Morgunblaðið - 17.06.1932, Side 2

Morgunblaðið - 17.06.1932, Side 2
2 MORGUN B L AÐIÐ Iðnsvn'ngln 1932 verðnr opnnð 17. innf kl. 1 sfðd. (1 dsg) í mtðbæiarbarnaskðlannm, og befst at- hðfnín með stnttrf ræðn sem borgar- stiðrt Reykjavfkur heldnr. Aðgöngnmiðar verða seldir við innganginn og kosta 1 kr. fyrtr fnllorðua og 50 anra fyrir Mrn. Veitingar verða á staðnnm. Sýningarnefndfii' ... juni verður skrifstofum umboðs- og heild- verslana lokað kl. 1 síðdegis. elag íslenskra stðrkanpmanna. Nemendasamband Hvítárbakkaskóla heldur aðalfund sinn að Hvítárbakka sunnudaginn 26. júní, og hefst fundurinn kl. 10 árd. — Yerður þar tekin ákvörðun um, hvernig ráð- .staíf.ð skuli sjóðum þeim og bókasafni, er nemendur Hvítárbakka- skóla áttu. Enn fremur verður rætt um útgáfu minningarrits skólans og endanleg ákvörðun tekin um starfsemi sambandsins framvegis. — S.s. Suðurland fer til Borgarness síðdegis deginum áður, laugardaginn 25. þ. m., og til baka til Reykjavíkur á sunnudagskvöldið. — Bílar fara frá Borgarnesi til Hvítárbakka kl. 8 árd. á sunnudaginn. Er bú- ist við því, að gamlir Hvítbekkingar fjölmenpi á fundinn. Hexverksmiðjan „Frún“. Aukin og endurbætt starfræksla. " 1 Iðnaður vor íslendinga smá fær- ist í aukana, og er það vel farið. Hin síðari ár hafa risið hjer upp myndarleg iðnaðarfyrirtæki, sum að vísu smá í fyrstu, en, hafa eflst og blómgast, er fram liðu stundir. Eitt þessara fyrirtækja er Kex- verksmiðjan „Prón“ hjer í bænum. Kexverksmiðjan „Prón“ tók til staría í júnímánuði 1927 og árin 1927—1930 var framleiðslan að meðaltali 3 tonn á mánuði. Verk- smiðjan starfaði ekki á tímabilinu frá 1. maí 1931 og þar til hún tók til starfa í byrjun apríl s.l. (sök- um vöntunar á húsnæði). En nú hefir verksmiðjan fengið rúmgott húsnæði á Grettisgötu 16, þar sem áður var bílaverslun Egils Vil- hjálmssonar. Verksmiðjan var áður hlutafje- lag; en nú hefir hr. stórkaupmað- ui Eggert Kristjánsson keypt all- ar eldri vjelar verksmiðjunnar og jafnframt bætt nýjum við af full- komnustu gerð. Bauð hann blaða- mönnum að skoða verksmiðjuna í gær. Verksmiðjusalurinn er bjartur og rúmgóðir. Áfastir við hann eru aðrir tveir salir, og eru hráefni geymd í öðrum, en birgðir í hin- um. Vjelar ganga fyrir rafmagni, en ofnar eru hitaðir með gasi. Eftir að hinn nýi eigandi hafði aukið vjelar verksmiðjunnar og komið þeim fyrir í hinu rúmgóða húsnæði, gat verksmiðjan stórum aukið framleiðsluna. Getur verk- smiðjan nú framleitt 8—10 tonn af kexi á mánuði, eftir því hvaða tegundir framleiddar eru. En í þessum mánuði er enn Von á nýjum og auknum vjelum, og getur þá verksmiðjan framleitt 150-—180 tonn á ári. Þegar þess er gætt, að árið 1929 nam innflutningur á kexi og kök- um 228 tonnum og 262 tonnum árið 1930, þá er auðsætt, að verk- smiðja sem þessi er þarft og nyt- samt fyrirtæki. Verksmiðjan framleiðir alls 20 tegundir af alls konar kaffibrauði og auk þess matarkex og kremkex. Á iðnsýningunni, sem opnuð verð- ur í dag sýnir verksmiðjan fram- leiðslu sína (í leikfimissalnum). í „íslensku vikunni“ í vetur hafði verksmiðjan sýningarglugga-hjer í miðbænmm og var það einróma á- lit allra, að framleiðsla verksmiðj- unnar mundi fyrsta flokks vara, sem stæði fyllilega jafnfætis er- lendri framleiðslu. í verksmiðjunni starfa nú 17 manns (13 stúlkur og 4 karlmenn). Yfirbakari er Ágúst Jóhannesson, en framkvæmdastjórn hefir Sig- urður Guðmundsson. Er blaðamenn höfðu skoðað verksmiðjuna í krók og kring bauð verksmiðjueigandinn þeim til kaffi drykkju, þar sem „Fróns“ -fram- leiðsia var eingöngu á borðum. Var það einróma álit allra, að þarna væri á boðstólum fyrsta flokks vara. Þetta munu og margar hús- mæður þegar vita, enda notar verksmiðjan að eins fyrsta flokks hráefni til framleiðslu sinnar. Hið íslenska kvenfjelag biður fjelagskonur sínar að taka þátt í skrúðgöngu kvenna 19. júní. Norskar kartiflar úrvals tegund fyrirliggjandi. Eggert Kristjánsson & Ce. Símar: 1317 og 1400. Ninflu opin frá kl. 10-12 i dag. t Minnisvarði á leiði síra Þórðar sál. Tómassonar. Vinir síra Þórðar sál. Tómas- sonar bæði hjer á landi og í Dan- mörku hafa gengist fyrir því, að reistur væri minnisvarði á legstað hans á Vestre Kirkegaard í Kaup- mannahöfn. Var minnisvarði þessi afhjúpaður fyrir skömmu. Aðal- varðinni er íslenskur grásteinn unnin úr námu Magnúsar Guðna- sonar steinsmíðameistara hjer í bænum. En ofan á þeim steini er gömul kirkjuklukka úr sóknar- kirkju þeirri í Horsens, þar sem | síra Þórður var prestur í 27 ár. Hafði klukka þessi rifnað og henni verið hringt síðasta sinni sunnu- daginn, sem lík síra Þórðar var flutt frá Panö til Kaupmanna- \ hafnar. Þótti þetta svo einkennileg til- S viljun, að vinir síra Þórðar í Hors- ens náðu eignarhaldi á hinni! gömlu klukku í þeim tilgangi að setja hana á minnisvarða hans. Á steininn er að framanverðu |etrað (á dönsku): „Klaustur- prestur Þórður Tómasson. Pæddur á Akureyri á íslandi, 7. desember 1871. Dáinn í Sönderho á Panö 21. ágúst 1931. 1. Pjet. 5,10“. Á fæti varðans er letrað: „Gjöf frá íslandi og Danmörku.“ En á bakhlið steinsins mun vera letrað: „Sjálfur steinninn er gjöf frá ís- landi. Klukkan er gömul kirkju- klukka úr klausturkirkjunni í Horsens.“ Uppdráttinn af steininum hefir gert V. Norn arkitekt í Horsens. Hollustueiður íra. Dublin, 16. júní. United Press. FB. Efri deild fríríkisþingsins hefir samþykt frUmvarpið um afnám hollustueiðsins — eða það, sem eftir er af því — með tuttugu og níu atkvæðum gegn átján. — Eins og frumvarpið er nú úr garði gert eru engar líkur til, að það nái samþykt neðri deildar þingsins. — Er því búist við, að málið sje úr sögunni að mestu, þangað til næstu þingkosningar fara fram. Prófessorsembætti handa docent Adolf Hoel. NRP. 14. júní. PB. Nokkrir kunnir vísindamenn hafa stungið upp á, að stofnað verði prófessorsembætti handa Ad- olf Hoel docent, svo hann geti gef- ið sig einvörðungu að rannsókn- um, sem snerta norðurhvel jarðar. „Akademiske kollegium“ hefir ein- róma samþykt að mæla með, að prófessorsembættið verði stofnað. ------------—-— F.Í.L. Fjelag íslenskra loftskeytamanhá heldur framhaldsaðalfund sinn. laugardaginn 18. þ. m. kl. 14 að Hótel Borg. Áríðandi að fjelagar fjölmenni. STJÓRNIN. er lyki'llinn að prýði heim- ilipins. Hann er í meira enn sextíu dásamlega fallegum litum. — Hall’s Distemper gerir heimili yðar hrein, björt og heilnæm. Hann er þektur um víða veröld og alls staðar álitinn vera undrafarfi. — Það er bæði ódýrt og fljótlegt að nota hann. 0.s. Botnli fer laugardaginn 18. þ. m. kl. 8 síðd. til Leith (um Vest- mannaeyjar og Thorshavn). Farþegar sæki farseðla fyrir kl. 3 á morgun. Tilkyimingar um vörur komi sem fyrst. Skrifstofa C. Zimsen. Stórfeld verðlækkun á reiðhjólTun. Verð frá kr. 100—200. Allir varahíutir seldir mjðg ódýrt; áaettír ókfcypis. Signrþór Jðnssan. Austurstr. 3. ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.