Morgunblaðið - 25.06.1932, Page 2

Morgunblaðið - 25.06.1932, Page 2
s MORGUNBIAÐIÐ Leiftur eldspíturnar margeftirspnrða ern komnar aftnr. jfiismessonatið fjelagsins MAGNI, verður haldin sunnudaginn 26. þ. m. að Yíðistöðum í Hafnarfirði. SKEMTISKRÁ: — 1) Hátíðin sett: Bjarni Snæbjörnsson alþingismaður. 2) Hornablástur, 14 manna hljómsveit. 3) Fimleikar: Kvennaflokkur frá Akureyri (Alþing- ishátíðarflokkurinn) sýnir leikfimi undir stjórn Hermanns Stefánssonar íþróttakennara. 4) Karlakór sýngur. 5) Ræða: J,ón Jónsson, læknir. 6) Gamanvísur og skemtisögur. 7) Skotbakki. 8) DANS á palli. — Tvær harmónikur. Hátíðin hefst kl. 3 síðd. með hornablæstri við hús Jóns Mathiesens og verður gengið þaðan í skrúðgöngu til Víðisstaða. Hljómsveitin leikur öðru hvoru allan daginn. Alls konar veitingar verða á staðnum. Aðgangur kostar 1 krónu fyrir fullorðna, og 50 aura íyrir börn. ffinnið Hellisgerði og ijðlmennið i bátíðina. Öllum ljósmyndastofum bæjarins verð- ur Iokað sunnudagana frá 26. þ. mán. til 28. ágúst, að báðum dögum meðtöld- um á sama tíma verður lokað á laug- ardögum kl. 4. Stúlka, sem kann enska hraðritun og er vön brjefaskriftum, getur fengið framtíðar- stöðu nú þegar. Umsóknir í lokuðu umslagi, merktar: „Hraðritari“, sendist. A. S. í. 5 manna filkgflntniagsfeifroið sem ný til sölu með tækifærisverði og góðum borgunar- skilmálum. — Samband ísl. samvinnufjelaga. Sími 496. Kárastaðir taka á móti gestum til lengri og skemmri dvalar. Sann- gjarnt verð. Allskonar veitingar, heitur og kaldur matur allan daginn. Einnar stundar bílferð frá Reykjavík. Daglegar áætlunarferðir. Símastöð (beint samband). Síldveiiir Kveldúlfs. í fyrradag birtist hjer í blað- inu greinargerð fyrir því, hver arðs von væri af síldveiðum togara okkar á komandi sumri. — Höf- uðniðurstöðurnar voru þessar: Verði kaupgjald fært niður í 150 kr. mánaðarkaup og 3 aura premíu, er 15640 kr. tekjuhalli á tveggja mánaða úthaldi hvers tog- ara, og er þá miðað við 12000 mála veiði og 3 kr. verð á síldar- máli. Bera hásetar þá úr býtumi 660 kr. auk fæðis og hlunninda. Til þess að útgerðin beri sig þarf rneðal afli að verða um 20.000 mál á skip. Allar þessar tölur eru teknar eftir bókum okkar, og" því auðsannanlegar, og erum við fúsir að færa á það fullar sönnur fyrir sjómönnum okkar. Bnginn eyrir er hjer ætlaður fyrir fyrningu eða vöxtum af andvirði skipanna nje heldur til greiðslu á skrifstofu- kostnaði, framkvæmdastjórn, skött um eða öðrum árlegum rekstrar- .kostnaði. Það er eftirtektarvert, að engiun befir treyst sjer til þess að vje- fengja þessar tölur. Það stafar fyrst og fremst af því, að forseti Alþýðuflokksins er orðinn svo kunnugur útgerð og síldarbræðslu að hann veit að við höfum bygt áætlun okkar á fylstu bjartsýni. Honum er ljóst,. að síldarmálið er sem stendur tæplega meira virði en 2 króirur. Hann veit, að útgerðarkostnaður togaranna er svo hár, að ef miðað er við T2000 mála meðalafla og 3 kr. verð, er hallinn af 60 daga rekstri rjett reiknaður með 15640 kr. Og sjálfir vita sjómennirnir, að það er a. m. k. alveg nóg í lagt að áætla meðal afla 12000 mál. Tölur okkar eru allar óvjefengj- anlegar, en þær segja frá þeirri staðreynd, að við ætluðum okkur að takast á hendur stórkostlega fjárhagslega áhættu, með yfirgnæf andi líkum fyrir verulegu tjóni, og- hverfandi von um hagnað, ein- göngu í því skyni, að reyna að draga úr því hræðilega böli, sem við blasir, þegar svo að segja alt atvinnulíf íandsmanna liggur í rústum. Sjómannafjelagið hefir nú fyrir atbeina nokkurra manna hafnað þessu tilboði okkar, og með því svift nokkur hundruð manns at- vinnu. Mjer er ekki kunnugt hver rök niðurrifsmennirnir færa fyrir að- stöðu sinni, en venjulegast er við- kvæðið þetta: Sjómenn hafa ekki fengið arðinn í góðærinu og eiga því ekki að taka þátt í hallanum þegar illa árar, — eða, við viljum ekki lækka kaupgjaldið í landinu þótt það sje nauðsynlegt vegna atvinnu nokkur hundruð manna. Við hinu fyrra er það að segja: að svo að segja hver einasti út- gerðarmaður er kominn á knje. Þeir sem upp úr standa, hafa stuðst við fleira en útgerð, eins og t d. Kveldúlfur, sem rekið hefir margs konar verslun og viðskifti, þ. á. m. stærstu fiskverslun heims- ins. Bn auk þess verða sjómenn að hafa það hugfast, að sje kaup- gjaldið svo hátt að vonlaust sje um sæmilega afkomu útgerðarinn- ar, þá verða þeir æ færri sem vilja eða geta lagt fje í þann atvinnn- rekstur. Afleiðingin verður at- vinnuleysi, sem fyrst og fremst bitnar á sjómönnum sjálfum. Hin síðari viðbáran gæti til sanns vegar færst, ef atvinnulífið stæði yfirleitt með blóma, en kaup- gjaldslækkunar væri krafist í því skyni að lífga einliverja einstaka visna grein. En eins og almenn- ingur veit, er hjer á landi alt á eina bókina lært, og enginn at- vinnurekstur öðrum vesælli, held- ur er alt jafn rýrt. Þannig er sagt, að bændur. treystist ekki til að greiða kaupa- mönnum meira en 20—25 kr. á viku, en kaupakonum 15 kr. Allur almenningur verður að gera sjer ljóst, að kaupgjaldið verður að miklu leyti að miðast við afurðaverðið. Það er ekki hægt að halda áfram að greiða sama kaupgjald þegar fiskverðið er 60 kr. eins og gert var meðan það var 150—250 kr. Við verðum því að horfast í augu við þá staðreynd að kaupgjaldið verður að iækka í bili. Pram hjá því verður ekki komist, það skilja þeir sjómenn best, sem sjálfir hafa fengist við útgerð í vetur. Þá hefir reynsian brynjað gegn þjóðnýtingarli.jali og mannskemdafýsn ábyrgðar- lausra angurgapa. En því miður má gera ráð fyrir, að nokkuð skorti á, að sjómenn sjeu alment bíinir að gera sjer málið ljóst. Þeirra starf liggur á öðrum svíðum. — Þetta ætti þó ekki að koma að skaða ef foringjar þeirra væru starfi sínu vaxnir, en eins og ástatt er, er hætt við að ómetanlegt tjón hljótist af því að menn þverskall- ast við að taka afleiðinguni af óumflýjanlegum staðreyndum. Mjer hefir þótt rjett að vekja athygli sjómanna á viðhorfinu. — Jeg tel rjett að þeir geri sjer ljóst að við höfum engar eða a. m. k. sáralitlar vonir um arð af síld- veiðum í sumar, en hinsvegar miklar líkur fyrir að tapa fje. Sjeu þeir í vafa um þetta þá eiga þeir að ganga úr skugga um það t. d. með því að spyrja Sigurjón Olafsson eða Jón Baldvinsson og leita frekari upplýsinga hjá okk- ur. Þegar þeir hafa fengið fulla vissu í þeim efnum, þá er ve.l að þeir spyrji sjálfa sig hvar þeir ætla að taka þær 660—900 kr. ,auk fæðis og hlunninda, sem verið er að hvetja þá til að hafna. En sjái þeir ekki ráð til þess, ber þeim skylda til að at.huga málið að nýju. Og það verður að gerast tafarlaust, annars er það of seint, því síldin bíður ekki. Hins mega hvorki sjómenn nje aðrir vænta, að jeg leggist í blaða- deilur við snáða eins og Ólaf Prið- riksson. Prá því hann komst. á snoðir um að við ætluðum að reyna að tryggja sjómönnum okk- ai sumarvinnu, hófst hann handa um níð og svívirðingar um Kveld- úlf og mig persónulega í Alþbl. Kveldiilfi brigslar hann um svik, mjer um leti og ómensku. Kveld- úlfur hefir nú krafist þess að dómur gangi um síldarmálin, og er best að bíða hans. En jeg þykist mega líta framan í Ólaf Friðriks- son meðan jeg er hvorki ómagi konu minnar nje flokks míns. Ólafur Thors. Hlnstnðnð þið á nýju plöturnar, sem útvarpað var yfir Austur- völl í gærkvöldi? ;M ú s í k er holl útiskemtun. Kaupið í dag! Perðafónninn verður að vera með á morgun. HljéðSærahúsið. Austurstræti 10. Laugaveg 38. Teonisskér, margar tegundir. Skðbúð Reykjavíkur. Til Aknreyrar fer bíll þriðjudaginn 28. þ. m. Nokkur sæti laus. Bifreiðast. Hekla. ' Sími 970. Lækjargötu 4. Felaliakjlt í buff o g steik. Nýr lax úr Elliðaánum. Dilkakjöt frosið, og margt fleira í sunnudagsmat- inn. —- Benedikt I. öuðmundsson & Co. Sími 1769. Vesturgötu 16. Nýtt Alikálfakjöt og Kvígukjöt, ov nýr la.x og reyktur. Hiötbúðm Herðubreið. Sími 678. ***•& '•Ht.-tO C "lu- 9 O ■’Hi,.- O •Htw9 -'Hw 9 "lli.- O i C Drekkið Egils-öl L ° Elgnlst ferðaskrínu með borðbúnaði. Þá eruð þjer altaf ferð- búinn þegar sólin skín. Seldar ódýrt. Komið í dag. Leðnryðradeild III jóðf ærahússins. Aust.nrstræti 10. og Laugaveg 38,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.