Morgunblaðið - 19.04.1931, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.04.1931, Blaðsíða 7
M OKGUNBLAF/IÐ 7 ■2Z t ) I ( \ Salan á All-Br aa „KF.T.T.OGrQS“ eykst daglega, á- stæðan er afar einföld. ,Betri nje hollari fæða er ófáanleg'. Borðað með mjólk eða mjólkurmat. Insin útsala en verðið afar lágt. Morgunkjólaefni kr. 1.95 í kjól- inn. — Kvenskyrtur frá kr. 0.95. Feikna órval af heilum peysum frá kr. 5.50—38.00, hin víðfrægu Wienar-model. Einnig golfbreyjur, afar ódýrar. Hvít ljereft frá kr. 0.75. Sokkar frá 0.75. Handklæði frá 0.75, og nokkrar Ulsterkápur seldar með hálfvirði. Fyrir karlmenn: Sokkar f rá 0.50, hvítar skyrtur frá kr. 4.75, brúnar frá kr. 4.50. Einnig mikið iirval karlmanna- föt og fataefni, afarlágt verð. Komið og skoðið meðan úrvalið ei mest. Wienarbúðin, Laugaveg 46. Allstonar orænmeti 09 nýir ávextir. NÝLEBÍDUVÖRUDEILD JES ZIMSEN. Mjólhurbú Flóamanna 1. flokks mjólkurafurðir. — Skjót afgreiðsla. — Alt sent heim. EfifiERT CLAESSEN hæstarjettarmálaflutningsmaður. Skrifstofa: Hafnarstræti 5. Sími 871. Viðtalstími 10—12 f. h. Ættlerar. Einar hjet maður. Hann var Þorgilsson Oddasonar, hins mesta afarmennis. Einar var maður óvitur. Hann tók við ríki miklu með mannaforráðum. Gerðist hann hlutdeilinn og hinn mesti uppi- vöðslumaður. En á hverjum hlut lijelst honum jafn illa og hann var honum vel í hendur búinn. Þvarr ríki lians og sæmd jafnhliða, og mun það dómur sögunnar, að við andlát sitt hafi hann í fyrsta sinn borið hinn betra hlut frá borði. " Margt bar til þess að Einar fjekk ekki haldið sæmd sinni, en þar rjeði þó mestu, að hann var óvandur að fylgismönnuin og mál- efnum. Hændi hann að sjer lands- horná lýð, þjbfa og ránsmenn og lagði sæmd sína við þeirra mál- efni. — Segja má að vökl væru lögð upp í hendur Tryggva Þórhallssyni. — Hann var maður lítt reyndur, er liann varð stjórnarformaður, og þó helst að illu. Hann var kunnur orðinn að ósannsögli og flasfengi, og þótti maður grunnúðugur. En þó hefði alt getað farið stórslysa- laust ef hann hefði gerst vandur að virðingu sinni og fylgismönn- um. En því fór mjög fjarri. Hann virðist enga dómgreind hafa á því, livað sæmir manni í hans stöðu. Og um mannavalið fór brátt svo, að landshornamenn og allskonar ófremdarlýður safnaðist að honum í ávinningsskyni. Hefir hann ekki verið Ijisari að leggja sóma sinn við málefni annara en þeirra. Tryggvi Þórhallsson hefir gort- að af því, að hann hefði megin- fylgi sitt meðal bændanna. Nýlega hjelt hann landsfund hjer í Reykja vík og kallaði „bændafund“, en er Tíminn taldi upp fundarmennina, reyndist svo að aðeins 35% voru jbændur. Hitt var málalið og alls- konar landsliornalýður. Lýður þessi hefir fylgt Tr. Þ. fast, meðan hann hafði gnægð í búi, en nú bar það til, að Tr. Þ. þurfti á mönnum að kalda. Hann hafði brotið stjórnarlög’ landsins og beitt ofbeldi við Alþingi íslend- inga. Nú reyndi á liðsmennina, því hörð sókn var að Tr. Þ. og bárust þegar á hann sár. En livernig fór þá? 1 Rvík þorði enginn að kalda uppi fyrir hann svörum. Flestir földu sig, eða fóru huldu höfði, eins og ráðlierrarnir. Og þegar rigna tók ádeilum utan af landi úr hverjn bygðarlagi, var eins og (allir Framsóknarmenn væru alt í einu þurkaðir burt af landinu. Eng inn ljet á sjer bæra til varnar stjórninni. — Þótt Einar Þorgilsson væri ætt- leri, sæmir þó ekki að honum sje misboðið í samanburði. Einar hafði aldrei menn sína að skildi, seldi þá aldrei undir öxi, þá síst er þeir höfðu mest til saka unnið. T^yggvi Þórhallsson bauð að framselja báða meðráðherra sína, ef hann fengi með því haldið sínu eigin auma lífi. Mjólkurflutningur gengur erfið- lega frá mjólkurbúunum eystra. Snóbílarnir eru hættir ferðum, enda oftast í lamasessi, en veg- urinn illfær bílum ennþá. „Snmargjöi“ Barnavinafjelagið „Sumargjöf1 ‘ hefir mannfagnað og fjársöfnpn nú um sumarmálin, eins og að undanförnu. Nýja vandaða bók með myndum, hefir hún gefið út, með úrvals lesefni fyrir börn. — Heitir hún Sólskin 1931. Hún er lieft í kápu, sem er eins sterk og band. Hún er jafnstór og í fyrra og kostar 2 kr. eins og þá. Sölu bókarinnar verður hagað öðru vísi nú en áður. Hafa báðir skólastjórar barnaskólanna gefið leyfi til þess, að hvert barn beri á morgun (mánudag) heim úr skólanuin eina bók til sölu. Er þessi aðferð tekin upp til þess að gera sem minst ónæði á götunum á sjálfan sumardaginn fyrsta. — Sumargjöf er vinsælust allra fje- laga, svo að sjálfsagt verða allar hendur á lofti til hjálpar nú eins og að undanförnu. Einkum mun bókin verði vinsæl. Hinir skemtb legu, fróðlegu og siðbætandi les- kaflar eru meira virði en verðið. En tvöföld ánægja að borga þess- ar tvær krónur, þar' sem þær styðja þarfasta fyrirtæki bæj- arins, að koma upp daglieimili fyrir börn, þar sem þau geti verið allan daginn í hreinu lofti utan bæjar og á grænu túni og undir góðu eftirlæti. Landið, sem fje- lagið fekk í fyrra, er þegar girt með ágætri girðingu, brotið og ræktað að miklu leyti. Er nú í ráði að koma þar á leik- velli, trjárækt og dagheimili, þeg- ar á þessu vori og það tekst, ef livert barn í skólanum selur ein- takið sitt. S. A. Björn O. Björnsson: Uestur-SkaftafBllssísla og fbúar hennar. Síra Þórður Tómasson ritar um bókina Vestur-Skaftafellssýsla og íbúair hennar. ________ l Mjög athyglisverð þók, — sem auk þess er prýðilega vönduð í öllum frágangi, skreytt mörgum fögrum myndum af íslenskri nátt- úru. Það er presturinn að Asum í Skaftártungu, sem hefir safnað og gefið lit bók þessa, en 40 Skaft- fellingar, flest ólærðir bændur, hafa ritað hinar mismunandi lýs- ingar, þótt þeir sjeu öðrum áhöld- um vanari en pennanum. Eru þó meðal höfundanna bæði prestar og aðrir lærðir menn. Samt sem áður eru það aðallega alþýðumenn, sem ritað hafa bókina, sem er um 250 bls. í stóru broti. Ovíða hefir baráttan við nátt- úruöflin verið erfiðari en einmitt hjer; og óvíða hafa gamlir siðir óg venjur haldist eins ósnortnar af erlendri tísku. Þrátt fyrir það eru Skaftfellingar engir eftirbátar í menningarlegu tilliti, um það ber meðal annars þessu ágæta bók fegurst vitni. Það er náttúra landshluta þessa, lifnaðarhættir og lífsbarátta, siðir og endurminningar, sem sagt. er frá, nokkurs konar spegilmynd sveitamenningarinnar, sem hefir mikið menningarlegt gildi. Bókin er prentuð í aðeins ca. 500 eintök- um. — Útgefandinn síra Björn, hinir mörgu samverkamenn hans, bæði hvað efni og myndir snertir og prentsmiðjan — ísafoldarprent- smiðja í Reykjavík — eiga allir jafn mikinn heiður skilið fyrir bók þessa, — það er óhætt að segja fyrir þetta einstæða verk. Ekkl Nlðarós Kaupið norsku kosta- mjólkina. Fæst í flest- nm verslun- um og í Heildverslun Garðars Gíslasonar, Reykjavik. heldur Trondheim. 18. apríl. FB. Norska aðalkonsúlatið til- kynnir: Samkvæmt norskum lög um frá 6. mars 1931, heitir borg sú í Noregi, sem „nú heit- ir Nidaros", frá sama degi að telja Trondheim. Biskupsdæmið og dómkirkj- an halda sínum gömlu nöfnum, sem sje ,Niðaróss biskupsdæmi' og ,Niðaróss dómkirkja'. Lýðueldið ð Spúnl. H Laugaveai 41. fáið þ]er alt tilheyrandi rafmagni og reiðhjðl, herra og dðmn. Sanngjarnt verð. Góð vara. Horðurlioslð ■ Madrid, 18. apríl. United Press. FB. Þegar lýðveldisstjórnin sat á fundi á föstudagskvöld, barst henni tilkynning frá Dowler sparnaðarráðherra, sem farið hafði til Barcelona. Var til- kynningin þess efnis, að Cata- lonia verði þátttakandi í spán- verska lýðveldinu. Hefir þv rætst vænlega úr þessu vanda máli, þar sem það hefði orðið mikill hnekkir lýðveldinu, og getað leitt til innanlandsóeirða, ef ekki hefði svo skipast mál- um, sem að framan greinir. Fjármálaráðherrann hefir til- kynt, að lýðveldisstjórnin viður- kenni allar fjármálaskuldbind- ingar Spánar, svo og allar samn ingagerðir Spánar við aðrar þjóðir. f fjármálaheiminum er þessi stefna talin góðs viti. — Fjármálastofnanir landsins hafa skilyrðislaust heitið stjórninni stuðningi sínum. Aðskilnaður ríkis og kirkju á Spáni. Barcelona, 16. apríl. United Press. FB. Macia hefir sagt í viðtali við United Press, að aðskilnaður ríkis og kirkju verði eitt af grundvall- armálum eatalonska lýðveldisins, en stjórninni sje ljóst, að það sje viðkvæmt og flókið mál og of snemt að hugsa um að koma að- skilnaðinum í framkvæmd eins og nú standa sakir. Madrid: Jordana hershöfðingi hefir verið sviftur landstjórastöð- unni í spánverska Marokko. Hann hefir flúið til Hert. Þjóðleikhús Norðmanna. Ríkisstjómin bannar bæjar- stjóm Óslóar fjárveitingu til þess. NRP, 18. apr. FB. Ríkisstjórnin hefir neitað að fallast á þá ákvörðun bæjar- stjómarinnar í Ósló, að verja 1,4 milj. kr. til nýja þjóðleik- hússins, þar eð fjárhagur borg- arinnar sje ekki góður, þar sem 1 milj. kr. halli verður á þessa árs núverandi fjárhags- áætlun. gefur fagran dimman gljáa Nýkomið: 7000 rnllnr veggfóðnr, Verð sem öllum hentar. Litir og gerS sömuleiðis. Útsalan heldur áfram á eldri birgðum. Verslnnin Katla. Laugaveg 27. Kolasalan n Sími 1514.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.