Morgunblaðið - 25.10.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
i
«
*
#
■*
$
«
#
f
4
•4
«
5
■*
#
<$
*
4
4
JpftorgmiUaMfc
fts«f.: H.f. Arraltnr, KaykíaTlK
Sltatjðrar: Jön Kjartanaaos.
Valt»r StafAnaaos.
aitatjSr" o* aí*r«l8ala:
A. uatur«tr«et! I. — lla! #01,
iuelýalnj-aatjörl: M. Omtbarg.
Auglýalneaakrlfstofa:
Auaturatratl 17. — Blaa! 700.
®«lasaala»*r:
Jðn Kjartanason nr. Til.
Valtýr Stefánaaon nr. KII.
B. Hafber* nr. 770.
4akrlfta*jald:
Innanlanda kr. 1.00 á aiánaSl.
Utanlands kr. 1.10 & naaaBL
I lausaaðlu 10 aura alntaklB.
II aura meB Lieakdk.
Fyrir nokkuru síðan sneri Morgun-
biaðið sjer til .Tóns Hermannssonar
tollstjóra og fór þess á leit, að hann
akýrði blaðinu frá hvað hæft væri
í sögusögnum þeim, sein gengið hafa
í bænum um tollsvik eða tilraunir til
tollsvika;.
Tollstjóri kvaðst ekki óska eftir því
íið birta neitt um þetta mál, meðan
<engir væri kærðir og rnálinu ekki
lengra komið.
Síðar hefir tollstjóri gefið fjármála-
ráðuneytinu skýrslu um málið, en
ráðuneytið sent; hana Frjettastofu
blaðamanna til birtingar.
Skýrsla. tollstjóra er á öðrum stað
hjer í blaðinu, hefir hann þar gefið
tæmandi yfirlit um þessi mál.
En hann hefir eigi talið rjettmætt
■é, þessu stigi málsins, að birta nöfn
þeirra verslana, sem við mál þessi
■eru riðnar.
Meðan svo er ekki, er skýrsla toll-
stjórans alment ákæruskjal iá versl-
unarstjett bæjarins.
Mönnum er spurn. Er ástæða til
þess? Hafa þeir menn í verslunar-
■■stjett, sem utan við standa mál
þessi, langlundargeð til þess að taka
á sig einhvern bróðurpart af þeim
misfellum isem tollstjóri segir frá í
•skýrslu sinni? 0g kæra þeir sig um
það, sem hjer koma við sögu, að
verða ónafngreindir, til þess að sök
þeirra, ef hún er nokkui', falli að
einhverju leyti á bak stjettarbræðra
þeirra? Það verður að teljast ótrú-
legt að svo sje.
011 leynd um misfellur þessar, hlýt-
ur því að vera öllum til ama, og
leiðinda, nema þeim einum, sem vilja
fá fcækifæri til þess að níða niður
verslunarstjett landsins yfirleitt, og
verslunarmenn Reykjavíkur sjerstak-
Jega;.
Skýrsla tollstjórans gefur og til-
•efni til þess að athuga, hvort ekki
megi í tolllögum kveða nákvæmar
á, en nú virðist vera um afhendingar
innkaupsreikninga, svo ljósara verði,
en nú, hvort um brot á tolllögunum
•ei- að ræða:.
í Tímanum var hafið máls á þessum
follmálum með sjerstöku tilliti til þess
;að hasgt yrði með þeim að klekkja
á Magnúsi Guðmundssyni. — Þegar
•skýrsla tollstjórans er birt í Tím-
anum og þar kemur í Ijós, að M. G.
'hefir engin afskifti af þessum málum,
segir ritstjórinn eins og endranær, þá
•eitthvað er rekið ofan í hann, að það
scm hann hefir sagt öfugt og upp-
lcgið, sje nákvæmlega sannleikanum
íí.'unkvæmt. *
Esja á að fara hjeðan á fimtudag-
ínn kemur, austur um land.
Súðin lagði af stað kl. 6 í gær-
oiorgun frá Djúpavogi, áleiðis til
Floregs.
8 v
Urslit kosninganna.
Einar lónsson
frá Gelðingalæk,
5amningamir
uið Horðmenn.
Pjetnr Halldórsson kosinn með 5303 atkvæðum.
Hann fekk 65,4% greiddra atkvæða.
Fyigi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer
sýnilega vaxandi.
Kommúnistadeiid
í dagsljósið.
í gær voru talin atkv. frá Alþing-
iskosningunum á laugai'dag. Biðu bæj-
armenn með mikilli óþreyju eftir at-
kvæðatölunum, enda þótt allir vissu
hver úrslitin yrðu. Efaðist aldrei
neinn um meirihluta C-listans. Kosn-
ing Pjeturs Halldórssouar altáf talin
hárviss.
En hvernig skiftust atkvæðin ? —
Hvað mátti ráða af atkvæðatölunum
hvernig flokkaskiftingin nii er í bæn-
umí Eftir því biðu menn.
Talning atkvæðanna fór fram í
Góðtemplarahúsinu. Þar beið altaif
fjöldi manns, til þess að heyra hverju
fram yndi. En erfitt var að átta sig
á hlutfalli flokkanna þar, því atkv,-
seðlaxnir voru flokkaðir eftii' stjórn-
niálaflokkum og mörg hundruð lesin
upp frá sama flokki í einu. Þegar t.
d. fram voru komin nærri öll atkv.
A og B lista, þá voru C-lista atkv.
ekki nema 4200, en ótalin 1100 C-
lista atkv. og þá ekki annað.
Það voru alls 8194 er gengu til
kosninga hjer á laugardaginn var. Er
sú þátttaka mjög dauf. Því á kjör-
ski'á eru nú 14401. Gild atkv. voru
8107, 34 atkv. voru ógild og 53 seðlar
voru auðir. Gild atkv. voru því 56,-
20% af þeim sem eru á kjörskrá.
Þátttakan við síðustu Alþingiskosn-
ingar, vorið 1931 var mun betri, þá
voru hjer 12473 á kjörskrá. Gild
atkv. greidd 9689, eða 77,67% af þeim
er á kjörskrá voru. En hjer er þess
að igæta, að Framsóknarmenn munu
allmargir hafa setið heima við þess-
ar kosningar. En þeir fengu við kosn-
ingarnar 1931 alls 1234 atkv.
Listarnir fengu atkv. sem hjer segir
C-listinn (P. H.) 5303.
A-listinn (S. Ó.) 2153.
B-Jistinn (B. B.) 651.
Við kosningarnar 1931 skiftust at-
kvæði milli flokkanna þannig:
Sjálfstæðisflokkui'inn 5576
Alþýðuflokkurinn 2628
Framsóknarfl. 1234.
Kommúnistar 251.
Hundraðstala flokksatkv. við þær
kosningar var þessi:
Sjálfstæðitefl. 57.6%
Alþýðufl. 27,1%
Framsóknarfl. 12.7%
Kommúnistar 2.6%
En sje ekki tekið tillit til þeirra atkv.
er Framsókn fekk þá, var hundraðs-
tala flokkanna þessi:
%
Sjálfstæðisfl. 66 %
Alþýðufl. 31,1%
Kommúnistar 2,9%
En hundraðstalan við . kosningarnai'
nú, er þessi:
Sjálfstæðisfl. 65.4%
Alþýðúfl. 26,6%
Kommúnistar 8,0%
Niðurstaðan.
Aðalniðurstaða kosninganna er því
þessi:
Fylgi Sjálfstæðismanna hjer í bæn-
um er óbreytt frá í fyrra, að því
Framsóknarflokksins kemur
er kosningarnar sýna. Þegar tekið er
tillit til þess, að allmargir Framsókn-
armenn hafa nú varpað atkv. sínu á
sósialista. og kommúnista, en hundr-
aðstala Sjálfstæðismanna gagnvart
þessum tveimur flokkum, 'hefir þó
aðeius breyst frá 66% í 65,4%, eða
um 0,6% má fullyi'ða, að kosning
þessi gefi fullkomna bendingu um, að
fylgi Sjálfstæðisfl. hafi í raun og
veru aukist 'síðan í fyrra.
Það er vitað og viðurkent, að altaf
hefir sá ósiður loðað við Sjálfstæðis-
menn hjer í bænum, að þeir eru hirðu-
lausari um að sækja kosningar, en
flokksmenn annara flokka. Það er
ekki til neins að loka augunum fyrir
þeirri staðreynd.
Mátti búast við því, að þessi flokks-
löstur kæmi greinilegast í Ijós, er
gengið var til kosninga, þar sem
úrslit voru fyrirfram vís.
En útkoman varð betri en margir
bjuggu'st við, samanborið við kosn-
ingagnar í fyrra. Þá var kosning
talin óviss um 3. mann á lista Sjálf-
stæðismanna.Þá gátu úrslit oltið á einu
atkv. Þá fekk Sjálfstæðisfl. sem fyr
segir 5576 atkv. En nú í vissri kosn-
ingu ekki nema 273 atkv. eða 4%
færra. En Alþýðufk, sem altaf dreg-
ur hvert sitt atkv. á kjörstað fær 475
eða 18% færri atkv. en í fyrra.
I fljótu bragði kann rnönnum að
koma fylgisauki kommúnista á óvart.
Þeir fengu 251 atkv. við síðustu kosn-
ingar. En nii fengu þeir 651 atkv.
En eins og Hannes Jónsson alþm.
á Hvammstanga lýsti rjettilega; á
fundi í vor, er rnokkur hluti þeirra
manna, sem til Framsóknar hafa tal-
ist, svo fylgispakir við Jónas frá
Hriflu, að þeir eru í raun og veru
kommúnistar.
Það er óefað kommúnistadeild Fram
sóknar hjer í bænum, sem hefir veitt
kommúnistasprautúm höfuðstaðarins
þetta óvænta brautargengi.
Frá Langanesi.
Gunnólfsvík 15. okt. FB.
Um miðjan septembermánuð s.l.
andaðist í sjúkrahúsinu á Akureyri
Júlíana Gísladóttir frá Dalhúsum hjer
í hreppnum. Júlíana sál. var vel lát-
iu kona af öllum, sem henni kyntust.
Hún var móðursystir Gísla Guðmunds-
sonar ritstjóra.
Betur hefir tekist til en ætlað var
með björgun úr færeysku skútunni,
sem strandaði á Grenjanesboða á dög-
unum. Undanfarið hefir stöðugt vei'ið
annið að björgun og er nú búið að
ná dragnótunum, spilinu og mörgu
fleiru. Alt, sem bjargast hefir, var
flutt til Þórshafnar. Skipshöfnin dvel-
ur þar enn og bíður eftir Esju. —
Arið 1927, þ. 21. apríl sigldi þessi
sarni kútter á færeysku skútuna Flor-
entz í nánd við Einarsdranga hjá
Vestmannaeyjum. Við ásiglinguna
sökk Florentz og fórust af henni sjö
n enn.
örukknar í Rangd.
Hann var einn á ferð
á laugardagskvöld,
hefir líklega fengið að-
svif á bakkanum, og
fallið í ána.
í gærmorgun barst sú fregn hing-
að til bæjarins, að Einar Jónsson
bóndi á Vestri-Geldingalæk og fyrv.
þingmaður Rangæinga, hafi fundist
di'ukknaður í Rangá, á vaði því, sem
ktnt er við Snjallsteinshöfðahjáleigu.
Hann fór á laugardaginn heimanað
og fyrst niður að Helluvaði. Eftir
nokkra dvöl þar fór hann sem leið
liggur vestur yfir Rangá á brúnni
og síðan upp með ánni að vestan-
verðu að Snjallsteinshöfðalijáleigu. —
Ekki er blaðinu kunnugt um 'hvort
hann hafi komið við á fleiri bæjum.
Frá Snjallsteinshöfðahjáleigu fór Ein-
ar í Ijósaskiftunum á laugardagskvöld.
Þaðan er stutt austur yfir Rangá að
Geldingalæk. Bóndinn í Snjallsteins-
höfðahjáleigu bauð Einari fylgd, en
Einar þáði það ekki, enda var hann
vanur að vera einn síns liðs í ferð,
og á þessari leið varð eigi talað um
neinar hættulegar torfærur, því lítið
var í Rangá.
Síðan segir ekki af ferðum Einars.
Á sunnudagsmorgun var reiðhestur
hnns með hnakk og beisli kominn
heim í hlað. Var þá þegar hafin leit
að Einari. Var ennfremur sent að
HeHuvaði því þangað ætlaði Einar
á laugardaginn, er hann fór að
heiman. Síðar var farið að Snjall-
steinshöfðahjáleigu. Er frjettist þar
af ferðum hans, var rakin leiðin það-
an. Um tvö vöð á Rangá gat verið að
r.i'ða, sem ihann hefði farið.
Fanst nú stafur Einars við austur-
bakka árinnar á öðru vaðinu. Var
það birkistafur óvandaður, og var
stafurinn það mikið upp úr vatninu,
áð hann hafði auðsjáanlega ekki lent
í ánni, því þá hefði straumurinn
borið hann á burt.
Síðar fanst lík Einars heitins þarna
við austurbakkann iá vaðinu, og mar-
aði aðeins í kafi.
Eigi verður annað sjeð, en Einar
heitinn hafi verið kominn yfir ána.
Eru það tilgátur manna, að hann
hafi farið þar af baki, e. t. v. mist
stafinn úr hendi sjer þarna við bakk-
ann og lotið niður eftir honum, fengið
aðsvif og dottið niður í ána.
Hann átti vanda fyrir aðsvifum.
Sagði hann það í kunningjahóp á
föstudaginn var, að aðsvif þessi væri
að ágerast; kendi hann þess einkum
er hann snögglega lyti niður höfði.
Dagur var að kvöldi kominn, er
lík hans fanst. Líkið var fært heim
að Geldingalæk.
Æfiatriðai þessa mæta manns verður
minst hjer síðar.
Útvarpið í dag: 10,00 Veðurfregnir.
12,15 Hádegisútvarp. 16,00 Veður-
fregnir. 19.05 Grammóf. 19,30 Veður-
fregnir. 19,40 Tilkynningar. Tónleik-
ar. 20.00 Klukkusláttur. Frjettir.
20,30 Erindi: Frá Vestur-fslendingum
II (sr. Benjamín Kristjánsson). 21,00
Tónleikar: Piano-sóló (Emil Thorodd-
sen). 21.15 Upplestur (Guðbrandur
Jónsson rithöfundur). 21,35 Gram-
mófóntónleikar: Leonora-Ouverture
nr. 3 og König Stephan-Ouverture,
eftir Beethoven.
Samtal við Ólaf Thors.
Olafur Thors alþm. kom heim með
„GuIlfossi“ á laugardagskvöld, og
hafði tíðindamaður Mbl. tal af hon-
um í gær.
— Hvað segið þjer um norsku samn-
ingana f
— Jeg hefi lesið skýrslu Jóns Áma-
sonar framkv.'stj. um málið, hæði í
Morgunblaðinu og Tímanum og hefi
,engu við hana að bæta. Jeg vil þó
nota tækifærið til að láta í ljós þakk-
læti fyrir alla þá innilegu alúð og
vináttu sem okkui' var sýnd í Noregi.
Norska ríkisstjórnin, samningamenn-
irnir, embættismennimir í þeim ráðu-
neytum sem málefni vor fjellu undir.
báru einlægan vinarhug til fslend-
inga, og kom það ljóslega fram í öll-
um skiftum þeirra við okkur.
Mjer er óhætt að fullvrða að norsku
ríkisstjórninni og öðrum ráðamönn-
um Norðmanna var það mikið áhuga-
mál að halda fullan frið og virváttu
við íslendinga, ella hefðu samningar
ekki tekist. Norska stjórnin, sem
er bændastjórn, sagði upp kjöttolls-
samningnum af því að 30 aura tollur
á hvej’t kíló kjöts þótti ekki nægi-
lega hár til þess að tryggja norskum
bændum innanlands kjötinarkaðinn, og
tolljirinn var hækkaður upp í 58 au.
Það hefði vitaskuld hvergi verið
vandalaust fyrir norsku stjórnina að
lækka tollinn aftur niður í 30 aura,
og það er áreiðanlega mörgum og
miklum vandkvæðum bundið að færa
tollinn niður í 20 aura, svo sem nú
hefir verið gert. Og hvað sem annars
kann að verða sagt um þá hagsmuni
sem Norðmenn öðlast á sviði sigl-
inga og fiskiveiða með þessum samn-
ingi, þá er það alveg fullvíst að þeir
einir hefðu reynst með öllu ónógir
í huga norsku stjórnarinnar til jafn-
vægis gegn niðurfærslu á kjöttollinum.
Mjer þykir rjett að skýra frá þessu
meðfram vegna þess, að nokknð skort-
ir á að sumir íslendingar viti hið
sanna um frændsemistilfinningu og
vináttu flestra Norðmanna í garð
íslendinga.
Hitt ei’ svo annað mál, að Norð-
menn eru vorir skæðustu keppinaut-
um á sviði fiskiveiðanna. En af þeirri
staðreynd þarf vitaskuld ekki að leiða
kali eða óvild milli þjóðanna. Elitt
væri eðlilegra að frændsemin og vin-
■áttan opnaði augu ráðandi manna
fyrir því að það er ekki víst að hvor
þjóðin um sig tryggi best sína hags-
muni með takmarkalausri samkeppni
við frændþjóðina.
Vefaradeiluimi lokið.
Manehester 24. okt.
United Press. FB.
Vefaradeihinni lauk á .miðnætti að-
faranótt sumiudags. Vefararnir fell-
ust á launalækkun, sem nemur átján
og hálfum penny á sterlingspund. —
Vinnustundafjöldinn verður 48 klst.
á viku eins og áður var og stofnað
verður sáttaráð, til þess að gera út
uni deilumál þau, sem upp kunna að
koma.
Þessi lausn deilunnar er talin mik-
ill persónulegnr sigur fyrir F. W.
Leggett nndir-ráðhen'a, sem fyrir
hönd verkamálaráðunevtisins hafði
með höndum að sætta aðilana í deil-
unni.