Morgunblaðið - 02.02.1932, Page 2

Morgunblaðið - 02.02.1932, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 'zr?¥~ Styrjölöin í Kína. Shanghai, 30. jan. Mótt. 31. jan. United Press. PB. Kínverjar hafa ekki. sagt Japön- nni stríð á hendur og munu forð- ast það í lengstu lög. Hjer er yfir- leitt ekki geit ráð fyrir, að til styrjaildar komi, þótt horfurnar sjeu ískyggilegar vegna bardag- anna að undanförnu. Bandaríkjamönnum í Nanking hcfir verið ráðlagt að vera við því búnir að hverfa á braut úr borg- inni með tveggja stunda fyrirvara. Amerískir sjóliðsmenn hafa hand- tekið níu Japana, klœdda borgara- legum klæðum, sem skotið höfðu yfir höfuð amerískra hermanna á verði inn á svæði Kínverja. Japönsku yfirvöldin hafa lýst því yfir, að Japanar í Kína, sem gerst höfðu sjálfboðaliðar verði afvopnaðir, og taki þvi ekki þátt í bardögunum gegn Kínverjum, en verði látnið aðstoða við skotgrafa- gröft Og fleira, eftir því sem þörf krefur. Seinustu fregnir: Loyang hefir verið gerð að höfuðborg Kína ti)l bráðabirgða, í stað Nanking. Ótt- ast stj-órnin, að Japanar muni gera árás á Nanking. Ohiang-kai-shek og Wang-ching- v/ei eru farnir til Loyang. — ítalykur faDbywiubátur hefir sett 150 sjóliðsmenn á -land, til aðstoð- ar á forrjettindasvæði ítala, ef til þess kæmi, að hætt væri við að bardagar bærist þangað. Nanking, 31. jan. United Press. PB. Utanríkismálaráðherra Nanking- stjórnarinnar hefir lýst því yfir í viðtali við aðalfrjettaritara United Press í Kína, að enginn fótur sje fyrir því að Nankingstjórnin ætli að segja Japönum stríð á hendur. „Kína mun afldrei grípa tíl þeirra ráða1 sagði ráðherrann. Vara-ut anríkismálaráðherrann kvað einnig fregnirnar ósannar, en lýsti því hins vegar yfir, að Kína væri undir það búið að verjast frekari árásum eftir megni. London, 1. febr. United. Press. FB. Tokio: Stjórnin hefir fengið fregnir um það að tilraunirnar til að mynda hlutlaus svæði í Shang- hai, hafi misheppnast. Bretar og Bandaríkjamenn höfðu boðist til að láta herlið sitt gæta þeirra borg- arsvæða sem Japanar hafa á sínu valdi, en á þetta vildi hershöfðingi Japana ekki falíast, þar sem fjöldi Japana er búsettur á þessu svæði og Japönum sjálfum ber að gæta hagsmuna þeirra og vernda þá. Stjórnin telur því, að varanlegt vcpnahlje muni ekki komast á. Síðari fregnir herma, að bardag- ar sjeu byrjaðir á ný. Japanar nota flugvjelar og hafa varpað sprengjum úr þeim á lierlið Kín- verja. Nanking: Borgin lýst í hernað- arástandi. Menn liafa lagt á flótta í þúsunda tali. Sumir hafa 'leitað hælis í skipum á fljótunum. — Kínverjar víggirða borgina og grafa skotgrafir fyrir utan borgar- veggina. Mikill undirbúningur fer fram til að verjast væntanlegri á- rás Japana. — í Hankow eru t'ald- ai ískyggilegav horfur, Nanking 1 .febr. United. Press. FB. Aðalfregnritari U. P. tílkynti kl. 11,30 síðd.: Japanskt beitiskip hóf skothríð á .Nanking, en stórskotalið Naukinghersins hóf þegar fallbyssu skothríð á móti. 'Öll iljós voru slökt í borginni. Ótti og skelfing greip borgarbúa á meðan fallbyssurnar þrumuðu og Nankingliðið og beiti- skipsmenn skiftust á stórskotum. Japanar höfðu áður sent 7 smærri lierskip upp Yangtzeána og lögðust þau þar, sem hentast þótti tíl mið- unar á borgina. Aður en Nankingstjórnin fór til Loyang á laugardag skipaði hún svo fyrir, að stórskotaliðið skyidi taka sjer stöður fyrir utan borgina og verja hana eftir mætti. Japanar höfðu sent öllum Jap- önum í Nanking boð um að hverfa á brott úr borginni og voru þeir fluttir út í herskip þeii-ra, undir vernd sjóliðsmanna. Tokio: Fregnast hefir, að stjórn- ir hafi ákveðið að senda her manns tii Shanghai, en eigi er þess getið hve mannmargur hann verði. Síðarj fregn: Stórskotahríðinni linti kl. 12.45 árd. Talið er að Jap- anar hafi liafið skothríð þessa t.il þess að koma í veg fyrir herflutn- inga Kínverja til borgarinnar. Frjettir. 6 menn skotnir. Fyrir skömmu ætluðu fjórir karlmenn og tvær konur að laumast yfir landamæili Bessarabíu og inn í Rúmeníu. En landamæravörður varð var við för þeirra og kallaði viðvörunarorðum til þeirra. Þau skeyttu því engu og greip hann þá tíl byssunar og skaut öll svo að þau biðu bana. Við nánari rannsókn kom í ljós að þetta voru fimm kommúnistar frá Rússlandi og einn smyglari, sem höfðu ætlað að laumast inn í Rúm- eníu. Kvikfje brennur inni. Nýlega brann fjós og hlaða hjá bónda í Dimmelsvik í Storð i Noregi. — Brann þar inni 6 kýr, 18 kindur, 3 grísir og 20 hæns. Enn fremur hey og búskaparáhöld. Nokkuð af þessu kvikfje áttí annar bóndi. Skriða fell á bæ lians í vetur og braut hann og kom hann þá skepn- unum þarna fvrir. Fölsuð hlutabrjef. Lögreglunni í New York liefir nýlega tekist að t Frú Kristfn Guðjohnsen á Húsavík, kona Stefáns kaup- manns Guðjohnsen andaðist á heimili þeirra hjóna föstudaginn 21). janúar. Frú Kristín fekk aðkenningu af slagi, hinn 7. janúar, og hafði ekki fótavist eftir það. „Nakin uar jeg og þjer klceööuð mig“, Þeir, sem lítið hafa inn í franska spítalann, síðan vetrarhjálp safn- aðanna liófst þar, hafa víst tekið eftir ]>ví að þar sitja oft að verki nokkrar konur, sjálfboðalið úr söfnuðunum, sem er að leggja liönd að því þarfa verki, að breyta gömlum, úreltum f'líkum, sem bæj- arbúar hafa gefið, í nothæfar, skjólgóðar flíkur. Og þau eru ekki oi-ðin fá börnin, sem notið hafa ár- angurs þessarar þörfu iðju. Það virðist einkar vel til fallið, á ])ess- um erfiðu tímum, að sameina þann- ig hjálp tíl matar og fata, og bæj- ai-búar hafa hvorugu gleymt. Þeir hafa þegar sent mötuneytinumikið af ýmis konar fatnaði, sem hefir verið iitbýtt eftir bestu föngum, og sem hvarvetna hefir komið sjer afar vel, því eitt hið erfiðasta fyrir fátæka foreldra, er að sjá börnum sínum fyrir skjólgóðum og væn- um fatnaði. Það reyndist einnig allörðugt viðfangs einyrkja hús- mæðrum, að nýta böt barna sinna. Annirnar eru margar, þegar barna- hópurinn er stór og öll innanhúss störf koma á einar og sömu kven- hendurnar, og þegar svo þar við bætist að húsakynnin eru þröng og óþægileg, þá er það bersýnilegt hversu þjónustubrögð, fatasaumar og viðgerðir, verða erfið viðfangs. Fer því hjer, sem vonlegt er, ekki ósjaldan, allmikið efni til ónýtis, eða kemur ekki að tilætl- uðum notum. Jeg veit þess mörg dæmi, að fatagjafir, sem í sjálfu sjer eru góðar og nytsamar, koma að mjög litlu gagni sökum þess, að hús- móðurinni vinnst ekkj tími til að hagnýta þær, eins og oröið hefði, ef ástæður hefðu verið öðru vísL Hjer er verkefni fyrir ílaghentar ungar stúlkur, sem eiga afgangs tíma frá öðrum störfum, eða hafa ekkert sjerstakt fyrir stafni; og einkanlega nú, á meðanvetrarhjálp safnaðanna fer fram í franska spít- alanum, ]iví þar er húsrými gott og hentugt fjrrir ]>ær konur, sem r.á í bófafjelag. sem hafði það fyrir |H‘ggja vilja hönd að því starfi, atvinnu að selja fölsuð hlutabrjef. seni ^jer er vikið að. Þá er hjer ekki síður tækifæri til að láta gott leiða af gömlu föt- Hnsmæðnr! Biðjið kanpmenn yðar nns „Llbbys“ ávexli ef þjer viljið vera vlssar nm að fá það besla. Hafði fjelag þetta þegar sélt föls- uð hlutabrjef í ýmsum stórum finnum, svo sem General Motors og American Telephon & Telegraph Co. fyrir fimm miljónir dollara. Lög- reglan klófesti bófana á þann hátt, að leynilögregumaður nokkur stofnaði skrifstofu fyrir liluta- betur varið á annan hátt en þann brjefaverslun í Wall Street og var að skýla með þeim fatalitlu barni, unum, sem farið er úr að fullu og öllu, og sem nú hanga einhvers staðar í skáp, eða horni, engum tíl gagns nje heldur ánægju. Þeim verður áreiðanlega ekki sjeð um að það bærist út að hann mundi ekki vera sem ráðvandastur í starfi sínu. Þegar þannig hafði gengið um hríð og þessi orðrómur jókst, komu hlutabrjefafalsararnir gamalmenni eða öðrum bágstödd- um úr bræðra og systra hópnum. Það má búa tíl svo undurfallega flík af litlu efni, sje vel með farið. Jeg ætla að segja ofurlitla sanna til hans og vildu gera fjelag við,sögu, máli mínu til stuðnings, og hann. Gengu þeir þannig í þá þeim til hvatningar, sem ef tíl vill gildru sem þeim var búin. hika við að lata af hendi gömul föt, af því þeim þ-ykir það of lítíl- fjörlegt. Jeg kom í hús eitt hjer í bæn- um rjett fyrir Jólin. Þar var margt barna, og þröngt í búi, sök- tun atvinnuleysis. Konan var að sauma jólaföt á börnin. Hún var svo vingjarnleg að 'lofa mjer að lita á handbragð sitt. Ekkj var ])að nýtt efni úr búðunum, sem ún hafði á milli handanna, en jeg dáðist, að því, og jeg dáist að )ví enn, er jeg hugsa um hversu vel henni hafði tekist að sníða og sauma upp úr gamla, slitna pilsinu sinu, laglegustu drengjaföt. Nál- sporin voru að vísu langtum fleiri heldur en þau hefðu orðið á nýju efni, því að aukarnir voru margir, en þrátt fjrrir alla aukana, þá voru þetta snotrustu föt. Lag- tæk konuhönd megnar mikils, og nýtnin og iðnin eru' sannkölluð lífgrös á heimilaakrinum, og þótt lengra væri leitað. Vafalaust er fjöildi fólks lijer í bænum, sem fíislega lætur af hendi notuð föt, til þess að úr þeim verði sniðið og saumað handa fatalitlu fólki, ef það er trygt að slíkar gjafir kæmi að góðu gagni. Jeg veit til þess að óvissa um það fælir ýmsa frá að gefa. En nú er sú trygging einmitt fengin, þar sem að mötuneytið er og því er þess vænst að mörg hús- freyjan hjer í bænum, bregðist vel við, gæti í fatageymslu sína og taki fram gömlu fötín, sem eng- inn notar framar á lieimili hennar, sem hún hefir engin not af, og annað hvort sendi þau inn í franska spítala, eða hringi í síma 1947, verða fötin þá tafarlaust sótt, og þakksamlega við þeim tek- ið. — Alt fatakyns er nothæft, hagar og iðjusamar kvennhendur kunna vel með að fara þótt smátt kunni að vera, það sem sent er, og vel þori jeg að bjóða gefendunum að koma og sjá stakkaskiftin sem verða á gömlu flíkunum, þegar skæri, nál og tvinni í hagleiks- liöndum, hafa haft það til með- ferðar Að lokum vil jeg leyfa mjer að vekja athygli kaupmanna og klæð- skera á því, að hverskonar efnis- afgangur og afklippur koma að mjög góðu gagni hjá fatagerðinni í franska spítalanum; það eru svo margir litlu kropparnir, sem þarf að verja fyrir vetrarkuldanum. Reykjavík, '29. januar 1932. Guðriín Lárusdóttir. Nýkomið: Gúmmíbuxur, allar stærðir. Baínasmekkir, Dömubindi, ásamt, tilhejrrandi be'ltum. margar ódýrar tegundir. Þvottapokar og Þvottadúkar. Dragið ekkí til morguns, ])að sem þjer getið gert í dag. Líftryggið yður í Andvökn. Sími 1250. Sobkar alls konar fyrir dömur, herra og böm. Best og ódýrast í Vöruhúsinu Og Utbúið Langav, 35 Verslunarstúlkur, munið ösku- dagsfagnað Kvennadeildar Merk- úrs (10. febr.) og sendið öskupoka jrkkar sem allra fyrst í Þingholts- stræti 18. Skemtunin nánar aug- lýst síðar. Z. XXV. „Það væri reynandi —“ í ágúst 1914 varð mönnum tíð- rætt, um j’firgang Þjóðverja og ofstopa, er þeir rjeðust inn yfir Belgíu, í bjrrjun heimsstyrjaldar- innar. Karl einn hlýddi á tal manna um hina þýsku óaldarseggi. Honum varð* að orði: — Það væri reynandi að hlejrpa úr byssu á f j. ... mennina og vita hvort. þeir sefuðust ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.