Morgunblaðið - 05.11.1931, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.11.1931, Blaðsíða 3
MOROUNBLAEIÐ c ■■iiiminiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiimiliinillllllllllllllllllllimilig ■S tjtgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. ^ := Rltstjðrar: Jðn KJartansson. Valtýr Stefánsson. S Rltstjðrn og afgreiCsla: = Austurstræti 8. — Siml 600. = Auglýsingastjðri: E. Hafberg. S Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Slml 700. [= 55 Heimasímar: Jðn KJartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. = E. Hafberg nr. 770. = = Áskriftagjald: = Innanlands kr. 2.00 á mánuCi. = Utanlands kr. 2.60 á mánuCl. || = 1 lausasölu 10 aura elntakiC. 20 ura meC Lesbök. = a'iiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiinmiiiiH „Dorgeir skorargeir". Hveis vegna var honum lagt inni í sundum? Nýjar hrakfarir verklýðs- flokksins í Bretlandi. Qagbók. Við bæjarstjómarkosningar tapar hann 260 sætum. Jón Baldvinsson bankastjóri hefir ekki svarað fyrirspurn þeirri, :sem beint. var til hans í Morgun- blaðinti unt daginn út af því að togaranum „Þorgeiri. skorargeir* ‘ var lagt inni í Sundum. — Þess vegna skal nú minst á þetta mál dálítið nánar. Eftir það að skipverjar á tog- urunum „Andra“ og „Ver“ höfðu fengið skipin leigð, ltom skipverj um á „Þorgeir skorargeir“ í hug ao fara að dæma þeirra, svo að þeir þyrfti ekki að ganga iðju- lausir. Hófu þeir því, með for- göngn skipstjórans, samningaum- leitanir við útgerðarfjelagið og bankann. Stóð lengi í þeim samn- ingum, en að lokum var þó alt „klappað og klárt“. Sjómennimir höfðu gengið að þeim skilyrðum, sem þeim voru sett um leigu á skipinu, og' bankinn hafði lofað skipinu með því móti, að þeir settu áltveðna tryggingu. Samning- ar voru ])annig fullger.ðir og ekki annað eftir en undirskrifa þá. En þegar skipstjórinn kemur bankann til þess að leggja fram trygginguna, sparisjóðsbækur o. fl. frá allri skipshöfninni, þá segir Jón Baldvinssonj að skipið verði alls ekki leigt með þessum skip- stjóra. Á þetta hafði aldrei verið minst áður, og kom það því eins ■og þruma úr heiðskíru lofti yfir sjómennina, því að þeir höfðu aldrei hugsað sjer að leigja skipið með neinum öðrum skipstjóra en þeim, sem þeir höfðu haft áður Og svo slitnaði upp iir samningum og skipinu var lagt inn í sund. Með þessum hætti hefir Jón Baldvinsson, foringi þeirra manna sem hæst hrópa um atvinnubætur. svift heila skipshöfn atvinnu um langan tíma. Það er vonandi að sjómenn muni honum það. SterllagspuN fellnr London 2. nóv. Mótt. 3. nóv. TTnited Press. FB. Oengi sterlingspunds miðað við •dollar 3.75. New Yorkt Gengi sterlingspunds 3-74y2. London, 3. nóv. United Press. FB. Gengi sterlingspunds miðað við dollar 3.69—3.72. New York: Bönkum og kaup- böllum lokað í dag (frídagur). London, 3. nóv. United Press. FB. Bæjarstjórnarkosningar, sem fram fóru í gær (mánudag) í 300 borgum og í Englandi og Wales, hafa leitt í Ijós, að verklýðsflokk- urinn hefir eigi haft neinu betra gengi en í almennu þingkosningun- uim, einkanlega í iðnaðarhjeruðun- um. Fullnaðarúrslit eru ekki kunn, en til þessa er kunnugt, að íhalds- menn hafa bætt við sig 149 og tapað fimm, frjálslyndir bætt við sig 26 og tapað fimm, jafnaðannenn eða verklýðsmenn bætt við sig fimm og tapað 260, óháðir bætt við sig 46 og tapað tíu. — Ljeleg þátttaka utan Lundúnaborgar og í London undir 35%. -----«<P»-------- Kosriingarnar í Banda- ríkjunum. Washington 4. nóv. TTnited Press. FB. Urslit í kjördæmunum í Banda- ríkjunum, þar sem aukakosningar fóru fram í gær til þjóðþingsins, urðu þau, að demokratar unnu þrjú þingsæti, en repubílikanar 2 Hafa demokratar því náð meiri hluta atkvæða í deildinni. löhanna löhannsdöttir endurtekur söngskemtun sína í Nýja Bíó annað kvöld. Nokkuð hefir mjer og öðrum, sem hafa haft ánægju af að lilýða á söng ungfrúarinnar, þótt hún fá ómak- lega harða dóma i blöðunum, og ekki vei'ið minst á hina mörgu kosti, sem hún hefir til að bera. Ungfrú Jóhanna hefir fagran og tárhreinan sópran, röddin ekki mikil, en vandvirkni liennar og smekkvísi er aftur á móti ó- skeikul. Söngskráin var vel sam- sett. Það sem mjer þótti fallegast var „Bosa“ eftir Tosti og Aria vir „Schöpfung“ eftir Haydn. Er það ekki heiglum hent að fara með þessi lög eins fallega og ungfrú Jóhanna gerði, því þau voru sung- in af kunnáttu, ljett.ilega og með yndisþokka, „Koloraturinn' ‘ Haydn aríunni var með ágætu hljómfallí og hreinn. — íslensku lögin hygg jeg að fáir hafi heyrt betur sungin hjer, og er það gleði- efni að heyra hvern nýjan lista mann, sem ísland eignast. TTngfrú Jóhanna á þann innn yl, er gerir listamanninum fært að setja sig inn í Ijóð og lög, sem mörgum öðrum er ekki gefið. — Jeg skrifa þessa grein að eins til þess, að hvetja menn til að sækja þessa einu söngskemtun, sem ung- frú Jóhanna heldur hjer, því hún fer norður innan fárra daga Að endingii vil jeg svo óska listakonunni alls góðs á þessari braut hennar, og vona að við eig- um oft eft.ir að fá að heyra til hennar seinna. Söngvinur. Dronning Alexandrine fór frá Kaupmannahöfn kl. 10 á miðviku dagsmorgun. —Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5): Uægðarmiðjan er nii yfir Islandi og byrjuð að fyllast upp. Veður er kyrt og úrkomulítið á S- og A- landi, en um NV-hluta landsins og úti fyrir N- og V-landi er enn all- hvöss NA-átt með slyddu eða jafn- vel rigningu. Hiti er víðast 1—3 stig. Að líkindum verður lægðin kyr yfir landinu á morgun og veð- ur víðast stilt. Veðurútlit í Rvík í dag: NA- kaldi. Úrkomulaust. Dánarfregn. í .gærmorgun and- aðist hjer í bænum ungfrú Unnur Jóhannsdóttir (alþm. Jósefssonar í Vestmannaeyjum), að eins 19 ára að aldri. Fyrir tæpum tveim árum fekk hím aðkenning að slagi og varð máttlítil lengi á eft.ir. Var hún á stödd í Þýskalandi á skóla. Dvald ist hún þar um hríð sjer til lækn- inga og fekk mikinn bata, en náði þó aldrei fullri heilsu. Á þriðjudag var hún á gangi hjer um bæinn, liress og kát að vanda, og merkti enginn, að nein breyting væri á heilsu hennar. En næstu nótt fekk hún nýtt áfall og andaðist kl. 7 í gærmorgun. — Ungfrú Unnur var einstaklega efnileg stúlka, stilt og prúð í allri framkomu, gáfuð og skemtileg. — Lík Unnar sál. verður flutt til Vestmannaeyja með Lyru í dag og fer fram kveðjuat- höfn í Bergstaðastræti 62, kl. 3y2 síðdegis. Trúlofun sina opinberuðu síðastl. laugardag ungfrú Elinborg Þórð- ardóttir hjá Heildverslun Ásgeirs Sigurðssonar og Mr. J. M. Ferrier frá London. Leikhúsið. ímyndunarveikin með listdansinum „Draumur greifafrú- arinnar“ verður sýnd í kvöld. Á sunnudaginn var var leikurinn sýndur fyrir troðfullu húsi. — Á sunnudaginn kemur verður fyrsta sýningin á leikritinu „Hallsteinn og Dóra“. Verslunarmannafjelag Hafnar- fjarðar heldur fund í kvöld kl. 8y2 Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði. Verður þar rætt um innflutnings- er höftín og afleiðingar þeirra, sem jegar eru farnar að koma í ljós að eru fyrst og fremst atvinnu- missir fjölda manns. Öllum versl- unarmönnum og kaupmönnum í Hafnarfirði er boðið á fundinn. Samsætínu, er lialda átti sira Magnúsi Bl. Jónssyni í dag í Hótel Borg verður, sökum lokunar hótels- ins, frestað þar tíl á laugardaginn. Auglýst nánar síðar. Borgar-málið. í dómsforsendum 1 Borgarmálsins er skýrt fram tekið, að fyrirskipuð hafi verið málshöfð- un gegn þeim hótelráðendum „en málshöfðunarskipun dómsmála- ráðuneytisins var ekki víðtækari“, segir enn fremur í forsendum. Nú skýrði dómsmálaráðuneytíð Mbl. frá því í gær, að ekki væri enn ákveðið hvað gert yrði í þeirri hlið málsins, er að neytendum vínanna 'snýr. Þakklætí hefir Mbl. verið beðið að flyt.ja frá sjiiklingum í Reykja hæli í Ólfusi, tíl bókaútgefanda og annara', sem sent hafa hælinu bæk- ur. — Morgunleikfimi. í blaðinu í dag Viknritið Þeir, sem hafa fengið 1. hefti af Strokumanninum, geta fengið 2., 3. og 4. hefti á afgr. Morg- unblaðsins. 35 aura heftið. fyrirlestur heldur föstudaginn næstkomandi kl. 8y2 síðdegis, um: Ástína. Aðalinnihald ágrip af sálarfræði ástarlífsins, lnnar tvær hliðar ástarinnar, sú hin holdlega og hin andlega — hvernig ber að snúa sjer gegu ástínni með tíltítí tíl sálarlífsins og siðgæðislögmálsins. eða hins sið- fiæðilega mælikvarða. auglýsir Benedikt Jakobsson fim- ileikakennari að hann ætli að kenna stúlkum morgunleikfimi og enn fremur hafi hann námskeið fyrir börn. Benedikt hefir kynt sjer nýj ustu aðferðir hinnar frægu kenslu konu EHn Fak í Stokkhólmi og má því biiast við góðum árangri af kenslu hans. Það er óþarfí að taka það fram hvað leikfimi er holl og nauðsynleg, eigi síst. þeim sem hafa mikla innivist. Stúlkur, sem eru við verslun eða í skrifstof- um, hafa sjerstaklega gott af því að iðka leikfimi, og er þá þægilegt fyrir þær að nota morgunstundirn- ar til þess. Stúdentafjelag Háskólans lijelt aðalfund fyrir skömmu. Kosnir voru í stjórn stud. jur. Sigurður Olason formaður, stud. mag. Jón Símonarson ritari og stud. jur. Valdimar Stefánsson gjaldkeri. Fje lagið fagnar nýjum háskólastúd- entum á laugardaginn kemur. Hjálpræðisherinn. Hljómleika- samkoma í kvöld kl. 8. Lúðraflokk- urinn og strengjasveitin aðstoða. Allir velkomnir. Barnasamkoma annað kvöld kl. 6y2. Öll böm eru velkomin! Dorkas-fundur kl. 8. Innbrot var framið í fyrrinótt í skrifstofu þeirra fisksalanna Stein gríins Magnússonar og Jóns Guðnasonar á fisksölutorginu. Stal þjófurinn þar peningakas*sa, en í honum voru engir peningar, heldur reikningar og ýnns skjöl. ísfisksala. Ver hefir selt afla sinn í Þýskalandi fyrir nim 14.000 mörk og Baldur fyrir 15.000 mörk. Markaðurinn hefir farið mjög lækkandi að undanfömu. Hjónaefni. Hinn 1. nóv. opm- beruðu trúlofun -sína ungfrú Jón- ína Jónsdóttir og Ármann Vigfús- son. K. F. U. M. A. D. fundur í kvöld kl. 8i/2. Altír karlmenn velkomnir. Árni Einaxsson kaupm. hefir leg- ið þungt haldinn undanfarið, en er heldur á batavegi. Hann liggur Landakotsspítalanum. Árás á konu. Aðfaranótt þriðju- dags var gift kona hjer í bænum leið heim til sín úr kvöldboði. Á leiðinni rjeðst á hana ölvaður maður, fleygði henni flatri í göt- nna og reif og tætti föt, hennar. Konan gat hljóðað og lögreglu- ijónn, sem var skamt á brottu Jaeyrði hljóðin. Þegar hann kom á ettvang ætlaði ofbeldismaðurinn að flýja, en lögregluþjónninn náði honum og kom honum í fangelsi. — Ofbeldismaðurinn er iir Kefla- vík. — Konan er talsvert mikið meidd og sparifötín, sem hún var í, gersamlega eyðilögð. Kristileg samkoma á Njálsgötu 1 kl. 8 í kvöld. Allir velkomnir. „Ægir“, 10. heftí þ. á., er ný- komið út. Efnið er m. a.: Salt- fisksalan, eftir K. Bergsson, E.s. Namdal eftír Svbj. Egilson, Um síldarrannsóknir 1931, eftír Árna Friðriksson, Fyrstu vökur á stjórn paltí (þýtt). Þá eru og í heftinu skýrslur um útflutning, fiskbirgðir o. fl. Vilh. Finsen ritstjóri var meðal farþega á Lyru hingað. Er hann koiminn til þess að sjá um útgáfn „Islands Adressebog“. Flutningur á húsi. Jón Jónsson frá Flatey hefir farið fram á við bæjarstjórn, að hann fengi 2500 krónur úr bæjarsjóði fyrir að flytja hús nr. 76 við Hverfisgötu inn í rjetta húsalínu. Byggingar- nefnd leggur tíl að honum sjeu greiddar 1600 krónur fyrir það verk .Lóðarræmu, sem bærinn þarf að fá tíl breikknnar á götunni þarna, vill J. J. selja á 14 kr. fer- metrann, en fasteignanefnd viB' gefa 11 kr. fyrir fermetrann. Blágrýti og gTágrýti. Veganefnd hefir óskað effir því að bæjarverk- Finnbogi Hr. Larsen í Varðarhúsinu, Aðgöngumiðar verslun Sigfúsar 1 krónu. seldir í Bóka- Eymundssonar á Dansskóli Sigurðar Guðmundssonar & Fríðar Guðmundsdóttur. Fyrsta dansæfing í Hafnarfirði í kvöld í Hótel Björninn. Ódýr matarkaup. Okkar viðurkenda afbragðs góða cjötfars á að eins 75 aura y2 kg. Wienarpylsur 1.50 y2 kg. Medister- Dylsur 1.10 y2 kg. Hakkað kjöt 1.35 i/2 kg. Alt viðurkent að gæðum, sem það besta. Kjötverslun Vesturgötu 16. Sími 1769. fræðingur ljetí nefndinni í t.je upp lýsingar um notkun og nothæfi „Boðaioss11 fer annað kvöld klukkan 11 til Hull og Hamborgar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádlegj á morgun. Bógm|01 •g alls konar krydd í slátrið. Vorsl. Foss. Laugaveff 12. Simi 20SL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.