Morgunblaðið - 07.01.1933, Blaðsíða 4
' 4
fý1*st og fx-emst að vera xmg og
mjög falleg, — og skorti alt í þetta
hlutverk. Bn Jóhanna Jóhamns-
dóttir, sem Ijek Jóhönnu, var hin
eina af þessu unga fólki sem var
nng, — frískleg og fönguleg stúlka,
Kraust á sál og líkama, tápleg,
fgálsleg, elskuleg, ljómi og fjör
«g hlýja yfir augunum og brosinu
(það verður að segja þetta eins'og
eí). Og söngrödd hennar er falleg
(en framburður ekki nógu skýr
•g vandaður).
Hvenær losna íslenskir leikarar
víð þann óþolandi galla, að þegar
mannmargt er á sviðinu hætta
þeir að leika strax og þeir sleppa
•i'ðinu, og standa þá bara og
glápa, eða rölta unx í reiðileysi,
fcangað til næst kemur að þeim?
veit það af eigin reynslu að
þetta þarf ekki eingöngu að vera
kikstjóranum að kenna, það er
eríitt að fá íslenska leikendur til
Jress að Iáta ekki verða hlje á
lejk sínum, til þess að taka altaf
lifandi þátt í því sem er að gerast
áTSviðinu, hvort sem þeir eru að
tala í þann svipinn eða ekki. En
J(^£ta verður að lærast.
Hvað sem öðru líður, þá er vel
ferandi í leikhúsið aðeins til þess
að sjá Brynjólf Jóhannesson og
.TÓhönnu Jóhannsdóttur.
Þess er skylt að geta að fólk
vírtist yfirleitt skemta sjer ágæt-
l«*a. ' ^
Kristján Albertson.
Verslunarmenn og jölin.
í samnefndri grein, er Brynj-
élfur Þorsteinsson skrifar í Morg-
aúblaðið þ. 23. f. m. ásakar hann
sfjórn Yerslunarmannafjel. Merk-
úr fyrir það að hún hafi með því
að, neita fyrir sitt leyti að kaup-
menn fengju að hafa sölubúðir
sínar opnar til kl. 10 'einn dag í
vikunni fyrir jól, fyrirbygt það
að lokað yrði skrifstofum og versl
unum á þriðja x jólum.
Þó þetta megi til sannsvegar
færast, er greinin að ýmsu leyti
þannig vaxin, að jeg get ekki látið
veta að svara henni. Jeg vil taka
það fram að stjórn Merkúrs var
ekki á eitt sátt. um afstöðu til
þessa máls, við vorum tveir á móti
því að svara þessari málaleitun
neitandi, en hinir þrír, eða meiri
hlutinn, vildi ekki gefa samþykki
sitt við henni, af þeim ástæðum,
að ekki lá fyrir Iofofð fyrir því,
að lokað yrði á þriðja í jólum.
Brynjólfur Þorsteinsson segir,
að jeg hafi lýst yfir því á fundi,
seni hann og jeg átti um þetta
mál, með formönnum kaupmanna-
fjélaganna, að svo framarlega sem
jeg yrði sþurður af lögreglustjóra
mn afstöðu Merkúr, þá lofaði jeg
því að láta málið hlutlaust, en
þrátt, fyrir þessa yfirlýsingu hefði
jég fyrir hönd stjórnar Merkúr
svarað brjefi lögreglustjóra neit-
andi. Það er rangt hjá B. Þ. að
jeg hafi gefið slíka yfirlýsingu.
Jeg tók það skýrt fram að jeg
yrði að leita umsagnar meðstjórn-
enda minna um þetta mál, enda
skýrir hann rjett frá í umræddri
grein, er hann minnist á þennan
fnnd, þar sem hann segir: „Á
þessum fundi náðist ekki fult sam
komulag, þar sem formaður Merk-
úí kvað sig skorta samþykki meiri
Muta meðstjómenda sinna til að
x
M O E G U N B L A ■*) IÐ
fylgja þessu máli.“ Hinsvegar tók
jeg það fram á þessum fundi, að
jeg myndi gera það sem í mínu
valdi stæði til þess að xnálaleit-
uninni yrði ekki svarað neitaixdi,
og þegar stjórn Merkúrs tók til
athugunar brjef lögreglustjóra,
þar sem hann óskaði eftir svari
hennar við málaleitan kaupmanna,
Iagði jeg eindregið á móti því að
málaleituninni yrði svarað neit-
andi, og þegar stjórnin gat ekki
orðið sammála uxn svarið, lagði
jeg til að lögreglustjóra yrði skrif
að á þá leið, að þar sem stjórnin
væri ekki á eitt sátt um afstöðu
til málsins, og með því að lög-
reglustjóri óskaði eftir svari þá
samdægurs, væri ekki hægt að
kalla saman fjelagsfund, en hann
væri í rauninni sá rjetti vettvang-
ur til að taka málið til meðferðar
á, þá Ijeti hxxn þetta hlutlaust.
Jeg kom líka með þá tillögu að
stjórnin samþykti þessa málaleitun
kaupmannanna með þeim skilyrð-
um að skrifstofum og verslunum
yrði lokað á þriðja í jólum.
Þessar tillögur fengu ekki náð í
augum meirihl. stjórnarinnar, og
var samþykt að svara brjefi lög-
reglustjóra neitandi, og tilkynti
jeg honum það þá skriflega, fyrir
liönd stjórnarinnar.
Það má telja víst að ef Svar
Merkúrs hefði orðið á aðra lund,
þá hefði verslunarmenn fengið frí
á þriðja í jólum, en það má líka
telja það víst að ef stjórnin kaup-
mannafjelaganna hefði viljað gefa
loforð eða vilyrði fyrir því að lok-
að yrði umræddan dag, sem þeir
munu hafa ætlað að gera, þá
myndi stjórn Merkúrs öll hafa
tjáð sig málaleitun þeirra fylgj-
andi, og þar sem kaupmönnum
var þetta kappsmál, eins og B. Þ.
segir, þá áttu þeir að gefa vilyrði
fyrir því að lokað yrði þennan
dag, en það gerðu þeir ekki og
eiga þess vegna nokkra sök á því,
að ekki fekkst samkomxilag um
þetta efni.
27. des.
Sigurður Jóhannsson.
Ath.
Það kemur ekki skýrt fram hjá
greinarhöfundi, að í raun og veru
var aldrei rætt um þessi t.vö at-
riði samtímis, framlenging vinnu-
tíma kvöldin fyrir jól og fríið
eftir jólin, heldur komu óskirnar
um fríið fram eftir að breyting
á lokunartíma sölubxxða hafði ver-
ið neitað.
Daqbók.
Veðrið í gær: Veður er stilt og
bjart á N- og A-Iandi. Suðvestan-
lands er liinsvegar tekið að hvessa
af SA með xirkomu, snjóomxx sums
staðar en annars staðar slyddu
eða rigningu, og jafnframt því er
loftvog ört fallandi. Suðvestan af
hafi vanta fregnir með öllu, en
lægðin sem veldur þessum veðra-
skiftum, mun vera kraftmikil og
fer að öllum líkindum fyrir vestan
land, svo að búast má við að
vindur gangi aftur í SV á morgun.
Veðurútlit x dag: Hvass SA og
rigning fyrst, en gengur svo senni
lega í iSV með skúra- eða jelja-
veðri.
Messur á morgun:
í Dómkirkjunni kl. 11, síra Bj.
Jónsson; kl. 2 Barnaguðsþjónusta
(sr. Fr. H.); kl. 5 síra Friðrik
Hallgrímsson.
í Fríkirkjxxnni í Reylcjavík kl.
5, síra Árni Sigurðsson.
í Aðventkirkjunni kl. 8 síðd. —
Ræðuefni: Aðventvakningin. Allir
velkomnir.
Trúlofun. Nýlega opinberuðu
trxilofun sín ungfrú Guðlaug Ei-
ríksdóttir, Brxxnnstíg 10 og Krist-
inn Ottason, bátasmiður, Stýri-
mannastíg 2.
Friðjón Jensson læknir á Akur-
eyri á 65 ára afmæli í dag. Vin-
sæll maður og drengur hinn besti.
Trúlofím. Á gamlárskvöld opin-
berxiðu trxxlofun sína xxngfrú Arn-
dís Kjartansson, Klapparstíg 2 og
Hannes Sveinsson, Hverfisgötu 67.
Leikhúsið. „Æfintýri á göngu-
för“ var leikið í fyrrakvöld fyrir
troðfullu húsi. Vegna þessarar
miklxx aðsóknar má panta aðgöngu
miða að sunnudagssýningunni í
síma 3850, eftir kl. 1 í dag. —
Salaix byrjar eins og venjulega í
Iðnó í dag kl. 4—7 og á morgun
eftir ltl. 1, sími þar 3191.
Áttræðisafmæli á í dag, Ormur
Sverrisson, Sjafnargötu 1, faðir
þeirra Ormsbræðra, Eiríks og
Jóns, sem Reykvíkingum eru að
góðu kunnir. Ormur bjó lengst
af í Efri-Ey í Meðallandi, en
fluttist þaðan að Kaldrananesi í
Mýrdal. Eftir að hann hætti bú-
skap dvaldi hann um skeið hjá
syni sínum, Sverrir, sem býr í'
Kaldrananesi; fluttist þvínæst al-
farið til Reykjavíkur og hefir síð-
an dvalið hjá sonum sínum hjer.
Þrátt fyi'ii’ háan aldxir og mikla
vinnxx um dagana, er Orxnur hinn
ernasti. Hinir mörgu vinir hans og
kunningjar senda honum í dag
hugheilar hamingjuóskir. Z.
Skógarmenn K.F.U.M. eru beðn-
ir að muna eftir að koma á árs-
hátíðina ld. 8 í kvöld.
Aflasölur. Snorri goði seldi í
Hull í gær, 2800 körfur fyrir 1425
sipd.. Þóróífur í Grimsby 3000
körfur fyrir 1182 stpd. og Ver
í Aberdeen um 2000 köi’fur fyrir
694 stpd.
Heimdallur. f kvöld heldur
Heimdallur nýársfagnað að Café
Vífil. Skemtanir fjelagsins hafa
jafnan þótt. mjög góðar og verið
fjölsóttar, og þess einnig vænst
að svo verði nú. Þess skal getið,
að borgarstjóri Jón Þorlákssson
mun tala á skemtuninni í kvöld.
Aðgöngxxmiðar kosta eins og að
undanförnu kr. 2.50, þar í inni-
falið kaffi.
Útvarpið í dag: 10,00 Veður-
fregnir. 12,15 Hádegisútvarp.
16,00 Veðxirfregnir. 19,05 Barna-
tími. (Frú Soffía Guðlaugsdótt-
ir). 19,30 Veðurfregnir. 19,40
Tilkynningar. Tónleikar. 20,00
Klukkusláttur. Frjettir. 20,30
Upplestur. (Einar H. Kvaran.)
21.00 Tónleikar. (Útvarpskvartett-
inn). Grammófónsöngur. (Come-
dian Harmonists). Danslög til kl.
24. —
Lnnbrot var framið aðfaranótt
fimtudags í Sápuhúsið í Austur-
stræti 17, og þar stolið 350 kr.
í peningum úr peningakassa. Öðru
var ekki stoilð þar. Brotist hafði
verið inn um glugga á bakhlið
hússins.
Áfengi fann tollgæslan í fyrra-
dag í norska skipinu Bro, 13 flösk-
ur af sterkum drykkjum. Áfengið
var eign bryta. Hann var í gær
dæmdur í 2400 króna sekt og 15
daga fangelsi; refsing svo þung
vegna þess, að brytinn hafði áður
orðið sekur um smygl og vínsölu.
Höfnin. Fisktökuskipið Fantoft
fór til Viðeyjar í fyrradag. Col-
umbia fór í gær til Keflavíltur til
að taka ísfisk. Enskur togari sem
hingað kom með Guðna Pálsson
nýlega, fór til Akraness í gær,
til þess að taka þar ísfisk úr róðri
Akui’nesinga í gær. Línuveiðarinn
Ölver fór til Vestfjarða í gær.
Skallagrímur kom af veiðum í
gær.
Grímudansleikur K. R. í kvöld.
Sjerstaklega hefir vei’ið vandað
til skreytingar á salnum að þessu
sinni. Er það nýtísku þýsk skreyt-
ing og liefir aldrei sjest hjer áð-
ur á dansleik, segir Erlendur Pjet-
ursson. Aðgöngumiðar eru seldir
frá kl. 1 í dag í K. R. húsinu.
Ms. Dronnig Alexandrine fór
frá Færeyjum á föstudagskvöld
kl. 6. Væntanleg hingað ef til
vill í kvöld.
Alþýðufræðsla safnaðanna. — í
kvöld, kl. 8y2 sýnir prentsm.stj.
Guðbjörn Guðmundsson skugga-
myndir í franska spítalanum. Allir
velkomnir. — Á morgun verður
barnaguðsþjónusta haldin í
franska spítalanUm, kl. 3. Öll börn
velkomin.
Trúlofun sína hafa nýlega opin-
berað ungfrú Anna Jónsdóttir, og
Ölafur Jónsson, starfsmaður í
Landsbankanum.
Þýska herskipið, sem talað var
um í skeytum að væri á leið hing-
að, var væntanlegt hingað í nótt.
Sex bankamenn í Berlín voru
teknir fastir í fyrradag, fyrir að
brjóta gjaldeyrislögin, og mun
rannsókn í máli þeirra hefjast,
í dag. (FÚ).
Rruni. í borginni Pau í Suður-
Frakklandi brann vöruhús í fyrra
dag til kaldra kola, og er skaðinn
metinn því sem nemur um tvær
miljónir króna. (FÚ).
Slys. í Austur-Tjekkóslóvakíu
varð strætisbifreið undir járn-
brautarlest og Ijetust þrír menn,
sem í bifreiðinni sátu, en fjórir
særðust hættulega. (FÚ).
Geysimiklir jarðskjálftakippir
komxx í fyrradag í Þessalíu á
Grikklandi og gerðu mikinn
skaða. Fólk varð mjög felmtrað
við og fliiði úr hxxsum og hefir
síðan hafst. við út.i á víðavangi.
(F. Ú. 6. jan.)
„The lame ducks".
Hinn 5. desember kom þingið í
Bandaríkjunum saman til seinustu
fundarhalda, áður en hið nýkosna
þing tekur við. Þessi fundarhöld
kalla Ameríkumenn „the lame
ducks session“, og með „lame
dueks“ (haltar andir) eiga þeir
við þá þingmenn, sem ekki hafa
náð því að vera endurkosnir, en
þeir voru nú 144 í þjóðþinginu
iOg 14 í öldungadeildinni.
Það var merkilegt við þennan
fund, að andbanningar komu fram
með frumvarp um það að afnema
bannið. Með frumvarpinu voru
greidd 273 atkvæði en 144 á móti.
Huglýsingadagbók
MATUR OG DRYKKUR.
Fast fæði, einstakar mált íðir„.
Jcaffi, öl, gosdrykkir með lægsta
verði í Café Svanurinn. (Hornið
við Barónsstíg óg Grettisgötu.
Munið, að jeg nota eingöngu
íslenskt smjör í smákökurnar. —
Formkökur, tertur, ..Kammerjunk-
er“ (smákökur.), daglega bakaðar.
Vanti yður kökur þá hringið £
síma 2475. Sent heim. Sunnudaga-
og kvöldsala. Heimabakarí Ástui
Zebitzí, Öldugötu 40, þriðju hæð.
Hallo! Glæný ýsa og stútungur..
Sími. 4933. Fisksala Halldórs Sig-
urðssonár.
SkfðafO!
fyrir konnr
og karla.
Vðnihúslð.
Besta þorskalvsið
f bænnm
‘ii8 þiS í undirritaSri veralxm. Si-
vazandi sala sannar gæðin.
B jfirnínn,
Bergstaðastræti 35. Sími 4091.
Kolasalan s.f.
Ungfrú Sirrí segir að RÓSÓL.
tannkrem sje það besta sem húu
hafi reynt, enda beri tennxxr sínar
þess ljósasta vottinn.
Þeir senx einu sinni hafa reynt
Rósól tannkrem, nota aldrei annað..
Hf. Efnagerð Reykjavfkur
kemisk teknisk verksmiðja.
Skorti því ekki neína nokkur at-
kvæði til þess að frumvarpið fengi
% atkvæða, en þá hefði það orðið
að lögum, og þykir það mjög
merkilegt, því að í þessu þingi
hafa mjög fáir áður verið þvi
fylgjandi að afnema bannið. En
það er vitað um hið nýkosna þing,
að þar hafa andbanningar stór-
kostlegan meiri hluta.