja frv. um styrk
til almennra bókasafna. Svo fóru
leikar, að allar brtt. nefndarinn-
ar voru samþ., en feld sú brtt.
M. Jónssonar, að verja fyrst um
sinn 10 þús. kr. til styrktar bóka-
söfnum presta; einnig varatillaga
frá sama þm. um 7500 kr. styrk
í sama skyni. Frv. var síðan afgr.
til 3. umr.
Önnur mál.
Frv. um kirkjuráð, flutt af
mentamálanefnd, en samið af
kirkjumálanefnd. Frv. samhljóða
þessu var flutt á síðasta þingi.
P. Ottesen benti á, að æðsti maður
kirkjunnar, biskupinn, teldi eigi
þörf á slíku frv. Einnig þótti honum
frv. hafa spillst í meðförum nefnd
arinnar, þar sem kipt væri burtu
þeirri íhlutun, er leikmönnum var
ætlað í frv. kirkjumálanefndar,
um val manna í kirkjuráð. Kvaðst
P. O. mundu flytja brtt um þetta
við síðari umr. málsins.
Sjóveita í Vestmannaeyjum, flm.
Jóhann Jósefsson. Frv. er flutt
samkv. ósk bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja og fer fram á, að bæj-
arstjórninni veitist einkarjettur til
að koma upp sjóveitu til fiskþvott-
ar í Ejgum. Þegar slík sjóveita er
komin upp, skal bæjarstjórn hafa
einkarjett á sölu sjávar til fisk-
þvottar og skal öllum útgerðar-
mönnum og öðrum er fisk verka
skylt að nota sjó frá sjóveitunni-
Kostnaðaráætlun fylgir frá vita-
málastjóra og gerir hann ráð fyr-
ir, að sjóveitan kosti 73 þús. kr.
Frv. vísað til 2. umr. og allshn.
Breyting á hafnarlögum fyrir
Vestmannaeyjar, flm. Jóh. Jós. —
Frv. þetta er einnig flutt samkv.
tilmælum bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja og fer fram á, að setja
festa-, lesta- og uppsátursgjöld af
vjelbátum hliðstæð opinberum
gjöldum. — Frv .vísað til sjútvn.
Breyting á 1. um útsvör, fl.
Einar Jónsson og G. Sig. Frv. er
flutt að ósk allmargra hrepps-
nefndaroddvita í Kangárþingi og
fer fram á að heimila sýslunefnd
að hafa aðra gjalddaga á útsvör-
um, en útsvarslög mæla fyrir.
Allshn. mælti með frv. með þeirri
Vórfrv|]T 'þi’J
breytingu, að þetta yrði lagt á
vald hreppsnefnda, en samþykki
sýslunefnda áskilið. Var það samþ.
og frv. afgr. til 3. umr.
Bygging Háskðla.
Efri deild.
Stjórnin flytur frv. um bygg-
ing Háskóla, og er það samhljóða
að efni til frv. því, er samþ. var í
Ed. á síðasta þingi. Samkvæmt
frv- er stjórninni heimilt að láta
reisa byggingu fyrir Háskóla ís-
latids á árunum 1934—1940. Höfuð
byggingin má kosta alt að 600 þús.
króna, og skal verkið framkvæmt
eftir því, sem fje er veitt til þess
á fjárlögum, eða með lántöku eftir
heimild Alþingis. — Bæjarstjórn
Reykjavíkur hefir samþ. að gefa
Háskólanum til kvaðalausrar eign-
ar 8—10 hektara af landi, suð-
vestur af tjörninni. Er ætlast til
að reisa þar Háskóla og stúdenta-
garð. — Frv. var vísað til 2. umr.
og mentamálan.
Úrskurðairvald sáttanefnda, flm.
Pjetur Magnússon. Samkv. frv. er
lagt til, að í skuldamálum, þar sem
skuidarhæðin nemur eigi meira en
500 ltr. skuli sáttanefnd kveða
upp úrskurð, ef þess er krafist og
kærði eigi mætir, án þess að hafa
lögleg forföll. P. M. mælti með frv.
og gat þess, að lögin frá 1911, um
úrskurðarvald sáttanefnda, hefðu
verið sett til þess að greiða fyrir
meðferð glöggra og óbrotinna
skuldamála og draga úr óeðlilegum
köstnaði við innheimtu á smærri
skuldum. En í þessum lögum væri
hámark skuldarhæðar, sem úr-
skurða má um, ákveðið 50 kr. —
Hjer væri lagt til, að hækka þetta
hámark upp í 500 kr. og væri það
síst of hátt, þegar miðað væri við
breytingar þær sem orðnar væri á
raunverulegu gildi peninga. —
Frv. var vísað til 2. umr. og allshn.
Ofsðkparherferðin
gegn dr- Helga Tómassyni.
Sex undirtyllur stjórnarinnar fá
dóm fyrir meiðyrði.
Vafalaust hefir engin stjórnar-
framkvæmd mælst eins illa fyrir
meðal almennings og brottrekstur
dr. Helga Tómassonar frá Nýja
Kleppi. Þegar dr. Helgi var rek-
inn frá Kleppi, voru þar 60—70
sjúklingar. Eigi er unt að lýsa því
eymdar ástandi sem ríkti á spí-
talanum eftir brottför dr. Helga.
Þessi fullkomnasti og glæsilegasti
spítali landsins breyttist á svip-
stundu í eins konar fangelsi, þar
þar varnarlausir sjúklingar voru
innilokaðir og fjötraðir jafnvel
með festum.
En stjórnin ljet sjer ekki nægja
að reka dr. Helga Tómasson fyr-
irvaralaust frá starfi sínu á Nýja
Kleppi. Samtímis hóf hún þá sví-
virðilegustu og ódrengilegustu of-
sóknarherferð gegn honum, sem
nokkuru sinni hefir þekst í siðuðu
þjóðf jelagi. Hún rægði og níddi dr.
Helga í blöðum sínum, og þegar
hún sjálf fór skemtiferðir á ríkis-
sjóðs kostnað, ljet hún imdirtyllur
sínar halda níðingsverkinu áfram.
Komu þeir hver af öðrum: Gísli
Timaritstjóri, Haraldur Alþýðu-
blaðsritstjóri, Halldór Kiljan Lax-
ness, Halldór Stefánsson alþm.,
Guðbrandur Magnússon og aðrir
aðstandendur kosningasnepils
Framsóknar hjer í bænum („Ing-
ólfs“).
Dr. Helgi Tómasson höfðaði
meiðyrðamál gegn þessum „legát-
um“ stjórnarinnar. Hefir Björn
Þórðarson lögmaður nii kveðið
upp dóm í nokkurum þessara meið
yrðamála, og hefir niðurstaða
þeirra orðið sem h.jer segir:
Mál
Haralds Guðmundssonar.
Haraldur dæmdur í 75 kr.
sekt, til vara 5 daga fang-
elsi; málskostnaður 94 kr.
Dómsniðurstaðan er á þessa leið:
Því dæmist rjett vera:
Framangreind meiðandi og
móðgandi ummæli skulu vera dauð
og ómerk.
Stefnduir, Haraldur Guðmunds-
son, greiði 75 króna sekt í ríkis-
sjóð og komi í stað sektarinnar
ef hún verður ekki greidd áður
en aðfararfirestur á máli þessu er
liðinn 5 daga einfalt fangelsi. —
Málskostnað greiði stefndur stefn-
anda með kr. 94.00.
Dómdnum ber að fullnægja inn-
an fimmtán daga frá lögbirtingu
hans, að viðlagðri aðför að lögum.
Björn Þórðarson.
Mál
Halldórs K. Laxness.
H. K. L. dæmdur í 150 kr.
sekt, eða 1Ö daga fangelsi
og málskostnað 75 kr.
Dómsniðurstaðan er á þessa leið:
Því dæmist rjett vera:
Framantalin meiðandi og móðg-
andi ummælá skulu vera dauð og
ómerk.
Stefndur, Halldór Kiljan Lax-
ness greiði kr. 150.00 sekt í ríkis-
sjóð og komá í stað sektarinnar
ef hún verður ekki greidd áður
en aðfarar frestur í máli þessu er
liðinn, 10 daga einfalt fangelsi.
Svo greiði stefndur og stefnand-
anum Helga Tómassyni kr. 75.00
í málskostnað.
Dóminum að fullnægja innan
fimmtán daga frá lögbirtingu hans
að viðlagðri aðför að lögum.
Björn Þórðarson.
>
Mál
Guðbrands Magnússonar, Hann-
esar dýralæknis og Gunnars
Árnasonar.
Hver þeirra dæmdur í 75
kr. sekt, eða 5 daga fang-
elsi og 100 kr. í málskostnað
Dómsniðurstaðan er á þessa leið:
Því dæmist rjett vera:
Framangreind meiðandi og
móðgandi ummæli skulu vera dauð
og ómerk.
Stefndir, Guðbrandur Magnús-
son, Hannes Jónsson og Gunnar
Ámason greiði hver 75 kr. sekt
í ríkissjóð og komi í stað sekt-
arinnar hjá hverjum þeirra um
sig, ef hún varður ekki greidd
áður en aðfararfrestur í máli þessu
er liðánn, 5 daga einfalt fangelsi.
Svo greiði stefndir og in solid-
um stefnandanum Helga Tómas-
syni kr. 100 í málskostnað.
Dóminum að fullnægja innan
fimmtán daga frá lögbirtingu hans
að viðlagðri aðför að lögum.
Bjöm Þórðarson.
*
Mál
Halldórs Stefánssonar alþm.
Halldór dæmdur í 100 kr.
.sekt, eða 7 daga fangeísi
og 94 kr. málskostnað.
Dónisniðurstaðan er á þessa leið: \
Því dæmist rjett vera:
Framantalin meiðandi og móðg-
andi ummæli skulu vera dauð og
ómerk.
Stefndur, Halldór Stefánsson
greiði 100 króna sekt í ríkissjóð
og komi í stað sektarinnar ef hún
verður ekki greidd áður en að-
fararfrestur í máli þessu er liðinn,
7 daga einfalt fangelsi. Svo greiði
stefndur og stefnandanum Helga
Tómassyni kr. 94.00 í málskostnað.
Dóminum að fullnægja innab
fimmtán daga frá lögbirtingu hans
að viðlagðri aðför að lögum.
Bjöm Þórðarson.
bagluk.
Veðrið (þriðjudagskvöld kL 5j:
Eunþá er hægviðri og úrkomulaust
um alt land, en víða er orðið þybt
í lofti. Hitinn er mestur í Vest-
mannaeyjum 4 stig, en lægstur á
Austfjörðum -u 2 stig. Um Norð-
ursjóinii er lægð, sem veldrn- NA-
strekkingi á Bretlandseyjum og S
Færeyjum. Er kuldaveður og víða
snjókoma í NV og Mið-Evrópu.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg-
viðri. Skýjað loft, en sennilega úr-
komulaust-
Jón Leifs. Forlagið Kistner &
Siegel í Leipzig, sem gefur úb
rímnadanslögin op. 11 eftir J4n
Leifs, hefir nú einnig gefið út eft-
ir hann fjögur lög fyrir píanó-
forte op. 2 í nýrri útgáfu. Þjóð-
lagaheftið hefir Jón Leifs,. sem Út
kom í fyrra hjá Kallmeyer-Verlag
í wolfenbiittel, Berlin, hefir þegav
selst erlendis í mörg hundruð eia-
tökum. (FB).
Meðal farþega á Dettifossi sið-
ast var Guðmundur Jónsson vjel-
fræðingur frá Stokkseyri, sem hef-
ir dvalist við vjelfræðinám í Þýska
landi. Vann hann fyrst við diesel-
vjelasmíði lijá herskipasmíðastöðy-
unnm í Kiel en stuudaði nú síðast
verkfræðanám við skólann í Stem-
berg.
Rúmföst í 20 áar. Hjer í bænum
er kona ein, sem legið hefir rúm-
föst í 20 ár, krept af liðagigt. Hún
hefir aldrei getað komist sjálf-
bjarga húsa á milli, allan þenna
tíma, getur ekki einu sinni komist
hjálparlaust um þvert gólf. Nokk-
uru fje hefir verið safnað handa
konu þessari til þess að liún gæti
keypt sjer viðtæki. — En betur
má ef duga skal. Lesendur Morg-
unblaðsins ættu að hugleiða hörm-
ungarástæður þessarar konu, og
leggja fram til samskotanna þfá
upphæð sem á vantar. Tekið á móti
samskotum á afgreiðslu blaðsins. ,
Utanfararstyrkir lækna. Tveir
hjeraðslæknar, Pjetur Thoroddsen
og Árni B. Helgason, hafa'nýlega
siglt og vænta þess að fá utan-
fararstyrk eftir samtali við land-
lækni. Hann hefir undanfarið ráð-
ið mestu eða öllu um styrki þessa.
En þegar til kom, neitaði dóms-
málaráðherra um styrk vegna þess
að læknar þessir væru í Læknaf je-
lagi íslands! Þeir verða ekki marg
ir, sem fá utanfararstyrk eftir
þessu. Nú er eftir að vita hvort
þingið vill láta gabba læknana á
þennan hátt. (Læknablaðið).
Dr. Skúli V. Gnðjónsson, í Kaup
mannahöfn, hefir nýlega tekS5
danskt embættispróf í læknisfræði.
Hann veitir m. a. forstöðu efna-
)