Morgunblaðið - 19.07.1932, Síða 4

Morgunblaðið - 19.07.1932, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ flugMslngadagbák s Ágætur tennisspaSi og 3 boltar, til sölu, fyrir 15 krónur, Upplýs- ingar í síma 1523. Tapast hafa 2 myndir frá Vita- torgi, yfir Tjarnarbrú, að Hring- braut 146. Finnandi geri svo vel að skila þeim sem fyrst. — Góð fundarlaun! Sími 1734. Hestar með hnökkum og beislum til leigu á Hverfisgötu 41. Buff með lauk og eggjum, við- urkent fyrir gæði, selur F.jallkon- an, Mjóstræti 6, Krónu máltíðir selur Fjallkon- an, Mjóstræti 6. __________________ CaJé Höfn selur meiri mat, ó- dýrari, betri, fjölbreyttari og fljótar afgreiddan en annars stað- ar. í ferðalög á sjó eða landi, ættu konur og karlar að kaupa sælgæt- ið og tóbaksvörurnar í Tóbaks- húsinu, Austurstræti 17, Dðmuhattar gerðir upp sem ný- ír. Lágt verð. Ránargötu 13. Munið Fisksöluna á Nýlendu- götu 14. Sími 1443. Kristinn Magn- ússon.___________________________ Hvar hafa allir ráð á að lifa vel í mat og drykk? Leitið, og þjer munnð finna: Heitt og Kalt. Amatördeild F. A. Thiele. Fílmur, sem eru afhendar fyrir kL 10 að morgni, eru jafnaðarlega tilbúnar kl. 6 að kvöldi. Öll vinna framkvæmd með nýjum áhöldum frá KO- DAK, af útlærðum myuda- smið. Framköllun. — Kopiering. — Stækkun. Nesti. Þrátt fyrir öll inn- flutningshöft, erum við vel byrgir af alls konar góðgæti í nestið. TIRiFANDl Liugaveg 68. Sími 2898. Reyktnr lu, 2 kr. lh kg. Ostur frá 1 kr- V2 kg, Jarðarberjasulta 1.25 pr. 1/2 kg. Nýjar kartöflur 20 au. V2 kg. Hjðrtnr Hjartarson. Bræðraborgarstíg 1. Sími: 1256. •p IUt nsfl feeDskÐra ^kipnra' ft <- ......... --*■ - ----- "UL“- - ' ' " og voldugasta þjóð, s«m Ameríku byggir, ættlandi Leifs þessa gjöf ti! minningar um afrek hans og giftu. Myndin er gefin í tilefni af 1000 ára hátíð Alþingis, í minn- ingu þess atburðar, að 930 var hjer stofnað eina lýðveldið, sem þá var uppi hjer í álfu — og gefin í minningu um fund Ameríku, þess lands, sem síðar varð heim- kynini liins fyrsta lýðveldLs síðari tíma. Leifur heppni er einingar- band milli þessara þjóða og stytt- an, sem hjer stendur, nýafhjúp- uð, mun treysta þau bönd. Jeg mun ekki nota mörg orð eða stór, en þau orð, sem jeg viðhef gilda: Mr. Coleman, flytjið þjóð yðar hjartfólgna kveðju 0g þakkir ís- lensku þjóðaritínar! Þessi gjöf er sannarlega kær- komin, og sem einn vott þess, vil jeg Ijúka máli mínu með því að fara með ' vísu, sem mjer barst á þessari stundu, frá einu af góð- skáldum okkar. Hún hljóðar svo: Með viljans styrk og stál í hönd, þú starir fram á hafið. Þú sjerð í anda ónumd lönd, en alt í þoku vafið. Þú horfið yfir holt og mó og harkan hvessir svipiim. Já, þar fer saman þrek og ró — við þökkum kostagripin-n. G-óðir ábeyrendur, að lökum skulum við binda þakkir okkar e1«num rómi í ferföldu húrrahrópi fyrir Bandaríkjunum. Takið nú allir undir: Bandaríkin lengi lifi! Skipuleiig húrrahróp kváðu við frá mannfjöldanum. Er láðrasveitin hafði enn spilað og nú íslenska þjóðsönginn, tók Knud Ziemsen borgarstjóri til máls og mælti á þessa leið: Ræða borgarstjóra. Virðulegi sendiherra, Mr. Cole- man, hæstvirti forsætisráðherra, háttvirta samkoma! — Staðurinn, þar sem við nú stöndum hefir um langan tíma verið Reykvíkingum kær. Meðan bærinn var lítið og fáment þorp var skemtigöngum heint hingað, þar sem víðsýnið var mest, og þótt bærinn hafi vaxið og byggingarnar hjer um- hverfis þrengi að, þá hafa Reyk- víkingar ávalt ieitað upp að Skóla- vörðu. — Þótt Skólavarðan væri lítið og fremur óásjálegt mann- virki, þá var hún um marga ára- tugi nokkurskonar iitvörður bæj- arins. Hún var hið fyrsta, sém að- komumenn sáu, hvort heldur þeir kæmi landleiðina eða af sjó. — Bygging bæjarins hefir bfeytt mjög umhverfinu hjer á Skóla- vörðuhæð og meira en annars stað- ar í bænum. Hin mikla bungu- vaxna hæð er horfin og orðin að götum og lóðum við höfnina, og þar sem áður var hrjóstugt holt eru nú skipulagðar götur og hús reist, og eftir nokkur ár verða reisulegar byggingar komnar alt í kringum hásvæði holtsins. Hjer er ætlaður staður, þar sem reist verði guðshús, skólar og byggingar fyr- ir vísindasöfn. í mörg ár hefir þetta stærsta opna svæði í hinni gömlu Reykjavík verið nefnt há- borg íslenskrar menningar, og þótt enn sje hrjóstugt hjer í kringum okkur og fátt fagurt að líta af mannanna verkum, þá mun fram- kvæmdasemi Reykvíkinga og at- orka fá þessu breytt á skömmum tíma. — Skólavörðuhæðin hefir fyrir tæpum tveim áratugum lagt fram efni til þess mannvirkis, sem er hin verklega og fjárhagsl'ega undirstaða undir öllum vexti og viðgangi Reykjavíkur á þessu tíma bili og mun svo verða um ókomn- ar aldir. Nú geymir þessi sama hæð möguleika og grundvöll fyrir þær framkvæmdir, sem eiga að tryggja. menningu og andlegan þroska þeirra kynslóða, sem hjer eiga framvegis að búa. I dag er markað spor, sem á að vera fyrirmynd þess, sem fram- kvæma á, og sem bendir á þær leiðir, sem vjer eigum að fara. — Rjett áðan afhjúpaði fulltrúi einn- ar hinnar voldugustu þjóðar heims ins líkneski Leifs Eiríkssonar og afhenti það hinni íslensku þjóð að gjöf frá Bandarík-junum í Ame- ríku. Nú stendur hjer hið veglega og fagra líkneski Leifs heppna og gnæfir hátt. við himinn. Líkneskið er fullkomið listaverk, og það hlýtur að vekja fagrar og góðar tilfinningar í hrjósti hvers góðs drengs, er það lítur. Það er vottur þess bróðurkærleika, sem Guð hef- ir gróðursett í sálum manna. Hin mikla Bandaríkjaþjóð sýnir m’eð gjöf sinni kærleikann til hinnar fámennu þjóðar, sem ísland bygg- ir. Það er vottur þess, hverju á- ræði og þor fær áorkað þegar því er samfara trú og traust til Guðs. Lítið á Leif! Einbeitni og kjarkur lýsir úr augliti hans og kraftur er einkenni alls líkneskisins, en með krossmarkið í hendi vinnur ,hann bug á öllum erfiðleikum. Bins og líkneski Leifs heppna er fagurt og tráust, eins eiga fram- kvæmdir okkar að vera. Eins og gjöfin er tákn bróðurirærieika, •eins eigum við að lifa í innhyrðis kærleika. Eins og framkvæmdir Leifs blessuðust og háru árangur fyrir trúna á Guð, ’eins verðum við að lswa æ betur að þakka Guði fyrir velgerðir hans við okkur og trúin verður ávalt að fylla hjörtu okkar. Ef krossmarkið er í stafni lífsfleys okkar, munnm við ná að marki. Reykvíkingar! Yið megum vera þakklátir, að hinu veglega líkneski Leifs var valinn staður í borg okkar og þannig vera okkur, öðrum fremur, hvöt til alls góðs. Tökum við því með þeim hug að vemda það á alla lund, svo það verði aldrei fyrir lítilsvirðingu eða skemdum. Ungir menn og konur, börn og fullorðnir! Leifur heppni er falinn ykkur til varðveislu. 932 ár eru liðin síðan Leifur fann Yínland hið góða. Minning hans og afrek hans munu enn geymast um þúsundir ára. Sjáið um að líkneskið hjer geymist óskaddað jafn lengi. Mr. Coleman! Við Reykvíkingar þökkum yður komu yðar hingað og biðjum yður að flytja þjóð yðar og stjóm Bandaríkjanna, þakklæti af okkar hálfu fyrir hina miklu bæjarprýði, sem Leifur er, en fyrst og fremst fyrir sam- úðina og kærleikann, sem Banda- ríkin með gjöf sinni hafa sýnt ís- landi og Reykjavík. Og svo sný jeg mjer til yðar allra, sem hjer ’eruð og bið yður með ferföldu húrrahrópi að taka undir með mjer er jeg lýk máli mínu með þessum orðum: Yinátta og kærleikur ríki meðal éinstak- linga, þjóðfjelagsflokka og allra þjóða. Enn kváðu við húrrahróp. Þá ljek lviðrasveitin. Og mannfjöld- inn dreifðist. Dagbók. Yeðrið í gær (kl. 5 síðd.): Yfir Atlantshafi er háþrýstisvæði 0» annað minna yfir íshafinu. Fyrir austan land og vestan ’er grunnar lægðir, sem hreyfast báðar austur eftir. Veður er kyrt hjer á landi og vindstaða hreytileg, víðast N- læg á N-landi, en Vestlæg á S- landi. Úrkoma er lítil en þoka all- víða. Hiti ’er víðast 10—13 stig. I útsveitum nyrðra er þó aðeins 7 stig, en á SA-landi, nær hiti 16 —20 stigum. Veðurútlit í dag: S-kaldi. Rign- ing öðru hvoru. Framhaldsaðalfundur Útvegs- banka Islands verður haldinn næstkomandi föstudag; sjá augl. í blaðinu í dag. Togarar Kveldúlfs, sjö að tölu, fóru hjeðan til síldveiða um helg- ina. Snorri Sturluson fór fyrstur, a Iaugardagsnótt, en hinir allir á sunnudagsnótt. Ferðaf jelagið Hekla, sem alþekt er fyrir starfsemi sína undanfarin ár við móttöku erlendra ferða- manna, sem hingað koma á skemti- skipurn, hefir nú skrifstofu í Póst- hússtræti (Rvíkur Apótek) opna daglega kl. 10—6. Veiður þar greitt fyrir öllum sem vilja ferð- ast á sjó eða landi, seldir far- miðar með bílum og skipum, út- veguð gisting hvar sem er á land- iuu, hestar og fylgdarmenn. Alt self með sama verði og menn geta fengið það, þótt þeir semji sjálfir við gistihíús, bílstöðvar eða skipa- aí'greiðslur. Slíkar skrifstofur sem Hekla spara mikið ómak þeim, sem vilja ferðast. Þeir geta fpngið hjá skriístofunni á einum stað, alt sem þeir annars þyrfti að semja um á mörgum stöðum, og án þess að greiða hærra fyrir. Forsuti Hæstarjettar hefir ný- lega verið kjörinn Eggert Briem, hæstarjettardómari. Síra Friðrik Hallgrímseon er væntanlegnr hingað til bæjarins aunað kvöld úr ferðalagi nm Norð- urland. ÓsPektir kommúnista. Rjettar- rannsókn stendur yfir út af ó- spektum kommúnista á dögunum. A föstudag var 'einn æsingjaseggj- anna settur í gæsluvarðhald; heitir ' "u Þóroddur Þóroddsson c frá fsafirði. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 19,30 Veður- fregnir. 19.40 Tónleikar: Fiðlu- sóló (Þór. Guðmundsson). 20.00 Klukkusláttur. Grammófóntónleik- ar: öello-sónata, eftir Grieg. 20.30 Frjettir. Músík. Finnbogi Kjartansson, sá er Ól- afur Friðriksson sendir kveðju í Alþhll. í gær, fór á laugardags- kvöld til síldveiða. Bað hann Mbl. fyrir kveðju til Ólafs og þau skilaboð, að hann hefði í hyggju að vinna fyrir sjer í sumar og óskaði þess, að Ólafur reyndi nú að gera slíkt hið sama. Boris Schulz heitir ungnr Aust- urríkismaður, sem kominn er hing- að til sumardvalar. Stundar hann nám í verslunarhagfræði við há- skólann í Vín. Hann hefir í hyggju að semja ritgerð um verslun ís- Iendinga, og hefir komið hingað til að safna upplýsingum í því skyni. Hr. Schnfe mun nota nokk- uð af tíma sínum hjer til kenslu í þýsku, og geta þeir, sem hennar Lyfjahæði. Veteíinær—Farmacope 1908. Dispensatorium Danicum 1893. Kommsntar til Ph. Dan. 1893- Exemplar Sopli. Rútzon. The British Pharmacopæia 1898.. Parmacopée Prancaise 1908. Deutsches Arzneibuch 5. Ausg. 1910. Orgaiíiske Kemi. O. T. Chr. 1913. Dieterichs Manirnl 11. Aufl. 1913- til sölu. Allar í bandi og eintökin sem i\ý. A. S. í. vkar á. óska, snúið sjer til hans á Klapp- arstíg 27. Sími 238, Minningarspjöld Blómsveiga- sjóðs Þorbjargar Sveinsdóttur fást hjá frú Áslaugu Ágústsdótt- ur, Lækjargötu 12, frú Emilíu. Sighvatsdóttur, Grettisgötu 65, L Hljóðfæraverslun frú Katrínar Viðar, og hjá frú Ólöfu Bjöms- dóttur, Túngötu 38. Til Strandarkirkju frá ónefnd- um 5 kr. Á. G. 2. Ónefndum (gam- alt áheit) 25 kr. P. G. 10 kr. G. A. 2 krónur. Stúdentafjelag Reykjavíkur efn- ir til samsætis fyrir hollensku: stúdentana að Hótal Borg í kvöld kl. 7. Er æskilegt að stúdentar fjölmenni, til þess að hollensku. stúdentunum gefist kostur á að kynnast sem fl'estum íslending- um. Nánari upplýsingar í síma >1737. Kosning fulltrúa í kirkjuráð. Samkvæmt lögum frá 1931, umi kirkjuráð hinnar íslensku þjóð- kirkju, hafa nú hjeraðsfundir á öllu landinu, samtals 20 fundir, kosið fulltnia til að taka sæti í kirkjuráðinu, ásamt þeim tveiir^ sem þegar eru kosnir í því skyni af prestum landsins, þeim Þorst. Briem ráðherra og Sig. Sívertsen vígslubiskup. Kosningu hafa hlot- ið Matth. Þórðarson þjóðminjn- vörður, og Ólafur Björnsson kpm. á Akranesi. Fekk Matthías atkv. 10 hjeraðsfunda, en Ólafur atkv. 9 funda. Sá sem flest fekk atkv. utan þessara tveggja, var Jórt Björnsson skólastjóri á Sauðár- króki. Hann fekk atkv. 5 funda. Kristindómsfræðsla skólanna er vandamál — og deilumál — víðar en hjerlendis, en margt má læra af reynslu annara þjóða og fróð- legt að bera saman bæði það sem líkt er og ólíkt í þeim efnum. Má því búast við góðri aðsókn að 'er~ indi því, sem dr. Ame Möller ætl- ar að halda annað kvöld í dóm- kirkjunni. Dy. Arne' Möller var sóknarprestur, en er nú kennara- skólastjóri í Jonstrup, svo að hann er fær um að líta á málið bæði frá sjónarmiði presta og barnakenn- ara, er auk þess ágætlega máli faritín og talar svo hægt, að auð- velt er að skilja hann þótt menn. sjeu lítt vanir dönsku. S. G. Skipafrjettir. Gullfoss kom til Kafnar kl. 11 árd. í gær. Goða- foss kom að vestan 0g norðan f gærdag. Brúarfoss kom til Vest- mannaeýja kl. 5 í gær, er væntan- legur hingað í dag. Lagarfoss er á leið til Leith, frá Austfjörðum. Dettifoss kom til Hull í gær- morgun, fer þaðan í dag, áleiðis til Rvíkur. Selfoss er á leið til Aherdeen. Sigurður Sigurðsson skáld frá Arnarholti er höfundur vísunnar, sem Ásgeir Ásgeirsson fórsætis- ráðherra las upp við afhjúpun myndastyttu Leilfs heppna og birt er í ræðu forsætisrá'ðherra hjer £ blaðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.