Morgunblaðið - 25.10.1932, Page 4
4
4
MORGUNBLAÐIÐ
auglfBlngadEsliök
Blóm og ávextir Hafnarstræti 5.
Úrvals blómlaukar: Tulípanar. Hya-
chintur. Páskaliljur. Hvítasunnuliljur.
Krokus. Scilla.
Sokkar í stóru úrvali. Morgunkjól-
ar og Morgunkjólatau frá 3.13 í kjól-
inn. Svuntur — Sloppar. Verslunin
„Dyngja.“
Kvenbolir —■ Kvenbuxur — Barna-
buxur, afar ódýrar. Versl. Dyngja.
Skni 1846.
Ullargarn — Perluull í mörgum
litum. Heklunálar og aiskonar smá-
vörur. Versl. Dyngja. Bankastræti 3
Hýtt nautakjöt.
K1 e i n,
Baldursgötu 14.
Sími 73
Hommúnlstar I Eyjum
dæmdir fyrir ðiðs sína
Eimskipafialagið.
Nýtísku svnntuefni, nýkomin í versl
Dyngja.
Munstruð efni og Silki í Svuntur
í gtóru úrvali. Slifsi frá 5.50. Versl
Dyngja. Bankastræti 3.
Silkiklseði, ullarklæði, Silki í upp-
hluta frá 5.40 í upphlut. Silki
Peysuföt frá 15.75 meter. Silki í Pils
frá 7.50 meter. Versl. Dyngja, Banka-
stræti 3.
Kartöflur til sölu með sjerstöku
tækifærisverði. Upplýsingar í síma
2293 frá kl. 9—12 í dag.
Nýtt. Nýtt. Húsmæður Htið í glugga
ana í White Star.
Reiðhjól tekin til geymslu. „Örn-
inn“, sími 1161, Laugaveg 8 og
Laugaveg 20.
Fiskfars, heimatilbiiið, 60 aura
¥% kg., fæst daglega á Fríkirkju-
veg 3. Sími 227. Kristín Thorodd-
sen. —
Café Höfn selur: Miðdegisverð með
kaffi c. kr. 1.25 og einstakar máltíðir
á 75 aura. Fljót afgreiðsla, og góður
matur.
Dívan til söln með tækifærisverði
Aðalstræti 9 B.
Minningarrit Flensborgarskólans
1882—1932. Kostar 10 krónur og fæst
í Bókaverslun Snæbjamar Jónssonar,
Austurstræti 4, Reykjavík. Sent út
um Iand gegn eftirkröfu. Ef borgun
fytgir pöntun, er sent bnrðargjalds-
frítt.
Hefi opnað saumastofu mína aftur.
Sauma eins og áður selskaps- og eftir-
miðdegiskjóla og kápur. Inga Thor-
oddsen, Njálsgötu 4A.
Nýkomið:
Ullarkjólatau.
Gardínur.
Stores.
Drengjapeysur
Matrósaföt.
Náttföt.
Manchester.
Lauagveg 40. Sími 894.
Kanpið hveitl,
bestu tegundir á 14 kr. pokínn.
úlæný egg á 14 og 16 aura stk.
Útlent sultutau í krukkum og
lausri vigt. -
Hjðrtnr Hjartarson.
Bræðraborgarstíg 1.
Sími 1256.
Eins og kunnugt er, gerðu kom-
múnistar í Vestmannaeyjum, undir
forystu Isleifs Högnasonar og Jóns
Rafnssonar illkvitnislega !árás á Eim-
skipafjelagið í fyrra og sýndu þar
með fullan fjandskap sinn' í garð
þessa „óskabarns fslands".
Hinn 24. janúar 1931 kom „öull-
foss“ frá étlöndum til Vestmanna-
evja og var þegar byrjað að af-
greiða hann. En rjett á eftir koma
kommúnistar á fullmönnuðum vjel-
báti um borð, vaða upp á þilfar og
krefjast þess með alkunnri kommún-
ista frekju að uppskipun verði þeg-
ar hætt, vegna þess að þeim hafði
þóknast, rjett áður að búa til verk-
fall í Eyjum, sem aldrei varð þó
neitt úr.
Ut af framferði þeirra þarna um
borð kærði stjórn Eimskipafjelagsins
og höfðaði þá rjettvísin mál gegn
fjórum mönnum: ísleifi Högnasyni,
Jóni Rafnssyni, Kristmundi Jónssyni,
Hamri og Jóni Hafliðasyni verka-
manni á Bergsstöðum. Samkvæmt
skýrslu skipstjórans á Gullfossi, Sig-
urðar Pjeturssonar, hljóðaði kæran
upp á það að þessir menn hefði
reynt með valdi að hindra upskipun,
að- þeir hefði stjakað við skipstjór-
anum, að þeir hefði valdið rysking-
um um borð og skorið lá' kaðla, sem
uppskipunarbátur var festur með við
skipið.
Mál þetta var dæmt í undirrjetti
i Vestmannaeyjum, og er talið
dóminum að þeir ísleifur Högnason
og Jótí Rafnsson sje sannir að sök
um það að hafa ætlað að hindra af-
greiðslu Gnllfoss með valdi, en nm
hina tvo verði það ekki sannað, að
þeir hafi skorið á bátsfestarnar, þótt
miklar líkur væri til þess. Voru þeir
því sýknaðir, en Isleifur og Jón
æmdir eftir 212. grein hegningarlag-
anna, með hliðsjón af 46. og 47. gr.
þeirra í 300 króna sekt hvor, „sem
greiðist innan fjögra vikna frá lög-
legri birtingu þessa dóms, í ríkis-
sjóð, en afplánist með þriggja vikna
einföldu fangelsi af hvorum hinna
dómfeldu, sje sektin ekki rjettilega
■greidd.“
Nú nýlega er dómur fallinn í Hæsta
rjetti í máli þessu. Hann er á þessa
,leið:
Hinir ákærðu, Jón Hafliðason og
Kristmundur Jónsson, eiga að vera
sýknir af ákærum rjettVísinnar í
máli þessu.
Hinir ákærðu, ísleifur Högnason
og Jón Rafnsson, sæti 30 daga fang-
elsi við venjulegt' f angaviðurværi, en
fresta skal fullnustu refsingarinnar
samkvæmt 1. grein laga nr. 39, 1907
og fellur fullnæging hennar niður, ef
hinir dómfeldu halda skilyrði nefndra
laga þar að lútandi, svo greiði þeir
og in solidum allan sakarkostnað í
hjeraði og áfrýjunarkostnað málsins,
þar með talin málflutningslaun sæbj-
anda og verjanda fyrir hæstarjetti,
hrm. Guðmúndar Ólafssonar og Theo-
dórs Líndals, 120 krónur til hvors.
Dóminum skal fullnægja með aðför
að lögum.
RannsðknasiSðin
á Snæfellsjökli.
Einn af vísihdamönnunum, er verið
hafa á Snæfellsjökli að undanförnu
við pólársrannsóknirnar, La Cour,
kom til Ölafsvíkur í gær, og fer nú
heim til Danmerkur. Morgunblaðið
átti tal við hann í síma, og Ijet
hann vel af líðan þeirra fjelaga þar
á jöklinum. Um daginn gerði þar
ofsaveður svo að - loftskeytanetið hil-
aði, en þeir gátu fljótt gert við það
aftur. I fyrri nótt var 8 stiga frost
hjá þeim.
Rannsóknirnar ganga ágætlega og á
sunnudaginn voru þeir seinast uppi
á hátindi jökulsins til þess að skoða
sig um þar. I húsinu á jöklinum
hafa' þeir nægan mat til vetrarins,
uema helst kartöflur.
Dagbók.
□ Edda 593210257 — ÍT'Atkvgr.
Veðrið í gær: Suðvestur af Reykja-
nesi er alldjúp lægð, sem hefir hreyfst
norðaustur eftir í dag og má því bú-
ast við að hún valdi SA-hvassviðri
og iirkomu á SV-landi á morgun.
I Vestmannaeyjum er nú stinn-
ingskaldi á ASA en í öðrum landshlut-
um er breytileg átt og hægviðri. —
Hiti er 3—4 stig á SV-landi, en 1—4
stigai frost á N- og A-landi.
Veðunitlit í Reyk.javík í dag: —
llvaiss SA. Rigning öðru hvora. —
Mildara.
Friðrik J. Þeydal xióstur frá Helga-
stöðnm í Þingeyjarsýslu er staddur
hjer í bænum. Kom hingað með Detti-
fossi að norðan.
Skipafrjettir. Gullfoss er í Reykja-
vík. — Goðafoss- fór frá Hamborg
22. okt. áleiðis til Hull og Reykja-
víkur. —■ Brúarfoss kom til Leith í
fyrradag. — Dettifoss kom til Rvík-
ur í gærmorgun kl. 10%, að vestan
og norðan. — Lagarfoss er á út-
leið. — Selfoss fór frá Siglufirði í
gær, áleiðis út.
Heimatrúboð leikmanna, Vatnsstíg
3. Almenn samkoma í kvöld kl. 8.
J. Servaes, hinn kaþólski prestur,
sem hjer var um allmörg ár í Landa-
koti, er nýlega látinn í sjúkrahúsi í
Hollandi.
Jarðarför Þórðar Þorsteinssonar 1.
stýrimanns á Ægi, fer fram frá dóm-
kirkjunni í dag kl. 3.
Franzhellir. Þess láðist að geta í
Leshókinni á sunnudaginn, að sá, sem
gaf lýsinguna á Eranzhelli var Edvard
Frederiksen fylgdarmaður. Hefir hann
farið víða um öræfi Islands og var
þar á ferðalagi mestan hluta sum-
arsins sem leið, með ýmsum ferða-
mönnum.
Fæði
og einstakar mál-
tíðir. Kaffi, mjólk,
öl og gosdrykkir
allan daginn.
Brauð- og
mjólkursala.
Svanurinn,
við Grettisg. og
Barónsstíg.
Lindarpennar,
Teikniáhðld.
Reiknistokka
í mikln árvali,
Tbiele
■ Anstnrstrati 20 ■
Kl
nkORli:
Drenffja#
Yetrarfrakkar.
Allar stærðir.
Vðrehúslð.
Kvöldskemtun Kvenfjelagsins Hring-
urinn í Hafnarfirði á laugardaginn
fór hið besta fram, og var öllum
til ánægju. Eyrst flutti Ben. G.
Waage, erindi um Svíþjóðarför Ár-
menninganna; þá söng Kristján
Kristjánsson nokkra einsöngva, og
Ijek sjálfur undir; og loks las Frið-
finnur Guðjónsson, leikari, upp gam-
nsögu. Hringurinn hefir í mörg áí
starfað að mannúðarmálum í Hafn-
arfirði, og látið margt gott af sjer
leiða; á fjelagið því að sjálfsögðu
skilið stuðning ailra góðra manna.
Farþegar með Gullfossi frá út-
löndum: Ólafur Thors, framkvstj. og
frú. Sendiherrafrú Fontenay. Edith
Poulsen. Frú Jaeohsen. Helgi Tryggva
son. Jóhann Kristjánsson. Sólveig
Jónsdóttir. Erú Blomsterherg með
2 börn. Guðbjögg Bjarnadóttir. Hall-
dór Jónasson. Jón Ásgeirsson.
Skúli Guðmundsson óðals'bóndi á
Keldum er 70 ára í dag. Margir, sem
hafa kynst honum og heimsótt hann,
munu senda honum samiúðar hug-
skeyti, þó síminn flytji þau ekki
þangað.
Hjónaband. Laugardagiim 15. okt.
voru gefin saman í hjónahand
Kaupmannahöfn ungfrú Heba Geirs-
dóttir Sæmundssonar og dr. Skúli V
Guðjónsson læknir. Þau lögðu á stað
í bíl samdægurs í brúðkaupsferð til
Hollands.
Togararnir. Geir er nýlega farinn
til Englands með 1700 körfur af fiski.
Gulltoppur og Snorri goði fóru á
veiðar um helgina. Karlsefni kom frá
Englandi og er farinn á veiðar.
Aðalfundur í. R. var haldinn á
sunnudaginn var. í stjórn voru kosin
Sigurliði Kristjánsson form., Gunnai
Einarsson, frú Anna Guðmundsdóttir,
Reidar Sörensen og Helgi Jónasson
frá Brennu, en fyrir sátu í stjórn
Jón Kaldal og Jón Jóhannesson. —
Benedikt Jakobsson er kennari allra
leikfimisflokka fjelagsins.
^úðalfundur Glímufjel. Ármann var
haldinn í Varðarhúsinu é sunnudag.
Var stjórninni þakkað fyrir mikið og
gott starf í þágu fjelagsins á sl.
ári. I stjórnina voru kosnir Jens
G-uðbjörnsson form., en meðstjórnend
ur voru kosnir Ól. Þorsteinsson,
Kristinn Hallgrímsson, Jóhann Jó-
hannesson, Þórarinn Magnússon. Jón
Guðmann Jónsson og Björn Rögn-
valdsson. Þar sem eigi vanst tími
til að Ijúka fundinum var framhalds-
aðalfundur ákveðinn á fimtudag 27.
okt. kl. 8% í Varðarhúsinu. Væntir
stjórnin að fjelagsmenn fjölmenni þar,
>ví að lagabreytingar og ýms mikils-
varðandi mál verða þar til umræðu.
Sjómannakveðja. Komnir á fiski-
mið. Byrjaðir að fiska. Komum ekki
heim í þessari veiðiför. Vellíðan. —
Kærar kveðjur. Skipverjar á Venus.
FB. 23. okt.
Hjúskapur. Á laugardaginn voru
gefin saman í hjónaband af sr. Bjaxna
Jónssyni ungfrú Úlla Ásbjörnsdóttir
og Tyrfingur Þórðarson vjelstjóri. —
Heimili ungu hjónanna er á Framnes-
vegi 17.
Miljónaveðmálið, hin margeftir-
spurða kvikmynd, sem sýnd var að
undanförnu í Gamla Bíó, verður sýnd
í Hafnarfjarðarbíó í kvöld og annað
kvöld.
j Vekjaraklukkur ágætar 6.75
jVasaúr á 10.00
Sjálfblekun^ar með ekta
14 karat gullpenna 7.50
Höfuðkambar fílabein 1.00
Spil stór og- smá 0.45
Vatnsglös með stöfum 1.00
Borðhnífar ryðfríir 0.90
Dömutöskur frá 5.00
Burstasett — Naglasett —
Uanskakassar — 2ja turna
sjlfurplett og ótal margt til
fermingar og; tækifærisg;jafa„
K.
Bankastræti 11.
»
DYNGJA“
eríslenskt skúri- og ræstiduft
og fæst hjá
Silia & Valda.
Durkaðir og niðursoðnir
ðvextlr
allarteonnáir.
Böknuaregg i5 anra.
Aibragðs góð kæfa
á 80 anra
WM-
TlRiraNDI
LAUGAVEG 63.
SÍMI 2393»
BarnapúBur
Barnasápur
Barnapelar
Barna-
svampar
Gummiáúkar
Dömubindi
Spraufur og allar tegundir af
lyfiasápunv-
Þeir,
sem kaupa trúlofunarhrings
hjá Sigurþór verða altaf
ánægðir.