Morgunblaðið - 23.01.1932, Side 3
*. Jttotgtutffottft
• Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
-« Rltstjörar: Jön KJartanaaon.
• Valtýr Stefánaaon.
2 Rltstjörn og afgrelVala:
• Austurstrœtl 8. — Stml 500.
2 Augrlýslngrastjöri: E. Hafberg-.
• AuKiysingaskrtfstofa:
Austurstræti 17. — Slasl 700.
• Heimaslmar:
Jön KJartanaaon nr. 742.
Valtýr Stefánaaon nr. 1220.
• E. Hafbergf nr. 770.
• Aakrlftagjald:
t Innanlands kr. 2.00 á mánuSL
• Utanlands kr. 2.60 á mánuBL
« 1 lausasölu 10 aura elntakiO.
• 20 aura meB Leabök.
•
Bát uantar.
Einn af Keflavíkurbátunum,
>,Hulda“ GK 475, um 11 smálestir
aft stærð, hefir verið hjer í Reykja-
vík um hríð til viðgerðar. Yar
Eann kominn hingað löngu áður
Keflavíkurdeilan hófst, en fyr-
i? 3—4 dögum var viðgerðinni lok-
ið, og ætlaði báturinn þá að fara
heim. Hann liafði ekki nægilega
mdda olíu til þess — mundi liún
þó líklega liafa enst í góðu veðri
en hvernig sem formaðurinn
^eyndi að fá olíu til viðlótar hjer,
þá vrar iloku fyrir það skotið. —
Alþýðusamband íslands hafðj lagt
•afgreiðslubann á alla vjelbáta úr
Keflavík. Þá reyndi formaðurinn
a-ð fá oíiu í Hafnarfirði og víðar,
það varð árangurslaust.
I fyrradag um hádegi lagði bát-
urinn svo út upp á von og óvon'.
um það, að oílían, sem hann hafði,
Wnndi hrökkva. Var það um há-1
*iegi að hann lagði á stað. Veð-
Qr var þá sæmilegt, en þegar fram
íl daginn kom, gerði ofsa útsynn-
ingsrok.
I gærmorgun var báturinn ekki
kominn fram og gerðust menn þá
óttaslegnir um afdrif lians. Var
símað í allar áttir hjer nærlendis
til þess að spyrja um hann, en
hans hafði hvergi orðið vart. Kl.
í gærdag var Þór svo send-
Ur að leita lians, en í gærkvöldi
hafði sií leit ekki borið neinn ár-
angur, og sendi þá Slysavarna-
fjelagið í gegn um Tltvarpið á-
skorun til allra skipa og báta
hjer innan flóans, að svipast að
honum.
Á bátnum voru fjórir menn:
Eáll Magnús Pálsson, formaður,
Magnús Sigurðsson vjelarmaður,
’Tóhann Ingvarsson, fyrverandi
■oddviti, ali ir úr Keflavík. Pjórði
uiaðurinn var unglingspiltur, sem
'ohki átti heima í Keflavík, og
'vitum vjer ekki nafn hans.
Konungur fer ekki til
Cannes.
Khöfn 22. janúar.
United Press. PB.
Kristján ltonungur liefir ákveð-
ið að fara ekki suður að Miðjarð-
U'hafj; í ár, sjer til hressingar, eins
ug hans er venja á ári hverju.
fók konungur ákvörðun þessa
vegna. kreppuástandsins.
Rússar og Finnar gera með
sjer friðarsáttmála.
Helsingfors, 22. jan.
United Press. PB.
Rússland og Pinníand hafa und-
U'skrifað samning til þriggja ára,
þess efnis, að hvort landið um sig
heitir því, að hefja eigi arásar-
Myrjökl á hitt
FjárhagsumrcEður
f bæjarstjórninni.
Umræður bæjarstjórnarinnar um
fjárhagsáætlunina fyrir árið 1932,
•; fimtudagskvöldið, voru með frið
samara og styttra móti.
Meiri hlutinn í bæjarstjórniniii
hafði borið fram nokkrar breyt-
ingar á frumvarpinu, en smávægi-
legar, er samþyktar voru. Voru
það þessar: Að styrkur til Kenn-
araskólans og Iðnskólans hækki úr
3 í 4 þús. kr. Styi'kur sje veittur
Tónlistarskólanum — 2000 kr. og
Páli ísólfssyni fyrir stjórn Lúðra-
sveitar Reykjavíkur 3000 kr.
Sömuleiðis var samþ. að fella
burtu 1800 kr. fjárveitingu til að-
stoðar handa byggingarfulltrúa. —
Till. frá P. Iíalld. og Jab. Möller
um 1000 kr. styrk tiil Lúðrasveitar-
innar var og samþ. og enn fremur
tillaga frá sósíalistum um 1000 kr.
styrk til málaskóla Hendriks Ottós
sonar.
Samþykt var að greiða starfs-
mönnum bæjarins i ár, sömu dýr-
fíðaruppbót og þeim var greidd í
fvrra, 40% af föstum launum, með
tilliti til þess, hve laun starfs-
mannanna eru yfirleitt lág.
Tillaga frá Hermanni Jónassyni
um að til launa lögregluþjónanna
væri ætlað 111 þús. kr. fyrir 95
þús. kr. í frv., var og samþ. með
samhlj. atkv.
Tillögur sósíalista.
Eins og bæjarbúum er kunnugt,
hafa sósíalistar þann sið, að hrúga
breytingartililögum upp, við fjár-
hagsáætlun bæjarins, um alls kon-
ar aukin útgjöld. Nota þeir þar
ábyrgðarleysi sitt, um fjárhagsaf-
komu bæjarins. Ætlast þeir til
þess, að með því að bera fram
tillögur þessar, geti þeir veitt ein-
liverja bæjarbúa til fylgis við sig,
sem veita því ekki eftirtekt, a.ð
tillögur þeirra sósíalistanna, eru
alls ekki bornar fram í því skyni,
að þær sje samþyktar.
1 þetta sinn námu hækkunar-
tillögur sósíalistanna á fjárhagsá-
ætluninni 465 þúsund krónum. Um
þessar titlögur sósíalistanna fómst
Pjetri Halldórssyni orð á þessa
leið:
Þegar fj.árhagsáætlunin fyrir ár-
ið 1931 var til umræðu, taldi jeg
ekki víst, að takast myndi, að ná
þeim tékjum inn, sem áætlaðar
voru.
Sósíalistar töldu þetta álit mitt
firru. En reynslan hefir skorið úr
um það, að álit mitt var rjett.
Grípa varð til aukaniðurjöfnunar
er leið á árið.
Prumvarp það, sem hjer liggur
fyrir um fjárhagsáætíun bæjarins,
g'erir varla ráð fyrir nokkurum
útgjöldum, sem eru ekki alveg
nauðsynleg. Þó er ekki gert ráð
fyrir, að útsvörin lækki svo neinu
nemi, enda þótt gja.ldgeta borgar-
anna hafi minkað miltið á þessu
ári. —
Það er ljett verk og löðurmann-
legt, sem sósíalistar hafa hjer með
höndum, að bera fram tillögur um
alLs konar útgjöld, vitandi það, að
tekjur bæjarins hi'ökkva ekki til
þeirra útgjalda.
Það hefir komið fyrir, að sósíal-
istar hafa borið fram tillögur, sem
nema 2—3 milj. kr. viðbótar út-
gjöildum. En nú nema þær þó inn-
an við l/2 miljón. Má. kalla þetta
nokkra framför.
MORGUNBLAÐIÐ
Þá er það og sjerkennilegt við
framkomu sósíalista í ár að sýni-
legt er, að þeim er enn þá minni
alvara með þessar t.illögur sínar, en
nokkru sinni áður.
Jakob Möller sýndi og fram á
ýmsar reikningsblekkingar í tillög-
um sósíaliaía. og talaði um nokkr-
ar þeirra sjerstaklega. T. d. tillög-
ur um, að draga 50 þús. kr. frá
fátækra framfæri, og veita 60 þús.
kr. til mæðrastyrksnefndar. Taldi
liann mjög vafasamt, hvort tillögur
þessar væru lögum samkvæmt,
livað sem nytseminni viðvíkur.
— •• —
Frjettaritari
Rlþýðublaðsins
í Vestmannaeyjum.
Alþýðublaðið birtir í gær frá
sögn af atferli kommúnista í
Vestmannaeyjum á fimtudaginn
var. Getur blaðið þess, að frá-
sögnin sé „samkvæmt viðtali við
Ísleif Högnason“, en ísleifur
þessi er aðalforingi kommúnista
í Eyjum.
ísleifur segir þannig frá:
„í gærdag var stöðvuð vinna
við slippana og vjelaverkstæði,
sem voru að útbúa bátana til ver
tíðarinnar, ennfremur hættu
ýmsir sjómenn vinnu, sem höfðu
verið að vinna við bátana“.
Enn fremur segir ísleifur:
„Kl. um 2 í gær voru ýmisir
úr liði útgerðarmanna orðnir
crukknir og fóru að ganga í hóp
um um göturnar. Rjeðust þeir að
einum og einum verkamanni og
lömdu þá, og höfðu þessir óðu
menn þannig lamið þrjá verka-
menn niður, þegar drengur kom
upp í Alþýðuhúsið og tjáði verka
mönnum, sem þar voru saman
komnir, 30 að tölu, tíðindin.
Fóru verkamennirnir þá þegar
á vettvang og mættu hóp af
ýmsum mönnum, á að giska 100
að tölu, og lenti undir eins í
ryskingum. Lauk þeim brátt.
Föt voru rifin, en engin meiðsl
urðu“.
Mbl. skýrði í gær tíðinda-
manni sínum í Eyjum frá þess-
ari frásögn Isleifs Högnasonar.
Tíðindamaðurinn sagði, að frá-
sögnin væri lygi frá rótum. Eng-
inn verkamaður— ekki einn ein-
asti — hlýddi boði kommúnista
um að leggja niður vinnu. Á
sumum stöðvunum tóku verka-
menn þannig á mióti kommúnist-
um, að peir ráku þá burt með
harðri hendi. Þetta heitir á máli
Isleifs, að vinna hafi verið stöðv
uð!
Ut af frásögn ísleifs af viður-
eign kommúnista og sjálfboða-
liða sagði tíðindamaður Mbl., að
hlutur Isleifs væri nú svo rýr
í Eyjum, eftir þessa viðureign,
að óhugsandi væri, að hann ætti
þar upreisnarvon framar. Svip-
að væri að segja um aðra for-
sprakka kommúnista. T. d. hefðu
sjómenn ætlað að beita sömu að-
ferð við Jón Rafnsson og Isleif
(flytja hann heini), en Jón hefði
grátbænt þá um að sleppa sjer,
því hann væri lasinn. Þetta var
gert, því foringinn(!) var með
grátstafinn í kverkunum.
Almenningur í Eyjum er undr
andi yfir því, að Alþýðublaðið
skuli ekki snúa sjer til einhvers
Reykuískir kommúnístar
Idta á sjer bcera.
Þeir ætla að ógná bæjarstjórninni með hand-
afii til að segja af sjer, og verja bæjar-
fulitrúunum útgönguúr Templarahúsinu.
Lögreglan rekur kommúnista frá húsinu
Þess er getið á öðrum stað hjer
í bilaðinu, að umræður bæjarstjórn-
arinnar um fjárhagsáætlunina i ár
voru venju fremur hógværar. Þær
eru vanar að standa fram á nótt.
En í þetta sinn var þeim lokið fyr-
ii' klukkan 11. Tiltölulega fáir
áheyrendur voru á fundinum, eink-
um eftir ltvöldmatarhljeð, er úti
var kl. OVa. En á kvöldfundinum
þar á eftir fóru engar umræður
fram — aðeins atkvæðagreiðsla
um fjárhagsáætiunina.
Guðjón Benediktsson, er mun
telja sig einhverskonar fyrirliða
kommúnista hjer í bænum, sat á
áheyrendabekkjum meðan stóð á
umræðum um fjárhagsáætlunina.
En fátt mun þar hafa verið af
flokksmönnum hans. Þeir hjeldu
sig annars staðar.
Síðasta mál á dagskrá bæjar-
stjórnar voru iitsvarsmál. Voru
þau, sem endranær, rædd fyrir
luktum dyrum, og áheyrendur
beðnir að víkja úr salnum, áður
en umræður um þau byrjuðu.
En rjett- um sama leyti og á-
heyrendnr voru farnir úr liúsinu,
fiyktíst hópur hommúnista inn í
fordyri hússins, með ærsílum og
gauragangi. Því það er, sem kunn-
ugt er, sjerkenni þess flokks, að
á hverskonar samkomum hans,
hvort lieldur er úti eða inni, kepp-
ist hver sem betur getur um það,
að bera á sjer flokksmerki skríl-
æðis. í
Tveir lögregluþjónar, er verið
höfðu dyraverðir bæjarstjórpar-
fundarins, vörnuðu komumönnum
inngöngu á hinn lokaða fund.
En sjer til ánægju, meðan á
umræðum stóð hins lokaða fundar,
hófu kommúnistar að syngja
flokkssöngva sína, og varð eigi
fundið, að þeir spöruðu hljóðin.
En er bæjarfullltrúarnir höfðu
lokið störfum siínum, og ætluðu
út úr húsinu, var þvaga kommún-
istanna fyrir þeim í fordyrinu,
og vörnuðu forsprakkarnir bæjar-
fulltrúunum útgöngu. Meðal þeirra
áem leituðu mest á kommúnista-
fylkingu þessa, var lögreglustjór-
inn og bæjarfulltrúinn, Hermann
Jónasson.
Nú tóku kommúnistar að kasta
ýmsum ókvæðisorðum til bæjar-
fulltrúanna. Heimtuðu þeir, m. a.
að bæjarstjórnin segði af sjer
þegar í stað. Urðu nokkurir fyrir
svörum, m. a. Jakob Möller, er
sagði, að slíkt kæmi sjer ekki til
hugar. Stefán Jóhann Stefánsson
tók í sama streng.
Lögregluþjónarnir tveir stóðu í
dyragættinni, og komust kommún-
istar ekki inn fyrir.
Eftir nokkurt þjark þarna við
innri dyrnar, komu 4 lögreglu-
þjónar að utan inn í fordyrið, og
gætins verkamanns til þess að fá
frjettir úr Eyjum. í þess stað
birtir blaðið lognar frjettir frá
æstum kommúnista.
var Erlingur Pálsson fyrir þeim.
Báðu þeir þá, sem inni fyrir
voru að víkja út, og tæmdist ytri
hiuti fordyrisins, án þess nokkurt
liandalögmál yrði.
En þeir sem þarna voru, og fast-
ast fylgja Guðjóni Benediktssyni
'og Brynjólfi Bjarnasyni og slíkum,
tóku saman höndum þarna í for-
dyi'inu og mynduðu „bendu.“ Er
lögreglan bað þá að fara út, svör-
uðu kommúnistar Jieirri málaleit-
un með því að ráðast á lögreglu-
þjónana.
Tóku lögregiuþjónarnir þá fram
kyilfur sínar og ráku kommúnistr
ana út úr liúsinu. Norðurdyr for-
stofunnari höfðu kommúnistar
brotið upp, svo forstofan var opin
í báða enda. Hentu þeir klaka-
stykkjunum inn um báðar dyrnar
á lögregluþjónana. Helst sá hend-
ingaleikur nokkuð eftir að út vax
komið. Einn lögregluþjónninn
fekk óþyrmilegt högg í höfuðið af
klakastykki. — Lögregluþjónninn
bandaði til þess sem næstur stóð;
kom höggið í öxlina, og fjell sá
við. Nokkurir kommúnistar mimu
hafa fengið óþægileg’ högg á bak
og í brjóst, svo þeir voru dasaðir
i gær. En af engum alvariegtun
ávei'ka liefir Morgbl. frjett.
Er forstofan var rudd, gengu
bæjarfulltrúar óhindrað heimleið-
is. Kommúnistar spöruðu ekki gif-
uryrði í garð bæjárfulltrúa Og
lögregluþjóna. Ljetu þeir óspart
í Ijósi, að þeir söknuðu vinar í stað
þar sem Ólafur Priðriksson hefði
ekki verið á bæjarstjórnarfundi
þessum, og hefðu þeir því ekki
getað liaft tal af honum í þetta
sinn.
Áður en k Ommúnistahópurinn
kom að Templarafhúsinu, höfðu
þeir verið á fundi í Bröttugötu.
Hvað þar fór fram, er Morgbl.
ekki kunnugt um. En alt bendir
til þess, að þeir hafj beðið með
árás sína og ekki látið á sjer bæra,
fyr en þeir vissu, að bæjarfulltrií-
árnir voru einir eftir í Templara-
húsinu.
Einhver slæðingur kommúnista
staðnæmdist í Pósthússtræti eftir
að bæjarfulltrúarnir voru farnir
heim. Var skotið þar á einskonar
útifundi. En skömmu síðar kom
liríðarjel, og kólnaði þeim þá svo
þeir hurfu undir þak. Segir ekki
fieira af ferðum þeirra.
Hermannaskálar gerðir að
sjúkrahælum.
Vegna þess hvað Svíar fækkuðu
her sínum mikið 1925, urðu margir
hermannaskálar auðir. En þeim
hefir verið breytt í veðveikrahæli
og hressingarhæli. Hefir stjórnm
varið stórfje á seinustu árum til
þess að breyta í slík hæli fjórnm
hermannaskálum hjá Örebro, Sala
og Hemösand og vom þeir nú um
áramótin að öOlu leyti útbúnir til
þess að taka á móti sjúblingitm.