Morgunblaðið - 18.05.1932, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.05.1932, Blaðsíða 3
MORGUN BLAÐIÐ Fjársukkið mikla. Fáein sýnishorn af meðferð stjórnarinnar á fje almenn- ings árið 1930. • JfHorgjntWatoð • • 2 Úttfef.: H.f. Árvakur, Reykjaylk. J • Rlt.tjörar: Jðn KJartaneson. • Valtýr Stef&neaon. • Rl'tetjórn og afgrelSala: • Auaturatrætl 8. — Slaal (00. • • • • AuglýslnKaatJórl: H. Hafbarr. • 1 AuKlýalngraakrifatofa: í • Auaturatræti 17. — Sloal 700. • 2 Helmaslmar: • • Jön Kjartanaaon nr. 741. 2 • Valtýr Stef&naaon nr. 1110. • • B. Hafbers nr. 770. • 2 Áakrlftaslald: 2 a Innanlanda kr. 1.00 & m&nnSl. • 2 Utanlanda kr. l.SO & oa&nnBl. 2 • í lauaaaölu 10 aura eintakiB. • 20 aura meO Leabók. • « • «••••••••••••••••(•••••••• Forscetisráðherra lapana myrtur. Tokio, 16. maí. United Press. FB. Sex yfirföringjar íir landhern- lim og lierskipaflotanum rjeðust inn í bústað Inukai forsætisráð- herra í dag. Hjeldu sumir þeirra ráðherranum, en hinir skutu tveim ur skammhyssuskotum í höfuð hon um. Beið ráðherrann bana. — Þeg- ar yfirforingjarnir höfðu framið verknað þennan gáfu þeir sig lög- reglunni á vald. Síðar: Ríkisstjórnin í Japan hef- ír beðist lausnar og hefir keisar- inn tekið lausnarbeiðnina til greina. Stjórnin gegnir þó störf- um til bráðabirgða eða uns ný stjórn liefir verið mynduð. Tokio, 17. maí. United Press. FB. Seiyukaiflokkurinn kvað hafa á- kveðið, að benda á Suzuki innan- ríkismálaráðherra, sem bráða- birgðaeftirmann Inukai. Verkfall ð Spðni. Sevilla, 15. maí. United Press. FB. Verkfall hefir verið hafið í bylt- Ingarskyni, í Andalusiu og horf- urnar þær, að þátttakendum í því fjölgi. Nokkrir menn liafa verið handteknir, vegna þess að sprengi- kúlur fundust hjá þeim. — Tveir menn særðust í Malaga, er barist var með spreugikúlum. Vorskóli Austurbæjarskólans er uú tekinn til starfa. — Um 300 börn voru innrituð í skólann í gær og síðastliðinn laugardag. Kennsla hefst í dag. Börn, sem sótt hefir verið um skólavist fyrir, en ekki hafa mætt enn þá, ættu að mæta í ■dag og næstu daga kl. 5—6. Hafnargjöldin og Danir. Sendi- herra Dana lijer hefir sent hafn- arnefnd erindi, þar sem hann skýr ir frá, að hann gangi að því vísu, að lækkun sú á hafnargjöldum fyrir fiskiskip, sem hjer hefir ver- ið um að ræða, nái einnig til -danskra (færeyskra) fiskiskipa, amkv. 6. gr. sambandslaganna. Hafnarnefnd óskar úrskurðar stjórnarráðsins um málið. Steinunn Valdimarsdóttir hefir sótt um meðmæli bæjarstjórnar til leyfis til veitinga- og gistihúss- reksturs. Fjárhagsnefnd hefir lagt til að meðmælin verði veitt. Sumargjöf, barnavinafjelag, hef ir sótt um 2000 kr. styrk úr bæj- arsjóði til reksturs dagheimili fje- lagsius. Fjárhagsnefnd ileggur til að fjelagið fái 1000 kr. st.yrk með því sltilyrði, að fátækranefnd ráð- stafi börnum frá fátækum heimil- wn til dvalar á dagheimilinu. XIV. Varhugaverð braut. Fertugasta og önnur athuga- semd yfirskoðunarmanna er svo- hljóðandi: „í 19. gr. 30. eru færðar til gjalda 2100 kr., sem greiddar voru 3 læknum til áhaldakaupa. Hvern- ig stendur á þessari greiðslu og hvar er heimildin fyrir benni f ‘ Svar stjórnarinnar er á þessa leið: „Landið á þessi áhöld. Þau voru í bili keypt til að geta leyst úr læknisvandræðum þriggja svo- nefndra útkjálkahjeraða, sem staðið liafa læknislaus lengur og skemur. Var hægt að fá þangað unga lækna um stundarsakir, með því að lána þeim nauðsynlegustu áhöld. Heilbrigðisstjórnin áleit það skyldu sína, að reyna að ráða bót á læknisleysi þessara lijeraða“. Yfirskoðunarmenn svara þessu þannig: „Engin heimild er fyrir þessum, greiðslum og verður að gjalda varhuga við slíkum greiðsl- um. Er þetta til viðvörunar fram- vegis“. Hjer er komið út á braut, sem er mjög varhugaverð. Sje svo á- statt, að ekki sje unt að fá lækna í útkjálkahjeruð, verður vitaskuld úr því að bæta á annan hátt en lijer var gert, t. d. með einhverri launahækkun. Hitt nær ekki neinni átt, að ríkið sje að kaupa dýr læknisáhöld og láni þau einstökum læknum, enda engin heimild til siíks. En það er alveg eins og ríkisstjórnin geti aldrei komið a.uga á neina leið til firlausnar á vandamáli aðra en þá, sem er til viðvörunar eftirkomendum. XV. Amarhólstún. Fertugasta og þriðja athuga- semd yfirskoðunarmanna er svo- liljóðandi: „Samkvæmt 19. gr. er kostnaður af Arnarhölstúni kr. 2663.06 og er þar í að sönnu innifalinn dálítill kostnaður af trjáplöntum annars staðar. Tekjur af túninu eru hins vegar kr. 10.05. Þegar það er at- hugað, að tún þetta með Nýja- bæjarbletti er í eignaskýrslu rík- issjóðs í LR metið á kr. 1.141.400,- 00, sjest, að þessi eign ríkissjóðs er arðlaus, og með hliðsjón af lóða- kaupum ríkissjóðs síðasta ár, virð- ist tímabært að taka til athugunar, hvort ekki væri hægt að gera þessa eign arðberandiu. Svar stjórnarinnar er á þessa leið: „Ríkissjóður vann Arnarhólstún með málaferlum við Reykjavíkur- bæ, sem taldi sig hafa rjett til þess. Á þríhyrnu þeirri, sem er milli Ingólfsstrætis, Hverfisgötu og Kalkofnsvegar, var reist lík- neski af fyrsta landnámsmanni á Islandi. Var sú mynd gjöf alþjóð- ar, og líkneskið talið tákn þjóðar- innar sjálfrar. Fyrstu árin eftir að mynd þessi var reist, var ekkert hirt um blettinn og myndina. — Sóðaskapur hinn m,esti var oft sýnilegur við myndastyttuna, og bletturinn í kring að fara í Mag. Ómerkileg girðing var í kring, og „draugur“ í hliðinu, þar sem geng ið var upp að styttu Ingólfs. Var allur þessi aðbúnaður að verða þjóðinni til hneisu. Eftir stjórnar- skiftin 1927 var t'únið girt, friðað og ræktað, ekki svo mjög vegna heyfengsins,. sem nú gengur til búsins á Kleppi, heldur til að þessi blettur sje þrifalegur, sam- boðinn myndinni og geti verið leik völlur barna í bænum. Er það eini gróni völlurinn, sem börn höfuð- staðarins eiga aðgang að. En til þess, að sómasamlega sje sjeð fyr- ir allri umgengni á Arnarhóls- túni og við Ingólfslíkneskið, hefir stúlka gætt blettsins alt sumarið. Kostnaðurinn við túnið er þess vegna við plöntun þar, ræktun blettsins og umtalaða vörslu“. Yfirskoðunarmenn svara þessu þannig: „Með aths. var bent á að at- huga, hvort ekki væri hægt að gera Arnarhólstún á einhvern hátt arðberandi, en svarið er um alt annað. Aths. er því til athugunar“. Já, svar stjórnarinnar er vissu- lega út í hött. Er lielst að skilja á svarinu, að stjórnin álíti rjett- mætt að hafa þessa dýru eign arðlausa vegna þess: AS eignin liafi einu sinni verið unnin með málaferlum, að þar sje reist lík- neski af Ingólfi landnámsmanni og að búið sje að kosta miklu fje í girðingu um eignina — að ó- gleymdu liliðinu fræga, sem Tím- inn flutti myndina af! Almenn- ingur á vafalaust erfitt með að skilja þessa röksemd, ekki síður en yfirskoðunarmenn lalidsreiknings- ins. — Meira. Dagbók. Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5): Lægðin, sem var fyrir sunnan ís- land vikuna sem leið hefir nú færst norðaustur fyrir, enda er vindur N eða NV um alt land, en þó hægviðri. Norðanlands er þykk- viðri og nokkur rigning en hiti 4—7 stig. Suðvestan lands hefir birt upp með hægri NV-átt. Yfir hafinu vestur af Bretlandseyjum er alldjúp og víðáttumikil lægð. Mun hún þokast norðaustur eftir og valda austrænni veðráttu lijer á landi. Veðurútlit í Rvík í dag: N og síðan A-gola. Bjartviðri. Trúlofun. Nýlega opinberuðu trú lofun sína ungfrú Sigríður Bein- teinsdóttir, Vesturgötu 26 og Val- ur Einarsson, veggfóðrari, Njáls- götu 69. Skattstjórnm og Tímaritstjórimi. Eysteinn skattstjóri Jónsson er hættur að skrifa undir nafni í Tímann um verslunarkostnað í Reykjavík. Felst í þeim undan- slætti viðurkenning hans á því að hann hafi, sem kunnugt er, vaðið reyk í fyrri greinum sínum. En aldrei getur maðurinn fundið nema eina afsökun fyrir því framferði sínu, að nota plögg og skilríki, sem hann einn hefir aðgang að, fram- töl Reykvíkinga, til þess að sví- virða þá og baknága. AfsSkunin er sú, að hinn grunnfærni ungi mað- u er útskrifaður úr skóla Jónasar Jónssonar, þar sem nemendum eins og Eysteini hefir verið innprent- aður ódrengskapurinn, rógurinn og níðið um náungann. En lítill karl er Eysteinn skattstjóri, þegar rekn ar eru ofan í hann blekkingar hans um verslunina hjer í Reykja- vík, þá skuli hann klína svargrein- um sínum á Gísla Tímaritstjóra, með það fyrir augum, að Gísla muni ekki um að taka á sig sneyp- una — það sje ekki hvítt að velkja þar'sem hann er. Vorskóli Aðalsteins Eiríkssonar í Skildinganesi, byrjar á morgun, og eru börn þau sem ætla að taka bátt í námi þar beðin að mæta þar kl. 4. Vorskólinn verður á sama stað @g kensla fór fram í vetur. Bethanía. Biblíulestur í kvöld kl. 8%. Ar-thur Gook trúboði út- skýrir. Fjáraukalögin 1930, eða „fjár- aukalögin mestu“, eins og þau hafa verið nefnd, voru enn til 2. umr. Nd. í gær. Áður en gengið var til atkvæða um frumvarpið hurfu allir sósíalistarnir burt úr deildinni og ljetu ekki sjá sig við atkvæðagreiðsluna. Frv. var samþ. til 3. umr. með 14:7 atkv. (Sjálf- stæðismanna). Kauplaust skal hún vinna. Þál. till. um skipun milliþinganefndar til að íhuga og koma fram með tillögur um mál iðju og iðnaðar kom í sameinað þing, þar eð á- greiningur varð um það milli deild anna hvort nefndin skyldi fá kaup fyrir vinnu, sína eða ekki. Ed. vildi láta nefndina vinna kaup- laust og var það samþ. í Sþ. í gær og till. þannig afgreidd tiil stjórn- arinnar. Ekkert síldarmat. Fyrir Alþingi hefir legið frv. um síldarmat. Á- ireiningur varð milli deildanna um tilhögun matsins og fór því frv. í sameinað þing og kom þar fyrir í gær. Eftir nokkrar um- ræður var gengið til atkv. og voru 23 atkv. með frv., en 13 á móti; t.veir greiddu ekki atkvæði. Þar með var frv. fallið, bví % greiddra atkvæða þarf í Sþ. Er því út- koman sú, að engin síldarmatslög eru til í landinu. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 12.30 Þingfrjettir. 16.00 Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tón- leikar (Útvarpskvartettinn). 20.00 Klukkusláttur. Erindi: Frá út- lönduin (Vilhj. Þ. Gíslason). 20.30 Frjettir. 21.00 Grammófóntónleik- ar: Caruso syngur: Addio alla madre, úr „Cavalleria Rusticana“, eftir Mascagni; Ah! La paterna ,mano, úr „Maebeth“ eftir Verdi; O souveraini úr „Le Cid“ eftir Massenet, og Racliel, úr óp. „Gyð- ingakonan^ eftir Halevy. Kreutzer Sónatan, eftir Beethoven. Eldhúsræða Magnúsar Guð- mundssonar í vetur vakti. mikla eftirtekt um land alt, endá fjall- aði hún um málefni, sem nú er mest um talað, en það er fjármála- sukk stjórnarinnar undanfarin ár. Nii er ræða M. G. komin út í heilu 'agi í síðasta hefti „Stefnis“. Ættu menn að eignast lieftið, og fæst bað hjá ritstjóranum á Laufásveg 63. — Tjarnarhólminn. Jón Pálsson fyrv. bankagjaldkeri hefir fengið því til leiðar komið, að bætt hefir verið nokkuð í vor um sumarbxí- stað hinnar reyltvísku kríu, Tjarn arhólmann, svo hann er nú dálítið rúmbetri varphólmi en áður var. Jón á von á að krían komi nú þann dag sem fyrst kemur austan- átt. Hann hefir tekið eftir því á undanförnum árum, að krían er svo praktiskur farfugl, að hún lætur byr ráða ferðum sínum. „Gullfoss11 fer í kvöld kl. 8 beint til Kaupmannahafnar. Farseðlar óskast sóttir fyr- ir kl. 2 í dag. Fer frá Kaupmannahöfn 31. maí beint til Reykjavíkur. „Selfoss“ fer í kvöld; til Þýskalands, Antverpen, Hull og Leith og þaðan til Reykjavíkur. Súðin fer hjeðan í strandferð aust- iir um land sunnudaginn 22. þ. m. Tekið á móti vörum á fimtudag og; föstudag. Skipaútgerð Rlklsins. Gardínuverksmiðia í Svíþjóð óskar eftir góðum um- boðsmanni á íslandi. Svar á ensku, þýsku eða sænsku með upplýsing- um, merkt „Gardinfabrik“ sendist A. S. í. Notið daglega SIRHJS stjömukakaó. Qætið að vörumerkinu. ALDREI HEFIR ÞAÐ BORGAÐ SIG BETUR EN NO AÐ REYKJA — TEOFANI 20 STK. 1.25 TEOFANI & Co. Ltd. London. \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.