Morgunblaðið - 15.03.1931, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
Takið það
nógu
snemma,
BíðiS eklci með
laka Fersól, þangað tH
þét erud orília Usia
Kyrse'ur oa Innivutui tUlmrfrj ArU
* líffaenn 09 svekki* líkamdnwftoM. Ml *» •*
Itn 1 'augavciklun, m*9* ofl nfinaeiíkilf"niim
1 vöövum 09 liOamonua* nvefnlnve^ nfl JriUtlu
xq ol fljótum ellisljól«nia.
wyrjiö þvt 6traks I dag i8 »ot» P«*M* ^
%«íheldur þann lífskraft sew Iikaml»
Fersól D. er heppilegra ffrit þt •••
«altingarörDugleiHa-
Varist eftirlfklasar.
Fæst hjá hóraöslæknum, lyf&ðhaa «fl*
Dilkakjöt.
KLEIN,
sími 73.
Styrlohrogn
(kaviar)
í glerkrukkum, nýkomin. —
Sjerstaklega Ijúffeng.
Miölkurfielag Reykiavfkur
SHtesman
er stðra orðið
kr. 1.25
á borðlð.
lolasslan *i
Sími 1514.
Til Keflavíkur,
Sandgerðis og Grinda-
víkur daglegar ferðir
frá
Steindórl.
Sími 581.
E66ERT CLAESSEH
tæstarjettarmálaOutningsmafSur.
Skrifstofa: Hafnarstræti 5.
'871. Viðtalstími 10—12 1. h.
^ýkomið mikið ai
Blóma- og
Jurtafræ.
Vald. Ponlsen.
Sími 24.
filæní egg.
18 anra.
4
hann lióf sjálfstætt verslunarstarf
og lengst af þeim tíma vann hann
hjá Garðari stórkaupmanni Hísla-
syni ,ýmist sem fulltrúi við stór-
sölu í Reýkjavík eða sem verslun-
arstjóri við verslun hans í Ólafs-
vík.
Hreggviður sál. var sonur Þor-
steins Ólafssonar frá Miðhúsum í
Garði og konu hans Guðrúnar Jón
asdóttur. Var faðir hans alþektur
formaður og aflamaður á sinni
tíð í Garðinum. Fæddur var Hregg
viður 5. okt. 1880 og þannig rúm-
lega fimtugur er hann dó.
í Latínuskólann gekk hann í
nokkur ár, en er foreldrar hans,
nálægt síðustu aldamótum, fluttust
til Ameríku hætti hann námi og
fór þangað með þeim. En er þau
ekki gátu unað þar, komu
þau aftur heim til gamla laudsins
eftir 2VÓ árs dvöl vestra, hann, for-
eldrar hans og systkin er vestur
fórn.
í skóla kyntist jeg Hreggvið
sál. fyrst og þótti þá þegar vænt
um hinn viðmótsþýða dreng, enda
nmriu skólabræður hans allir minn
ast hans með hlýjum hug, því
kær. var hann okkur öllum; — að
vísu vill hinn líðandi tími einatt
draga blæju gleymskunnar yfir
liið liðna, en gamlar myndir læð-
ast þó aftur í hugann er harm-
fregnin fer yfir, og er vjer minn-
umst nánustu ástvina þess, sem
kallaður er, og hugsum oss hve
harmur þeirra er sár og djúpur.
En einkum er það eðlilegt að
gamlar og nýjar myndir komi upp
í huga mínum, er Hreggviður lifir
ekki meir, hæði frá æsku- og
þroskaaldri hans, er vjer aftur
dvöldumst saman um 9 ára,skeið í
Ólafsvík og rifjuðum upp æsku-
draumana og tókum þar sameigin-
lega þátt í hinu atarfanda lífi með
báráttu þess. Enda var hann mjer
altaf kær vinur og einnig, þótt
leiðirnar skildust að.
Hreggviður sál. var tvígiftur,
fyrri kona hans var Guðbjörg
Hansdóttir. Þau eignuðust tvö
börn sem bæði eru uppkomin.
Eftir þriggja ára elskuiega sam-
búð misti hann hana, árið 1907
Tveim árum síðar gekk hann að
eiga Herdísi Jóhannesdóttur, kaup
manns, Pjeturssonar frá ísafirði,
en þeim varð ekki barna auðið.
Nú hafa brostið fagrar vonir fyrir
henni nm bjarta framtíð við hlifi
eMkaðs eiginmanns, endurminning-
arnar efnar eftir. Það er sárt að
kveðja. hinstn kveðju, en sárara
er þó, að fá ekki einu sinni að
kveðja þá, sem maður elskar, við
komu dauðans.
Vjer skiljum og fhenum kve
dapurt það er fyrir eiginkonu og
móður, að fá ekki framar að njóta
elsku og umhyggju þessa kæra
vinar og sonar, fyrir börn hans
og systkin að mega ekki líta hann
meir. En bak við alt er kærleiks-
hönd að starfi, sem leiðir alt að
vegum blessunarinnar, einnig það,
sem oss mönnum finst örðugt og
óskiljanlegt, hönd, sem er fær um,
að breyta myrkri í ljós, og dauða
í líf.
Megi þessi blessaða náðarhönd
leiða þig, vinur, inn á ljósanna
björtu lönd, hugga konu þína og
móður, börn þín og systkin, alla
sem þú unnir hjer á jörð.
Blessuð sje minning þín á meðal
vor.
Guðm. Einarsson.
Úlalnr V. Óleigssou
Að morgni hins 11. þ. m. ljest í
Hafnarfjarðarspítala Ólafur V.
Ófeigsson kaupm. í Keflavík. —
Hann var fæddur að Fjalli í Ár-
nessýslu 24. maí 1869. Voru for-
eldrar hans Vilborg Eyjólfsdóttir,
hreppstjóra í Auðsholti í Biskups-
tungum, og Ófeigur Ófeigsson
hreppstj. að Fjalli Vigfússonar.
25 ára gamall fór Ólafur að heim-
an til Reykjavíkur; vann í 4 ár
við utanbúðarstörf við Edinborg-
arverslun, er Ásgeir Sigurðsson
veitti forstöðu. í sept. 1899 rjeðst
hann sem verslunarstjóri í Kefla-.
vík við útbú, sem þar var stofnað
frá nefndri verslun.
Var hann altaf syðra, að und-
anteknum 3 árum, sem hann var
í Reykjavík við Vaðnesverslun svo
nefnda. Verslunarstörfin, svo sem
alt annað er hann stundaði, rækti
hann með stakri atorku og sam-
viskusemi. Um langt skeið tók
hann þátt í ýmsum trúnaðarstörf-
um í sveit sinni, og engu síður
kvað mikið að afskiftum hans í
þágu ýmissa útgerðarfjelaga innan
Keflavíkur. Skemst frá sagt: hann
naut að verðleikum trausts og virð
ingar samherja sinna og nágranna.
Að vísu átti hann veikar hliðar,
en hjelt sig þó altaf innan vje-
banda heimilis síns og misti aldrei
sjónar á skyldum sínum, bæði inn
á við og út á við. 1899 í sept.
kvæntist Ólafur sál. Margrjeti
systur Ásgeirs verslunarstj. Edin-
borgar. Ljest hún ári síðar. Haust-
ið 1901 kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni Þórdísi Einarsdóttur.
Ólafi varð 5 barna auðið: Hrefna,
gift Erlendi Pálmasyni stýrim. í
Rvík. Ásgeir dýralæknir í Borg-
arnesi. Bragi læknir í Hafnarfirði.
Halldóra gift Gíeir Zoega framkv,-
stj. í Hafnarfirði. Vilborg heima,
í föðurhúsum. Bróðurson sinn og
nafna tók Ólafur í fóstur ársgaml-
an; naut hann ástríkis og menn-
ingar hjá þeim hjónum, engu síð-
ur en þeirra eigin börn. Enn frem-
ur ólust þar upp að miklu leyti
tvö bróðurbörn konunnar.
Margt góðra og göfugra manna
minnist Ólafs sál. þakklátlega
fyrir samstarfið og drengilega
kynningu.
Hann kvaddi eins og hann hafði
lifað: einlægur trúmaður á eilíft-
líf, sem hetja og prúðmenni.
Kunnugur.
Hugvitsmaður lá.tinn.
Sir Charles Parson, sem fann
upp „túrbínuna“, er nýlega lát-
inn. Hann varð 76 ára gamall. 1902
sæmdi Royal Society hann Rum-
fordmedalíunni fyrir uppfinning
sína og mörg önnur heiðursmerki
hlaut. hann um æfina.
Nýkomið :
Rúsínur, Sunmaid. — Sveskjur 3 teg.
Bl. ávextir þurk. — Apricots þurk. 2 teg.
Epli þurk. 3 teg. — Perur þurk. ex. choiche.
Ferskjur þurk. ex. choiche.
Eggert Kristjánsson & Co.
L D D 0.
Taflmenn. — Taflborð. — Spil. — Spilapeningar o. fl.
BóMaverslnn Isaioldar.
Bogi Jóhannesson
sútari, Laugaveg 54, hefir fengið framselt bú sitt aftur
til frjálsrar meðferðar
Skiftaráðandinn í Reykjavík, 14 .mars 1931.
Bjfirn Þðrðarson.
Stiörnarsklftin ð Spðni.
Baráttan milli konungsins og
lýðveldissinna.
___ ___ !
Sanchez Guerra tókst ekki að
mynda stjórn á Spáni. Konungur-
inn fól honum stjórnarmyndun
eftir fall Berenguers, eins og áður
hefir verið skýrt frá. Guerra ætl-
aði sjer að mynda stjórn með
þátttöku frjálslyndra konungs-
sinna, lýðveldismanna og sósíal-
ista. Hann leitaði að ráðherraefn-
um í fangelsunum, á meðal for-
ingja lýðveldismanna og sósíalista
er teknir voru fastir eftir upp-
reisnartilraunirnar í desember. En
þeir neituðu að taka þátt í stjórn
á meðan Alfons 13. situr við völd.
En Guerra gafst þó ekki upp.
Þriðjudaginn 17. febniar gekk
hann á fund konungs og hafði þá
ráðherralistann í vasanum.Klukku
stund seinna kom Guerra aftur
frá konungi, og var þá tilkynt
opinberlega, að Guerra hefði ekki
tekist að mynda stjórn.
Ráðherraefni Guerra voru flest
meira eða minna ótryggir kon-
ungssinnar. Konungurinn hafði
ýmislegt við ráðherralistann að at-
huga. En þar að auki hað Guerra
konunginn að skrifa undir skjal,
þar sem konungurinn átti að af-
sala sjer fyrst um sinn rjettinum
til þess að rjúfa þing, gefa út
tilskipanir o. fl. í rauninni átti
hann að afsala sjer völdum um
stundarsakir, eins og Ludvig 16.
eftir flóttatilraunina 1791. Hið
fyrirhugaða þjóðþing átti svo að
ákveða, livort konungurinn ætti að
fá rjettindi sín og vald sitt aftur
að nokkru eða öllu leyti. Þing-
kosningarnar áttu með öðrum
orðum að verða einskonar þjóð-
aratkvæði um konungdóminn á
Spáni. „Le Journal" o. fl. frönsk
blöð segja. að konungurinn hafi
fallist á þessar kröfur, þegar Guer-
ra tókst stjórnarmyndun á hend-
ur. En konungurinn neitaði að
skrifa undir þegar á átti að herða.
Guerra tókst því ekki að mynda
stjórn- Hann ráðlagði konunginum
að fela A1 varez, foringja róttækra
umbótamanna, stjórnarmyndun. —
En það varð þó ekkert úr því.
Konunginum þótti auðsjáanlega
áhættumikið að leggja stjómar-
taumana í hendur róttækra vinstri
manna. Og eindregnum konungs-
sinnum þótti það líka varhuga-
vert. Á meðan Guerra samdi við
lýðveldismenn í fangelsunum,
tókst að lioma á samvinnu milli
allra áreiðanlegra konungssinna,
t.il þess að vernda konungdóminn.
Að kvöldi 17. febrúar var alt
landið lýst í hernaðarástandi og
ritskoðun fyrirskipuð að nýju. Og
konungurinn fól Aznar aðmírál
að mynda stjórn. Hann var flota-
málaráðherra í stjórn de Rivera.
Hinn 18. fehrúar myndaði Aznar
stjórn með þátttöku hægrimanna
og frjálslyndra. Allir ráðherrarair
eru eindregnir konungssinnar. —
Romanones greifi, foringi frjáls-
lynda flokksins, ,er utanríkisráð-
herra og Berenguer, fyrverandi
stjórnarforseti, er hermálaráðherra
Nýja stjórnin hefir lýst yfir því,
að hún ætli sjer að stofna til þing-
kosninga einhvern tíma í sumar,
og þingið eigi að endurskoða
stjórnarskrána. En andstæðingar
stjórnarinnar halda því fram, að
stjórnin æt-li ekki að leyfa þing-
inu að hreyfa við rjettindum kon-
ungsins eða. minka vald hans. Þeir
telja víst, að stjórnin muni því
beita óleyfilegum brögðum til þess
að tryggja sjer meiri hluta við
þingkosningarnar. Andstæðingar
stjórnarinnar segjast því ekki ætla
að taka þátt í kosningmmm. Þeir
heimta að konnngurinn fari úr
landi, þangað til þjóðin sje búin
að ákveða stjórnarfyrirkomulagið
í landinu. Og enn fremur telja
þeir nauðsynlegt, að sú stjórn, er
stofni til þingkosninga, sje skipuð
fulltrúmn allra vi*striflokkanna-
Fi’anska stórhlaðið „Le Temps“
álítnr, að það hafi verið óhyggi-
legt af konunginnm, að liann ljet
ekki Alvarez mynda stjórn. Það
getur haft alvarlegar afleiðingar
í för með sjer, ef andst-æðingar
konungsins taka ekki þátt.í ltosn-
ingunum, en reyna að koma kröf-
um sínum fram annars staðar en
í þinginu. Byltingahættan hefir
síst minkað. þótt konungorinn hafi
nú unnið sigur í hráð. Og langt
um meira en konungsvaldið er í
liættu, ef stjórnarhylting hefst á
Spáni. Margir óttast, að bylt-ing
á Spáni muni leiða til þess að