Morgunblaðið - 21.08.1931, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
aillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIlllllllllll; |
s
= t)tc«I.. fcLl. ArvAitar,
j= Ktt»t;ora.r: Jón XJ*rt*naaon.
= Víiltýr StwtánMon.
= HltetJOru ok afjfreltJel*:
= ▲uituratraetl 1. — Blae! Sðu.
= A.ugiýalnj{a»tJ6rl: B. Hafberc. =
= eusl Jeliijtaekrlf stota: =
= Aueturatreetl 17. — ílmt 7«0. =
Holnutslmar: =
:— Jön Kjartanenon nr. 741. =
= Valtýr Stef&naaon nr. lltð. =
= H. Hafbers nr. 770.
AskrlftasJald: =
Innanlande kr. 2.00 k stkuucl. =
= Utanlands kr. 1.B0 & m&nuBl. =
t lanaaaölu 10 aura elntaklB. =
10 aura at»B Leebök. =
1 llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllnS
Flng Prestons.
'London, 19. ágíist.
United Press. PB.
Preston kom til Goderich, On-
tario í da.g, og hjelt áfram áleiðis
til Sudbury í dag.
Sudbury 19. ágúst: Preston og
'Collington lentu lijer kl. 6.40 síðd.
FJugvjel þeirra er auðkend á
jjenna hátt: nr. 227 — W.
Frá Noregi.
NRP. 19 ágúst. FB.
Miklar þrumur og eldingai'
komu í Osló seinni hluta dags í
gær 'Og fylgdi þeim svo mikil úr-
koma, að menn muna ekki ann-
•að eins. Ofviðrið stóð yfir í þrjá
*tundarfjórðunga og leiddi af sjer
flóð í miðhluta. borgarinnar.
Eldingum sló niður allvíða í
iborginni og fjöldi símalagninga
bilaði.
Nautilus er nú farinn í rann-
sóknrferðina frá Svalbarða.. Bú-
ast menn við, að hann verði 3 vik-
iur í ferðinni, ef vel gengur.
NRP 20. ágúst FB.
Gran prófessor við háskólann í
•Osló hefir verið beðinn aS takast
■k hendur hafrannsóknir við strend-
ur Kanada. Hann hefir ákveðið að
■verða við beiðmnni og fer áður
langt um líður vestur um haf í
þessu skyni.
Tore Aaen, fyrrum ríkisendur-
skoðari og þingmaður frá Heið-
mörk, er látinn, 71 árs að aldri.
Samkvæmt skýi'slum hagstof-
unnar er meðalverðlagið níi aðeins
26% hærra en fyrjj- heimsstyrjöld-
ana. Verð á matvörum árið sem
leið hefir lækkað jim 13%.
framkvæmdir (Færeyjum
í lögþinginu í Færeyjum hefir
aaýskeð verið lögð fram 10 ára
áætlun frá danska dómsmálaráð-
herranum um ýmissar framkvæmd-
ir í Færeyjum. Fyrst og fremst
■er þar gert ráð fyrir að hafnir
■verði gerða.r í Klaksvig og Vest-
manhavn og að ríkissjóður Dana
leggi fram 4/5 af kostnaðinum,
‘en þorpin sjálf 1/5. Ennfremur
mtlar ríkissjóður Dana að láta
reisa geðveikrahæli í Færeyjum
■og er gert ráð fyrir að það kosti
470 þúsund krónur. Þá eru fær-
æyskum sveitarf jelögum fengnir
ýmissir nýir tekjustofnar, svo að
þau hafa meira fje til umráða en
/verið hefir. Það er alment talið
að Joannes Patursson hafi átt
Triimkvæðið a.ð því að þetta er
“fram komið.
Þingtíðindi.
Fjárlögin.
Efri deild.
Þi'iðja umræða fjárlaganna stóð
yfir frá kl. 1 á miðvikudag til kl.
2y2 á fimtudagsnótt.
Við þessa umr. komu undir at-
kvæði 80 breytingartillögur. Voru
þær flestar frá einstökum þing-
mönnum og nær því allar til hækk-
unar. En flestar voru' þessar tiíl.
smávægilegar.
Stjórnarflokkurinn hafði gert.
flokkssamþykt um að drepa allar
breytingartill. frá stjórnarandstæð
ingum, og voru því tilgangslitlar
þær ræður, sem fluttar voru til
að mæla með þessum till. En inn
í umræðurnar blönduðust þó mörg
óskyld mál. Jónas Jónsson hjelt t.
d. þrjár ræður, tvær af þeim lang-
ar rnjög, og voru þær eingöngu
um læknamálin og ýmsar erjur,
sem hann hefir persónulega átt í
við ýmsa menn hjer á landi und-
anfarin ár. Var geðveikismálið nú
rætt frá „ýmsum hliðum.“
Rjett áður en gengið var til atkv.
um breytingartill., hjelt Jón Þor-
láksson eina merkustu ræðu, sem
fiutt hefir verið í deildinni á þessú
þingi. Verður sú ræða birt síðar
hjer í blaðinu.
I fyrri hluta ræðunnar vítti
hann harðlega þann rugling, sem
orðinn væri á reikningsskilum rík-
isstjórnarinnar í sambandi við þá
fjárha<gsóreiðu, sem nú og undan-
farin ár hefði ríkt þar. Sagði hann
að nú væri ákveðið, að hafa lands-
reikning síðasta árs í nýju, ó-
glöggu og ruglingslegu formi, sem
alls ekki svaraði til þess forms,
sem væri á fjárlögum þess árs, svo
almenningur gæti þar ekki áttað
sig á, hvernig haain kæmi heim
við fjárlögin.
Þetta fjáriagafrumvarp, sem
hjer lægi fyrir, væri svo ruglings-
legt um aðgreining tekna og
gjalda, að aðeins bókfærslufróðir
menn gætu við rannsókn áttað sig
á þeim. Þar væri gjöldum ýmissar
ríkisstai-frækslu, sem auðvitað
hefðu áður staðið í gjaldabálki
fjárlaga, nú ruglað inn í tekju-
áætlunina. Og í gjaldabálknum
væri ýmislegt, sem ekki ætti heima
í samtölu gjaldanna. Alt virtist
gert til þess að gera óhægan eða
óframkvæmanlega.n almenningi
samanburð við umliðin ár.
Breyting varð sáralítil á frum-
varpinu í Efri deil'd. Var hvort
tveggja, að deildin hefir lítinn
tíma haft til að athuga það. Hefir
það og víst verið fyrir fra.m á-
kveðifj af stjórnarflokknum, að
standa saman gegn öllum breyt-
ingum.
Ema verulega breytingin var sú,
að samþykt var að heimila stjórn-
inni að taka 300 þús. kr. lán „til
þess að veita aðstoð sveita- og
bæjarfjelögum um atvinnubætur
gegn tvöföldu framlagi hlutaðeig-
andi sveitar- og bæjarfjelaga."
7 eða 8 breytingartillögur frá
fjárveitinganefnd voru samþykt-
ar. Leiddu þær til 15 þús. kr.
gjaldahækkunar. Helstar þessar
fjárveitingar eru: 3000 kr. viðbót
við stjórnarkostnað vitamála (til
aðstoðarmanna og mælinga). 1000
kr; liækkun til aukakenslu við Ak-
ureyrarskólann. 5000 kr. til starf-
rækslu háfjallastöðvar. 3000 kr. til
Pjeturs Jónssonar óperusöngvara,
2800 kr. til Tónlistarskólans.
Samþ. var tillaga um að heimila.
stjórninni að greiða alt að helm-
ingi þess tjóns, er hlotist hefir
af þrunanum á Flögu í Skaftár-
tungu „ef ástæður virðast til, eftir
að rannsókn hefir farið fram um
orsa.kir brunans/ ‘
Allur fjöldi þeirra breytingar-
tillagna, sem feldar voru, voru
smástyrkir til námsmanna, ýmist
til framhaldsnáms eða lokanáms,
ýmist. í vísindagreinum eða list-
um, — eða þá styrkir til annarar
menninga.rviðleitni eða menningar-
fyrirtækja.
Var næsta ógeðslegt að sjá, Aft-
urhaldsþykkskinnungana, er dag-
lega. leggja samþykki á óráðvand-
lega meðferð ríkisfjár í tuga og
hundraða þús. kr. tali, sta.nda með
reidda bolöxi yfir þessum smá-
styrkjuta til menningarmála.
Dæmi Hstralíu.
Til þess eru vond dæmi að
varast þau.
í Ástralíulýðveldinu búa rúm-
ar 6 miljónir manna og hafa heila
heimsálfu til umráða, Þar hafa
jafnaðarmenn ráðið miklu undan-
farið, hækkað kaup sem frekast
mátti og lagt þunga skatta á alla
sem eittlivað eiga. í mörgu liafa
þeir braskað og bygt mikið af stór-
hýsum. Meðal annars hafa þeir
ráðist í að byggja nýjan höfuð-
stað og var orsökin sú, að eilífur
eldur var á milli stærstu borganna
Melbourne og Sidney. Vildu báð-
ar hafa sambandsþingið og stjórn-
ina hjá sjer. Til nýja höfuðstaðar-
ins, Canberra^ hafa þeir vandað
með fádæmum. Fyrst sendu þeir
menn um land alt til þess að leita
að sem fegurstu og bestu borgar-
stæði, síðan buðu þeir til sam-
keppni um skipulag borgarinnar
um allan heim og fjekk amerískur
húsameistari fyrstu verðlaun en
Saarineu, finskur húsameistari
önnur. Síðan var tekið að byggja
borgina og byrjað á þinghúsinu,
sem kostaði fjölda miljóna og á
þó aðeins að vera til bráðabirgða.
Þar næst komu bústaðir allra em-
bættismanna, síðan leikhús og
margs konar skemtistaðir fyrir
þingmennina, svo þeim leiddist
ekki. \
Alt var mi þetta fagurt á að
lítá óg mikið talað um framfar-
irnar. En þó var dálítill hængur
á öllu þessu. Það hafði t. .d reynst
ómögulegt að halda uppi háa ka.up
inu nema með því að leggja á hátt
aðflutningsgjald á ýmsum varn-
ini, sem boðinn var ódýr frá iit-
löndum. Þetta leiddi aftur til þess
að vöruverð hækkaði ískyggilega.
og vildi þá háa kaupið nýtast. illa.
Þannig er verð á sykri þrefalt inn-
anlands við það, sem selt er til
útlanda.
Af öllu þessu spruttu svo nýir
erfiðleikar. Margt og mikið þurfti
að kaupa frá útlöndum og þá
þurfti að flytja jafnmikið út til
þess að borga, með. En með liáa
kaupinu og með öllum sköttunum
vildi framleiðsla á flestu verða
svo dýr, að erfitt varð að keppa
við önnur lönd. Urðu því kaup-
menn ma.rgsinnis að flytja vörur
sínar út með tapi og reyna svo
að jafna hallann með sölu innan-
lands með háu verði. Þó vildi út-
flutningurinn ekki hrökkva fyrir
innflutningnum og vantaði oft
mikið á.
Til þess að rijða bót á þessu kom
Ástral iumönnum ráð í hug: að fá
það, erá vantaði að láni hjá Eng-
lendingum. Hóflega var þó í þetta
farið til að byrja. með, en svo
varð alt vitlaust í stríðinu, og
skuldirnar uxu óðfluga með hverju
ári, því ætíð varð Stjórninni fjár-
vant. Er það nú orðið 'að orð-
taki í Ástralíu að „helsti atvinnu-
vegur landsins sje að taka lán.“
Að lokum fór þetta svo að skuld-
ir landsins urðu alls 12540 milj.
króna eða rúmar 2000 krónur á
hvert mannsbam, en árlegir vextir
og afborganir um 120 krónur á
mann!
Þá fór svo, fyrir tæpum tveim
árum að Englendingum þótti nóg
komið og neituðu að lána. einn eyri
framar, nema breytt yrði um alt
róðlagið.
Rjett um sama leyti skall yfir
ódæma verðfall á tveim helstu út-
flutningsvörunum: hveiti og ull.
Þær fjellu um helming!
Nú voru j eir nauðulega staddir
Ástralíumenn, þegar ekkert fekkst
lánað og vörurnar fjellu um leið.
Hvað tóku þeir til bragðs?
Stjórninni í New South Wales
fylkinu kom það til hugar að
borga ekki neitt! Hún taldi menn
allsendis ófæra til þess að standa.
í skilum með allar þessar skuldir
og væri því ekki um annað að
gera en gjaldþrot.
Sambandsstjórninni leitst þó
ekki á þetta ráð. Hún setti síðam
nefnd sjerfræðinga í fjármálum
og fekk meðal annars enskan fjár-
málafræðing til þess að taka þátt
í nefndarstörfunum.
Eftir nokurn tíma birtist álit
nefndai'innar. Það va^- í fáum orð-
um á þessa leið:
Landsbúar hafa í mörg ár lifað
yfir efni fram eins og sjá má á
skuldunum.
Eina leiðin til þess að bæta úr
þessu er fyrst og fremst að hætta
því að eyða meiru en aflað er,
þar næst sjá svo til, að spar-
semi og atorku, að meira sje aflað
en eytt er svo unt sje að grynna
á skuldunum.
Til þess að koma þessu í fram-
kvæmd er um tvent að gera: að
lækka öll laun og alt kaup til
mikilla. muna eða fella peninga í
verði. Síðara úrræðið taldi nefndin
miklu verra.
Hversu tóku menn þessum boð-
skap?
Menn brugðust yfirleitt illa við
og þótti það goðgá að lækka kaup-
ið. Var nefndin að sjálfsögðu ó-
tæpt skömmuð.
En þetta breytti ekki aðalatrið-
unum: að lán fekst ekki og verðið
hækkaði ekki á vörunum. Ríkis-
fleytan var strönduð á þessu skeri.
Og eitthvað varð til bragðs að
taka.
Um allan heim veittu menn því
mikla athygli hvað Ástralíubúar
tækju til bragðs. Eftir níu mánaða
umhugsun kom ráðning gátunnar.
Þá var farið að ráðum nefnd-
arinnar og kaup allra lækkað um
20% og dregið sem frekast má úr
innflutningi.
Eftir er nú að vita hvort þessar
ráðstafanir duga, en þær sýna- við-
leitni til þess að bjarga sjer.
Þetta höfðu þerr upp lir öllu
skuldabraskinu í Ástralíu.
„Slíkt fá þeir. sem sölin eta.“
Eftirgjöf Bandaríkjanna
á hernaðarskuldum ?
New York, 20. ágúst.
United Press. FB.
Journal of Commerce, sem er
fjármálablað mikils metið fyrúr
áreiðanlegar og fræðandi frásagn-
ir fjármálum viðkomandi, hefir
birt fregnir um það frá heimildum,
sem ritstjórnin telur góðar, að
stjórnin í Bandaríkjunum búi sig
undir að hernaða.rskuldirnar og
hernaðarskaðabætui'nar verði mink-
aðar. Biiist er við, að þær þjóðir,
sem ]iátt tóku í heimsstyrjöldinni,
fái skuldir sínar við Bandaríkin
helmingaðar.
Sparnaðarmál Breta.
London 20. ágúst.
United Press. FB.
Ríkisstjórnin sat á fundi níu
klukkustundir samfleytt í dag til
þess að ræða sparnaðarmálin. —
Engar fullnaðarákvarðanir vom
teknar viðvíkjandi tillögum uan
innflutningstolla. Tillögur ríkis-
stjórnarinnar verða í dag lagðaar
fyrir fulltrúa íhaldsflokksins og
frjálslynda flokksins. Einnig verða
tillögurnar lagðar fvrir aðalfram-
kvæmdaráð verkalýðsfjelaganna.
Dilkék.
Veðrið i gær kl. 5: Hægviðri um
alt land en áttin mjög breytiteg.
Smálægð hefir myndast yfir miðju
landinu vegna hitans undanfarna
daga. Heiðríkt á Vesturlandi og
Norðuriandi, en skýjað á Austnr-
og Suðuriandi, með smáskúrum
sums staðar.
Hitinn er 6—9 stig austan lands
en 12—17 stig í öðrum lands-
hlutum.
Veðurútlit í Reylrjavík í dag:
Hægviðri. Sennilega skúraleiðing-
ar síðdegis.
Guðspekifjelagið. Skemtiför sú,
sem fórst fyrir síðastliðinn sunnn-
dag, verður farin á sunnudaginn
kemur (23. þ. m.) Þeir fjelagar,
sem vilja taka þátt í förinni, eru
beðnir að tilkynna það í síma 625
(rakarastofu Sigurðar Ólafsson-
ar). Lagt verður af stað kl. 1 síðd.
frá Guðspekifjelagsliúsinu. Ferð-
inni er heitið suður fyrir Hafnar-
fjörð. Fargjald mjög lágt.
Grænlandsmálið. Á fundi í sam-
einuðu þingi í gær var samþyht
í einu liljóði þingsályktunartillaga>
Jóns Þoriákssonar um, að skora
á stjórnina að gæta. liagsmuna ís-
lands út af Grænlandsmálum.
Fátækraframfærsla. Ól. Tlioi-s
flytur svohljóðandi þingsályktun-
artillögu: „Neðri deild Alþingis
ályktar að skora á *ríkisstjórnina »,
að leggja fyrir næsta þing frum-
varp um þær breytingar á fátækra
lögunum, að greitt sje úr þeim fjár
hagsvandræðum, er af því leiðir
fyrir einstök hreppsfjelög, hversu
þunginn af fátækraframfærslúnni
kemur misjafnlega niður.“
Útvarpið í dag: Kl. 19.30 Veður-
fregnir. Kl. 20,30 Hljómleikar (E.
Th. sla.gliarpa.). Kl. 20,45 Þing-
frjettir. Kl. 21 Veðurspá og frjett-