Morgunblaðið - 27.08.1932, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.08.1932, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Munið, að jeg nota eingöngu ís- lenskt smjör í smákökurnar. Smá- kökur, Kleinur, Tertur, Sandkök- ur, Sódakökur,( Jólakökur, Plum- kökur og hinar eftirspurðu „Kam- merjunker“ (smátvíbökur) fást daglega nýbakaðar. Sunnudaga- og kvöldsala. Ásta Lebitz, Oldu- götu 40 III. hæð. Timbur til sölu, Þórsgötu 17. Ullarkápur barna í talsverðu úr- vali. Verslunin Skógarfoss, Lauga- veg 10. Stórt húsnæði, fimm stofur og eldhús, mjög hentugt fyrir ljettan iðnrekstur og íbúð, við miðbæinn til leigu. A. S. í. vísar á. að segja um ýmsar efnivörur, eins og bómull, gúmmí, kopar, blý og tin. Bn vafalaust Ijettir kreppunni ekki jafn snemma af um öll lönd. Hún kom eins og skriða á þjóð- irnar, en ekki alls staðar á sama tíma. Sumar þjóðir þykjast hafa yfirstigið verstu erfiðleikana, eins og til dæmis Ástralía og Argen- tína. Aðrar þjóðir eiga vafalaust eftir að stríða við mikla erfiðleika. Atmeríkumenn eru bjartsýnir. Má vera, að núverandi bjartsýni þeirra reynist að vera eigi á rjett- um rökum bygt. En eigi skal mis- virða það við þá, þó þeim sje gjarnt á að Iíta björtum augum á framtíðina. Það er einmitt bjart- sýni, sem heimurinn þarfnast . (Lauslega þýtt). Glænýr Silungur. Nordalsíshús. Sími 7. Café Höfn selur meiri mat, ó- dýrari, betri, fjölbreyttari og fljótar afgreiddan en annars stað- ar AmatBr-alkúm, mikið úrval. — FramköUu, KQpieri«B, stakku, THIELE, Rusturstr- 20, mmmmmmm^mmmm^mmm^mmmmmmmmm Boskilde Haraldsborg. Hnsmæðraskáli. Nýtt námskeið hefst 4. nóv. og 4. maí. Amtsstyrks má leita. Nánari uppl. ef óskast. Anna Ðransager Nielsen. Matreiðslukensla. í sept. held jeg 1 mánaðar mat- reiðslunámskeið, en 1. október hefst 3ja mánaða námskeið. Er kenslutíminn mjög hentugur, þar sem kenslan fer fram frá kl. 3—7 síðd. Kristfn Thoroddseu, Príkirkjuveg 3. Sími 227. Fl|*tir n«! Nýslátrað dilkakjöt, ódýrast 1 bænum. Lifur og hjörtu, sviðin svið. Hangikjöt. Salt dilkakjöt. íslenskar Gulrófur. Sendið eða símið. Allir í B jörBinn, Bergstaðastræti 35. Sími 1091. Islenskar kartöflnr. íslenskar gulrófur. - Rabarbari. ---------- E4U2gaveg 0?. Síml 2898. Dagbók. Veðrið (föstndagskvöld kl. 5): Lægðin er nú yfir Grænlandshafi og veldur allhvassri SA-átt og rigningu suðvestan lands, en á N- og A-landi er vindur hægari og veður enn þurt. í nótt mun rigna talsvert og vindur víða verða all- hvass SA á S- og V-landi, en útlit er fyrir, að vindur verði SV-lægur á ipoygun með skúraveðri. Vþðurútlit í Rvík í dag: SV- kaldi. Skúrir. Messað á morgun í dómkirkj- unni kl. 10. Síra Friðrik Hall- grímsson. Messað í fríkirkjunni í Reykja- vík kl. 10 árd. Síra Ámi Sigurðs- son. Messað í fríkirkjunni í Hafnar- firði á morgun kl. 2 síðd. Síra Jón Auðuns. Jón Benediktsson tannlæknir er kominn heim. Blómasala bamavinafjelagsins í gær, gekk greiðlega; bömunum yf- irleitt vel tekið. Seldir 350 blóm- vendir. Fjelagið hefir beðið blaðið að flytja bæjarbúum þakkir fyrir góðar undirtektir. Stefán læknir Guðnason hefir verið settur um eins mánaðar tíma (frá, 1. sept.) til þess að gegna hjeraðslæknisembættinu í Dala- hjeraði. Sigurjón Guðjónsson, settur sóknarprestur í Saurbæjarpresta- kalli á Hvalfjarðarströnd, hefir verið skipaður sóknarprestur bar frá 20. ágúst að telja. Rjúpnafriðun. Sökum þess hvað rjúpum hefir lítið fjölgað í land- inu enn, hefir dómsmálaráðuneytið skipað þannig fyrir, samkvæmt heimild í lögum, að rjúpur skuli al- friðaðar þetta ár, eins frá 15. októ- ber til ársloka eins og hina tíma ársins. Bæjarfógetaembættið í Isafirði og sýslumannsembættið í Isafjarð- arsýslu, er auglýst laust til um- sóknar og er umsóknarfrestur til 25. sept. Sýslumannsembættið í Húna- vatnssýslu er auglýst laust til um- sókuar. Umsóknarfrestur til 25. september. Halastjarna á ferðinni. Hinn 8. ágúst urðu stjörnufræðingar í Bandaríkjunnm varir við hala- stjömu, sem fór mjög hratt í norðurátt. Um miðjan mánuð sá stjörnuturninn í Berlín hana og litlu seinna mátti koma auga á hana í smásjónaukum, þótt ekki sæist þúp með berum augum. Uún ætti að fara að sjást hjer — ef hún er þá ekki farin fram hjá, án >ess nokkur viti. Halastjama þessi er kölluð Peltier-Whittle. Hefir hún bjartan kjama og dálitla út- 'geislun sem líkist hala. Auglýsingg nm smásölnverð á Cigarettum. Útsölnverð á cigarettnm má eigi vera bærra er hjer segir: Elephant (Virginia) kr. 0.55 pf. 10 stk. pakka. Gomntander (Virginia) » 1.10 99 20 99 99 ■ay Blossom (Virginla) 19 120 99 20 >9 99 Swiit (Egyptskar) 99 1.10 99 20 99 91 Ðe Reszáe (Vlrginia) 99 1.20 9 > 20 99 99 do. (Tyrkneskar) 99 1.25 99 20 99 99 Slatesman (Tyrkneskar) 99 1.25 99 20 99 99 Teoiani Fine (Egyptskar) 99 1.30 99 20 99 99 Ank þess er versinnmn ntan Reykjavíknr heimilt að leggfn alt að 3°|0 á tébaklð að anU fyrir flntningskastnaði. Tábaksetnkasala ríkisins. Dánarfregn. Gunnar Hinriksson, hipn þjóðkunni vefari, andaðist í Elliheimilinu í fyrrakvöld. Hann var 87 ára að aldrí. Skipafrjettir. GuIIíqss mun kom- ipn til Vestmannaeyja, væntanleg- ur hingað í kvöld. — Goðafoss fer frá Hamborg í dag. — Brúarfoss kom hingað í gærkvöldi að norðan og vestan, fer í kvöld kl. 6 til Vestmannaeyja, Leith og Kaup- mannaþafnar. — Lagarfoss var á Sauðárkróki í gær, en Dettifoss á Akureyri. Garðskemtun. Seinasta garð- skemtun Hressingarskálans var í gærkvöldi, og eru þær þá orðnar sex alls á þessu sumri og hafa allar farið ágætlega fram. U. M. F. Velvakandi fer í berja- för n.k. sunnudag. Farið verður að Bringum, efsta bæ í Mosfells- dal. Hefir verið fengið leyfi bónd- ans þar til að tína þar ber og haf- ast við um daginn. Fjelögum er heimilt að hafa með sjer gesti og | einnig er öðrum velunnurnm f je- j lagsins heimil þátttaka. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tónleikar (Útvarpstríóið). 20.00 Klukkusláttur. Grammófón- tónleikar: Symphonía nr. 1, eftir Brahms. 20.30 Frjettir. Músík. Skemtun verður haldin að 01-. fnsá á morgun kl. 3; þar sýna Sví- þjóðarfarar Ármanns fimleika og glímu. Drengjamótiö. Nýtt met. Drengjamótið hjelt áfram í gær- kvöldi og var þá keppt x þessum íþróttum: Spjótkast. 1. verðlaun hlaut Ge- org L. Sveinsson (K. R.) 33.58 m., 2. verðl. Grímar Jónsson (Á.) 32.78 m. og 3. verðl. Sveinn Zoega (Á.) 32.14 m. 1000 metra boðhlaup. J.. verðl. hlaut A-lið Ármanns 2 mín. 20.8 sek. Þetta er nýtt met; gamla metið átti Ármann. 2.21.6 sek. 2. verðlaun K. R. 2 mín. 30.6 sek. og 3. verðl. Ármann 2 mín. 35.4 sek. Dilkaslátor fæst nú flesta virka daga. . Sláturfjelagið. Nú borgar sig best að reykja Teofani CIGARETTUR. Fást hvarvetna. TEOFANI & Co. Ltd. NINON--------------- INýir uliarkjólar! Aðeins lítil sending. Laugardag opið 10—12 og 2-4. Eniltennur yðar gulnr 7 Hafið þjer gular eða dökkar tennur, notið þá Rósól-taunkrem, sem gerir tennumar hvítar og eyð- ir hinni gulu himnu, sem leggst á þær. Rennið tungunni yfir teim- urnar eftir að þjer hafið burstað þær og finnið hversu fágaðar þær eru. — Rósól tannkrem hefir ljúf- fengan og frískan keim og kostar að eins 1 krónu túban. Tannlæknar mæla með því. H.f. Efnagerð Reykjavfkur. kemisk verksmiðja. Lifur, hjðrtu, svið. K1 e i n, Baldursgötu 14. Sími 73- kakkarorð, 'Öllum þeim, sem sýndu mjer samúð, hjálp og hluttekningu við hið sviplega fráfall og jarðarför Ragnars sonar síns, færi jeg hjer hieð mínar innilegustu hjartans þakkir. Nöfn hins marga velgjörðarfólks míns greini jeg ekki ,en bið algóð- an guð að launa því, þegar því liggur mest á. Hafnarfirði, Reykjavíkurveg 12,. 26. ágúst. 1932. Signrrós Kristjánsdóttir- 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.