Morgunblaðið - 17.09.1931, Qupperneq 3
3
MORGUNBLAÐIÐ
•u
flniiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiniiiiiiiiiiiiiiii a
—- orgsiablaHi
Ótgs!.: SLí. Árvakur, BirkltTlk
= SUtatJfir&r: Jön Kjnrtanaaon.
Valtýr St.íAnaaon. 1
SUtatJCrn og afgralBala: =
Auaturatraetl t. — Blaai 100. —
AuKlýalngaatJfirl: K Safbara;. =
AnKlí*lngaakrifetof»: =
Auaturatretl 17. — Blml 700. =
Halaiaalaaar: =
Jön Kjartanaaon nr. 741. =
s Valt?r StefBnaaon nr. 1110. =
;= H. Hafberg nr. 770. =
iaferlftagjald: ~
•5 Innanlanda fer. 2.00 í aiAnuSl. =
Utanlanda kr. I.K0 & aaBnuBl. í lauaaafiln 10 aura alntafelB. =
10 aura aaeB Leabðfe. 1
1 BUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIinillllllllllllllllllB
Breska sióliðið
er ótryggt.
Allir aðrir en yfirforingjar og
foringjaefni, mótmæla kaup-
lækkuninni.
London, 16. sejít.
Unitecl Press. FB.
vEsingin á meðal flotahennann-
;anna iiófst, að því er frjest liefir,
í Invergordon (í Skotlandi) á
laugarclag, þar sein 500—600 flota-
hermenn voru saman komnir á
'veitingastofu flotans. Rasddu þeir
um liina fyrirhuguðu launalækk-
un og lauk þeim umræðum með
'því, að hermennirnir brutu rúður
í gluggum veitingastofunnar og
'Sungu „Rauðafánann“ við raust.
Sagt er, að á mánudag hafi all-
margir flotahermenn neitað að
inna af hencli dagleg skyldustörf,
uns umkvartanir þeirra væru tekn-
;ar til greina.Oánægju vegna hinnar
fyrirliuguðu launalækkunar hefir
•orðið vart á öðrum flotastöðvum.
Eins og áður hefir verig símað
hefir flotamálaráðuneytið frestað
mfingum Atlantshafsfiotans, á
meðan rannsókn fer fram.
London, 16. sept.
Frá Invergordon er símað að
foringjaefni á herskipunum hafi
komið í land á róðrarbátum í
morgun, til þess að sækja póst
skipshafnanna, en það gera liá-
setar vanalega. Sagt er, að liá-
setar á beitiskipinu „York“ hafi
ákveðið að taka þátt í mótmælun-
um gegn launalækkunum og taka
þá liásetar af öllum Atlantshafs-
flotanum þátt í mótmælunum. —
Flotinn liggur fyrir akkerum úti
fyrir og eru öll landleyfi bönnuð.
Síðar: Colvin aðmíráll, yfirmað-
ur Atlantshafsflotans er kominn
til Lonclon til þess að gefa flota-
málaráðuneytinu skýrslu. Þeir sem
taka þátt í mótmælunum eru há-
setar og skyttur og aðrir skips-
menn, að undanteknum yfirfor-
ingjum og foringjaefnum.
v
Lonclon 16. sept.
iSir Austen Chamberlain, flota-
málaráðlierra, hefir tilkynt í neðri
málstófunni, að þjóðstjórnin hafi
falið flotamálaráðuneytinu að gera
tillögur um hvernig tiltækilegast
verði að draga úr þeim erfiðleilc-
um, sem launalækkunin bakar
flotahermönnunum. Tillögur þess-
ar á flotamálaráðuneytið að bera
fram að lokinni rannsókn þeirri,
sem hafin er. Öll skip í Atlants-
hafsdeild herskipaflotans, sem að
heiman eru, hafa fengið skjpun um
að halda til bækistöðva sinna í
Bretlandi, tafarlaust.
fslenskur tosari
á leið til Bjarnareyjar.
16. sept. FB.
Erum á leið til Bjarnareyjar.
Vellíðan. Kærar kveðjur til vina
og vandamanna.
Skipshiifnin á Venus.
Frá Noregi.
NRP 16. sept. FB.
Vinna byrjuð.
, Vinna er nú hafin að nýju um
geryalt landið. nema á stöku vinnu
stað, vegna. þess að smávægileg
aukaatriði í sambandi við deil-
urnar, eru óleyst enn þá. Hins-
vegar er fullvíst talið, að úrlausn
á þeim muni fást mjög bráðlega.
iin sumarleyfi Iiefir náðst sam-
komulag, því fjelag atvinnuveit-
enda hefir fallist. á að veita upp-
bót fyrir sumarleyfi fyrir 1. nóv.
Dýr bók.
A bókauppboði, þar sem seldar
c'oru bækur Hannaas sál. próf.,
var eintak af tímariti Ibsens og
l’injes, „Andhrimner“, selt fyrir
1115 krónur. Ekkert vantaði í
ritið. Mun þetta vera hæsta boð,
sem fengist hefir í ritverk á bóka-
uppboði í Noregi.
Deila út af reitum Amundsens.
Þ. 25. september kemur fyrir
rjett í Osló, mál út af eignarrjett-
inum á eigninni „Svartskog“, sem
Roald Amundsen átti. Gade sendi-
’herra og Pedro Christophersen
gáfu Amundsen eignina á sinni
tíð. Christophersen er látinn, en
Gade gerir lcröfu til eignarinnar.
Landssími Norðmanna.
A síðasta fjárhagsári voru tekj-
ur landssímans alís 32 miljónir
króna, eða einni miljón króna
minni en ráð ha.fði verið fyrir gert.
Meðferðín ð Islenskum
faiþequm ð dönsku skipi.
Danskur ferðamaður segir álit sitt.
Mbl. hefir fengið senda eftirfar-
andi grein til birtingar, sem er að
ýmsu leyti athyglisverðari vegna
þess, að hjer er danskur maður,
sem lýsir því hvernig hann lítur á
framkomu landa sinna við strand-
ferðasiglingar hjev við land. — í
brjefi því, sem hann sendi blaðinu,
þar sem hann biður um upptöku
fyrir grein sína, segist liann hafa
verið lijer við og við á íslandi síð-
ustu 25 árin.
Herra ritstjóri.
Fyrir nokkru las jeg grein í
heiðruðu blaðí yðar, þar sem á það
er bent, að íslendingar eigi að
kosta kapps um að ferðast með is-
lenskum skipum. Jeg sje af grein
þessari, að íslendingar eru því mið
ur ekki eins árvakrir og æskilegt
væri, og eftirbátar virðast þeir
vera Norðmanna og Dana, því að
ekki þarf að benda þessum þjóð-
um á, með hvaða skipum þeir eigi
helst, að sigla; þeir þekkja sín
skip alveg vísbendingalaust.
En það þykir mjer undarlegt, ef
íslendingar láta .til lengdar bjóða
sjer aðra eins framkomu og aðbúð
a hinum erlendu skipum, eins og
jeg hefi verið sjónarvottur að, án
þess að uppljúkist augu þeirra fyr-
ir því, að hollara væri þeim og
sæmra, að snúa sjer að sínum eigin
ágætu skipum, þar sem þeirra bíð-
ur a. m. lt. kurteist viðmót yfir-
manna.
Jeg var sem sje meðal farþega
á Islandi snemma í júlí, er það
fór frá Reykjavik til Akureyrar,
og var þá, eins og vant er, á þess-
um tíma árs yfirfult af farþegum,
sem fóru að leita sjer atvinnu til
Norðui’landsins.
Ekki var nándarnærri pláss í
káetu fyrir allan farþegahópinn
og virtust því góð ráð dýr. En
„Sameinaða“ fann ódýrt ráð. Opn-
að var eitt lestarrúmið og lagður
stigi niður á millidekkið. Þarna í
lestinni áttu farþegarnir að liola
sjer niður, hver sem betur gat, Alt
var millidekkið griitskítugt, og má
því nærri geta hvernig fatnaður
farþegánna var. Engar ábreiður
fengu farþegarnir, eða madressur,
til þess að gera vistina í lestinni
viðunanlegri. — Átti jeg tal um
þetta, við einn af yfirmönnum
skipsins, að vel færi á því, að far-
þegunum yrði útvegað slíkt, en
fjekk ekki annað fyrir málaleitun
anína, en háðsyrði og snuprur. Var
mjer sagt að Tslendingar væru
ekki öðru vanir, og hreinn óþarfi
að venja þá við slík þægindi. —
Spnrðu skipsmenn mig að því,
hvort jeg væri íslendingur — og
úr því jeg væri það ekki, ætti jeg
sannarlega ekki að slettu mjer
fram í þetta mál.
Jeg hafði rúm á öðru farrými.
Við vorum þar sex saman í her-
bergi. Skömmu eftir háttatíma
vaknaði jeg við, að jeg fjekk
högg í bakið, svo mikið, að jeg
kendi til sársauka þar allan næsta
dag. Samferðamenn mínir voru og
vaktir hranalega. Var þar kominn
skipsmaðnr til þess að heimta far-
miða okkar.
Enga lcurteisi virtist. maður sá
kunna, eða mannasiði. Hann t. d.
þúaði alla, unga sem gamla, og
ekki datt honum í hug að afsaka
það neitt, að hann skyldi rvðjast
þarna inn og vekja okkur í fasta
svefni með hrottaskap. Gæti jeg
margt sagt. um fruntalegt viðmót
sem þama kom fram gagnvart hin-
um íslensku farþegum.
Er til ísafjarðar kom, flýttu far-
þegamir úr lestinni sjer í land, til
þess að fá þar einhverja hressingu
,crg lífsnæringu.
Næsta. morgun var þoka, og
pípti skipið í sífellu, svo farþeg-
ar risu snemma úr rekkju. — Er
jeg ætlaði út. á þilfarið á öðru
farrými, reyndist þar áð vera
ógreitt um útgöngu. Skipsmenn
stóðu þar í dyrunum og blátt á-
fram vörnuðu fólki að komast út.
Til ryskinga kom þó ekki, svo
teljandi væri. En mjer var nóg
að heyra orðbragð skipsmannanna.
Fyrir náð og miskun, með því að
leita til 1. stýrimanns, sem þarna
var nærstaddur, fekk jeg að kom-
ast út á þilfarið.
En það verð jeg að segja, að jeg
tel það með öllu óafsakanlegt, að
loka. farþega inni, eins og þarna
stóð á, í þokunni. Því ef árekst-
ur hefði orðið, er óvíst að allir
hefðu komist. nægilega fljótt á
þilfar, til björgunarbáta, ellegar
til þess að ná í bjarghringi.
Er far]>egar yfirgáfu skipið í
höfnum Norðurlands, varð jeg
iess ekki var, að frá þeim and-
aði neinni hlýju í garð Sameinaða
gufu.skipaf jelagsins.
Fredrik Jensén.
Atlantshafsflng.
Tillögur von Gronau.
Berlín, 16. sept.
United Presss. FB.
Blöðin birta fregnir um það, að
mgar von Gronau sje heim kom-
inn frá Bandaríkjunum muni hann
leggja fyrir stjórnina áætlun um
reglubundnar póstflugferðir milli
Þýskalands og Bandaríkjanna. —
Telur liann, að þegar búið sje að
útbúa lendingar og bensínbirgða-
stöðvar, muni flugið taka 45
klukkustundir.
HaUgrimsklrkja
í Saurbæ .á Hvalf jarðarströnd
nefnist bæklingur eftir Snæbjörn
Jónsson, bóksala, með formála eft-
ir Einar prófast Thorlacius, sem
nú er verið að selja hjer í borg-
inni. Er liann ritaður í þeim til-
gangi, að livetja menn til þess að
leggja nú fram fje til þess að sú
hugmynd komist í framkvæmd sem
fyrst, að reist verði í Saurbæ
vegleg kirkja til minningar icm
Hallgrím Pjetursson og skorar höf.
á alla íslendinga að leggja því
máli lið, 1 sjóði til hinnar fyrir-
huguðu kirkjubyggingar munu nú
vera um 24 þúsund krónur; en
við það þarf allmiklu að bæta, til
þess að kirkjan geti orðið eins
vegleg og vera ætti.
Margir munu vera höf. ósam-
dóma um það, að óviðeigandi væri
að ný kirkja hjer í Reykjavík
beri nafn Hallgríms Pjeturssonar,
jafnvel þó að Hallgrímskirkja væri
reist í Saurbæ. En um hitt munu
allir kristnir íslendingar vera hon-
um samdóma, að úr þessu æt-ti það
ekki að dragast lengi, að hin fyr-
irhugaða kirkja kæmist upp í Saur
bæ, og að liún yrði samboðin minn-
ingu sálmaskáldsins góða. Og það
ætti að geta orðið, ef margir leggj-
ast nú á eitt, þó að ekki komi
stórar gjafir frá hverjum ein-
stökum.
Isafoldarprentsmiðja hefir gefið
kirkjubyggingarsjóðnum 6 þúsuncl
eintök af þessum bæklingi, og er
hann seldur á 1 krónu. Með því
að kaupa hann, styðja menn gott
málefni.
F. H.
Hásætisræða Hollands-
drottningar.
Haag 16. sept.
Unitecl Press. FB.
Vilhelminga drottning flutti
ræðu við setning Hollandsþings
í gær. Kvað hún þingið verða að
taka til umræðu sjerstakar ráð-
stafanir vegna kreppunnar, aðal-
lega til verndar þýðingarmiklum
.atvinnugreinum, sem þjóðinni væri
lífsskilyrði að hjeldi áfram að
vegna vel.
Hjálpræðisherinn. Hljómleika
samkoma í kvöld kl. 8. Allir vel
komnir!
Hannyrðavðrur.
Til að rýma fyrir nýjran
sýnishornum, verða eldri
sýnishorn seld með miklum
afslætti :Púðar, Ljósdúkar,
Áöberar, Borðteppi, Vegg-
teppi og Kaffidúkar.
Einnig verður nokkuð af
áteiknuðu selt mjög ódýrt. —
Kaffidúkar á 3 kr. og kr.
5,85. Ljósdúkar á 1 krónu.
Áöberar á 50 aura. Servi-
ettur á 10 au. o. s. frv.
Aðeins fáa daga.
Hannyrðaverslun
Purfðat Sigurjónsdöttiir.
Bankastræti 6.
Rýmingarsala
HLIðfiFKRHHdSSIIIS
og ÚTBÚSINS.
Siðasti dagnr i dag.
Linguaphon
plfitnr og baknr
með
33 og 50°|g
Nýkomiðs
Epli,
Appelsínur,
Bananar,
Plómur,
Perur,
Sítrónur,
Tómatar,
Rabarbari,
Blaðlaukur (Purrur),
Hvítkál,
Rauðkál,
Gulrætur,
Rauðrófur,
Selleri,
Gúrkur.
Reynið
okkar hragðgóðu
feiti í pökkum.
sem aldrei hefir verið hand-
fjölluð.
IRIN A.
Hafnarstræti 22.
........ ■
Rj Allt með islensknm skípgic'