Morgunblaðið - 18.12.1931, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.12.1931, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 1 r nmerlskir spðdðmar um árið 1932. I>að er nú orðin föst regla, -að spámenn, dulspekingar og stjörnuskoðarar gefa út spá- dóma sína fyrir hver áramót, um eitt og annað, sem á að ger- ast á hinu komahdi ári. í Ameríku hafa eftirfarandi spádómar verið gefnir út fyrir árið 1932: Stjörnufræðingurinn Lee lík- ir núverandi kreppu við risa- vaxinn kolkrabba, sem slöngvar örmum sínum um heim allan. En hann á von á því, að krabb- lini á takinu, þegar komið er fram á mitt árið 1932, og fyrst anuni batans verða vart í Banda ríkjunum. R. Newcomb spáir því, að á ;þessu ári hætti þjóðirnar alment við gullmyntfótinn. Samþykt um þetta efni verði gerð á al- þjóðafundi í Genf, haustið 1932. Upp úr því muni draga túr fjárhagsvandræðunum. Þriðji spámaðurinn, John Uhaton, býst við, að uppreisn brjótist út í Bandaríkjunum, og núverandi stjórn verði velt af stóli í nokkura mánuði. En að því búnu, hefjist endurreisnar- starf, er leiði af sjer mikla bless un. Chaton lítur döprum augum á ástandið í Evrópu, og býst við því, að mikii senna verði milli JBreta og Frakka, er e. t. v. leiði til vopnaviðskifta. Lee spáði fyrir í fyrra um ídauða Edisons, og kom sá spá- dómur heim upp á mánuð. — Hann spáir nú um merkilegar tekniskar framfarir. Lee heldur því fram, að ófriðurinn milli Japana og Kínverja verði sein- ustu vopnaviðskifti þjóða í milli. Því seint á árinu geri verkfræð- ingur í Ameríku uppgötvun nokkura viðvíkjandi hernaði, er geri það að verkum, að hver ■sú þjóð, sem leggi út í ófrið, .geti búist við því, að eyði- .leggja sig með öllu. Á þann hátt hljóti allur hernaður að íhætta um alla framtíð. Lee segir ennfremur: Banda- ríkjamenn reyna fyrst í stað að balda uppgötvun þessari fyrir sig eina. — En njósnurum frá Frakklandi og síðar Rússlandi, tekst að ná í þennan leyndar- dóm. Og þá ákveða Bandaríkja menn að gera hann kunnugan öllum. Uppgötvun þessi verður, að því er Lee segir, á þá leið, að fundnir verða eins konar raf- magnsgeislar, sem hægt er að nota til varnar gegn flugvjelum og bryndrekum. Með geislum þessum verður hægt að eyða heilum borgum á svipstundu, og tortíma þar öllu lífi. Þó menn reyni að forða sjer niður í múr- aðar hvelfingar undan geislum þessum, komi það ekki að haldi. Lee heldur því fram, að geisl- ar þessir verði framleiddir af segulafli, sem enn er óþekkt, og allur málmur dragi geisla þessa til sín, svo ekki þurfi að beina þeim i ákveðna átt. Þó flug- menn reyni t. d. að hylja sig í þokumekki, þá þurfi ekki annað en beina geislum þessum í mökk inn, til þess að þeir hitti flug- vjelina. Hann segir enn fremur, að þýskur læknir finni meðal við krabbameini, á þessu ári. En sökum þess, að læknir þessi hafi lítið orð á sjer, þá muni það dragast nokkuð, uns hann fái meðal sitt viðurkent. Þá muni á þessu ári mikið vinnast í því, að kljúfa „atom- in“, og á þanr. hátt verði hægt að handsama orkulind, sem gjör breyti öllum orkugjöfum heims- ins. En sakir þess, að mikil deila rís út af einkaleyfi á notk- un aðferðar þessar, þá dragist það í nokkur ár, að hún komi að notum. Þá vinnist og sú virðulega þrekraun á árinu, að gerð verð- ur lifandi fruma. Sannast þá og jafnframt, að menn geti ekki gert sjer vonir um, að gera sjálf stæðar lífverur, sem samsvari lífverum á lægstu stigum og af einföldustu gerð. Chaton segir enn fremur fyr- ir um það, að þjóðhöfðingi einn í Evrópu, sem lifir í útlegð, deyi á þessu ári. Tveir menn fari að dæmi Piccards prófess- ors, og fljúgi upp í efra gufu hvolfið, og komist hærra en hann — alt upp í 45 km. frá jörð. Békarfregn. Magnús Helgason: Kvöld- ræður í Kennaraskólanum 1909—1929. Prestafjelag íslands gaf út. Langt er orðið síðan, að vinir síra Magnúsar Helgasonar fóru þess á leit við hann, að hann gæfi út fyrirlestra sína. En hann var lengi tregur til, taldi þá ekki svo vel úr garði gerða, að hægt væri að setja þá fyrir almenningssjónir. Svo er oft um þá, sem vel gera, að þeir verða seint ánægðir með sjálfa sig og eigin verk. Nú hefir hann ]'»ó ’látið til leiðast, og fyrirlestrarn- ir eru komnir út á vegum Presta- fjelagsins. Þeir eru stærðarbók, 308 bls., pappír og frágangur vel vandað í alla staði. Það er kostur á hverri bók, en þó munu fleiri spyrja um efni bókarinnar en ytra útlit. En það er skemmst frá að segja um efni þessarar bókar, að undarlega hlýtur sá maður að vera innrættur, sem ekki hefir bæði gagn og garnan af að lesa hana. Síra Magnús hefir löngum haft undarlegt lag á að tala. til þess besta í hverjum manni. Það mun hver sanna, sem bókina les. Og það er ekki gert með þurrum og hálf- volgum siðakenningum, ekki með dauðum bókstöfnm. Bókin er full af lífi, lifandi liugsun í lifandi máli. Efnið er víða að komið, forn- ar frásagnir færðar í nútíðanbún- ing, æfi og starf merkra samtíðar- manna, náttúrulýsingar og margt fleira, sem ekki verður rakið hjer. En alt ber sama svip, sama yfirlæt- islausa snildin i meðferð máls og hugsunar. Málið á bókinni er sljett og felt, þar er hvorki blettur nje hrukka, smekkurinn hárviss og bregst aldrei. Fagurt mál hæfir göfugri hugsun eins og skartklæði íturvöxnum líkama. Jeg veit sann- ast að segja ekki, að hvoru jeg dáist meira, efni bókarinnar eða orðfæri. Hvort tveggja ber af. Einar TT. Kvaran rithöfundur hefir ritað langan og greinargóðan rtf Allt með tslensknm skipum! inngang að bókinni, og er þar lýst æfi síra Magnúsar og starfi. Það er siður margra hjer að gefa fcók í jólagjöf. Það er ekki af neinum hagsmunaástæðum að jeg vil benda mönnum á þessa bók til slíkra hluta, heldur af hinu, að jeg tek hana tvímælalaust fram yfir annað, sem völ er á hjer. Jeg er sannfærður um, að hver sem gefur hana, gefur góða gjöf. Freysteinn Gunnarsson. Bóthildur Björnsdótlir. F. 30. sept. 1867. D. 7. des. 1931. „Borg, sem stendur á fjalli, fær eigi dulist“. (Matt. 5, 14.). Menn eru ósammála um flest. Þeir, sem þelttu Bóthildi Björns- dóttur, munu ekki allir líta sömu augum á starf liennar og lífsstefnu á síðari árum. En eitt veit jeg, að allir eru sammála um sem höfðu kynni af henni: Minningu hennar ber hátt 'yfir fjöldann. Hún var kona ríklunduð, stórgáfuð og vel ment á allan hátt; en hún „seldi alt sem hún átti“ fyrir perluna einu; hún lifði fyrir hugsjónir sem fjöldinn skilur ekki. Þess vegna átti heimurinn ekkert heiðurssæti handa henni. En vinum og góð- kunningjum er hún og verður ó- gleymanleg. Bóthildur Björnsdóttir verður fiutt til grafar í dag, á æskustöðv- um ,sínum. Jeg er sannfærð um, að hjer 1 bæ eru margir vinir henn- ar, sem fegnir vildu heiðra jarð- arför hennar með návist sinni, ef þess væri kostur. Mörgum er ‘ það hugljettir, að helga látnum vini sínum algerlega litla dagstund. Nú vilT svo vel til, að vjer eig- um hjer á meðal vor þátt af hennj sjálfri. Flestir vinir hunnar og nánir ættmenn eiga sendibrjef frá henni; þau eru ólík flestum öðr- um sendibrjefum. Þar má víða finna lifandi, eldheita trúarjátn- ingu falslausrar sálar, og þar er fult af frækornum lífsins, orðum Krists, sem hún var svo óvanalega auðug af. Hún sáði hvar sem hún gekk — og oft með tárum. Vjer getum ekki gefið frækornunum hennar gróðnr, en vjer getum varðveitt þau. Vjer getum helgað brjefunum hennar einhverja næð- isstund, haldið með þeim minning- arhátíð, valið úr þeim brjef eða kafla, sem hafa ævarandi gildi, og gert það, sem í okkar valdi stenduU til að forða þeim frá glötun. 1 einu af sínu síðustu brjefum kemst hún svo að orði: „Haust-náttúran grætur horfna sumartíð, dýrð og blíðu. Angur- blíð þrá smýgur að hjartarótum. Grasið visnar, blómin fölna, en orð vors Guðs stendur stöðugt eilíflega. Eftir vetur kemur vor. — Jeg þrái líf, starfandi í kær- (leika.“ ’Það er trú mín, að síðar, þegar endurlífgunarvor frá Drottni kem- ur yfir þjóð vora, munj sannast- prð sálmaskáldsins forna: „Þeir, sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng4'. Vinkona. Lungnaormar og Þfnaðarhættir þeirra. Þráfalt valda ýmsir þráðormar (Nematode) bólgu i lungnapípum og lungum ýmissa dýra, er þeir taka sjer bólfestu þar. Stundum verða menn að eins varir við einstök sjúkdómstilfelli, en oft er einnig faraldur að þess- ari lungnaormaveiki. Svo er t. d. oft um Tungnaormaveiki í sauðfje hjer á landi. Hefir sú veiki um langan aldur sótt á auðfje vort, og valdið stórskaða, beinlínis og óbeinlínis. Beinlínis sökum þess, að niargur sjúklingurinn veslast upp og deyr að lokum, og óbeinlínis vegna þess, að fyrirhöfn og fóður- eyðsla bætist sjaldnar upp með auknum afurðum þótt ilífið sparist. Tel jeg því líklegt, að mörgum mönnum leiki hugur á að vita ein- liver deili á snýkjudýrum þeim, sem slíku aflnpði valda. Arið 1744 vakti í fyrsta skifti dr. Frederik Ruysch frá Amster- dam athygli á ormum í kálfslung- um. Franski náttúrufræðinguriun Daubanton varð fyrstur manna til þess að skrifa um lungnaorma í sauðfje. Var það árið 1768. F. Modeer skrifaði um lungnaorma- veiki í svínum í Svíþjóð árið 1791. Um verulegar rannsóknir á ormum þessum var þá ekki að tala. Það varð fyrst á seinni hluta 19. aldar- innar og það sem af er 20. aldar, að vísindamenn lögðu kapp á að rannsaka lifnaðarháttu þeirra, eðli og uppruna, og enn er margt i fari þeirra, sem mönnum er hulið. Hinir kynþroskuðu' ormar lifa í barka,lungnapípum og lungum iýmissa spendýra, bæri viltra og tamdra. Ormarnir verpa eggjum og úr þeim skríða mjög kvikar lirfur. Ormar, lirfur og egg berast burt vír líkamanum með tvennu móti: Annað hvort hósta skepnumar þeim upp úr sjer og út úr sjer, eða að þær kyngja hor og ber- ast þá egg og lirfur með saurnum til jarðar. Beinlínis geta sltepnur ekki smit- að hvor aðra. Ýmsar ábyggilegar tilraunir hafa sannað það (Leuc- kart, Schlegel, Janmaire). Menn hafa þóttst vita, að orm- ar þessir hefðu ýmis þroskaskeið og tækju ýmsum myndbreyting- um, en livar og hvernig þeir lifðu lífi sínu var mönnum hins vegar ekki kunnugt. Lengi hjeldu menn, að lirfurnar lifðu vissan aldur úti á víðavangi og hefðust helst við í vatni eða á vatnsplöntum. Seiima hugkvæmd- ist mönnum þó, að þær þyrftu að lifa vissan tíma í lægri dýrum, t. -d. sniglum (Leuckart) eða ána- möðkum (Cobbald) áður en þær væru færar um að smita spen- dýrin. Nú alveg nýlega hefir vísinda- manni, Hobmeirer að nafni, frá Dorpat, tekist að sanna, að lirfur lungnaorma sauðfjárins lifi í skel- lausum mýrasuiglum og taki tveim myndbreytingum þar, berist svo í sauðfjeð með grasi og drykkjar- vatni og taki þar öðrum tveim œ yndbrey tingum, áður en kyn- þroska er náð. Enn eru skiftar skoðanir um það, hvenær spendýrin taki lirf- urnar. Sumir halda því fram, að smitun eigi sjer aðallega stað að vorinu og að lirfurnar berist í lík- amann jafnvel oftar en einu sinni —.. í: NýsbokkaS smjSr frá mjólkurbúi okkar, er nú ávalt á boðstól- um í öfcum okkar mjólk i\rbúðum, svo og versl- uninni LIVERPOOL og útbúum hennar. Mjólkurfjelag Reykjavikur. Smjör, glænýtt af strokknum daglega. Ostar: Svissneskur. 30 og 45%, Edamer. 20. 30 og 45%, Taffel. 20 og 30%, Gouda, 20 og 30%, frá Mjólkurbúi Flóamanna, þolir allan samanburð. í heildsölu hjá oss. Sláturfielagiö. Boeskov befir fallegasta, úrvalið af alls konar blómum og túlípönum. Kemur nýtt daglega. Tekið á, móti pöntunum til jól- anna. Sími 93. Laúga- veg 11. Eitthvað til að gala at Eggjadnlt — Gerdnft og Krydd. Homarbarinn riklingur í pökkum, nýkominn. Versl. Foss. Lauvaveg 12. Sími 208L E6&ERT CLAESSEK, hestarjettarmálaflutningsmaður, Skrifstofa: Hafnarstræti 5. ?fmi 871. Viðtalstími 10—12 1. S.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.