Morgunblaðið - 15.10.1932, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.10.1932, Blaðsíða 3
3 M0RGVN3,LAPXP JPRotsttttHaMd H.Í. Arrakor, KrkitTlk. aitatjðrar: Jön KJartanuoa. Valtjr StafAnaaon. Iltftjirð og afiroltila: ▲uatnratrati t. — Blmi Ml, ▲nsiyalnraatjörl: H. Hafbarc. ▲nslýalnraakrlfatofa: ▲uaturatretl 17. —■ Slaal TM, Kalaaalaaar: Jön KJartanaaon nr. T4I. Valtýr Stefánaaon nr. Utl. H. Hafbern nr. T70. AakrlftarJald: Innanlanda kr. t.00 & nlnilL Utanlanda kr. 1.10 á aaáamBL, f lauaaaölu 10 aura olntaklt. 10 aura meV Ueafeök. Sorglegt slys. Lítil telpa verður fyrir bíl, og bíður bana. Klukkan rúmlega Mlfitíu í gær- onorgun var bíll frá Mjólkurfjelagi Keykjavíkur að koma vestan úr bæ «g ók Yesturgötu. Þegar hann kom að gatnamótum Yesturgötu og Norð- urstígs, kom lítil telpa hlaupandi og ■ætlaði að komast þvert yfir Yestur- •götuna framan við bílinn, en lenti undir honum. Kastaðist íhún niður og lenti á milli framhjóla bílsins, en unnað afturhjólið fór yfir hana. — 'Skaddaðist hún mikið á höfði og eitt- hvað meira. Bíllinn staðnæmdist eins fljótt og unt var, og menn, sem voru nærstaddir, hjálpuðu bifreiðarstjóran- um að bera telpuna upp í bílinn. Var hún þlá meðvitundarlaus. Bílstjórinn ok 'svo með hana til Landakotsspítala, ■og tóku læknar þar á móti henni og gerðu við meiðslin, eftir því hægt var. Skömu eftir að barnið kom í spítal- ann fekk það rænu og þekti mömmu sína, sem þangað var komin. — En klukkan hálfeitt var það dáið. Telpan hjet Hólmfríður Edvalds- dóttir. Foreldrar ihennar eru Edvald Stefánsson og (Sigríður Andrjesdóttir •og eiga þau heima á Bárugötu 22. Sjónarvottar að slysinu segja það, að bíllinn hafi ekið rjettu megin 'á götunni og farið hægt. En hrím var á götunni og hált og mun bílstjórinn því ekki hafa getað stöðvað bílinn nógu fljótt. Dánarfregn. Siglufirði, FB. 14. okt. Frú Sigríður Pálsdóttir, ekkja Haf- liða heitins Guðniundssonar hrepps- -stjóra, ljest í dag að heimili sínu hjer. * •Sf * ■9 % m '9 ■9 •9 9 9 9 9 9 9 « 9 Fjórveldaráðstefnan. Verður nokkuð úr henni ? London 14. okt. United Press. FB. Biesku, frakknesku og ítölsku ráð- herrarnir hafa faliist á að haldin verði f jórveldaráðstefna í Genf, en ráðherr- ar Þjóðverja ekki. Herriot er lagður af stað iáleiðis til Parísarborgar. Genf 14. okt. United Press. FB. Neurath ráðherra tilkynti fulltrúa sendiherra Breta, að Þjóðverjar hefði hafnað að taka þátt í fjórveldaráð- stefnu í Genf vegna þess, að þeir væri ákveðnir í að taka ekki þátt í starfsemi, sem færi í svipaða átt og starfsemi afvopnunarráðstefnunnar, — fyr en jafnrjettiskröfur Þjóðverja hefði verið teknar til greina. 5amuinnuútgerð á togaraa Merkileg nýjung á sviöi útgerðarinnar- Þess hefir áður verið getið hjer í blaðinu, að skiiwerjar á ‘botnvörp- ungnum „Nirði“ hafi keypt skipið og ætli að gera það út í fjelagi, Skipið hafa þeir nú eignast og skírt upp; heitir það „Haukanes", en út- gerðarfjelag þeirra heitir Samvinnu- fjelagið Haukanes. Skipstjóri er Jór Högnason, áður skipstjóri á Karlsefni. Þar, sem hjer er um eftirtektar- verða nýjung að ræða á sviði togara- útgerðannnar, þykir rjett að almenn- ingur fái að kynnast nánar því fvrir koroulagi, sem þeir fjelagar hugsa sjer að hafa 'á útg-erðinni. Samvmnufjelag með takmarkaðri ábyrgð. Stofnendur fjelagsins eru allir skip- verjar, 19 að tölu. Stofnendur eru skyldir að gegna skipverjastöðu á skipinu (eða öðru skipi, sem fjelagið kynni að eignast) meðan þeir eru fje- lagsmenn. Sama skyld'a hvílir á sjer- hverjum þeim, er síðar kann að vera tekinn í fjelagið. Fjelagið er samvinnufjelag með sam- eiginlegri en takmarkaðri ábyrgð. Án sjerstakrar skuldbindingar fer ábyrgð hvers fjelagsmanns eigi fram úr eign hans í fjelaginu og sjóðum þess, að viðbættum 2000 kr. Hver fjelagsmaður greiðir 10 kr. inngöngueyri, sem rennur í fymingar- sjóð. Fari fjelagsmaður úr skiprúmi fyrir fult og alt, er hann þar með genginn úr fjelaginu. Fjelagafundir og stjórn. Lögmætir fjelagsfundir hafa æðsta vald á öllum málefnum fjelagsins; til þess að fjelagsfundur sje lögmætur, þarf fullur helmingur fjelagsmanna að sækja fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á fje- lagsfundum. Þó verður samþyktum fjelagsins ekki breytt nema með % atkv. fundarmanna. Hver fjelags- manna hefir eitt atkvæði á fundi. Stjórn fjelagsins skipa 5 menn, kosnir á aðalfundi til eins árs í senn; þar skulu og kosnir 2 varamenn í stjórn, 2 endurskoðendur og tveir til 'vara. Fjelagsstjórnin hefir æðsta vald í máiefnum fjelagsins milli funda. Hún getur boðað til fjelagsfundar þegar henni sýnist, og skvlt er henni að boða til fundar, ef 1/g fjelagsmanna æskir þess. Sjóðir. Innan fjelagsins eru þrír sjóðir: 1. Stofnsjóður, sem er sjereign hvers fjelagsmanns að sama hluta og innstæða hans. 2. Fyrningarsjóður, sem notaður skal til endurnýjungar skipsins. 3. Varasjóður, sem er óskift eign f jelagsins. í stofnsjóð skal greiða: a) 5 kr. árlegt gjald frá hverjum fjelagsmanni og b) upphæð, sem nemur árlegri um- saminni afborgun af stofnfjárskuld fjelagsins. Stofnsjóð skal nota til greiðslu á andvirði skipsins. í fyrningarsjóð skal greiða árlega 4% af upphaflegu bókfærðu verði skipsins. Sjóður þessi ska'l notaður til að greiða með „klössunar' ‘ -kostnað skips og fleira. f vara-sjóð skal leggja: a) árlega 1% af brúttóandvirði afla og b) þær upphæðir, sem aðalfundur kann að akveða. — Varasjóður skal notaður til þess að mæta óhöppum í rekstri fjelagsins. Afrakstur fjelagsins. Afrakstrinum af starfsemi fjelags- ins skal varið þannig: 1. Af óskiftum afrakstri skal gi'eiða allan beinan tilkostnað við útgerðina, svo sem: Kol, olíu og aðrar nauðsynj- ar skips og vjelar, matvæli, salt, veið- arfæri, hafnargjöld, reikningshald o. s. frv. 2. Viðhald skips og vjelar, vátrygg- ingargjöld, vexti af skipsverði, fyrn- ingarsjóðsgjald, afborgun af kaupverði skips o. fl. Það, sem eftir er af afrakstrinum, þegar allur útgerðarkostnaður hefir verið greiddur, skiftist mil'li fjelags- manna, þannig: 1. Skipstjóri 3.50 hluti 2. Stýrimaður 2.00 — 3. 1. vjelstjóri 2.00 — 4. 2. vjelstjóri 1.50 — 5. Bátsmaður 1.25 — 6. Loftskeytamaður 1.14 — 7. Matsveinn 1.20 — 8. 2. stýrimaður 1.15 — 9. 1. netagerðarmaður 1.10 — 10. Netagerðarmaður 1.08 — 11. Netagerðarmaður 1.08 — 12. Kyndari 1.00 — 13. Kyndari 1.00 — 14.—19. Hásetar 6, hver 1.00 — Þessum skiftum verður þannig hag- að í framkvæmdinni: Eftir hverja veiðiför eða aflasölu skal taka af andvirðinu sem næst það, sem fjelagsstjórnin eða umbioðis- maður hennar telur nægja fyrir út- gerðarkostnaði. Það, sem þá er eftir, skal farið þannig með: % hlutar koma þegar í stáð til skifta meðal skipshafnarinnar, þó aldrei meira en sem svarar 350 kr. á mánuði fyrir hvern heilan hlut. % hluti geymist til tryggingar framhald'srekstri, þar til reikningar eru fullgerðir og endur- skoðaðir. Jón Högnason og skipshöfn hans eiga þakkir skilið fvrir, að hafa brot- ið nýjar leiðir á þessu sviði. Svo sem sjest á framangreindri lýsingu af f je- lagsstarfsemi þeirra, láta þeir áhættu af útgerðinni fyrst og fremst ganga út yfir sitt eigið kaup. En gangi út- gerðin vel, njóta þeir góðs af. Þetta fyrirkomulag er heilbrigt; en senni- lega samrýmist það illa við skoðanir þeirra manna, sem sífelt eru að heimta, en engu vi’lja fórna. Frá Noregl. Ósló, 14. okt. NPR. FB Símagjöld hækkuð. Vegna lækkandi krónugengis hefir símastjórnin auglýst að skeytataxtinn til útlanda hækki að meðaltali 15% frá 15. þ. m. að telja. Skipaárekstur. Skonnorta frá Eistlandi og sænskt skip rákust á í nánd við Álamdseyjar. Skonnortan sökk. Sex menn fórust. Skipi rænt. Frá Honkong er símað að sjóræn- ir.gjar hafi hertekið skipið Helikon í Hongkong-flóa og rænt úr því öllu verðmætu. Skipið var áður norskt, en hafði verið selt kínversku fjelagi. Bróðir Kreugers handtekinn. Thorsteim Kreuger, bróðir Ivars Kreuger, var handtekinn í gær í Stokk hólmi'. Háskólafyrirlestrar Briiel landrjettsmálafærslumanns. I seinasta háskóla fyrirlestri sínum talaði Briiel landsrjettarmálafærslu- maður um einlhliða afvopnun þjóðanna og knýtti þar við nokkurum merki- legum athugunum viðvíkjandi afstöðu Lslendinga til Þjóðabandalagsins. — Hann ræddl um 16. greinina í Þjóða- bandalagssamningnum, og hvort það ríki, sem ekki hefir hervarnir, og tekur því ekki þátt í hernaðarumræð- um, getur verið meðlimur í Þjóða- bandalaginu. Þessari spurningu svaraði Briiel ját- andi, því að ekki yrði sjeð, að neitt ríki í bandalaginu hefði sjerstaka skyldu til þess, að taka þátt í um- ræðum um hernaðarmál. Hann gat þess þó jafnframt að erfitt væri að segja um rjett einhverrar þjóðar til þess að taka þátt í viðskiftaráðstefn- um bandalagsins, og hvort ákvæði 16. greinar Þjáðabandalagsins um leyfi til þess að slíta viðskiftum við ein’hverja þjóð út af því, að hún hefði ekki haldið samninginn, væri samrýmanleg ákvæðum Sambandslaganna, þar sem ísland lýsir yfir ævarandi hlutleysi sínu. Svar við þessari spurningu hlyti að byggjast á því hvemig hlutleysis ákvæðið verður skilið eftir Þjóða- bandalagssamningnum. — Telji maður Þjóðabandalagið annars vegar, og það ríki, sem brotið hefir lög þess hins vegar, sem hernaðarlega andstæðinga, þá er ekki frama.r hægt að tala um neina hlutlausa þjóð í band'alaginu, eftir þeim skilningi, sem áður hefir verið lagður í það orð. En sje Þjóða- bandalagið og sú þjóð, sem brýtur af sjer við það, ekki talin fjandsamlegir andstæðingar, heldur beri afskifti bandalagsins að skoða sem lögreglu- ráðstöfun, þá er sennilegt að hlutleys- isyfirlýsing íslands í sambandslögun- um, sje samrýmanleg Þjóðabandalags- samningnum. Og sú skoðun verður nú æ ríkari meðal þjóðanna. Dagbók. □ Edda 593210187—1 atkv. Veðrið í gær: N-áttin er nú gengin niður, nema við NA-land, er enn N- strekkingur. Veður er víðast þurt en loft skýjað. Hiti 0—2 stig nyrðra, en 5 stig syðra. Hefir þykknað upp í dag suðvestanlands vegna lægðar, sem er að nálgast suðvestan af hafi og mun hafa í för með sjer SA-átt og rign- ingu á S- og V-landi á morgun. Veðurútlit í Reykjavík í dag: SA- kaldi. Rigning öðru hvom. Messað á morgun: í Fríkirkjunni kl. 11, síra Bjarni Jónsson; kl. 2 sr. Friðrik Hallgrímsson, kl. 5 síra Árni Sigurðsson. f Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði kl. iy2, síra Garðar Þorsteinsson. Barnaguðsþjónusta er í Elliheimil- inu kl. iy2 á morgun. Unglingastúkuxnar Æskan, Unnur, Svava, Iðunn og Díana, hefja vetrar- starf sitt með fundum á morgun. — Allar stúkurnar halda nú fundi sína í Góðtemplarahúsinu við Vonarstræti. (Sjá nánar í auglýsingu hjer í blað- inu). Skipafrjettir: Gullfoss er í Kaup- mannahöfn. — Goðafoss er á útleið. —• Brúarfoss er á útleið. — Dettifoss kom til Vestmannaeyja í nótt kl. 3 og er væntanlegur til Reykjavíkur í kvöld. — Lagarfoss va.r á Siglufirði í gær. — Selfoss er á uppleið. Leikhúsið. Á morgun verður „Karl- inn í kassanum' ‘ sýndúr í síðasta sinn. Eru því síðustu forvöð fyrir þá, sem ekki hafa enn sjeð þennan fram- úrskarandi skemtilega leik, að fá sjer holt hláturskvöld, og kynnast hinum ógleymanlegu útkjálka paurám, hr. Mörland og Friðmundi Friðar. Fermingarkort verða seld í versl. Þorvalds Bjarnasonar og Valdemars Long, einnig á götum bæjarins á morgun, til ágóða fyrir barnaheimil- isnefnd prestafjelagsins. Hár tollur á kjöti í Danmörkn. — Danska stjórnin lagði nýlega fyrir þingið framvarp um h'áan toll á inn- fluttu kjöti til Danmerkur; tollurinn skyldi vera 1 kr. pr. kg. Fór stjórnin fram á, að frumvarpið yrði afgreitt í skyndi. Var það gert og er það nú orðið að lögum. Sveinn Bjömsson, sendiherra tilkynti þegar íslensku stjórninni þessa tollhækkun og reyndi hún, fyrir milligöngu sendiherra, að fá íslenskt kjöt undanþegið tolli. — Þetta heppnaðist giftusamlega, því að ákvæði komst á síðustu stundu inn í frumvarpið, þar sem ráðherra var heimilað að veita undanþágu friá toll- inum; verður íslenskt kjöt því von- andi undanþegið þessum háa tolli. Dönsku skipin. ísland fór frá Kaup- mannahöfn í gærmorgun kl. 10 áleiðis hingað um Leith. — Dronning Alex- andrina kom hingað í gærmorgun, að norðan og fer til útlanda í kvöld. Leiðrjettingar. í grein B.H.B. í blað- inu í gær, um fasteignamatið og opin- bera eyðslu, slæddust inn tvær prent- villur. Sú fyrri er í efstu línu á öðr- um dálki 4. síðu, „lagi, atvinnuskatt, af húseignunum“, en átti að vera: „lagi, skatt af húsaleigutekjum“. — Hin var töluvilla í 23 Mnu í sama dálki, „16.670.00“ í stað 8.300 kr. Drengur eða telpa, búsett við Kapla- skjólsveg, getur komist að við að bera Morgunblaðið til kaupenda. Sjúkrasamlagsfundurinn seinasti var óvenjulega vel sóttur, um 400 manns. Stjórn S. R. lagði fram þrjár tillögur til lagabreytinga: 1) um 7 kr. iðgjalds- hækkun á lári fyrir hvem samlags- mann, 2) að fella niður aukagjöld, og næturvitjanir lækna, nema um slys sje að ræða og 3) að takmarka notkun dýrra einkasölulyfja eftir ráði læknis, þar sem um ódýrari en jafngóð lyf er að ræða. Fyrsta tillagan var samþykt með öllum greiddum atkvæðum gegn 18. Onnur tillagan sömuleiðis gegn 7 atkv. og síðasta tillagan einnig gegn einu atkvæði. — Fundurinn fór frið- samlega fram, þrátt fyrir það þótt þar væri einhverjir angurgapar, sem alls staðar þykjast vera menn, en em ekki, vilja glíma en geta ekki, og höfðu þeir ekkert fylgi á fundinum, heldur voru sama sem reknir á dyr. Útvarpið í dag: 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 16,00 Veður- fregnir. 19.05 Bamatími. (Síra Sig. Einarsson). 19,30 Veðurfregnir. 19,40 Tilkvnningar. Tónleikar. 20,00 Klukku sláttur. Frjettir. 20,30 Erindi: Þrir fræðimenn. (Pálmi Hannesson, rektor) 21,00 Tónleikar. (útvarpstríóið). — Grammófón: Kórsöngur. Piano-sóló: Ballade, Óp. 24, eftir Grieg, leikin af Leopold Godbwsky. Danslög til kl. 24. Æðardúnn. Útflutningur á æðardún hefir verið svipaður í ár og í fyrra, 1275 kg. nú, en 1225 kg. þá. Verðið hefir verið svipað, þó heldur hærra í fyrra. Farsóttir. Samkvæmt skýrslu land- læknis um farsóttir á landinu í sept- embermánuði, hefir heilsufar verið gott. Sjúklingar eru taldir 1180 alls, og hafa langflestir veikst af kvefsótt, 404, og hefir sú veiki verið skæðust á Norðurlandi. Af kverkabólgu hafa 283 veikst, og virðist hún jöfn um land alt. Af iðrakvefi hafa 192 veikst, fæstir að tiltölu í Reykjavík, en 30 —45 í landsfjórðungunum. Af blóð- sótt sýktust 93, þar af 77 á Norður- landi, 15 á Vesturiandi, einn á Suður- landi, en enginn í Reykjavík nje á Austurlandi. Hjónaband. í dag verða gefin sam- an í hjónaband ungfrú Steina Ottós- dóttir og Alfred Nielsen bakari. — Heimili þeirra verður á Njálsgötu 65.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.