Morgunblaðið - 12.06.1931, Síða 3
MORGUNBLA ÐIÐ
3.
awwuBuiMuiiiiiiiiiinmwwww«tmniHmmiiiiiiiiiiii|
^ftorgnnH&^tð
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk
: = Rltatjörar: Jön Kjartanaaon.
.=§ Valtýr Stefknaaon.
Rltatjörn og afgrelöala: =
. = Auaturatrœtl 8. — 81 ml 600. =
AuelýalnKaatjörl: E. Hafbergr. =
AuKlýalngaskrlfatofa: =
-= Auaturatrœtl 17. — Slml 700. =
Heiaaaalmar: =
Jön K jartanaaon nr. 74Í. ==
Valtýr Stefánason nr. 1220. =
E. Hafberg nr. 770. =
ÁakrlftatrJald:
Innanlands kr. 2.00 á roánuöl. =
Utanlands kr. 2.60 á itiánulli. =
f lausasölu 10 aura elntaktfl.
20 aura meB Lesbök =
^i'Jiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniimœ
Kosningin.
Sigui' Sjálfstæðismanna í dag
«er undir því kominn að kjörsókn
verði góð.
Eftir reynslu frá fyrri kosning-
aim má telja' kosninguna góða ef
wm 9500 kjósa.
Til þess að menn geti fylgst
vel með í þessu megin atriði,
verður í dag reynt að birta sem
víðast og oftast- fregnir um það,
Jivað kosningunni líður.
Fylgist vel með þessum fregnum
-«g látið þær halda ykkur vakandi
mm það, að safna sem allra flest-
um kjósendum á kjörstað.
Enginn má ganga til hvílu í
kvöld fyr en liann liefir kosið og
•gert alt sem honum er unnt ■ til
jþess að fá aðra til þess að kjósa.
Sakir A-listamanna
Þð að rjettlát reiði bæjarmanna
ihljóti að þessu sinni að snúast
■rsjerstaklega gegn „Framsókn“
■svokölluðu, fyrir það, að liafa
vogað sjer að hafa menn í boði
hjer í þessum bæ, sem þeir hafa
svívirt og mannskemt árum sam-
-an, má þó ekki gleymast:
Að hermdarverk sín hefir Fram-
■sókn framið og aðstöðu sinni hefir
’hiín haldið vegna þess, að sósíal-
istar hafa veitt henni atbeina.
Hefðu sósíalistar ekki haldið
Ihlífiskíldi yfir stjórninni, hefði
iuin aldrei komist á laggirnar, og
hvenær sem þeir kipptu að sjer
■hendinni var líf hennar á enda.
Þetta sást á þingi í vetur, þegar
rsósíalistar sendu þeim „uppsagnar-
’hrjefið“.
Það er því meira en lítil ábyrgð,
*em á þeim hvílir, Og þetta alt
vegna bitlingafíknar þingmanna
flokksins.
Það er ekki gott að vita, livernig
'þeir ætla að fara að verja þetta
tiltæki frammi fyrir kjósendum í
Heykjavík.
Það er hætt við að þeir sjeu
-ekki upplitsdjarfir, þegar þeir
•eiga að ganga undir dóm kjós-
-enda í Reykjavík með þennan
-syndapoka á bakinu .
Sá poki á að verða þeim þung-
ur. —
Rej'kvíkingar eiga, án tillits til
flokka að refsa vægðarlaust þeim,
sem hafa stutt fjandmenn bæjar-
ins, beinlínis og óbeinlínis,
En eina rjetta refsingin á þessa
fjandmenn bæjarins er sú, að
:f]ykkjast á kjörstað og
kjósa D-listann.
Auglýsingar kvikmyndahúsanna
og aðrar auglýsingar, sem vanar
■eru að vera á 1. síðu er nú á 4.
:síðu.
Frambjóðenöur D-listans
- 5jálf5tceðisflokksin5. -
Kjósendur í Reykjavík eiga í
dag að skera vir því hvorn heldur
þeir vilja á þing, Magnús Jónsson
guðfræðiprófessor, .þriðja mann á
D-listanum, ellegar Sigurjón 01-
afsson.
Eins og kunnugt er, eru tveir
efstu menn D-listans, Jakob Möller
bankaeftirlitsmaður og Einar
Amósson prófessor vissir. Óþarfi
er að fjölyrða hjer um þingmahns-
hæfileika Magnúsar Jónssonar. —
Nægir að benda á, að vinsældir
hans og álit fer sí-vaxandi og
hefir þessi síðasta kosningabarátta asti og glæsilegasti ræðumaður
mjög aukið hróður hans. Með
stjórnmálaræðum hans í útvarp
og á fundum, hefir öllum landslýð
orðið það fyllilega ljóst, að Magn-
ús Jónsson er einhver sköruleg-
þjóðarinnar.
Magnús Jónsson prófessor skal
á þing!
Kosning hans er vís, ef aðeins
allir Sjálfstæðismenn í bænum
kjósa í dag.
C-listinn er
bæjarskömm.
Sagt er, að einhverjir Reykvík-
ingar ætli að kjósa C-listann, lista
stjórnarinnar.
Væri gaman að vita fyrir hvað
þeir ætla að kjósa hann.
Er það í þakklætisskyni fyrir
það, að stjórnin hefir sóað fje
landsins og steypt því í skuldir?
Er það þakklæti fyrir þingrofið ?
Er það aðdáun út af Danadekr-
inu og Berlíns-ástinni ?
Er það þakklæti fyrir Þórsfisk-
inn, sem skattþegnarnir eru látnir
borga að mestu leyti?
Er það fyrir' Gefjunardúkana,
sem annars hafa verið taldir ;,ó-
pólitískir“, eins og önnur sam-
vinnu-málefni ?
Er það fyrir auka-skattinn, sem
Jónas vill leggja á lóðir í Reykja-
vík einni til þess að fá enn skild-
ing til að sóa?
Er það fyrir Sogsvirkjunina og
velvildina til þess máls?
Er það fyrir það, að stjórnin
hefir lokað veðdeifdinni, og gert
mönnurn þannig ókleift að byggja
hús?
Er það fyrir smánaryrðin, „skríll-
inn“, „ómentaðir ræfilsaumingj-
ar“, „braskarar“, „Grimsbylýður“
o. s. frv., sem Jónas hefir úthlutað
Reykvíkingum á undanförnum ár-
um, þegar hann hefir verið að
smjaðra sig inn á bændur?
Er það fyrir andstöðuna gegn
því að Reykvíkingar fái sömu póli-
tísku rjettindi eins og aðrir lands-
menn?
Er til svo liundflatur lýður í
Reykjavík, að hann launi alt þetta
með atkvæði sínu í dag?
Slíkir menn mega vel heita
bæjarskömm.
Hjónabamd. í dag verða gefin
saman í hjónaband í Kaupmanna-
höfn ungfrú Ingiþjörg Stephen'sen
frá Bjarnanesi og Björn Jónsson
vjelstjóri hjá Eimskipafjelagi Is-
lands. Ungu hjónin búa á Gr'and
Hvers vegna
jeg kýs D listann.
Jeg kýr D-listann, lista Sjálf-
stæðisflokksins af því.
1. Að Sjálfstæðisflokkurinn er
eini lands-flokkurinn, eini flokkur-
inn, sem er fyrir ofan allan stjetta
ríg og óheilbrigðan fjandskap
milli bæja og sveita.
2. Að Sjálfstæðismenn eru þeir
einu, sem hafa sýnt það, að þeir1
sje færir um að fara með opinber
mál, hvort. heldur er lands eða
bæja-r, þannig að til heilla horfi,
og án hlutdrægni.
3. Að Sjálfstæðismönnum einum
er trúandi fyrir f járhag landsins,
fje mínu og þínu, sem af okkur er
tekið með liáum og þungbærum
sköttum.
4. Að Sjálfstæðismenn berjast
fyrir sönnu þjóðræði og jafnrjetti
ríkisþegnanna, án tillits til bú-
staðar eða flokks.
5. Að Sjálfstæðismönnum er ein-
um treystandi til þess að láta jafn-
an íslands málstað ráða, þegar
honum lendir saman við erlendan
málstað.
6. Að Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ir lxaldið sjer hreinustum af þeirri
stjórnmálaspillingu ,sem hinir
flokkarnir hafa sótt til annara
landa og flutt hingað til óbætan-
legs tjóns fyrir stjórnmála siðferði
þjóðarinnar.
7. Að Sjálfstæðismenn hafa jafn-
an reynt að berjast með sæmileg-
tfm vopnum, þó að andstæðing-
arnir hafi veitst að þeim með eggj-
um, hertum í eitri og reynt að
senda þeim ýmis gerningaveður.
Jeg Icýs Sjálfstæðisflokkinn, af
því að jeg tel hann einan mjer
samboðinn, og treysti honum ein-
um til þess að fara vel með um-
boð góðra manna.
Þess vegna fer jeg á kjörstað í
dag og
kýs X D.
Hotel í Kaupmannahöfn og koma
heim með Brúarfossi þann 22. þ.
mán.
Sljórnarklíkan
og Reykjavík.
Stjórnarklíkan, C-listamennirnir,
eru fjandmenn Reykjavíkur, og
afla sjer kjörfylgis út um land,
með því að svívirða Reykvíkinga-
og berjast gegn áhugamálum höf-
uðstaðarins.
Þeir eru á móti Sogsvirkjun,
móti húsabyggingum í bænum,
móti rekstrarlánum fyrir atvinnu-
rekendur, móti tillögum til bæja-
arstofnana eins og sundhallar,
móti því, að athafnalíf Reykjavík-
urbæjar fái að blómgast með eðli-
legum hætti.
Það sem þeir Framsóknarmenn-
irnir bjóða Reykvíkingum til þess
að bæta fyrir alla andúðina og
svívirðingarnar, er Þórsfiskur, sem
veiddur er fyrir almannafje og til-
búin föt, sem klæðaverksmiðjan á
Akureyri selur, til þess að fá mark
að fyrir dúka sína.
Búrt með hræsnarana úr valda-
stólunum, og spillinguna sem þeir
hafa leitt í íslensk stjórnmál.
Dagbók.
Veðrið (í gær kl. 5): Vindur er
nú hvass í Vestmannaeyjum og
þykt loft en þó rigningarlaust. —
Virðist lægðin frá Bretlandseyjum
hafa þokast vestur eftir í da-g,
en allar veðurfregnir vantar af
hafinu hjer fyrir sunnan landið.
Eru talsverðar líkur til þess að
áttin verði SA-læg hjer sunnan
lands á morgun og þá nokkur
rigning, að minsta kosti austan
fjalls. Á N og A-landi er NA-
kaldi og þurt veður en lieldur kalt.
Hiti á Raufarliöfn aðeins 2 stig,
en hjer suðvestanlands 11—12 stig
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Stinningskaldi á A. Skýjað loft
og sennilega dálítil rigning.
Ungbamavernd Líknar. For-
maður hjúkrunarfjelagsins Lílm,
hefir beðið Mgbl. að geta þess, að
sökum vaxandi annríkis við ung-
barnavernd fjelagsins hefir stjórn-
in ákveðið að halda stöðinni op-
inni tvisvar í viku; hingað til hefir
hún aðeins verið opin einu sinni í
viku. Framvegis verður stöð ung-
barnaverndarinnar því opin á
fimtudögum og föstudögum frá kl.
3V2—4%, á Bárugötu 2.
Óhróður Jónasar um Gagnfræða-
skóla Reykvíkinga. Svar gegn ó-
hróðri þessum í Tímanum í gær
mun birtast í Vísi nú í dag eftir
Guðna Jónsson magister.
Fánann að hún! Fánadagurinn
er í dag. í dag á þjóðin að kveða
upp dóm yfir þingræðis- og stjóm-
arskrárbroti Tryggva Þórhalls-
sonar. í dag verður úr því skorið,
livort hjer eigi áfra-m að sitja ein-
ræðisstjórn að völdum, eða þing-
ræðið skuli endurreist. í dag á
íslenski málstaðurinn að sigra og
er því skorað á bæjarmenn að
draga íslenska fánann að hún.
Sjálfstæðismenn! Kosningaskrif-
stofa Sjálfstæðisflokksins er í
Varð arhúsinu (uppi). Þar geta
lrjósendur fengið alla aðstoð og
upplýsingar viðvíkjandi kosning-
unni. Þegar hringt er á miðstöð,
nægir að biðja um skrifstofn Sjálf-
stæðisflokksins. Miðstöðvarstúlk-
urnar svara fljótt og vel.
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins
biður alt það fólk, sem beðið kefir
verið um að aðstoða við lrosning-
arnar og svo aðra, er vilja að-
stoða að mæta í Varðarhúsinu
(uppi) ekki síðar en kl. llþó árd.
í dag.
Skuggsjá, ræður og kvæði eftir
J. Krishnamurti, er nýkomin út.
Ritstjóri tímaritsins er frú Aðal-
björg Sigurðardóttir, en Stjörnu-
útgáfufjelagið í Ommen í Hollandi
mun vera útgefandi. Efni þessa
lieftis er: Kvæði, Viðfangsefni
lífsins, Lífið og persónuleikinn,
Spurningar og svör. Krishnamurti
að Eerde og tilkynningar um
starf Krishnamurtis. Efnið mun
að mestu þýtt úr „Star Bulletin“,
sem gefið er út í Ommen.
Miðstöð hefir óskað þess, að þeir
sem hringja til kosningaskrifstof-
anna í dag, biðji annað hvort um
númerin eða nöfn flokkanna, en
ekki bókstafi listanna, því það
geti valdið misheyrn.
Xnflúensan er nýlega komin til
Þórshafnar á Langanesi og hefir
óðfluga breiðst út um nærsveit-
irnar.