Morgunblaðið - 16.11.1932, Side 2
2
MORG UNBLAÐJÐ
Stormvax.
Útvegum yður þaulvanan mann til þess að
þjetta hurðir og glugga í húsi yðar með
hinu óbrigðula Stormvaxi. Árangurinn
er sá, að hvorki rignir nje næðir í gegn
um glugga þá, er áður voru óþjettir.
VOrioeynslihds
mitt við Tryggvagötu selst nú þegar til niðurrifs.
Tilboðin sjeu komin til mín fyrir laugardag 20. þ. m.
Nic. Biaraasoa,
Væntanlegt með e.s. Dettifoss.
Epli, Delecious og Jonathan.
Appelsínur. — Laukur.
Eggert Kristjáisson & Co.
Símar 1317 og 1400
Ullaroarn
í mörgum litum, nýkomið.
Kjólaspennur,
Hnappar og allskonar
Smávara.
Verslun
HaiðKnu Benedlkts.
Laugaveg 15. Sími 408.
Hjartaliga tðkk
bera vit repsstjóranum á Þórsböfn
og teimum, vit annars ferðaðust
ímillum, fyri ta góðu móttöku,
teir veittu okkum og tað hjálpse-
mi teir sýntu okkum, til tess vit
fóru av 1 andinum. Samaleiðis
takka vit teimum á „Lagarfoss“
fyri allan tann blíðskap, teir vístu
okkum.
Mannskapið á „Haffstein“.
Nýkomið:
Svart og grænt Astrakan í kápur
og stuttjakka. — Einnig svört,
munstruð Kápuefni.
Sig. Gnðmnndsson.
Þingholtsstræti 1. Sími 1278.
VOribfll
óskast í skiftum fyrir 5
manna drossíu. — Uppl. hjá
Kristnl KnftBasynl
bílstjóra. Sími 847.
Uanðrceði bœnöa.
Oddvitar Árnes- og Rang-
árvallasýslu koma saman
á fund til þess að ræða
fjárhagsvandræði bænda.
Sunnudaginn 13. nóv. 1932
hjeldu oddvitar hreppanna í Ar-
nessýslu og Rangárvalla fund í
Tryggvaskála, samkvæmt boði
Páls Stefánssonar oddvita Gnúp-
verjahrepps.
Mættir voru 14 oddvitar úr Ár-
nessýslu og 4 úr Rangárvallasýslu.
Auk þess sat fundinn Magnús
Torfason sýslumaður Árnessýslu
og nokkrir bændur.
Páll Stefánsson setti fundinn og
gat þess að tilefni þess að fund-
urinn hefði verið boðaður, væri
hinir miklu fjárhagserfiðleikar
bænda í þessum hjeruðum.
Fundarstjóri var kosinn Guð-
mundur Einarsson, prestur að Mos
felli. Fundarskrifari var Þorsteinn
Þórarinsson frá Drumboddsstöð-
i!m. Páll Stefánsson tók til máls
og sagði frá því, með rækilegu
erindi, hvernig komið væri fjár-
hag bænda nú, á þessum slóðum,
og hve fyrirsjáanlegt væri, að
þeim væri ekki unt að standa und-
ir þeim skuldum, er á þeim hvíldu,
nema einhver breyting yrði þar á-
Benti og á ýmsar leiðir, sem hugs-
anlegar væru til einhverrar úr-
lausnar í þessu efni. — Eftir lang-
ar umræður þessara mála kom
fram svohljóðandi tillaga:
„Fundurinn samþykkir að kjósa
3 manna nefnd til þess að gang-
ast fyrir því, að safnað verði ná-
kvæmum upplýsingum um eignir
og skuldir einstakra bænda, sem
erfitt eiga með greiðslu vaxta og
skulda, eða æskja aðstoðar á ein-
hvern hátt við lausn þeirra mála;
og ef þá kæmi í ]jós, að menn
ættu ekki fyrir skuldum, þá yrði
með aðstoð stjórnar og þings, ef
nauðsyn krefur, leitað nauðasamn-
jinga, eða svipaðra ráðstafana fyr-
ir þá, af nauðasamninganefnd, eða
nefnd skipaðri af stjórn, skulda-
eigendum og bændum. En þeirri
nefnd yrði jafnframt falið að úr-
skurða, þegar æskt verður, hvað
þeir menn, sem raunverulega eiga
fyrir skuldum, eru færir um og
verða að greiða, þannig, að það,
sem þá vantar á fulla greiðslu,
verði annað hvort lagt við höfuð-
stól og bíði betri- tíma, eða felt
niður að nokkru leyti eða öllu. —
Ennfremur skorar fundurinn á
ríkisstjórnina að hlutast til um,
að vextir verði yfirleitt færðir
niður hið fyrsta eins og hægt er“.
Tillagan var samþykt með öllum
greiddum atkvæðum.
Þegar hjer var komið mættu á
fundinum: forsætisráðherra Ás-
geir Ásgeirsson, atvinnumálaráð-
herra Þorsteinn -Briem og skrif-
stofustjóri Páll E. Ólason.
Tóku ráðherrarnir þátt í umræð-
um.
Þá voru kosnir í nefnd, samkv.
framanskrifaðri tillögu: Guðmund-
ur Einarsson, þrestur að Mosfelli.
I Guðmundur Þorbjarnarson, bóndi
að Stóra-Hofi og Páll Stefánsson,
bóndi að Ásólfsstöðum.
Þá var samþykt, að hreppsnefnd
ir í þessum sýslum skyldu safna
skýrslum þeim, er um getur að
framan í tillögu fundarins, eftir
nánari fyrirmælum þessarar nefnd
ar. —
Fundargerð lesin upp og sam-
þykt.
Fundi slitið.
Guðmundur Einarsson,
fundarstjóri.
Þorsteinn Þórarinsson,
skrifari.
Ofuiðrið
á laugaröaginn.
Skemdir á húsum og heyj-
um fyrir austan.
1 veðrinu mikla, aðfaranótt
laugardags, þegar norska skipið
„Ingerto“ varð fyrir áfallinu
sunnan við land, urðu miklar
skemdir víðsvegar hjer sunnan
lands. Hefir þó hvergi frjest að
veðrið hafi orðið mönnum nje
skepnum að tjóni.
I ofviðrinu slitnuðu símar víða,
og var því örðugt að ná glöggum
frjettum utan af landi, og enn eru
símar bilaðir sums staðar.
í gær reyndi Morgunblaðið að
ná frjettum af því tjóni, sem af-
viðrið olli hjer syðra, og átti tal
við nokkrar símstöðvar hjer sunn-
anlands. Fara hjer á eftir frásagn-
ir þeirra.
Prá Efra-Hvoli
var símað, að ekki hefði frjest um
neina skaða á Rangárvöllum, en
frá Breiðabólstað í Fljótshlíð, þar
sem síra Sveinbjörn Högnason býr,
hefði fokið þak af hlöðu og tveim-
ur fjárhúsum sem stóðu þar efst í
túninu, þar sem heitir Hákot og
skemdist þar eitthvað af heyi af
rigningu á eftir.
P!rá Fellsmúla
var sagt að fokið hefði þök af
hlöðu og skúr á Skammbeinsstöð-
um í Holtum. í Kvíarholti í Holt-
um hefði fokið nokkuð af heyi.
Á Hjallanesi á Landi munu hafa
fokið 30 hestar af heyi, sem stóðu
í heygarði.
Yíða fuku torfþök af húsum og
skemdir urðu á heyi bæði af foki
og rigningu.
Frá Sandlæk
var símað að fokið hefði járn-
plötur af luisum á Haugshúsi og
Hæli, en meiri skemdir hefði þar
ekki orðið, svo teljandi sje. 1
Þrándarholti fauk hey, um 30
hestar, og nokkuð á Sólheimum.
Þak tók af fjósi og hlöðu í Hrepp-
liólum, og víða á bæjum fuku
járnplötur af þökum, t. d. talið
að fjórða hluta hafi rifið af hlöðu
í Sandlækjarkoti.
Enn hafði heyrst þangað að
tvö eða þrjú útihús hefði fokið á
Skeiðum.
Þá var og sagt að í Torfastaða-
koti hefði lyfst af grunni nýsmíð-
að fjárhús úr timbri og með járn-
þaki. Ekki skemdist húsið mikið
og mun brátt fært í samt lag
aftur.
Frá Minni Borg
var símað að töluverðar skemdir
hefði orðið víða þar í nágrenni.
Á 'Ormsstöðum fauk þak af hey-
hlöðu. Nokkuð mun liafa fokið af
heyi og skemst.
Á Reykjanesi fauk þak af hey-
hlöðu og á Stóru Borg þak af
hlöðu og fjárhúsi. Á Minna Mos-
felli fauk og þak af heyhlöðu og
meiri og minni skemdir urðu á
ílestum bæjum í Gríntsnesi.
Frá Tryggvaskála við Ölfusárbrú
var símað að furðu litlar skemdir
hefði orðið 1 Flóanum, þótt rokið
væri afskaplegt. Þó fauk þak af
hlöðu í Fúlholti og skemdist þar
eitthvað af heyi.
f Hraungerði fuku nokkrar
járnplötur af þinghúsi hreppsins,
en það sakaði ekki að öðru leyti.
í Kaldaðarnesi fuku líka nokkr-
ar járnplötur af heyhlöðu og víða
annars staðar hefir heyrst um
þakfok, en ekki stórvægilegar
skemdir.
Frá Steinum undir Eyjafjöllum
var símað, að veðrið mundi hvergi
nærri hafa verið eins hart undir
Fjöllunum eins og vestar. Hefir
þar hvergi frjest um neinar
skemdir.
Hvergi þar sem Morgunblaðið
frjetti til í gær um veðrið, þar
sem það hafði verið verst, voru
neinar fregnir af fjársköðum. En
miklu tjóni hefir veðrið valdið
bændum á Suðurlandsundirlend-
inu, og er þó ekki víst að allar
fregnir um það sje enn komnar.
Of riðarskuldirnar.
London 14. nóv.
United Press. FB.
Utanríkismálaráðuneytið hefir
birt orðsendingu þá, sem breski
sendiherrann í Washington af-
henti í ameríska utanríkismála-
ráðuneytinu á fimtudag síðastlið-
inn. í orðsendingu þessari, sem er
alllöng, um 700 orð, fer Bretland
fram á frestun á ófriðarskulda-
greiðslum á meðan samkomulags-
umleitanir fara fram um hvernig
endanlega verður gert út um ó-
friðarskuldirnar, en til vara er
farið fram á frestun á greiðslum
nánara tiltekinn tíma, ef eigi verð-
ur fallist á uppástunguna, sem
áður var nefnd. Bretar gera sjer
vonir um, að Bandáríkjamenn
geti hafið viðræður um lausn þess-
ara mála hið allra fyrsta.
Kristmann
Guðmundsson:
Det hellige
fjell
er komið aftur, bæði bundið
og óbundið.
II-MHUKM
f
Austurstræti 1. Sími 26.
Sveinn frá Elivogum:
í Varðarhúsinu miðvikudag
kl. 8.30.
Vísur og kveðskapur.
Aðgöngumiðar seldir við
inngang’inn.
Vetrarmaðir
vanur skepnuhirðinu, óskast
í sveit. Uppl. hjá Versl. Sig.
Þ. Skjaldberg til kl. 2.
Wkomið:
Rúsínur.
Sveskjur.
Apricósur.
íslenskt Smjör.
Verslnnin
Lakjargðtn 10.
(Áður Breiðablik).
Hið irnmlega
jafnvægis
rent úr einu stykki, komið í
<___■
Hliúðfærahnsið
Austurstræti 10.
Aiiabhð.
Laugaveg 38.
V. LONG, Hafuarfirði.
Verkfallið á Spáni.
Madrid, 15. nóv.
United Press. FB.
Innanríkismálaráðherrann til-
kynnir, að til engra óeirða hafi
komið ennþá í sambandi við námu-
mannaverkfallið.