Morgunblaðið - 23.06.1932, Blaðsíða 4
f
MORGUNBLAÐIÐ
B
Hugl$slnpdagbðk
Mynda og rammaverslunin,
Freyjugötu 11, Sig. Þorsteinsson,
sími 2105, hefir fjölbreytt úrval
af Veggmyndum, ísl. málverk bæði
í olíu og vatnslitum, sporöskju-
rammar af mörgum stærðum. Verð-
ið sanngjamt.
Glæný, stór Iúða, útbleyttar
kinnar og ótal margt fleira. Hverf-
isgötu 123, sími 1456, Saltfisks-
búðin, Hverfisgötu 64, sími 2098 og
á planinu við höfnina, sími 1402.
Hafliði Baldvinsson.
Nýr smálax og silungur í Nor-
dalsíshúsi, sími 7.
Heitt og Kalt, Veltusundi 1, sími
350. Smurt brauð, íburðarmikið
eða lítið, eftir óskum, sent út um
allan bæ.
Barínn og óbarinn harðfiskur,
mjög ódýr, fæst í Fisksölunni,
Nýlendugötu 14, Sími 1443,
Haldið verður íþróttamót 4
Lambey í Fljótshlíð 25. þ. m. Hefst
mótið kl. 12 á hádegi. Til skemtun-
ftr verða ýmsar íþróttir, ræður og
dans. Veitingar á staðnum.
Grjót gefins við hús Georgs
Ólafssonar bankastjóra. — Upp-
lýsingar frá kl. 7—12 árd. Guðjón
Sæmundsson.
Rósir fást daglega hjá Einari
Helgasyni, Sími 72,
Athugið. Hattar, harðir og linir,
sokkar, nærföt, húfun, manchettu-
skyrtur, vinnuföt o. fl. með lægsta
verði. Hafnarstræti 18. Karlmanna-
hattabúðin.
Nýja ánamaðka fáið þið besta
á Grettisgötu 22. Sími 2395.
Mótorhjól, nýtt, D. K. W., 8
nesta, luxus 300, er til sölu. Þetta
jaerki er haimsfrægt. Upplýsingar
í Hljóðfærasölunni á Laugaveg 19.
Tapast hefir bleiknösóttur hest-
ur, 8 vetra. Finnandi beðinn að
gera aðvart í Kaupfjelagi Hafn-
arfjarðar.
Frá Fjelagi útvarpsnotanda.
Tilnefning þriggja fulltrúaefna
í útvarpsráð fer fram þessa dag-
ana hjer í borginni. Kosningin
er leynileg. Hverjum fjelag.smanni
hefir verið sendur kjörseðill og
tvö eimslög með. Annað umslagið
er án áritunar og í það á að
leggja kjörseðilinn með nöfnum
þeirra þriggja fjelagsmanna, sem
kjósandinn treystir best sem full-
trúa útvarpsnotanda. Þessu um-
slagi er svo lokað og því næst
látið í annað umslag með áletrun:
Fjelag útvarpsnotanda', Reykjavík.
Kjörseðlana má láta í póstkassa
eða afhenda á afgreiðslu viku-
blaðsins „Fálkinn“ í Bankastræti.
Á sama stað liggur frammi skrá
yfir fjelagsmenn í Reykjavík og er
hver fjelagsmaður kjörgengur, sem
fulltrúaefni.
Æskilegt er að kjörseðlum verði
skilað sem allra fyrst, því að at-
kvæði þarf að telja fyrir mán-
aðamótin næstu.
Kjósendur gæti þess vandlega
að rita nöfn sín á ytra umslagið
ella verða atkvæði þeirra ógild.
Hafa þegar borist fáeinir nafn-
lausir kjörseðlar og er því ástæða
til að vekja sjerstaka athygli á
þessu atriði. Stjórnin.
Ársþing
Hjálpræöishersinr
stendur nú yfir. Á sunnudagskvöld
ið var samkoma í dómkirkjunni.
Þar talaði Holmes ofursti, en síra
Friðrik Hallgrímsson túlkaði. Síra
Bjarni Jónsson bauð ofurstann
velkominn í kirkjuna með stuttri
og hjartanlegri ræðu. Majór og
frú Beckett töluðu einnig., og
túlkaði síra Friðrik Hallgrímsson.
Samkoman var vel sótt. í fyrra-
kvöld var fagnaðarsamkoma Árs-
þingsins, og voru þar lesin upp
eftirfarandi skeyti frá forsætisráð-
herra og biskupi, og vöktu þau
mikla gleði:
Með þakklæti fyrir heimsókn
yðar, herra oberst, og í tilefni af
því, að majór Beckett hefir tekið
við stjórn Hjálpræðishersins á ís-
landi, vil jeg nota tækifærið til
þess að þakka hið mikla og góða
starf, sem Hjálpræðisherinn hefir
unnið hjer á landi, og um leið
láta í ljósi þá ósk, að honum á-
fram auðnist að starfa hjer að
áliugamálum sínum til blessunar
fyrir marga.
Ásgeir Ásgeirsson.
Biskupinn yfir íslandi sendir árs
þingi Hjálpræðishersins alúðar-
kveðjur sínar, með þökk fyrir vcl
unnið starf á liðinni tíð, og árn-
andi Hjálpræðishemum blessunar
Drottins á komandi starfsárum.
„Að öðru leyti, bræður, verið
glaðir. Yerið fulkomnir, áminnið
hver annan, verið samhuga, verið
friðsamir. Þá mun Guð kærleik-
ans og friðarins vera með yður“
2 Kor. 13, 11.
Jón Helgason.
Flótti frá Bandaríkjunum.
Cleveland í júní.
United Press. FB.
Samkvæmt upplýsingum frá inn-
flutningsmálaskrifstofum í Ohio og
fieiri ríkjum norður og norðvest-
urhluta Bandaríkjanna gætir þess
æ meira, að innflytjendur frá
Tjekkóslóvakíu, Póllandi og fleiri
Evrópulöndum, er sest höfðu að
í Bandaríkjunum, sjeu orðnið óá-
nægðir með kjör sín hjer vestra. í
Ohioríki flytja alfari aftur heim til
Bvrópu í sumar um 1500 bændur.
Heimflutningar bænda til ættlanda
sinna í Evrópu hófust 1930 og hafa
enn ekki náð hámarki. Talið er,
að aðalástæðan til að menn taka
sig upp og flytja aftur til Evrópu
sje sú, að bændur geti nú komist
betur af í Evrópu, ef þeir taki upp
■smájarðabúskap þar.
Dagbók.
Veðrið í gær (kl. 5 síðd.): Yfir
norðanverðu Grænlandshafi er
lægðarmiðja sem veldur suðvest-
rænum loftstraumum um norður-
hluta Atlanshafsins. Fylgja honum
skúrir og svalviðri á SV- og V-
landi, en austan lands er úrkomu-
laust og hlýtt. Kl. 5 í kvöld var
hiti um 10 st. vestan lands en
12—16 st. fyrir norðan og austan.
Veðurútlit í dag: SV-kaldi. —
Skúrir, en bjart á milli.
Botnia kom til Leith kl. 2 í gær.
Hjúskapur. Nýlega gaf síra Árni
Sigurðsson saman í hjónaband ung
frú Laufeyju Guðmundsdóttur og
' >.skar Þórðarson húsgagnasmið. —
Heimili þeirra er á Bergstaða-
stræti 50.
Ejnar Mikkelsen lagði á stað frá
Kaupmannahöfn í Grænlandsleið-
angur sinn á skipinu „Sökongen"
í gær. Hann ætlar að koma við
hjer í Reykjavík, til þess að full-
komna útbiinað sinn.
Hjónaband. í gærkvöldi voru
gefin saman í hjónaband af síra
Bjarna Jónssyni ungfrú Herfríður
Björg Tómasdóttir og Ingólfur
Tómasson búfræðingur. Heimili
ungu hjónanna er að Stað í Skerja
firði.
íþrúttakvöld. Annað kvöld kl. 8
ætlar íþróttafólkið frá Akureyri
að keppa í íþróttum við K. R.
á íþróttavellinum. Stúlkurnar
keppa í handknattleik og boð-
hlaupi og auk þess sýna þær leik-
fimi. Piltarnir keppa í hlaupum
100 m„ 800m. og 5 kílómetra.
Stakkasundið verður þreytt í
kvöld kl. 8, úti hjá Sundskálanum
í Orfirisey. Taka 4 menn þátt
í því, þar á meðal Geir Jón Helga-
son, seni varð fræknastur í því í
fyrra, og Haukur Einarsson göngu
arpur, sem þá gekk næstur hon-
um. Kept verður einnig í öðrum
sundum og eru keppendur alls
um 20. Er það góð þátttaka, eink-
um þegar ti-llit er tekið til þess
hvað sundfólkið hefir lítið getað
æft sig í sjó í sumar.
Prófessor Weis hefir sagt í sam-
tali við „Politiken“ að mikil fram
faraskilyrði sje fyrir landbúnað á
Islandi. Hann sagði meðal annars:
Ef Island eignast eigin vísindalega
rannsóknastofnun fyrir landbúnað-
inn, þá mun landbúnaðurinn með
litlum kostnaði ná liinum stærstu
framförum.
Skipafrjettir. Gullfoss er í Kaup
mannahöfn. — Goðafoss fór hjeð-
an í gærkvöldi áleiðis til íitlanda.
— Brúarfoss er hjer, fer á morg-
un vestur. — Dettifoss fór frá
Hull í fyrrakvöld, áleiðis hingað.
— Lagarfoss er á leið frá Leith
til Austfjarða. — Selfoss kom til
Grimsby í gærmorgun.
Guðmundur Einarsson málari frá
Miðdal tók sjer far með Goðafossi
í gærkvöldi. Ætlar hann að ferð-
ast um Þýskaland til þess að
kynna sjer ýmislegt er að leir-
brenslu Oýtur.
Vestri kom í gærmorgun til
Siglufjarðar.
Næstu kappreiðar. Sunnudaginn
3. júlí efnir „Fákur“ til kapp-
reiða á Skeiðvellinum hjá Elliða-
ám. Verða þar veitt mörg verð-
laun. Sjálfsagt verða margir hest-
ar reyndir, því að þetta er besti
tíminn til kappreiða, hestarnir
mátulega feitir og ætti að vera
æfðir, fremur en þegar þeir eru
nýlega komnir úr htisi. Skeiðvöll-
urinn er í svo góðu lagi, að hann
liefir áldrei betri verið, og ætti
Reykvíkingar að nota sjer það til
þess að æfa hesta sína fyrir kapp-
reiðarnar.
Jón Jónsson, skósmiður, Grims-
bý 6, verður 60 ára á morgun.
Prestastefnan hefst hjer í bæn-
um í dag með guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni kl. 1 e. h. Síra Eiríkur
Albertsson á Hesti flytur synodus
prjedikun og lýsir um leið vígslu,
því að í guðsþjónustunni æt'lar
biskup að vígja 3 kandídata:
Garðar Þorsteinsson til Garða-
prestakalls á Álftanesi, Jón Jak-
obsson, settan prest á Bíldudal og
Jón Þorvarðarson, aðstoðarprest
I Mýrdalsþinga-prestakalli. Kandi-
dat Jón Jakobsson prjedikar á
eftir vígslimni. Síðan fer fram
altarisganga.
Prestastefnan verður sett í húsi
E.F.U.M. kl. ö síðd.
fffintýra prinsinn.
að flytja inn í höllint og búa þar
meðan hann dveldi í Péronne. —
Fanst honum hann öruggari þar
en annars staðar í borginni. Var
honum veitt leyfið.
Þegar daginn eftir bárust fregn-
ir til Péronne um óeirðir og of-
beldisverk í Liége. Var fullyrt að
konungurinn væri valdur að þeilm,
margir njenn höfðu verið drepnir
— þar á meðal æðstu embættis-
menn hertogans og sendiherra
páfstólsins. Þóttust menn þekkja
þar sendimenn konungs, svo áreið-
ardegt þótti að konungur hefði
skipað svo fyrir.
Það fór að síga í hertógann við
þessar fregnir. Hann skipaði svo
fyrir að borgarhliðunum yrði lok-
að og hengibrýmar halaðar upp.
Honum var nú ljóst að Lúðvík
hefði ætlað að gabba sig smán-
arlega.
Nú var úr vöndu að ráða. Hann
kallaði á Antonius greifa, honum
treysti hann best.
Hertoginn var æfa reiður. Hann
er kominn hingað til að svíkja
mig, þetta grunaði mig, þó mjer
dvtti aldrei í hug að hann væri
svona bölvaður. Hann sendi menn
sina til Liége og lætur strádrepa
þar menn mína.
— Ef hann hefir hugsað sjer að
svíkja þig, þá er hann nú fallinn
á sjálfs síns bragði, sem stendur
er hann algerlega á þínu valdi,
sagði Antonius.
— Já, sagði hertoginn, og dró
sverð sitt úr slíðrum. Hann skal
líka fá það.
— Vertu rólegur, Karl frændi.
Þú átt ekki með að lífláta hann.
Þið komuð ykkur saman um að
mætast í Péronne og þú hjest hon-
um fullum griðum meðan hann
dveldi þar. Ef þú svíkur það
muntu saurga nafn þitt um aldur
og æfi. Greifinn gat með festu
sinni og ró stilt hertogann í svip-
inn. —
Snemma morguninn eftir kall-
aði hertoginn alla yfirmenn sína
til fundar við sig og auk þeirra
hina frönsku útlaga er áður voru
nefndir. Var Antoníus þar einnig
og átti að ræða hvað gera skyldi,
hvort skylt væri að taka tillit til
þeirra griða er Karl hafði veitt
konungi. Voru mjög skiftar skoð-
anir um það, var meiri hlutinn með
því- að virða það að vettugi, en
Antonius barðist eindregið á móti.
Að lokum var það samþykt að
lialda konungi í gæslu og senda
hertoganum í Normandíu skeyti
um að koma til Péronne hið skjót-
asta. Þá var fundi slitið og kallaði
hertoginn ritara sinn til sín til að
rita brjefið. Meðan á því stóð kom
Antoníus aftur, var Karli ekki
meira en svo um það, hann bjóst
við að Antoníus víldi breyta fyrir-
ætlun hans enn einu sinni.
— Karl, sendu ritara þinn burtu.
Jeg á erindi við þig.
— Ef það er eitthvað sem varðar
konunginn af Frakklándi þá er
það um seinan. Sendimaður minn
er þegar kominn á bak og bíður
bara eftir brjefinu.
— Láttu hann bíða stundarkorn,
heiður þinn er í veði.
— Heiður, át.t þú að gæta míns
heiðurs f
— Nei, en jeg er vinur þinn og
vil reynast þjer hollur ráðgjafi.
Láttu skrifara þinn fara og hlust-
aðu á mig svolitla stund.
Dómkirkjufyrirlestur flytur
vígslubiskup Sigurður P. Sívertsert.
próf. kl. 9 í kvöld um starfshætti
kirkjunnar. Allir velkomnir. Menn
geri svo vel að hafa með sjer sálma
bækur.
Poul Reumert segir fram kvæði,.
leikritskafla og sögur (þar á meðal
„Leggur og skel“) í Gamla Bíó
í kvöld kl. 7,20.
Trúlofun sína opinberuðu síðast-
liðinn sunnudag ungfrú Sigui’lín
Unnur Sigurðardóttir, Þormóðs-
stöðum við Skerjafjörð og Þórir
E. Long, trjesmiður, Yéltusundi
1, Reykjavík.
Karlinn í Kassanum verður leik-
inn í allra seinasta sinn í kvöld.
Iðnsýningin. Aðsókn að henni
er mikið meiri, heldur en menn
höfðu búist við. Veldur það eflaust
hve gott orð sýningin fær manna.
á meðal og hve merkileg hún þyk-
ir. Engan daginn hafa komið þang-
að færri gestir en 300.
Valltýr Stefánsson, ritstjóri, fór
í gær norður í land og verður-
fjarverandi um tíma.
Grænlandsveiðar. Færeysk fiski-
skúta kom nýlega til Vestmanna-
eyja og var á leið til Grænlands,.
til handfæraveiða þar í sumar.
Skipstjóri skýrði frá því, að Fær-
eyingar sendu 70—80 skip til
Grænlands í ár. Hafa öll skipin
meðferðis smáskektur til þess að
fiska á, þegar gott er veður. Ráðn-
ingarkjör háseta eru þau sömu og
voru við íslandsveiðar í vetur.
ÚtvarPið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 13.00
Messa í dómkirkjunni. Síra Eirík-
ur Albertsson. Setning Presta-
stefnu. Prestvígsla. 16.00 Veður-
fregnir. 19,30 Veðurfregnir. 19.40
Tónleikar. (útvarpstríóið) 20.00
Klukkusláttur. Tónleikar: Orgel-
sóló. (Páíl ísólfsson.) Grammófón.
Einsöngur: Elistbeth Schumann
syngur: O hátt’ ich Jubals Harf’,
úr „Jósúa“, eftir Hándel og Die
heiligen drei Könige aus Morgen-
land, eftir Richard Stráuss. 20.00
Frjettir. Músík. 21.00 Erindi í
dólmkárkjunni (í sambandi við
Synodus): Starfshættir kirkjunn-
ar (Sigurður P. Sivertsen, vígslu-
bískup.)
Aðalfundur Prestafjelags íslands
verður í ár haldinn að Þing-
völlum dagana 27.—28. júní og.
eru aðalmálin, sem þar verða rædd
1) Kristindómsfrælðsla kirkjunnar
og 2) Störf kirkjunnar að mann-
úðarmálum og fjelagsmálin. (FB).
Hertoginn benti skrifaranum að
fara.
—- Flýttu þjer, segðu hvað þú
vilt að jeg geri.
Antoníus var alt af jafn róleg-
ur: — Þú ert voldugur fursti og
þú hefir miklar skyldur stöðu
þinnar vegna. Það mun verða sagt
um þig eins og sagt er um Lúðvík
konung, að þú notir stöðu þína til’
að svíkja aðra. Þetta brjef hefir
enga þýðingu það muntu sanna,
það eina sem það getur gagnað,
er, að þú verður rólegri .um stund.
— Nei, Guð veit að jeg verð
er.gu róHegri fyrir það.
Greifinn brosti: — Ekki einu:
sinni það. Blessaður hættu þá við
að senda það.
— Þú heldur þjer við efnið,
Antonius, jæja hvað vildu þá að
jeg geri.
— Farðu til kóngsins og láttu
hann játa svik sín opinberlega,
sjerhver góður drengur hlýtur að
fyrirlíta hann frá þeirri stundu er
hann sýnir hver hann er. Þú getur
skipað honum að undirskrifa frið-
arsamningana, og sett honum
hvaða skilyrði sem þjer líst. Það
er nú af honum mesti völlurinn,