Morgunblaðið - 21.01.1933, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 21.01.1933, Qupperneq 3
.JM O « G U N B L A Ð Ð i JRorgttttWaM^ !; ÚtKef.: H.f. Árvakur, Reykjavfk. Rltatjörar: Jön Kjartanason. Valtýr Stefánsaon. Ritstjörn og afgreiCala: Austurstræti 8. — Simi 1000. ▲uglýsingastjörl: E. Hafber*. Auglýaingaskrlfstofa: Austurstræti 17. — Simi 3700 Helaaaslmar: Jön Kjartansson nr. 3742. Valtýr Stefánsson nr. 4220. E. Hafberg nr. 3770. Áakrlftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuBl, Utanlands kr. 2.60 á mánuBl. 1 lausasölu 10 aura eintaklB. 20 aura meB Leabök. Uinöhanar. Alvöruleysi. op- lirinprlandahátt- ’JJ’ sósíalista í bæjarstjórn fer sí- vaxandi. Ei- engu líkara en þeir tiafi ekkert áhug-amál sem þeir "bei'jist fyrir málefnisins veg'na, 'heldur miðist framkoma þeirra, tal og starf við það eitt, að vera í sífeldri andstöðu við Sjálfstæð- ismenn. Sjaldan hefir þetta háttalag 'komið eins vel í ljós eins og á 'bæjarstjórnarfundi f fyrradag. Undanfarin ár hafa sósíalistar lialdið hverja ræðuna á fætur ann- ari um innheimtu bæjargjalda, og talið henni vera mjög ábótavant. Reynslan hefir sýnt. að þarna liafa 'þeir haft nokkuð til síns máls. En hvað skeður þegar gerðar eru ráð- ■stafanir til að bæta innheinituna, T>á snúast sósíalistar þverir við og’ telja slíkt óhæfu. Meðmæltir hafa sósialistar verið hyggingu geymsluhúss við höfn- ina. i’alið það atvinnubót. A síð- asta fundi töldu þeir bygginguna •oþarfa og ótæka. Bátahöfu þeirri, sem Sjálfstæðis- -menn beita sjer fyrir, treysta sósí- alistar sjer ekki að andæfa. En til þess að „vera á móti“ þar sem annars staðar heimtuðu þeir, að hafnargerð sú vrði samþykt, áður en hafnarstjórn samþykti og að óathuguðu máli. I’etta átti að sýna áhuga þeirra fyrir málinu(!) Þeir, sósíalistar, þykjast hafa barist fyrir að togarar yrðu tekn- ir á leigu hingað um vertíðina. En þegar borgarstjóri skýrði frá, að hann hefði jiegar byrjað að leita fyrir sjer nm það, hvort leigntogarar fengjust hingað til bæjarins, urðu sósíalistar óðir og Siþpvægir yfir því, að borgarstjóri •skyldi leyfa sjer, að garfa í slíku 711011, án þess að láta sósíalista vita (!) Víldu þeir helst ónýta alt sem gert, liafði verið fyrir þetta mál, sem þeir hingað til hafa talist liafa áhuga fyrir. Sigurður Jónasson kvartaði yfir því í Aiþýðublaðinu um daginn, að „hugsun væri érfið“, og „erfitt að framkvæma hlutina eftir rjettri Jiugsun* ‘. Þeir virðast eiga sammerkt í því sósíalistar í bæjarstjórn, að rjett hugsun sje þeim ákaflega erfið, og þess vegna snarsnúast þeir svona einsog talandi vind- lianar eftir því sem á þá er and- að í }iað og ]iað skiftið. Aðaldansleikur Stýrimannaskól- ans verður haldinn í Tðnó í ltvöld; vei'ða þar eldri og yngri nemend- -íir skólans. Samþyktar tillögur í sambandi við fjár- hagsáætlun bæjarins. A bæjarstjórnarfundi voru sam- þyktar ýmsar breytingartillögur ví ð f j árhagsájætTunarfrumvavrpið. Skal hjer getið nokkurra. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks ins báru fram tillögu um að kostn- aður við bæjarráð lækkaði úr 12 þúsund í 6 þúsund krónur. Ætl- ast þeir til að bæjarráðsmenn hafi framvegis 100 króna laun á mán- uði. Samþykt með 8 gegn 6 at- kvæðum. Voru sósíalistar því mjög andvígir að þessi laun yrðu lækk- uð. — Til nýrra gatna, lögðu Sjálf- stæðismenn til að ætlað væri 50 þúsund króna, en í frumvarpi fjárhagsáætlunar var ekkert ætl- að til nýrra gatna. Er ætlast, til þess, að atvinnu- bótavinna verði notuð í götugerð. En vegna þess að sumt af slíkri vinnu vinnst best, að sumrinu til, þegar búast má við að einna minst verði um atvinnubótavinnuna, þá er þessi upphæð sett á fjárhags- áætlunina -— og var hún samþykt með samhljóða atkvæðum. Tillagið til Gagnfræðaskóla líeykvíkinga lögðu Sjálfstæðis- menn til að lækkað yrði um 3 þús. kr. í 17 þús. úr 20 þús. og var það samþykt. Styrkur til fþróttavall- arins hækkaður úr 3 þús. í 5 þús. samþ. Stvrkurinn 30 þús. kr. iil Sjúkra samlags Reykjavíkur var samkv. till. Sjálfstæðismanna ákveðinn þannig: Samltv. nánari ákvörðun alt að 30 þús. kr. Dýrtíðaruppbótin. Fvrir bæjar- stjórnarfundinum lágu 3 tillögur um dýrtíðaruppbót handa starfs- raönnum bæjarins fyrir yfirstand- andi ár. Frá Sjálfstæðisfl. var til- lagan; að dýrtíðaruppbótin yrði 40%, af fyrstu 3000 kr. launa og 20% af því sem þar er umfram. Framsóknarflokkurinn vildi að dýrtíðaruppbótin yrði óbreytt (40%) af 3500 króna stofnlaunum. En tillaga sósíalista var að dyr- tíðaruppbótin hjeldist óbreytt af iillum lanunum. Á fundinum tóku sósíalistar til- lögu sína aftur, en tjáðu sig fylgj- andi tilögu Framsóknar, að því tilskyldu, að dýrtíðaruppbót lijeld- ist óbreytt til þeirra er hefðu kr. 3500.00 í byrjunarlaun. En Jón Ólafsson tók upp tillögu sósíalista um óbreytta dýrtíðarupp bót 40%, og var .sú tillaga sam- þykt. Mjólkurgjafir skólabarna. Svohljóðandi tillaga var samþ. með 0. atkv. gegn 6 frá Aðalbj. Sigurðardóttur, Ólafi Friðriksson og Herm. Jónassyni.: Að bærinn gangist fyrir því, og sjái um að börn í barnaskólum bæjarins geti fengið mjólk keypta í skólunum. Annist bærinn inn- heimtu mjólkurverðsins lijá for- eldrum og forráðamönnum barn- anna og gangi í ábyrgð fyriv því fje, sem ekki fæst greitt. Leggj- um við til, að á fjárhagsáætlun sjeu 9000 kr. ætlaðar til þessa á yfirstandandi ári. Ennfremur var þessi till. frú Aðalbj. Sigurðard. samþ.: Að barnalieimilinu „Sólheimar“ sje veittur 2500 kr. styrkur á fjár- hagsáætlun þessa árs gegn þeim skilyrðum, er bæjarráð setur að fengnum tillögum barnaverndar- nefndar. Til lögreglunnar. Samþ. var til- laga frá Sjálfstæðismönnum um að bæta við á fjárhagsáætlun bæjar- ins nýjum lið, 42 þús. kr. til auk- innar löggæslu. Á fjárhagsáætlun liafnarinnar er og gert ráð fyrir 27 þús. kr. framlagi liafnarsjóðs ti! löggæslunnar. Samþ. var tillaga frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins um að at- vinnubótafje megi eins verja til atvinnubóta fyrir konur, sem karla. ‘Sagði Jak. Möller, að í ráun og veru hefði svo verið frá upphafi, en til þess að taka af allan vafa í þessu efni væri til- lagan borin fram. Ennfremur var samþ. samhlj. tillaga frá borgarstjóra þess efnis að bæjarsjóður mætti á árinu með samþ. bæjararáðs taka 500 þús. kr. lán. Hefir slík lánsheimild verið und- anfarin ár, til þess ætluð, að bæj- arsjóður geti staðist nauðsynl. út- gjöld framan af ári, áður en út- svör fara að koma inn. Tillaga um ráðstafanir til aukn- ingar á útgerð í bænum á komandi vertíð. Svohljóðandi tillögu bar Jón Þorláksson borgarstjóri fram á síðasta bæjarstjórnarfundi, og var bún samþykt: „Bæjarstjórnin felur borgarstjóra og bæjarráði að halda áfram til- raunum til þess að útvega togara á Jeigu til útgerðar hjeðan úr bænum á næstu vertíð svo og að íhnga og- koma fram með uppá- stungur um aðrar leiðir til aukn- ingar á, útgerð í bænum eftir því sem mögulegt er“. Ýmislegt bar á góma í umræð- um um tillögu þessa, sem vert var að veita athygli og verður vikið að því í næsta blaði. Togarastrandið ð Sljettu. Raufarhöfn í gær. Enski togarinn ,,St. Honorius“ strandaði ekki á Bifstanga, eins og fyrst, frjettist. heldur á Ás- mundarstaðaeyri, örskamt frá tog- aranum, sem strandaði þar um daginn. Veður var gott og ekki mikið brim en menn liafa allir yfirgefið skipið og komnir lieilu og höldnu í land. Togarinn mun vera eitt- hvað brotinn, því að hann er nú fullur af sjó. Þó á að reyna að bjarga honum. Var skeyti sent til Öðins, sem var við Tngólfshöfða. Brá hann þegar við og er á leið hingað. Togarinn var að koma frá Eng- landi og befir innanborðs á þriðja liundrað smálesta af kolum. Inflúensan í Englandi. London, 20 janúar. United Press. FB. Samkvæmt skýrslum heilbrigðis- málaskrifstofunnar voru dauðsföll 1 Bretlandi vikuna sem leið af völdum inflúensu 1041. (Vikurn- ar á nndan 681—303—120—88). r- % Bókafregn. Guðm. Pinnbogason Samlíf — Þjóðlíf. — Reykjavík 1932. Bók þessari er skift í 6 kafla, er heita: Múgur, Hugsun múgsins, Fjelagslíf, Þjóðfjelagið, Foringjar, Þjóðarandinn. Bókin hefði orðið betri , ef liún liefði aðeins verið um ,,múg“, hugsun hans og athug- anir. Þá hefði verið unt að segja frá mörgum kynlegum dæmum, og láta þau að mestu skýra málið. Bókin hefði orðið skemtilegri og auðsfeildari fyrir allan almenning, sem sjaldnast vill hafafyrir því að hugsa um heimspekileg efni. Á þessum funda og samhlaupstím- um er gott að vita það, hver hætta manni er búin við það að lenda í múg, að jafnvel skynsamir menn geta orðið að heimskingjum eða fávitum og það út úr litlu efni, að hvers konar æsing og geðs- hræring getur farið eins og eldur í sinu gegnum mannfjöldann. Höf. telur, að þetta stafi einkum af liermihneigð. Jeg efast um það. Sjái jeg t. d. skelfingu á manni í manngrúanum, dettur mjer ekki í liug að herma hana eftir. Jeg verð blátt áfram hræddur, held að ein- hver ósköp sjeu á ferðinni, og liræðslan veldur því aftur, að sama ofboðið kemur á mig og hinn manninn. En það þarf ekki ,,múg“ til þess að mennirnir verði heimskari, er þeir koma saman, heldur en þeir eru hver fyrir sig. Sögðu ekki Rómverjar um þing sitt: „Þing- mennirnir eru góðir hver fyrir sig, en þingið er þó bannsett villi- dýr“. Oþarft. virðist mjer að skýra áhrif múgsins með fjarhrifum, eða þannig að einstaklingarnir í múgn- um renni saman í eina skepnu með sinni múgsál. Ekki þykir mjer heldur sú skoðun Fechners sennileg, að stjörnur eða. atheim- urinn sjeu lifandi heildarverur. Allar lifandi verur fæðast af ein- hverju og gefa frá sjer úrgangs- efni. en hvaðan skyldi alheimur- inn sækja fæðu sína, eða hvert skyldi hann ganga erinda sinna? f kaflanum ,.Foringjar“ hefði mátt minnast á það, að foringjar spretta einkum upp hjá illa ment- uðum lýð, (Rússar, Tyrkir, Ind- verjar o. s. frv.) 1 löndunum, sem hafa mikla skólamentun eiga þeir erfitt uppdráttar, því allir þykj- ast vita alt, og vilja þar flestir vera foringjar. Margt er vel sagt í kveri þessu og nokkuð munu flestir geta af því lært. G. H. Ofviðri hjá Finnlandi. Oslo, 20. janúar. Ofsaveður hefir gengið við Finnmerkurströnd undanfarna tvo sólarhringa. Hafrannsóknaskipinu Pei'sens, sem var á leið til Sval- barða, hlektist á í hafi, og varð það að snúa aftur til Murmansk. (FTT.). Gullið afhent Bretum aftur. Hverfa þeir að gullinnlausn ? Oslo, 20. janúar. Federal Reserve bankinn í Ney? ú ork hefir, að því er upplýst er í nýútkominni skýrslu, selt Eng- landsbanka aftur nokkurn hluta af gulli því sem Englendingar greiddu til Bandaríkjanna 15. des. síðastliðinn. Er þessi upphæð talin nema rúmum 25 miljónum dollíya. Þessi ráðstöfun hefir vakið all- milda eftirtekt í Wall street. — (FÚ.). Tehir blaðið Journal & Cö'm- merce, að þetta muni alment verða skilið svo, að Bretar búist til þess að hverfa að gullinnlausn á ný, þótt það verði þó sennilega efeki fvr en ófriðarskuldamálið er til lvkta leitt. (TJnited Press. FB.). Þýska þinginu frestað. Berlin. 20 janúar. Öldungaráð þýska í'ikisþingsins ákvað á fundi sínum í dag að fresta fundum þingsins til 31. jan. Ríkisstjórnin lýsir því yfir í sam- bandi við þetta að hún muni ekhi setja sig á móti þessari fresSún enda þótt hún sje yfirleitt mótfall- in því að störfum þingsins vcrði frestað því að nú ríði það á megtu að þingið geti ákveðið hvort þáð ætlar sjer að liafa samvinnu við stjórnina framvegis eða ekki. — Stjórnin kveður þó að fjárlaga- frumvarpið fyrir 1933 muni ekhi geta komið fyrir þingið á þessum fundi. (FÚ.). ■! Ökumannaverkfall í London.‘ Lady Bailey fundin. London, 20. janúar. Flugkonan Lády Bailey er nú fiaidin. Hún var lasin af inflúensu þegar hún lagði af stað frá Oran, og var allmikið veik þegar leit- armennirnir fundu hana- (FÚ.). London, 20. janúar. t A'innustöðvun stendur nú yfir lijá nokkrum strætisvagnafjelög- um í London. Fjórar þúsundir strætisvagnastarfsmanna liafa lagt niður vinnu, og sjö hundruð vagn- ar eru nú ekki í gangi. Þéssi stöðvun kemur niður á 43 leiðúm, sem vagnarnir ganga um. og era snmar þeirra, i miðri Lundúnaborjg, svo að ýmsar götur þar eru alger- lega strætisvagnalausar. í morghn þurftu margir verkamenn að fíra fótgangandi langar leiðir til þessj aðná í vagna á þeim leiðum s?m vinnustöðvunin nær ekki til. Orl sök vinnustöðvunarinnar er að strætisvagnafjelögin höfðu :áf kveðið nýja stundaskrá, gfSnjr starfsmennirnir vildu ekki að. (FÚ.). ■á, n gsiffga '- G rænl andsdeilan. 4 l \ * i I I I » j j I dt 4 Oslo, 20. janúar. Prófessor de Visscher hjelt fram ræðu sinni í Haag í dajj og sagði hann meðal annars áí það hefði Ijóslega komið fr^.m, eftir dönsku yfirlýsinguna TÖ21, að flestar þjóðir hefðu þá viðfir- kent umráðarjett Dana vfir «13u Grænlandi, en þáverandi norslftir utanrikisráðlierra, Ihlen, he®!i einnig' viðurkent það. Það skífta minna máli hvernig Danir liefða fengið þenna umráðarjett upp- runalega, en hitt, að þessi rjettur hefði verið, og væri, alment við- urkendur. (FÚ.). -----~~-------- .r i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.