Morgunblaðið - 08.10.1932, Síða 2

Morgunblaðið - 08.10.1932, Síða 2
2 M O R G 0 N B L A Ð IÐ SLÁTUR úr fullorðnu og dilkum fæst mánudag, þriðjudag: og fimtudag í næstu viku. — Heim- flutt, vel þvegið, ódýrt. Upplýsingar á Afgreiðsln Aafoss. Laueraveg 44. Sími 404. Innilegt þakklæti til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför Þorvalds Eyjólfssonar skipstjóra. Jakobína G. Guðmundsdóttir og böm. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu. við andlát og jarðar- för mannsins míns, Þorsteins Guðmundssonar. Hafnarfirði, 8. október 1932. Guðrún Jónsdóttir. Hjartanlega þökkum við öllum þeim mörgu, nær og fjær, bæði ein- staklingum og fjelögum, er sýndu okkur hluttekningu og vinarhug við andlát Þorvalds Bjarnasonar, kaupmanns, og aðstoðuðu á margvíslegan hátt við útför hans. Kona og dætur, móðir, systir og tengdafólk. Jarðarför móður og tengdamóður okkar, Oddbjargar Pálsdóttur, fer fram frá Fríkirkjunni mánudaginn 10. þ. m., og hefst með húskveðju kl. 1 síðdegis frá heimili hennar, Hvetfisgötu. 16 B. Sigríður Áraadóttir. Sigurður Guðbrandsson. Við undirritaðir þökkum alla þá hjálp, aðstoð og velvild er við mættum við fráfall og jarðarför konu og móður okkar, Bannveigar Steinunnar Lárusdóttur. En sjerstaklega viljum við minnast þeirra, sem á einn eða annan hátt sýndu að þeir voru vinir þegar á reyndi. Vigfús Vigfússon. Þorfinnur Vigfússon. Hðskölafyrirlestrar Eriks Bruel, landsrjett- armálafærslumanns um alþjóðarjett. í dag byrja háskólafyrirlestrar Eriks Briiel um alþjóðarjett, og ýms efni, er snerta samstarf og samfjelag þjóðanna. Alls ætlar hann að halda hjer fimim fyrirlestra. Tveir þeirra v'ertfe. almenns efnis um þjóðfjelagið alment, uppruna þess, tilgang og framþróun. En hinir þrír verða um sjerstök efni, er snerta ýms dagskrármál þjóð- finna. Sá fyrsti þeirra, fjallar um hið enska heimsveldi, og samband Bretlands við nýlendurnar. Minnist ræðumaður þá m. a. á Ottawasamn- inginn. Siá næsti verður um afvöpnun, og hvort einstaka þjóðir, sem eru í Þjóðabandalaginu hafi rjett til að leggja niður vopn, þó aðrar þjóðir bandalagsins geri það ekki. Snertir |>að atriði mjög afstöðu Dana til liandalagsins, og dönsk stjórnmál yf- irleitt, því mjög er, sem kunnugt er, um það deilt, hvort Danir eigi að leggja niður herbúnað sinn. En um ieið snertir þetta efni okkur Is- Jendinga, hvort við, vopnla.us þjóð, getum gengið í Þjóðabandalagið, og l.vaða agnúar á því kunni að vera. Síðasti fyrirlestunnn sem Erik Briie! heldur, verður sennilega um dtilumáþn í Asíu. Mikið, efni og merkilegt nú á tímuin. En svo vikið sje aftur að fvrstu fvrirlestrunum, þar sein ræðumaður gerir grein fyrir grunnlínum þ.jóða- rjettar og þjóðskipulagsins. Tekur hann þar efni sitt frá rót- um, lýsir ) >ví hvernig spírur þjóð- skipulagsins spretta af þörfinni til þess að fullnægja hinum einföldustu | kröfum, en síðan tekur við framþró- j unarviðleitnin, eðlishvötin til full- komnunar. Erik Briiel hefir farið fyrirlestra- ferðir um mörg lönd Norðurálfunnar, og talað um ýms þjóðf jelagsmál. —■ Auk málfærslustarfa sinna, er hann aðstoðarkennari í lögum við háskól- ann í Höfn. Hefir hann innleitt þar þá kensluaðferð, sem hefir rutt sjer allmikið til rúms í Þýskalandi, að h'áskólanemendur taka ýms dagskrár- mál, er snerta nám sitt, undirbúa sig til að ræða um þau, og halda síðan umræðufundi í viðurvist kennara síns, senv tekur þátt í umræðunum til leið- beininga. Yæri ástæða fyrir háskólann hjer að athuga hvoyt ekki væri tímabært að revna ]>essa aðferð hjer í ein- hverjum námsgreinum. Happdrætti* Hinn 10. nóvember næstkomandi á að draga um gæðing þann, er Hesta- mannaf jelagið Eákur fekk levfi til að setja happdrættismiða. á. Mikið af þeim miðum eru seldir, en mið- arnir verða allir að sel.jast, því svo best er hægt að halda áfram að bæta og lengja. reiðveginn, að fje til þess sje fyrir hendi. en seljist allir mið- arnir, þá batnar og lengist reiðvegur- inn, og umræddur vegur gerir reið- mönnum klej’pt að fara út á hestum sjer til skemtunar, og án þess að verða fyrir hnjaski frá bílunum. Happdrættishesturinn heitir „Hrím- faxi“, dáv sem hann hreppir verður áreiðanlega talinn vel ríðandi. D. D. t-ym > DAGBÓK. Slysavarnafjelagsskapurinn er ekki gamall hjer á landi, en hann er þegar þjóðkunnur orðinn og allir eru á einu máli um gagnsemi hans, enda hefir hún oft sýnt sig í verki, þá er slýs hafa borið að höndum. En slíkur fje- lagsskapur getur ekki starfað með tvær hendur tómar. Svo margt er sem vantar — björgunartæki á hættustað- ina — björgunarstöðvar og ef vel væri björgunarskip. Kvennadeild Slysa- vamafjelagsins hjer í Reykjavík efnir í dag til bazars og bögglguppboðs í Goodtemplarahúsinu (sjá auglýsingu hjer í blaðinu). Allur ágóði fer til slysavarna. FjelagskonUr hafa lagt mikla vinnu í að útbúa bazarinn og ýmsir góðir menn styrkt þær með gjöf- um til hans. Nú kemur til kasta al- mennings að sækja bazarinn og kaupa það sem þar er í boði. Yæntanlega vilja margir verða til þess, því um leið og þeir veifa góðu málefni lið, geta þeir fengið góð kaup á þarflegum varningi, og hver er sá sem ekki vill komast að góðum kaupum nú í krepp- unni. Hinn almenní fundur presta g sóknarnefnda verður haldinn hjer í bænum 17.—19. þ. m. Ráðgert er að dagskrá hans verði lá þessa leið: Mánu- dag 17. október: Kl. 2 síðd.: Guðs- þjónusta í dómkirkjunni. Sr. Garðar Þorsteinsson þjónar fyrir altari, en sr. Eiríkur Brynjólfsson prjedikar. kl. 4: Fundur settur í húsi K. P. U. M. Kl. 5—7: Trúmálahorfur. (S. 'Á. Gíslason málshef jandi) Kl. 8l/2: Sr. Sigurður Þorsteinsson, frá Bjarkey, flytur er- indi í fríkirkjunni um æskulýðsstarf- semi í Nbregi. Þriðjudag 18. október: Kl. 91/2 árd.: Morgunbænir. Kl. 10—■ 12: Kristilegt starf meðal sjómanna. Jóh. Sigurðsson málshefjandi. KI. 3— 5 síðd.: Helgidagamálið (sr. Ingimar Jónsson málsihefjandi). Kl. 5—6 Um altarisgöngur. Kl. 6: Gengið til altar- is í fríkirkjunni. Kl. 81/2: Ferðaminn- ingar, erindi í fríkirkjunni (sr. Bjarni Jónsson prófastur). Miðvikudag 19. október: Kl. 91/2 árd: Morgunbænir. Kl. 10—12 Kristnihoð (sr. Sigurður Þorsteinsson málshefjandi). Kl. 3—6 síðd.: Kristindómsfræðslan (Frey- steinn Gunnarsson skólastjóri máls- hefjandi). Kl. 6—7: Önnur mál. Kl. 8: Kveð.jusamsæti. Ef til vill verða fleiri erindi flutt í sambandi við fund- inn og þá síðar auglýst. Atkvæðisbærir fúndarmenn eru sem fyrri: prestar, sóknarnefndarmenn, safnaðarfulltrúar og fulltrúar kristilegra fjelaga innan lúteskrar kirkju, en annars allir krist- indómsvinir, velkomnir meðan húsrúm 'leyfir. S. Á. Gíslason. Jarðarför Þorvaldar Bjarnasonar kaupmánns fór fram í Hafnarfirði í fvrradag að viðstöddu miklu fjölmenni. Kistan var borin úr heimáhúsum af Kaupmannafjelagi Hafnarf jarðar, í kirkju af fjel. Magni og úr kirkju af sóknarnefnd. I kirkjugarð >báru f jelag- ar úr stúkunni Röskvu. PáJl H. Jónsson auglýsir í dag kenslu í orgelspili. Hann er nýkominn hingað til bæjarins. Er hann nemandi Björgvins Guðmundssonar tónskálds og söngkennara á Akureyri. — Ummæli Björgvins eru hin prýðilegustu um Pál og mun hann hafa hvatt hann til að helga sig þessum störfum. Allmörg lög hefir Páll samið og eru sum þeirra mjög athyglisverð og bera vott um góða hæfileika. Söngstjórn hpfir hann haft á hendi og farist m.jög vel. Jeg gæti trúað að hjer væri utn há'filcika- niann áð ræða, sem vert væri að gefa gætur að og stuðla að því, að hann fengi notið sín. Jeg vil því hvetja menn til að kynnast Páli og njóta kenslu hans. ' A. Eiríkssöni ■ Vomafiariarkittii kom með e.s. „Esja“. Þeir, sem hafa pantað hjá okkur kjöt, gjöri svo vel að.tala við okkur sem fyrst. Athugið síðasli dagnr dlsöluwar er f dag. Barnakápur, gjafverð. Silkiprjónagarn, mjög ódýrt. Nokkur dúsín verkamanna- föt, brún, seld mjög ódýrt o. m. m. fli. Versl. Skúgafoss. Laugaveg 10. Skyndisala á allskonar narlatnaöi á konnr og bðrn á allskonar sokknm dr nlln, silki og bámnlt baði handa konnm og kðrlnm. Vörurnar era spánýjar og vandaðar. Þar ern ár einni kelsln verksmiðjn Evrðpn. Verð ¥ið allra hæfi. Skyudisalan byrjar I dag og slendnr I nokkra daga. Hdn er I Austnrstrætji 5. 1514 HOl 6 KokS 1514. Ensk og pólsk kol sömu teg. og áður. Ennfremur nýkomin ensk koks mulin og ómulin. Kolasalan s.L Eimskipafjelagshúsinu. Sími 1514.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.