Morgunblaðið - 04.08.1932, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
I Mairmw I Olsem CÉ
Sbrifstofwr ofekar verða tokaðar f
dag til kl, I, vegna iarðarfarar.
Fálkinn flýgur út.
Fálkakaffibætirinn er elsti
íslenski kaffibætirinn. —
Heildsölubirgðir hjá
fiialta Blðrnssyní 8 Go.
Símar 720, 295.
Ksnpmsnn!
Willlam Shakespeare.
Kaupið PET dósamjólkina, hún er drýgst og ódýrust
3. Benediktsson & Co.
Sími 8 (4 línur).
m
-!>
Fundur ð Egilsstoðum.
Framsóknarmeim fá þar
nóg af Gísla GuSmunds-
syni Tímaritstjóra.
Þegar ritað verður um stjóm-
málasögu undanfarinna ára, má
fcúas-t við því, að Egilsstaðafundir
fái sjerstakan kapítula. Þar liefir
Afturhaldið í stjórnmálum lands-
ins á stundum tekið á sig hina
svörtustu triynd. Þár hefir Hriflu-
menskan ráðið ríkjum. Þar var
gerð hin eftirminnilega samþykt,
þvert ofan í staðreyndir, þvert
ofan í tölur Landsreikninganna,
að skuldir lándsins hefðit ekki
aukist lifandi vitund. Þar hefir
heilbrigð' skynsemi átt einna örð-
ugast uppdráttar á undanförnum
, -
arum.
Rofar til í dimmviðrinu.
En jafnvel í þessum myrkviði
stjórnmálablekkinganna, í þessari
útvarpsstöð Tíma-„sannleikans“ er
nú farið. að rofa til.
Gísli Guðmundsson ritstjóri Tim
ans hefir nú um tíma verið á
ferðaJagi um landið. Hann kom
til Eyjafjarðar fyrir nokkru. —
Framsóknarmenn ljetu mikið af
komu hans áður en hann kom. En
■eftirá forðuðust flokksmenn hans
að minnast á, að hann hefði þang-
að komið.
A sunnudaginn var boðaði Gísli
til fundar að Egilsstöðum. Hann
var aðalfundarboðandinn. En með
honum voru þingmenn Sunn-Mýl-
inga. Var þeim Árna Jónssyni frá
Múla og Haraldi Guðmundssyni
sjerstaklega boðið á fundinn. 'Þar
var og Páll Hermannsson 2. þm.
Norð-Mýlinga. En Ingvar Pálma-
son var forfallaður og kom ekki.
í fundarbyrjun var sú ákvörðun
gerð, að hver stjórnmálaflokkur
skyldi hafa jafnan ræðutíma. En í
| í'ramkvæmdinni varð það svo, að
■ fundarboðandi og þingmenn fengu
hver um sig málfrelsi jafnlanga
stund og þeir Árni frá Múla og
Haraldur.
Gísli Guðmundsson talaði fyrst
og var ræða hans veigalítil.
Sveinn í Firði gat þess í önd-
verðu, að fundur þessi ætti aðal-
lega að fjalla um kjördæmamálið.
Hann kvaðst líta svo á, að líða
myndi á löngu áður en kjördæma-
málið yrði til lykta leitt. En Páll
Hermannsscwi leit öðru vísi á. —
j Taldi hann sem aðrir að kjördæma
málið yrði leyst á næsta þingi.
Verðxir ekki orðlengt að þessu
inni um það sem á fundinum gerð-
Ist. En eigi lerkur á tveim tung-
um þar evstra, að ófarir Fram-
sóknar urðu miklar á fundi þess-
um. Var svo af Gísla Guðmunds-
syni dregið í fundarlok, að hann
gat ekki fengið fundarmenn til
þess að klappa fyrir sjer í þessu
gamla Tímahreiðri
| ,,Hjer var alt með öðrum svip,
fyrir ári um þetta leyti“, segir í
vísunni, og Iiefði Gísli mátt minn-
aSt þess.
Sjálfstæðismenn ánægðir
með fundinn.
Frá Reyðarfirði er blaðinu símað:
— Á Egilstaðafundinum vöktu
í ræður Árna Jónssonar frá Múla,
; langmesta athygli. Lýsti hann
rækilega f jármálapólitík Fram-
i sóknarstjórnárinnar undanfarin ár
og sýndi Jram á, hvernig Fram-
sóknarflokkurinn væri gersamlega
klofinn í kjördæmamálinu.
Framsóknarmenn eru hjer mjög
óánægðir með það hvernig fundur
þegsi fór, en Sjálfstæðismenn
tel.ja þetta besta stjórnmálafund,
seni haklinn hafi verið á Egils-
stöðum.
Xú eru meira en 300 ár síðan
þessi snillingur lifði og- starfaði, þó
gagntekur hann enn þá hugi
manna. Ilm víða veröld — svo
langt sem menningin nær — eru
leikrit hans lesin og leikin. —
Hvers vegna? 'Vegna þess að í
persónum þeirra og mannlýsing-
um speglast jarðlífið — mennirn-
ir, eins og þeir eru í sorg og gleði,
í löstum og dygðum, í hæstu upp-
hefð, og dýpstu niðurlægingu. Svo
nákvæmlega hefir höf. tekist að
rekja sundur tilfinningaþræði
mannanna, að í þessum 16. aldar
ritum standa mannlýsingarnar ó-
haggaðar gegnum aldimar, því að
á öllum öldum eru mennirnir í
insta eðli sínu þeir sömu þrátt fyr-
ir hinar ytri umbúðir tísku og
aldarfars. — Þessi lærdómsríku, og
djúphugsuðu leikrit, eru — því
miður — lítt kunn öllum þorra al-
roennings lijer á íslandi. — í
kvöld gefst mönnum kostur á að
heyra þau Önnu Borg og Paul
Reumert fara með „Kaupmanninn
í Feneyjum“, sem er eitt af eldri
leikritum Shakespeares — og eitt
af þeim frægustu. — Allir þekkja
söguna um Ásu, Signýu og Hjelgu,
og skrínin 3, úr gulli, silfrí og tini.
Vandi var að velja rjett, og láta
ekki glepjast af ytra útliti þeirra.
Innihaldið rjeði úrslitum. Heill og
hamingja voru í húfi. — Margt
bendir til þess að frásögnin í þess-
ari þjóðsögu, og sama atriði í þessu
snildarleikriti Shakespeares, sjeu
af skyldum toga spunnin. — Hin
ríka yndislega Portia — í þessu
riti enska skáldsins — er um-
kringd af biðlum, — hún lætur þá
velja um skrínin 3, er faðir henn-
ar afhenti henni fyrir andlát sitt,
með þeirri skipan, að sá, sem fengi
það er inniheldi mynd hennar,
skyldi hennar ektamaki verða.Einn
kemur og annar fer, kóngssynir og
aðalsmenn, háir og lágir. Portia
er í sífeldum efa og ótta, bundin
við loforð sitt á aðra hönd, á hina
er ástin til Antonio — verður það
hann, eða einhver annar, sem velur
rjetta skrínið?
Lfeikritið er þrungið af spéki og
snil'darlegum tilsvörum. Yndisleg
ástaræfintýri, og hárheitt skop er
vafið saman á áhrifaríkan hátt. —
Ógleymanlegt er rjettarhaldið, þar
sem Portia kemur dulbúin, sem
dómari elskhuga sínum til lið-
veislu. — Fyrir vanskil í fjármál-
nm og samkvæmt samningi, heimt,-
ar Gyðingurinn Shylock (sem er
ein aðalpersóna leiksins) pund af
kjöti skorið úr lifandi líkama
Antonis.Hin dulbúna Portia dæmir
það rjett að vera, þó því að eins,
að enginn blóðdropi fari forgörð-
um o. s. frv. Þrátt fyrir Ijettleika
og kýmni leikritsins, sem þó jafn-
an helst í hendur við alvöruna,
skín í gegnum þetta rit,. — sem
svo mörg önnur eftir þennan höf.
— þessi boðskapur: Eins og þú
sáir muntu uppskera, þar eð allar
gerðir manna hafa sjálfar endur-
gjöldin í sjer fólgin.
H. Björnsson.
—« •
Bæjarstjórnarfundur verður hald-
inn í kvöld. Á þar fram að fara
kosning í bæjarráð, og ákvörðun
pm gegningu emhættis borgar-
stjóra í fjarveru hans.
nkranessför
verslunarmanna 2. ágúst.
Veður var^drungalegt að morgni
'og veðurspá ískyggileg.
Þó fór 6—700 manns í skemti-
för verslunarmannafjelaganna til
Akraness. Á sjötta hundrað með
Súðinni kl. 8 y2 að morgni, en
seinna fór Suðurland með mann-
fjölda, og enn fóru nokkurir með
bátum.
Kl. rúml. 11, voru allir farþegar
af Súðinni komnir í land á Akra-
nesi. Kl. 1% var hátíðin sett á
túnsvæði miklu, sem hafði verið
fánum prýtt fyrir daginn.
Talsvert á annað þúsund manns
sótti samkomuna alls.
Brynjólfur Þorsteinsson banka-
fulltrúi setti mótið. Þá flutti sr.
Þorsteinn Briem ráðherra minni
ísl'ands, en Sig. Éggerz minni versl
unarmanna.
Kvæði voru sungin og lúðrar
þeyttir. IJrvalsflokkur Ármanns
sýndi fimleika. Glímur fórust fyr-
ir. Dans var, stiginn á stórum
palli, undir hornablæstri og har-
mónikuspili. -— Gleðskapur var
hinn besti. Rigningarlaust að
mestu, en úðaköst gerði tvö um
daginn.
Fyrstn Súðarfarþegar fóru um
borð kl. 8^/2. Allir komnir á skips-
fjöl kl. II. 1 Reykjavíkurhöfn kl.
12. Þá var skotið skrautlegum
flugeldum skemtiferðafólkinu til
gamans. Var það lokaþátturinn
í þessum frídag verslunarmanna.
Gronau kominn til Chicago.
Chicago, 2. ágúst.
United Press. FB.
von Gronau.
von Grönau lenti hjer kl. 1 síðd.
í (lag., Ilingað kom hann frá
Detroit.
ForsetakQsningin
í Banöaríkjunum.
Bamnið ræðúr miklu um úr-
slitin.
Wasliington í júlí.
United Press. FB.
Alknnnugt. er, að stórfje' er að
jafnaði eytt af tveimur aðalstjórn-
málaflokkunum í Bandaríkjunum,
þegar forsetakosningar fara fram.
Þannig var fjáreyðsla flokkanna
árið 1928, í forsetakosningunum,
s^m þá fóru fram, yfir hálf seytj-
ánda miljón dollara, eða um 45
Nestl.
Þrátt fyrir öll inn-
flutningshöft, erum
við vel byrgir af
alls konar góðgæti í
nestið.
■ Ákugaveg ðS. Sími 2898.
Amatörar
látið okkur framkalla, copiera og
stækka myndir yðar.
011 vinna fljótt og vel af hendi
leyst.
Kodakfilmur með 8 myndum,
venjulegar og ljósnæmar fást í
Amatördeild
cents á hvern kjósanda í landinu,
sem neytti kosningarrjettar síns.
En 1928 var gott viðskiftaár. Fje
var nóg fyrir hendi, en nú er
kreppa og fje liggur hvergi laust
fyrir. Það kostaði republikana
$9.433.604 að koma Hc/over forseta
að, en kosningaútgjöld demokrata,
sem höfðu Alfred Smith í kjöri,
urðu $7.152.111.00. — Nú verða
aðalflokkarnir að halda sparlega
a. Kom það þegar í ljós á flokks-
þingunum. Kostnaður af flokks-
þingi demokrata varð í ár helm-
ingi minni en 1928 eða liðlega
$40.000. — Báðir flokkarnir afla
fjár í kosningasjóði sína, með frjáls
um samskotum og að sögn gengur
fjársöfnunin demokrötum langtum .
betur, þótt auðmenn sj'eu miklu
fleiri í flokki republikana en demo-
krata. John D. Rockefeller jr., hef-
ir til þessa styrkt bannfjelögin
mjög þegar kosningaundirbúning-
ur hefir farið fram. Hann var
til skams tíma bannmaður, en hefir
nú snúist í því máli. Hann er
republikani og telur stefnuskrár-
atriði flokks síns viðvíkjandi bann
lögunum ófullnægjandi. Hvort
hann styrkir flokk sinn fjárhags-
lega er enn- óvíst. Hins vegar hafa
aðrir auðmenn styrkt fjárhagslega
fjelög, sem vinna að afnámi bann-
laganna.
Kosningabaráttan verður án efa
mjög liörð. Kemur þar margt til
greina. Óánægja margra með
Hooverstjórnina, atvinnuleysismál-
in, háhnmálið og utanríkismálin.
Kosningarnar mirnu leiða skýrt í
Ijós afstöðu Bandaríkjanna til
margra .þessara mála, og munu
liafa mikil áhrif á úrlausn
þeirra • mála, sem Banda-
ríkin og Evrópuþjóðir verða að
leýsa sameiginlega til fullnustu.
Kosningarnar munu enn fremur
svara spurningu um það, hve
mikið fylgi jafnaðarmanna og kom
múnista hefir aukist frá því árið
1928. HVorugur þesvsara flokka get
ur komist nálægt því marki enn
sem komið er, að fá kosinn for-
seta úr sínum flokki, en alment er
talið nokkurn veginn víst, að fylgi
þessara flokka hafi aukist á und-
anförnum kreppuárum, en hve mik
ið er mjög óvíst.